Tíminn - 03.08.1975, Síða 1
TARPAULIN
RISSKEMMUR
Landvélarhf
HFHÖRÐUR GUNNARSSON
SKULAÍUNI 6 - SIMI (91)19460
174. tbl. — Sunnudagur3. ágúst 1975 — 59. árgangur
vi6,aö hiin væri meir en kvtítinn
segöi til um. Sjávariitvegsráðu-
neytið fór fram á umsögn Haf-
rannsóknastofnunar um að lengja
veiöileyfin i fimm daga, eða frá
23. til 28. júli. Hrafnkell taldi slikt
óþarfa, þar sem fimm daga veiði
gæti ekki skipt neinu máli og að
kvótinn væri sennilega þegar
fylltur.
Síðustu tölur sem Hafrann-
sóknastofnunin hefur frá humar-
veiðinni eru frá mánaðamótum
júní-júli og var hún þá orðin 1300
tonn. — Veiðin hefur einkennzt af
mjög lélegu tiðarfari, sérstaklega
I júni, sagði Hrafnkell, og var
aflamagnið miðað við togtima lé-
legra en áætlað var. — Ég hef þó
grunum að verulega hafi rætzt úr
þessu i júli með batnandi tiðar-
fari. Ég álit að við getum verið
bjartsýn á framtiðina varðandi
humarstofninn, sagði hann að
lokum.
Endanlegar tölur hafa ekki
borizt um humarveiði i ár, en
Hrafnkell sagðist jafnvel búast
Verzlunar-
mannahelgi
Um verzlunarmannahelgi
taka allir sig upp, sem vettl-
ingi geta valdið, og halda af
malbikinu á vit náttúrunnar,
eða á stórdansleiki hér og þar,
sem gjarnan eru haldnir um
þessa miklu ferðahelgi. Aðrir
kjdsa fremur að dvelja á frið-
sælum stöðum og þótt rigni
eru flestir svo vel út búnir að
það sakar ekki. Aðalatriðið er
að dvelja ekki heima um
verzlunarmannahelgina.
Tlmamynd. Gunnar.
KARL BRETAPRINS
KEMUR í DAG
Gsal-Reykjavfk—Karl Breta-
prins mun hefja veiðar I is-
lenzkri laxveiðiá I fyrramálið,
mánudagsmorgun, en prins-
inn kemur hingað til lands I
dag og er hann væntanlegur
með flugvél Flugleiða frá Lon-
don um klukkan þrjú. Breta-
prins mun aðeins hafa
skamma viðdvöl i Reykjavlk,
þvi siðari hluta dags mun
hann halda austur á land með
flugvél Vængja, sem flytur
hann til Vopnafjarðar, en
prinsinn hyggst stunda veiðar
i Hofsá fram á föstudag. Karl
Bretaprins og fylgdarmaður
hans, sem bauð honum i þessa
laxveiðiferð til tslands, munu
gista i veiðihúsinu við ána.
Heimsókn prinsins hingað
til lands er óopinber.
ENGIN ASTÆÐA
TIL AÐ ÓTTAST
UM HUMARINN
gébé Rvlk — Ég tel enga ástæðu
til að óttast um íslenzka humar-
stofninn og reikna með aukningu
á kvóta næsta ár, sagði Hrafnkell
Eirlksson fiskifræðingur hjá Haf-
rannsóknastofnun I gær. Sterkir
árgangar eru nú I uppvexti, og
1977 verður þó fyrst unnt að nýta
þá að marki, þvlenn ná þeir varla
lágmarksstærð. Humarveiðinni
lauká miðnætti s.l. mánudags, en
sjávarútvegsráðuneytið fram-
lengdi hana þótt Hafrannsókna-
stofnunin teldi slikt óþarft, þar eð
takast myndi að ná veiðikvótan-
um, sem var 2090 tonn eins og
siðastliðið ár.
• • Olvun við aksl ■ ■ V ur um-
talsvert vanda mól h lér
AAeðaltal 1,50 O próm iii
Gsal-Reykjavlk — A tlmabilinu
frá 1. september 1972 til 31.
ágúst 1973 voru rannsökuð sam-
tals 2130 blóðsýni er lögreglu-
yfirvöld sendu til ákvörðunar
vegna gruns um brot á um-
ferðarlögum, og voru blóðsýnin
rannsökuð I Rannsóknarstofu
Háskólans I lyfjafræði. Niður-
stöður þessara rannsóknar
benti til að magn alkóhóls I blóði
hefði að meðaltali verið um það
bil 1,50 prómill, en samkvæmt
gildandi umferðarlögum má
enginn neyta áfengis við akstur
vélknúins ökutækis ef magn
alkóhóls I blóði er á bilinu 0,50
prómill til 1,20 prómill. Þá kem-
ur fram I niðurstöðum þessarar
rannsóknar, að einungis I 11%
áðurnefndra blóðsýna var alkó-
hólsmagnið I blóðinu minna en
0,50 prómill.
Þetta kemur ma.. fram i
grein, sem Jóhannes Skaftason
og Þorkell Jóhannesson hafa
ritað og nefnist, Ákvarðanir á
alkóhóli (etanóli) i blóði.
Höfundar greinarinnar segja
að samkvæmt áðurrituöum
niðurstöðum megi álykta að
ölvun við akstur sé umtalsvert
vandamál hér á landi. Vert er
að geta þess, að þegar rann-
sóknin hófst var byrjaö a=b nota
nyja tækni til ákvarðana á alkó-
hóli i blóði, og nefnist aðferðir,
gasgreining I súlu og er kostur
hennar fyrst og fremst
mikið næmi.
Blóðsýnin voru flokkuð eftir
umdæmum og sé miðað við þús-
und ibúa er ölvun viö akstur al-
gengust I Keflavik (17,3) og
Reykjavik (12,3). Blóðsýni á
bilinu frá 0 til 0,99 prómill var
hæst I Dalasýslu eða 50%, — þ.e.
helmingur allra blóösýna úr þvi
umdæmi á áöurnefndu timabili.
Næst koma Skaftafellssýslur
með 38%. A bilinu milli
1,00—1,99 prómill var Seyðis-
fjörður langhæstur, 83% allra
sýna þar voru á þessu bili, þar
næst kemur Barðastrandasýsla
meö 67%. Flest blóösýni i
prósentvis yfir 2,00 prómill
komu frá Rangárvallasýslu eöa
57%, þar næst koma Mýra- Og
Borgarfjarðarsýsla meö 44%.
Þá kom i ljós við þessa rann-
sókn að mjög verulegar sveiflur
voru i fjölda sýna,er bárust til
rannsókna á mánuði hverjum,
en ekki töldu höfundar skýring-
ar á þessu fyrirbæri nærtækar.
Gleyma að
taka þvag-
sýni þó lögin
geri róð
fyrir því að
þau séu
tekin
Jóhannes Skaftason og Þor-
kell Jóhannesson benda á i grein
sinni, að lögregluyfirvöld viröist
gleyma þvagsýnum með öllu,
þegar um brot á umferðarlög-
um er að ræða, en samkvæmt
umferðarlögunum er gert ráö
fyrir þvi, aö þvagsýni séu tekin.
Segja höfundar greinarinnar að
þeim þyki þetta miður, þar sem
þvagsýni veiti i sumum tilvik-
um ómetanlegar upplýsingar til
ákvörðunar alkóhóls i blóði, sér-
staklega, þegar blóðsýni og
þvagsýni eru tekin samtimis.