Tíminn - 03.08.1975, Side 11

Tíminn - 03.08.1975, Side 11
Sunnudagur 3. ágúst 1975. TÍMINN 11 siðan árið 1972. Er samið um flutningana til eins árs i senn. Vörugeymsiur, aðstaða í landi — Starfslið — Hvernig er aðstaða HAFSKIPS HF i Reykjavíkur- höfn? — Við höfum eins og fleiri skipafélög verið á hálfgerðum hrakhólum með geymslurými en mjög örðugt er að koma sér upp fullnægjandi aðstöðu i Reykja vikurhöfn, en það er raunar al- gjör forsenda þess, að unnt sé að bjóða upp á ódýra flutninga. Veltuhraði i stykkjavöru er allt of dræmur, en það kostar, að skipa- félögin verða að hafa mikið geymslurými fyrir vörur i Reykjavik. Fyrstu árin var notazt við hús Alliance við Vesturhöfnina, en siðar var gamla TtVOLf keypt fyrir farmvöll og vöruhús. Þá reisti félagið nokkrar skemmur við Eiðisgranda og nú höfum við eina skemmu á leigu á hafnar- bakkanum i Vesturhöfninni, þar sem aðstaða er skinandi góð til vörumóttöku, en þó verður að nota allar þessar stöðvar. — Hvað vinna margir starfs- menn hjá Hafskip hf.? Það munu vera um 115 fastir starfsmenn. A skipaflotanum eru um 60 manns, 14 vinna skrifstofu- störf, annað starfslið við vöru- geymslur, útgerð og uppskipun. A árinu 1974 voru farnar 110 ferðir milli landa á þessum siglingaleiðum, sem áður voru taldar, þar af 90 ferðir á eigin skipum, aðrar ferðir voru með leiguskipum. — Hvernig er félagsstjórnin skipuð nú? — Þeir eru: Magnús Magnús- son, Höskuldarkoti, formaður, Ólafur B. ólafsson, Sandgerði, varaformaður, Friðrik Magnús- son, Njarðvikum, Axel Kristjáns- son, Hafnarfirði, Einar Guðfinns- son, Bolungarvik, Haraldur Gislason, Vestmannaeyjum og Þórarinn Guðbergsson, Garði. Að sigla um veraldarhöfin — Nokkur framtiðarverkefni framundan? — Við hjá Hafskip hf. einbeit- um okkur nú að þvi að skipu- leggja fyrirtæki okkar og ná nauðsynlegri hagkvæmni i rekstri. Æskilegast væri, að hafa skipin stærri en þau eru, en tiðar skipaferðir eru lika nauðsyn og hafnarskilyrðin eru ekki alls staðar það góð að sigla megi stór- um skipum. Þessir staðir verða lika að hafa skipaferðir, það þarf að koma þangað varningi og flytja afurðir á brott. Þetta tak- markar stærð skipanna, auk ann- ars. Við erum með ráðagerðir um að bæta einu skipi við til viðbótar nú á næstunni, en of snemmt er þó að greina nánar frá þvi nú. Auðvitað er okkur það ljóst, að möguleikar okkar eru ekki ein- vörðungu bundnir við Island. Miklir möguleikar eru ónýttir af Islendingum, þvi t.d. er öll olia flutt til landsins með leiguskipum og Alverið i Straumsvik flytur hráefni að versmiðjunni með erlendum stórskipum. Þá er þess að gæta, að Norð- menn, Danir og reyndar allar Norðurlandaþjóðirnar nema Islendingar taka þátt i alþjóða- siglingum, meira að segja eru Alandseyingar stórveldi á sjónum. Við þurfum þvi að skoða siglingamálin miklu nánar og at- huga hvort islenzkir farmenn geta ekki aflað gjaldeyris með þvi að sigla um heimshöfin fyrir erlendar þjóðir. Eins og stendur er markaður heldur daufur, en ég hygg, að við reynum þetta eitthvað þótt siðar verði, segir Magnús Magnússon frá Höskuldarkoti að lokum. Jónas Guðmundsson. Halldór S. Friðriksson, skrifstofustjóri ræðir við Magnús Magnússon, forstjóra Þórey Hvanndal og Erla Sigriður Jóhannsdóttir vinna á skrifstofunni Wm , si a ’ ■' y,'f< ; Mikið ber á ungu fólki á skrifstofum Hafskip, enda forstjórinn aðeins 34 ára. A myndinni er skrifstofu- fólk. Elías Henz, Guðbjörg Þorsteinsdóttir, Elínborg Halldórsdóttir, og Sigurlaug Halldórsdóttir.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.