Fréttablaðið - 01.10.2005, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 01.10.2005, Blaðsíða 52
> Við furðum okkur á ... ... af hverju Blikar vilja breyta siguruppskrift sinni frá því í sumar og ráða ekki aftur Úlfar Hinriksson sem þjálfara meistara- flokks kvenna. Úlfar gerði liðið að tvöföldum meist- urum á sínu fyrsta ári en Blikar höfðu þá ekki unnið stóran titil í heil fjögur ár sem þykir mikið í mekka kvennafótboltans í Kópavogi. Heyrst hefur ... ... að knattspyrnudómarar landsins ætli að sniðganga lokahóf KSÍ sem fram fer á Broadway í kvöld. Dómararnir voru mjög óánægðir með hófið í fyrra og þá sérstak- lega með þau sæti sem þeim var úthlut- að og ætla því í staðinn að hittast annarsstaðar og gera upp tímabilið. Ekki er vitað hver mun þó stíga upp á svið og taka við verðlaunum sem besti dómari ársins. sport@frettabladid.is 36 > Við hrósum ... .... Eyjólfi Sverrissyni, þjálfara undir 21 árs landsliðsins, fyrir að gefa ungum strákum tækifæri í lokaleik liðsins gegn Svíum. Bjarni Viðarson, Theodór Elmar Bjarnason og Rúrik Gíslason verða allir með enda allt framtíðarmenn íslenska A-landsliðsins. Marel Baldvinsson, knattspyrnuma›ur hjá Lokeren, er á heimlei› eftir rúm fimm ár í atvinnumennsku. Marel hefur átt vi› erfi› mei›sli á hné a› strí›a. Marel á leiðinni heim FÓTBOLTI „Ég hef náð samkomulagi um starfslokasamning við stjórn- endur Lokeren í meginatriðum. Hins vegar eigum við eftir að ljúka ákveðnum þáttum í því ferli en ég vonast til að geta klárað það í næstu viku og komið heim í kjöl- farið,“ sagði Marel Jóhann sem er einn fjögurra Íslendinga á mála hjá Lokeren. Belgíska úrvals- deildarliðið Moeskroen reyndi að fá Marel til liðs við sig fyrir lok félagaskiptagluggans í byrjun mánaðarins en Marel sagði ekki vilja fara í nýtt lið meiddur og vildi heldur hefja nýtt líf í boltan- um heima á Íslandi. Marel er 24 ára gamall fram- herji alinn upp í Breiðablik. Hann var seldur til norska liðsins Sta- bæk árið 2000 fyrir 30 milljónir. Eftir gott tímabil með Stabæk árið 2001 spurðist fjöldi liða um leikmanninn sem var þó ekki seld- ur frá Stabæk til Lokeren fyrr en í janúarmánuði árið 2003. Hann var fastamaður á vinstri kanti í liði Lokeren sem varð í þriðja sæti í deildinni vorið 2003. Árið eftir lék hann 27 leiki fyrir liðið sem þá lenti í 11. sæti. Á þessari leiktíð hefur hann ekkert getað leikið vegna brjóskeyðingar á hné en er á hröðum batavegi og að verða klár í slaginn. Marel hef- ur leikið 14 landsleiki fyrir Ís- lands hönd. „Ég hlakka mikið til að koma heim. Ég held að líkaminn á mér fari létt með að leika í nokkur ár til viðbótar heima á Íslandi því það er álagið hérna sem veldur því að þetta er ekki að ganga upp. Þegar heim er komið ætla ég að skoða mín mál. Vissulega hefur Breiðablik verið nefnt en það er ekkert ákveðið.“ hjorvar@frettabladid.is Úlfar Hinriksson, annar tveggja þjálfara Íslands- og bikarmeistara Breiðabliks í knattspyrnu kvenna, er hættur að þjálfa liðið en Úlfar sendi frá sér yfirlýsingu þess efnis í gær. Úlfar var einnig yfir- þjálfari yngri flokka hjá Breiðabliki en árangur þeirra var afar glæsilegur á Ís- landsmótunum í sumar. Karl Brynjólfsson, formaður meistara- flokksráðs kvenna hjá Breiðabliki, var afar óánægður með þessa ákvörðun Úlfars. „Þessi ákvörðun hans kom mér algjörlega í opna skjöldu. Ég hef verið í sambandi við hann síðustu daga og ég bjóst alls ekki við því að þetta væri í gangi. Við höf- um ekki rætt við neinn þjálfara og höfðum ekki hugsað okkur að gera það á næstunni. Úlfar hefur skilað frábæru starfi hjá Breiðabliki og þess vegna harma ég þessa ákvörðun hans mikið.“ Stutt er síðan Úlfar skrifaði undir nýjan samning við Breiða- blik sem yfirþjálfari yngri flokka fé- lagsins en svo virðist sem hann sé einnig búinn að gefa þá stöðu frá sér. Það þótti mörgum undarlegt að ekki hafi verið búið að ganga frá samning- um við Úlfar Hinriksson þar sem árang- ur hans í sumar var afar glæsilegur, en hann hefur starfað sem þjálfari yngri flokka hjá Breiðabliki síðan árið 1995. „Meistaraflokksráð hefur einfaldlega ekki haft tíma til þess að ganga frá þessum málum. Við erum í þessu í sjálfboðavinnu og þess vegna er stund- um erfitt að ganga frá samningum og leikmannamálum. En eins og ég segi kom þessi ákvörðun Úlfars mér gjör- samlega í opna skjöldu og ég harma hana mjög.“ Ekki náðist í Úlfar Hinriksson í gær þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. ÚLFAR HINRIKSSON: HÆTTUR AÐ ÞJÁLFA ÍSLANDS- OG BIKARMEISTARA BREIÐABLIKS Kom formanninum algjörlega í opna skjöldu 1. október 2005 LAUGARDAGUR Breytingar hjá íslenska U-21 árs landsliðinu: FÓTBOLTI Eyjólfur Gjafar Sverris- son, þjálfari U-21 árs liðs Íslands, hefur ákveðið að gefa þremur unglingum tækifæri í landsleik gegn Svíum í undankeppni Evr- ópukeppninnar árið 2006 þann 11. október nk. Það eru þeir Bjarni Viðarson, 17 ára leikmaður Everton; Theo- dór Elmar Bjarnason, 18 ára leik- maður Celtic, og Rúrik Gíslason, 17 ára leikmaður Charlton. Eyjólfur Gjafar á enn eftir að til- kynna allan hópinn. Fréttablaðið hafði samband við Rúrik Gíslason, leikmann Charlton, sem var hæstánægður með að vera valinn. „Ég hef stefnt að þessu í þó nokkurn tíma,“ sagði Rúrik. Aðspurður hvernig honum líkaði lífið í Lund- únaborg: „Mér líður bara mjög vel, mik- ið betur en til dæmis hjá Ander- lecht þar sem ég var í fyrra. Ég kann mjög vel við mig í Englandi, hér snýst hreinlega allt um fót- bolta,“ sagði Rúrik sem lék með HK í 1. deildinni í sumar áður. - hjö Táningarnir fá tækifæri THEODÓR ELMAR BJARNASON Fær loksins tækifæri hjá Eyjólfi Gjafari. Á LEIÐ HEIM Marel er á leið heim og orðaður sterklega við Breiðablik. Eyjamenn gera breytingar á skútunni eftir aðeins þrjá leiki í DHL-deildinni: Erlingur hættir sem fljálfari ÍBV FÓTBOLTI „Ég er ekki að hoppa frá skútunni heldur þvert á móti að berjast enn frekar fyrir merki ÍBV með því að láta til mín taka inni á vellinum í stað þess að standa á hliðarlínunni,“ sagði Erlingur Richardsson, þjálfari ÍBV, í samtali við Fréttablaðið en hann hefur ákveðið að hætta sem þjálfari Eyjaliðsins en snúa sér að því að spila með liðinu í staðinn. Aðstoðarmaður hans, Kristinn Guðmundsson, tekur við sem að- alþjálfari en þeir hafa unnið náið saman og því verða engar breyt- ingar á leikskipulagi eða æfingum liðsins. Eyjamenn töpuðu tveimur fyrstum leikjunum á leiktíðinni afar illa gegn HK og ÍR en sigr- uðu Víking/Fjölni í síðustu um- ferð. Eini leikmaðurinn sem eftir er úr byrjunarliði síðasta vetrar, línumaðurinn Svavar Vignisson, hefur hins vegar verið meiddur og ekkert spilað. „Við gerum þetta allt mark- vissara með þessum hætti og allir hafa sitt hlutverk á hreinu. Ég mun aðallega spila í vörninni til að byrja með og fikra mig áfram í sóknarleiknum. Ég lagði þetta fyrst til fyrir mánuði síðan að gera þetta svona þegar ég sá hvert stefndi. En við ákváðum að sjá aðeins til en þar sem Svavar hefur ekkert verið með í fyrstu leikjunum var kýlt á þetta núna,“ segir Erlingur. ÍBV fékk fjóra nýja útlenda leikmenn fyrir leiktíðina en þeir hafa ekki staðið undir vænting- um. Erlingur segir að þeir séu all- ir að koma til og ekki standi til að segja upp samningum við þá. „Það tekur því ekki að fá nýja útlend- inga því þá þyrftum við að byrja allt upp á nýtt.“ - þg HÆTTIR SEM ÞJÁLFARI Erlingur Richards- son ætlar að snúa sér alfarið að því að spila með Eyjaliðinu í vetur. SHAQ Verður í beinni í allan vetur ásamt félögunum sínum í Miami Heat. NBA TV á Digital Íslandi: Yfir 270 leikir í beinni í vetur KÖRFUBOLTI Útsendingar á NBA TV hefjast á Digital Ísland laugar- daginn 15. október. Þetta eru miklar fréttir fyrir alla áhuga- menn um körfubolta því í NBA eru saman komnir bestu körfuknattleiksmenn í heimi. NBA TV sýnir hundruð leikja í beinni útsendingu auk fjölda þátta um NBA körfuboltann. Ráðgert er sýna frá 170 leikjum á komandi keppnistímabili en deildin hefst í byrjun nóvember. Til viðbótar verða sýndir tæplega 100 leikir frá úrslitakeppninni auk leikja í kvennadeildinni, WNBA, sem er nýlokið en aldrei áður hefur verið sýnt frá kvennadeildinni hér á landi en hún nýtur sífellt meiri vinsælda í Bandaríkjunum. Körfuboltaáhugamenn munu því upplifa mikil tímamót um miðjan mánuðinn þegar stöðin opnar á Digital Íslandi en stöðin sínir besta körfubolta í heimi allan sólarhringinn. Sýn verður þó áfram með sínar vanabundnu útsendingar frá bestu leikjum NBA-deildarinnar og er NBA TV því viðbót við þann góða sjónvarpspakka. ■ ■ LEIKIR  14.00 Grindavík og Stjarnan mætast í íþróttahúsinum í Grindavík í Reykjanesmótinu í körfubolta karla.  14.00 ÍR og Selfoss mætast í Austurbergi. DHL-deild karla.  16.15 Fram og Fylkir eigast við í Safamýrinni. DHL-deild karla.  16.15 Afturelding og Þór mætast að Varmá í Mosfellsbæ. DHL-deild karla.  16.15 Víkingur/Fjölnir og KA eigast við í Fjölnishúsinu í Grafarvogi. DHL-deild karla.  14.00 Víkingur og FH eigast við í Víkinni. DHL-deild kvenna.  14.00 Stjarnan og ÍBV mætast í Ásgarði. DHL-deild kvenna.  14.15 Fram og Grótta eigast við í Safamýrinni. DHL-deild kvenna.  16.15 Valur og KA/Þór mætast í Laugardalshöll. DHL-deild kvenna. ■ ■ SJÓNVARP  14.00 Enska úrvalsdeildin á Enska boltanum. Leikur Tottenham og Charlton í beinni útsendingu. Hægt er að fylgjast með gangi mála í öðrum leikjum í ensku úrvals- deildinni á aukarásum Enska boltans.  15.50 Meistaradeild Evrópu í handbolta á Sýn. Leikur Hauka og Århus GF í beinni útsendingu.  16.05 Íslandsmótið í handbolta á RÚV.  19.50 Spænski boltinn á Sýn.  22.00 Meistaradeild Evrópu í handbolta á Sýn.  23.15 Hnefaleikar á Sýn. Erik Morales og Zahir Raheem mætast í hringnum.  01.00 Hnefaleikar Antonio Tarver og Roy Jones Jr. mætast í hringnum. HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 28 29 30 1 2 3 4 Laugardagur OKTÓBER
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.