Tíminn - 03.08.1975, Qupperneq 22
Hamingjusöm fjölskylda I skozku hálendi. Heather frá fyrra hjónabandi Lindu. Maryj_ Poul og Linda meö Stellu.
Bítillinn sem
gerðist bóndi
Börnin skipta Lindu og mig mestu.
— Ding dang, ring bang, hér er
útvarpsstöðin WC Beatles City i
New York. Enn eru 15 Bitlamin-
útur þangað til klukkustundar-
langur þáttur Bitlanna hefst.
Hitinn er 26 Bitlastig. Þannig
fórust þulinum oft orð I þessari
vönduðu útvarpsstöð á þeim
tima, þegar siðhærðu piltarnir
fjórir frá Liverpool heiöruðu
Bandarikin með návist sinni.
Allir voru vitlausir i Bitlana,
allir vildu heyra þá og sjá. Orð
þeirra urðu ýmsum meira virði
en sjálf biblian. Leiðtogi þeirra
John Lennon hélt þvi fram að
hann væri meiri en Jesús sjálf-
ur, en þá neituðu ráðamenn út-
varps- og sjónvarpsstöðvar að
spila plötur Bitlanna.
Aðdáendur þeirra þvinguðu
útvarpsmennina hins vegar til
að skipta um skoðun.
Þaö eru 11 ár siðan þetta var.
Nú heyrum við sjaldan minnzt
á þá,en þó kemur fyrir að blöðin
birta fréttir um að John Lennon
hafi skilið við Yoko Ono
japönsku konuna sina, hafi
fundið sér nýja ástkonu og svo
farið aftur til Yoko, eða um að
Pattie hafi farið frá George, af
þvi að hann hafi verið orðinn
allt of upptekinn af indverskri
hugleiöslu, eða að Ringo hafi
leikið I kvikmynd, eða gefið út
nýja plötu, sem aldrei slær i
gegn. Og jafn reglulega kemur
upp orðrómur um að þessi frægi
kvartett ætli að fara að syngja
aftur saman og það heyrist af
skrimslinu i Lock Ness.
En aldrei varð úr þvi. Þessi
fræga pop-hljómsveit, sem hafði
selt 90 millj. L.P. plötur og 120
millj. af litlum plötum, mun
aldrei leika saman aftur.
Eftirlætis bitill allra kvenna
milli 12 og 42 ára, Paul
McCartney sem nú er 33 ára
gamall, ætti bezt að vita
það — „Okkur er öllum
Ijóst, að þetta mikla fyrirtæki,
Unglingarnir óðu eld
og vatn fyrir Bitlana
allt þar til George fór í
hugleiðsluferðalag, —
John dró sig i hlé með
Yoko Ono og Ringó
gerðist kvikmynda-
leikari.
Poul gerðist hins vegar
góður fjölskyldufaðir i
Skozku hálöndunum.
sem við vorum með i, er ekki
lengur til. Viðhöfum sætt okkur
við það. Eins og John Lennon
sagði einu sinni viö okkur á
skrifstofu plötuútgáfufélagsins
okkar „APPLE”: „ÉG fer úr
hljómsveitinni. Ég skil við ykk-
ur”.”
„Draumurinn búinn”.
Paul, siðasti ungkarlinn i
hljómsveitinni, giftir sig um
svipaö leyti Lindu Eastman,
bandariskum ljósmyndara og
timi Bitlanna, hálfguðanna
fjögurra i poptónlistinni, var
liðinn. Nú skrifuðu virtir tón-
listagagnrýnendur ekki lengur
langar greinar um nýjustu plöt-
ur þeirra með orðskrúði eins og:
„Bitlarnir hafa yfirfært flókna
tónlistartækni hinna gömlu
meistara á tónlist samtimans
meö innsæisfullum andrikum
hætti”. Liðinn var einnig sá timi,
þegar verzlunarfólk allt frá
Hamborg til Hawaii græddi
milljónir á bitladúkkum, skyrt-
u, hringjum, vasaklútum, hött-
um og hárkollum.
A eftir komu beiskar deilur
um „APPLE”-veldið, arðhluta-
bréfin, laun framkvæmdastjóra
og gjöld fyrir höfundarrétt, sem
ekki höfðu verið greidd. Og John
Lennon komst að þessari bitru
niðurstöðu:
— Draumurinn er búinn.
Ekki aðeins draumurinn um
Bftlana, heldur einnig um nýja
kynslóð. Það sem við gerðum I
danssölunum i Hamborg og
Liverpool var stórkostlegt. En
strax og við urðum frægir var
allt búið.
Nú, 10 árum eftir þetta mikla
æði, er engum Bltlanna sérlega
anntum sina fyrrverandi félaga
)