Tíminn - 03.08.1975, Síða 7

Tíminn - 03.08.1975, Síða 7
Sunnudagur 3. ágúst 1975. TIMINN 7 Guðbjörn Guðjónsson HEILDVERZLUN Siðumúla 22 — Sími 8-56-94 Höfum fengið sendingu af BAUER HAUGSUGUM á lækkuðu verksmiðjuverði O Dauf mynd hans. Strax þá bjarmar fyrir boðskap myndarinnar, þvi i stað þess að létta við hefndina, veldur hún Jory ógleði og uppsölum, enda er hann óharðnaður og óvanur að drepa. Eftir þá atburði neyðist Jory til að yfirgefa bæinn og verður það úr, að hann slæst i för með hópi kúreka, eða öllu heldur hrossreka. Leið þeirra liggur til búgarðs eins I Texas, þar sem landið er erfitt og mennirnir miklir. A leiðinni verður Jory fyrir margskonar áhrifum, en sterkust- um þó frá ungum manni, sem elur upp i honum virðingu fyrir byssum og styrkir trú hans á manndóm þann er felst i vopnum. Forstöðu- maður hópsins, gamalreyndur jálkur, reynir að vinna á móti þess- um áhrifum og bendir piltinum á, að marghleypan sé manninum að- eins enn eitt skjólið að skriða i o'g raunar verki hún meir i þá veru að egna til ófriðar en hún haldi i skefj- um. Áróður sinn rekur hann þó fyrir daufum eyrum, þvi pilturinn er heillaður af marghleyputækni hetjunnar og sér aðeins dýrðar- ljómann af manndrápum. Út frá þessu er efni myndarinnar framsett á næsta hefðbundinn máta. Manndrápsskammturinn er nokkuð hæfilegur. og forðast að út- hella óþarfa blóði, en þess hins vegar vendilega gætt, að jafnvægi haldist. Bæði eru drepnir góðir menn og illir, sem misjafnlega mikil eftirsjá er að, og að lokum skilur Jory boðskap gamla manns- ins og fleygir frá sér marg- hleypunni. Eðlilega koma þar til margvlsleg áhrif á piltinn, þar á meðal áhrif fyrstu konunnar i lifi hans. I heild- ina tekið er þó ferillinn fremur ódýr og littsannfærsíidiog þegar til kem ur, er boðskapurinn borinn ofurliði i myndarlok, þannig að frelsun piltsins fær ekki reist hann við. Þegar vandkvæðin steðja að, verður aðstandendum myndarinn- ar nefnilega helst fyrir, að láta leysa hann með ofbeldi. Aður hafði og komið fram nokkur tviskinnung- ur, þar sem greinilegt var að of- beldi og réttmæti þess er ákaflega afstætt fyrirbrigði — það er hreint ekki sama að hverjum hlaupinu er beint, né heldur hvað skal verja. Úr verður ruglingur, sem einna helst mætti skilja á þann veg, að byssur geti ekki verið réttlætanleg- ar til að verja lif manna, en séu aft- ur nauðsynlegar til að verja eigur þeirra. Vafalitið er mynd þessari þó fyrst og fremst ætlað afþreyingar gildi og þvi væri ósanngjarnt að skilja hér við. Þá væri hún for- dæmd fyrir að ná ekki hliðartil- gangi sinum. Staðreyndin er þó sú, að myndin nær ekki heldur af- þreyingar tilgangi, að minnsta kosti ekki svo aö nokkur töggur sé I. Um spennu er hvergi að ræða. Til þess er heldur vart hægt að ætlast af framleiðslu á borð við jjessa. Ef til á að taka kosti myndarinnar, verður eitt og aðeins einn fyrir, en það eru ákveðnir þættir úr leik piltsins i hlutverki Jory. Hjá hon- um bregður fyrir leikgleði, sem sjaldgæft er orðið að finnist I vestr- um. Ef til vill á þetta sérstaklega við um samskipti hans við heima- sætuna á búgarðinum, er tilþrif hans eru einnig oft þokkaleg þegar hann er að reyna að likjast átrúnaðargoðum sinum. í stuttu máli: Fremur léleg mynd, sem þó á sina ljósu punkta og vissulega hafa þær sést hér verri. VerjumH gggróöur verndum land®J Utgerðarmenn Sjaldan er ein báran stök. Kaupið strax - kaupið ódýrt, úrvals japönsku þorskanetin frá Nichimo, til afgreiðslu strax af lager í Reykjavík, á hinu ótrúlega tága Nichimo verði. Hafið samband við umboðsmenn okkar á íslandi áður en þið festið ykkur aftur í netum frá öðrum. - NICHIMO Umboösmenn KRISTJÁNÓ. Sími 24120 / V Útgerðarmenn og sjómenn eru manna dómbærastir á net. Þeir leggja aðeins bestu net fyrir fiskinn. Þess vegna þýðir ekkert annað fyrir okkur en að leggja það besta og hagstæðasta fyrir þá. Gleymiö okkur einu sinni - og þiö gleymiö því aldrei !

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.