Fréttablaðið - 01.10.2005, Side 72
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Ískaldur
Léttur öllari ROYAL
Nýr konunglegur!
Tölvupóstur
Njótum þess að
kúra aðeins lengur
Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 20:00 | www.IKEA.is
Breyttur afgreiðslutími
50 02 .V .B s
met sy S
AEKI re tn I
©
290,-
Barnamáltíð
Sænskar kjötbollur (5 stk.),
kartöflur, sósa og safi.
690,-
590,-
sængurverasett
TANJA BLOMMING
MYLONI borðlampi
ýmsir litir
990,-
INDIRA rúmteppi
150x250 sm
2.990,-
MYSA STJÄRNA sæng
150x200 sm
990,-
GOSA DÅSA koddi
50x60 sm
Ø50x66 sm17.900,-
NORESUND rúmgrind
167x210 sm 1.990,-
NORESUND borð
FELICIA púðaver
150x210 / 2x50x60 sm
12x31 sm
50x50 sm
22x25 sm
140x300 sm
LENDA gardínur
með böndum
2.990,-
DEKAD
vekjaraklukka 490,-
KLYKA
ýmsir litir
veggljós
590,-
990,-
Ef ég hefði eitthvað mórautt í poka-horninu er vel hugsanlegt að ég
myndi skrifa það í tölvupóst. Líka er
hugsanlegt að ég myndi gaspra því út
úr mér einhvern tímann á öldurhúsi
eða í hálfkæringi á kaffihúsi, eða
segja góðum vini mínum frá því, sem
síðar yrði óvinur minn, eða einfald-
lega lýsa því yfir á stórum fundi, hver
veit, eða skrifa um það síðbúnar játn-
ingar á spássíu í dagbók á öldrunar-
heimili þegar ég lít til baka.
ÞAÐ þarf ekki tölvupóst til að sann-
leikurinn komi í ljós. Ónefndur maður
í Þýskalandi í eina tíð, formaður í
stórum stjórnmálaflokki – maður sem
gerði marga reiða – er sagður aldrei
hafa skrifað bréf á meðan hann réði
ríkjum. Samt þurfti nú engar slíkar
bréflegar sannanir um aðild hans að
glæpum gegn mannkyninu þegar á
hólminn var komið. Eftir að hafa lagt
Evrópu í rúst og byrlað sjálfum sér
eitur neðanjarðar er vandséð hverju
það hefði breytt fyrir hann og aðra
hvort hann hefði einhvern tímann
skrifað bréf um verknaði sína eða
ekki.
ÞETTA er auðvitað dálítið öfgafullt
dæmi og ekki ætlunin að gera því
skóna að nokkur maður á Íslandi hafi
álíka mikið mórautt í sínu pokahorni
og þessi tiltekni maður, enda ólíklegt
að einhver eigi nokkurn tímann eftir
að bæta hans mórauða pokahornsmet.
Punkturinn er bara þessi: Um þessar
mundir er hafin í þjóðfélaginu týpískt
íslenskt lagakarp, í anda Njálu og ann-
arra Íslendingasagna, um aukaatriði.
Allir eru allt í einu orðnir sérfræðing-
ar í persónurétti. Deilt er um hvort
birta megi tölvupósta eða ekki með
upplýsingum sem varða stórt deilumál
í þjóðfélaginu.
ÞESSIR tölvupóstar eru sagðir einka-
bréf, og er út af fyrir sig fáránlegt að
ætla annað svosem. Ekki voru þeir
dreifibréf. Efni þeirra var semsagt
leyndó. Samt varðaði það opinbert
mál. Og það er oft með svokölluð
skúbb í blöðum að þau varða hliðar á
opinberum málum sem sumir telja
leyndó.
EN punkturinn er semsagt þessi:
Bréf eða ekki bréf. Skiptir ekki máli.
Upplýsingahraðbrautin er flókið vega-
kerfi. Sumt berst frá munni í eyra.
Annað með tölvupósti. Sumt finnst rit-
að á spássíur. Sumt er prentað í bók-
um. Sumt er öllum augljóst. Upplýs-
ingar finna sínar leiðir. Stundum leka
þær. Stundum fara þær um eins og
fiskisaga. En það breytir ekki því að
grundvallarreglan er sú að menn eiga
helst ekki, og bara alls ekki, að standa
í pukri þegar opinber mál eru annars
vegar. Þá er hætt við að þjóðfélagið
stjórnist af leynimakki, sem er ekki
gott. Blöð eru góð þegar þau afhjúpa
leynimakk.
EN HITT, hvort menn hanga til dæm-
is í leðurólum heima hjá sér í krókum
úr loftinu fyrir ofan rúmið sitt í eld-
heitum ástarleikjum, með beggja (eða
allra, ef svo ber undir) samþykki, er
aftur eitthvað sem kemur engum við.
BAKÞANKAR
GUÐMUNDAR
STEINGRÍMSSONAR