Tíminn - 12.08.1975, Qupperneq 1
Jtk / — — -li. 1 ■
Landvélarhf
TARPAULIN
RISSKEMMUR
180. tbl. — Þriðjudagur 12. ágúst—59. árgangur. u
HF HORDUR GUNNARSSON
SKULATUNI 6 - SIMI (91)19460
Atkvæðagreiðsla um
verkfallsheimild
BH-Reykjavik. — Stjórn Sjómannafélags Reykjavíkur ákvað fyrir
helgi aö leita verkfallsheimildar i máli undirmanna á kaupskipun-
um. Allsherjar atkvæðagreiðsla hófst kl. 9 í gærmorgun, og stend-
ur til kl. 5 á miðvikudag. Margir greiddu atkvæði I gær og skeyti
eru þegar farin að berast frá skipunum.
Þannig komst Hilmar Jónsson, formaður Sjómannafélags
Reykjavikur, að orði i gær, þegar Timinn ræddi við hann um horf-
ur i kjaradeilu undirmanna á kaupskipunum. Kvað Hilmar hafa
verið ákveðið i siðustu viku að visa kjaradeilunni til sáttasemjara,
og hefði Torfi Hjartarson, rikissáttasemjari, málið með höndum,
en hann hefði ekki boðað til fundar i deilunni ennþá.
Hilmar Jónssonsagði, að stjórnin hefði ekki treyst sér til nýrrar
atkvæðagreiðsiu um bráðabirgðasamkomulag enda þótt út-
gerðarmenn hefðu hnikað til einu atriði frá samkomulaginu, sém
fellt var. Hefði verið um smábreytingar á yfirvinnu, sem stjórnin
hefði ekki talið skipta verulegu máli.
Brúin yfir Múlakvísl
lokuð enn um sinn
ö.B. Rvik. — Nú er unnið að þvi
að veita vatni frá burðarstöplin-
um á Múlakvislarbrií svo unnt
verði að kanna þær skemmdir, er
þar hafa orðið. Mun þvi verki
verða lokið á morgun eða mið-
vikudag, en fulinaðarviðgerð lýk-
ur vart fyrr en i næstu viku.
Brú þessi, sem mun vera um 20
SKEMMDIR I NYJA
VEGINUM FYRIR
AUSTAN SELFOSS
ára gömul var byggð i miklum
flýti eftir að gömlu brúna hafði
tekið af i hlaupi. Stuttu eftir að
lokið hafði verið við að reisa brú
þessa tók áin að dýpka farveg
sinn og þurfti þvi skjótra aðgerða
við. Var brugðið á það ráð að
framlengja stöplana niður á við
svo góð festa næðist.
Blaðið hafði samband við Helga
Hallgrimsson, yfirverkfræðing
hjá Vegagerðinni, og tjáði hann
blaðinu að það.sem sennilega hef-
ur gerzt þarna, er að áll hefur
myndazt við vesturenda brúar-
innar og grafið undan stöplinum
með þeim afleiðingum að
straumþungi árinnar hefur fellt
hann. Við þetta seig brúin það
mikið að ekki hefur verið unnt að
aka yfir hana. Gerðar verða ráð-
stafanir til að koma i veg fyrir að
þetta endurtaki sig. Brúin mun
verða lokuð allri umferð nema
gangandi fólki þar til viðgerð hef-
ur verið lokið, en vonazt er til að
henni ljúki i næstu viku.
Fært er fyrir jeppa og stærri
bifreiðir Fjallabaksleið.
Gsal-Reykjavik — Skemmdir
hafa komið fram i nýja veginum
austan Selfoss, en sem kunnugt
er, hafa i sumar staðið yfir fram-
kvæmdir við lagningu 14 km
varanlegs slitlags frá Selfossi
austur að vegamótunum, þar sem
ekið er upp i Skeiðahrepp. Komið
hafa fram talsverðir galiar i
þeirri oliumöl, sem lögð hefur
verið, — bæði hafa myndazt
hvassar holur I oliumölina og eins
hefur strax komið fram slit i
henni. Ekki er enn ljóst hvað hér
veldur, en svo virðist sem tvennt
komi til greina, annars vegar að
gallar séu i undirbyggingu vegar-
ins á kafla og hins vegar að galiar
séu i sjálfri oliumölinni. Þessa
dagana er verið að leita orsaka
skemmdanna.
Til þess að bæta hér um, þarf
annars vegar að leggja þriggja
sentimetra þykkt slitlag ofan á
oliumölina að hluta og hins vegar
að fylla upp i holurnar. Þá er ekki
enn ljóst hvort þarf að skipta um
undirlag vegarins að einhverju
leyti. Tekið skal fram að umbæt-
ur hér að lútandi fara að sjálf-
sögðu eftir þvi, hvað niðurstöður
rannsókna um orsök skemmd-
anna kunna að leiða i ljós, en um
áðurnefnda möguleika hefur ver-
ið rætt aðallega.
Ljóst er að skemmdir þessar
muni hafa i för með sér nokkurn
kostnaðarauka, en engar tölur
hafa enn verið nefndar i þvi sam-
bandi. Þá er ekki ljóst, hvaða
aðili mun bera þann kostnaðar-
auka, sem er samfara þessum
skemmdum, en rannsóknir um
orsök skemmdanna munu eflaust
leiða i ljós, hver er skaðabóta-
skyldur.
Verktakar þessara vegafram-
kvæmda eru Istak og Sveinbjörn
Runólfsson og eftirlit með þeim
hefur verkfræðistofan Mat sf. fyr-
ir hönd Vegagerðar rikisins. Oliu-
mölin er keypt hjá Oliumöl h.f.
Sigfús Thorarensen, verk-
fræðingur hjá ístak, sagði i viðtali
við Timann I gær, að orsök
skemmdanna gæti verið I oliu-
mölinni og nefndi, að hún væri
mjög viðkvæm sérstaklega I
vætutíð. „Limefni er blandað I
oliuna til að olian limist við stein-
ana. Til þess að þetta gerist bæði
rétt og vel, þurfa steinarnir að
vera tiltölulega hreinir, limefnið
gott, og það má ekki vera mikill
raki i steinunum. Þegar svona
skemmdir koma fram, er þvi ekki
svo auðvelt að segja hvar orsaka
skemmdanna er að leita”, sagði
Sigfús.
Hákon Ólafsson, hjá Rann-
sóknastofnun byggingariðnaðar-
ins, taldi liklegt að undirbygging
vegarins ætti e.t.v. einhverja sök
á áðurnefndum skemmdum, og
sagði að gera mætti ráð fyrir, að
það þyrfti að skipta um undirlag á
veginum að einhverju leyti. Að
öðru leyti kvað hann oliumölina
sennilega aðalorsök skemmd-
anna.
Framkvæmdum við þessa
vegarlagningu á að vera lokið
fyrir 1. október n.k. og að sögn
Sigfúsar Thoranensen hjá Istak
hefur verkið unnizt samkvæmt
áætlun. Tilboðsupphæð þessa
verks var 170 millj. kr.
Þessi mynd sýnir
skemmdirnar, sem hafa orð-
ið á nýja veginum fyrir aust-
an Selfoss. Þegar myndin
var tekin, var búið að fylla i
götin, sem duttu i siitlagið,
en eins og sjá má er þarna
gat við gat.
Rannsóknir standa nú yfir
á þvi, hvort um sé að kenna
galiaðri oliumöl eða gaiiaðri
undirbyggingu vegarins.
Timamynd: P.Þ.
Fylgzt var
nóið með
hátíða-
höldum
Vestur-
Islendinga
og þeim
sam-
glöddust
allir
innilega
Sjá viðtöl viö forseta tslands,
dr. Kristján Eldjárn, og
utanrikisráðherra, Einar
Agústsson, um vesturför
þeirra i sambandi við ts-
íendingadaginn 1975.
» o
SILDARVERKSMIÐJURNAR A SIGLUFÍRÐI
o
NEITUÐU AÐ TAKA VIÐ LOÐNUNNI
BH-Reykjavik. — Loðnuskipin
Ami Sigurður AK og Eldborg GK
komu til Siglufjarðar á sunnu-
dagsmorgun með 5—600 lestir af
loðnu hvort skip, og hugðust
landa feng sinum þar. En þá brá
svo við, að forráðamenn Sildar-
verksmiðjanna á staðnum neit-
uðu með öllu að taka við loðnunni
þar sem þeir töldu hana úrhrak til
vinnslu. Stóð i stappi með löndun
skipanna, þar til ákveðið var i
gærkvöldi að losa skipin að þessu
sinni með þvi skilyrði að ékki yrði
reynt að landa loðnu sem þessari
oftar. Mun löndun hafa gengið
snurðulaust fyrir sig eftir að þessi
ákvörðun var tekin.
Það er álit manna fyrir norðan,
að tilgangslaust sé að halda veið-
um af þessu tagi áfram. Loðna sú,
sem fengizt hefur út af Reykja-
fjarðarál, sé alls ekki vinnsluhæf,
alltof litil og horuð. Sé engin
ástæða til að halda loðnuskipum
viö veiðar, ef ekki er hægt að ná
annarri loðnu en þessari.
Hins vegar telja menn, að engin
reynd sé komin á það, hvort ekki
sé stærri og feitari loðnu að finna
á miðunum fyrir Norðurlandi, og
að brýn nauðsyn sé fil,að það mál
verði kannað til hlitar. Til þess
veröi að breyta um aðferð og i
stað tveggja báta, þurfi að hafa
fjóra báta að minnsta kosti á mið-
unum fyrir norðan, sem hafa að-
stöðu til að kanna, hvort ekki séu
fengsælli mið en þessi fyrir hendi.
Eins og mál stóðu i gærkvöldi
var ekki annað séð en loðnubát-
amir tveir myndu hæ'tta veiðum,
en hvert þeir myndu halda suður
aftur, var ekki vitað.