Tíminn - 03.08.1975, Page 5

Tíminn - 03.08.1975, Page 5
Sunnudagur 3. ágúst 1975. TÍMINN 5 SmjörhúsiA var fræg sérverzl- sima. Verzlunin var við Bókaverzlun Braga BrynjólfS' un og hafði meira aö segja tal- Hafnarstræti, þar sem nú er sonar. Nútiminn. Þaö er eins gott að vita hvað maður ætiar að kaupa I svona verzlun. Bítla-æðið endurtekur sig Þegar Bitlarnir frá Liverpool lögðu undir sig heiminn, ef svo má segja, þá gekk yfir algert æöi, ef þeir sýndu sig einhvers staðar eða komu fram. Stúlkur veinuöu og hrópuðu, fólk féll i yfirliö, og sumir hreinlega sturluðust. Á seinni árum hefur þetta dálitið breytzt, og unga fólkið dýrkar ekki lengur hljóm- sveitarmennina eins og ein- hverja guði, þó að hrifning riki á hljómleikum, eða ef þeir sýna sig einhvers staðar. En nýlega gerðist það samt i Er.glandi, að allt sótti i sama farið. Hljóm- sveit, sem heitir „The Bay City Rollers” hélt útihljómleika, og fólkið — aðallega ungar stúlkur —- trylltist svo, að ekki var við neitt ráðið. Hljómsveitin flutti sig i einhvern hólma i skemmti- garöinum, sem þeir léku i, en aðdáendurnir létu sér það ekki fyrir brjósti brenna, en lögðu ó- trauðir yfir fen og læki. Að sið- ustu varð að koma hljóðfæra- leikurunum úr ,,The Bay City Rollers” undan með* báti, en fólkiö var margt illa útleikið. Yfir 30 manns varð að flytja á sjúkrahús, rifbeinsbrotnaði sumt i troðningnum, eða meidd- ist á annán hátt. Um 250 manns varð að fá skyndihjálp hjá hjálparliði, sem var kvatt á staðinn. Var það mest vegna yfirliða og taugaáfalls, sem að- stoðar var þörf, og mest voru það barnungar stúlkur, sem slepptu sér i taugaspenningi. Lögreglumenn sögðu, að annað eins og þetta hefðu þeir ekki komizt i siðan Bitla-æöið var i algleymingi. ☆ Rainier í megrun Liklega hefur Rainier fursti i Monaco fengið fullmargar matarveizlur um dagana. „Incosol” I Marbella er rétti staöurinn fyrir Istrumaga og undirhökur, og þangaö leitaöi prinsinn sér til trausts og halds. Eftir að hafa satt hungur sitt með ávaxtasafa og salatblöðum skundar hann út á golfvöllinn. Það er ekki nóg að fækka kalorium heldur veröur lika að hreyfa sig. Öryggisverðir Soffíu Loren Hér sjáum við hvar Soffia Loren er að koma úr flugstööinni i Rómásamt einkaritara sinum, Ines Brusci. En þær eru ekki al- deilis einar á ferö. Soffia hefur nú orðiö minnst fjóra varðmenn með sér þegar hún ferðast. Hún hefur alltaf verið hrædd við barna- og mannræningja, og þess vegna látið gæta bæði bama sinna og sin eins vel og kosturhefur verið á. Samt hefur hún orðið fyrir skartgriparán- um, en segist ekki hafa tekið það of nærri sér (ef til vill hefur hún lika ráö á að kaupa sér nýtt skraut á sig), en nú nýlega varð hún fyrir þvi, að handtösku hennar var stolið af henni og verðir gátu ekki komið I veg fyrir það, svo að hún hefur feng- ið sér fjóra herramenn til þess að gæta sin. Sá fyrsti er með taltæki I hendi, en sá i ljósa frakkanum heldur um byssurn- ar i frakkavösunum. A eftir honum koma tveir aörir, sem eru sérfræðingar I að yfirbuga menn án vopna, fjölbragöa- glfrnumenn, en svo er einhver ókunnur herra, sem gengur á eftir þeim, og tilheyrir ekki fylgdarliðinu, aö þvi að sagt var. I handtöskuSoffiu, sem hún glataði, var litið fémætt, en þar var geymddagbókhennar, fyrir siðastliðið ár. Hún hefur oftast skrifað dagbók, og sú fyrir siðasta árið gæti verið áhuga- verö, segja þeir sem fylgjast meö þessum málum, þvi að Carlo Ponti hefur haldið sig mest I Róm og skemmt sér þar óspart, en Soffia sjálf hefur kos- ið aö dveljast I Paris, og lifaö þar sinu lifi. Nú bföa menn spenntir eftir þvi, hvort þjófur- inn reynir að koma dagbókinni i peninga, — og aumingja Soffia fjölgar öryggisvörðum sinum.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.