Tíminn - 05.09.1975, Blaðsíða 2

Tíminn - 05.09.1975, Blaðsíða 2
2 TÍMINN Föstudagur 5. september 1975. Stjórn Reykja- prents ræðir samkomulagið á fundi í dag Gsal—Reykjavik — Samkomu- lag þetta er i raun fólgið I þvf, að öll blöðin þrengja að sér til þess aö hægt sé aö gefa út þetta nýja blað. Visir færir sinn tima tölu- vertfram og blaöiö fer úr prent- smiðjunni fyrr en áöur hefur verið, — og nýja blaöiö fer i prentun skömmu eftir Visi, sagði Steingrimur Hermanns- son, fulltrúi biaðstjórnar Tim- ans, sem sat maraþonfund Blaðaprentsstjórnar i fyrrinótt, en fundinum lauk undir morgun með samkomulagi um tilhögun mála i Blaðaprenti, eftir aö Dagblaðið hefur bætzt viö i hóp þeirra blaöa, sem þar hafa ver- ið prentuö. Bæði stjórn Blaðaprents og fulltrúar Dagblaðsins, sem mættir voru á fundinum, undir- rituðu samkomulagið, — en Þórir Jónsson, frá Reykja- prenti, útgáfufélagi Visis óskaði eftir fresti á undirritun sam- komulagsins. til að bera sam- komulagið undir stjórn Reykja- prents. Steingrimur kvað aðalatriði samkomulagsins vera það, að öll blöðin þrengdu að sér á einn eöa annan máta, en samkomu- lagið væri gert til eins mánaöar og hefðu allir hlutaðeigandi aðilar stætzt á að setja málið i gerðadóm. Að sögn Steingrims á niðurstaða gerðadóms að liggja fyrir á gildistima sam- komulagsins. A fundinum varð það að sam- komulagi, að Visismenn skuld- binda sig til að dreifa ekki blaði slnu fyrr en eftir klukkan þrettán, en likur eru taldar á, að Dagblaðið geti orðið tilbúiö til dreifingar um klukkan fjórtán. Fundur Blaðaprentsstjórnar lauk umkl. 6 i fyrrinótt, og sagði Steingrimur Hermannsson að mikil spenna hefði rikt á fundin- um. — Ég tel, að allir séu fegnir þvi að samkomulag náðist og ég hygg, að allir voni, að það verði til góðs, ekki sizt Blaðaprenti, — en við höfðum aðallega hag þess i huga i þessum viðræðum, svo og hagsmuni Timans, — en við teljum, að það hefði næstum þvi orðið banabiti fyrir Blaðaprent að vera á einn eða annan hátt aðili að málaferlum, sem kannski gætu tekið ár eða meira, sagði Steingrímur. Stefnt er að jivi, að fyrsta tölublað Dagblaðsins liti dags- ins ljós næstkomandi mánudag. „Umbúnaður olíutankanna í Hvalfirði fráleitur" BH-Reykjavik -- Það eru fjórir tankar á þessu s,æði, og þeir eru ailir eins byggðir, svo ekki verður hjá þvi komizt að athuga þá alla. Þegar viögerð á þessum tanki er lokiö, verða hinir þrir tæmdir og athugaðir og fram- kvæmd viðgerð á þeim, ef nauð- synlegt reynist, eins og telja má fullvist. Þetta mun taka langan tima, og verður þvi naumast lokið fyrr en undir vorið, sagði Stefán M. Bjarnason, mengunarsérfræð- ingur hjá Siglingamálastofnun- inni, en við höfðum samband við Stefán til að grennslast fyrir um, hver hefði oröiö niðurstaðan varðandi oliumengun, sem fannst fyrir nokkru i Hvalfirði. — Bilunin i tanknum var nán- ast furðuleg, eða sprungnar punktsuður á stálbitunum i undir- stöðum tanksins, en suður þessar halda við burðarbitana, og eru fjórar á hverjum bita. Þessar festingar hljóta að teljast fráleit- ar, miðað við hvað á þær er lagt. I nánari útskýringum sinum sagði Stefán okkur frá þvi, að tankurinn hefði verið tómur um árabil, þangað til hann hefði verið tekinn i notkun á þessu sumri. — Það var eitthvað i kringum 10. júni, sem farið var að dæla oliu i þennan tank, sem hafði ver- iðtómurumárabil,og lekinn kom strax i ljós. Hins vegar var ekki hægt að ganga úr skugga um á- stæðuna fyrr en tankurinn hafði verið tæmdur og hægt var að at- huga botninn og undirstöðurnar nákvæmar. Frá oliutanknum komst lekinn i jarðveginn þarna i kring. Um- hverfis tankinn voru svo skálár, sem settar voru til þess að safna jarðvatni, og i þessar skálar barst olian um safnleiðslur. Þaðan komst olian svo i lækjarfarveg og rann Ut i sjó, þannig að lekinn varð strax áberandi. Nýja ferjulægið vígt í gær BH—Reykjavik — 1 gær var formlega tekiö I notkun nýtt ferjulægi I Reykjavik, en þaö hef- ur verið I notkun I 26 daga, og hefur biiferjan Akraborg haft þar aðstöðu. Formaður útgerðar- stjórnar Akraborgar, Björn H. Björnsson, sagöi I viðtali viö Tim- ann I gær, að ferjulægið skipti sköpum I útgerö Akraborgar, og hefði ailur flutningur með skipinu fjórfaldazt siðan ferjulægið var tekið i notkun og kynni enn að aukast, er menn hefðu almennt gert sér grein fyrirþýöingu þessa samgöngutækis. Halldór E. Sigurðsson, samgöngumálaráö- herra, opnaði formlega brúar- ganginn, og sat sjálfur I fyrstu bifreiðinni, sem ók um borð. 1 ávarpi sinu viö athöfnina, komst Ölafur B. Thors, forseti borgarstjórnar svo að orði, að loksins væri með þessu ferjulægi fundin lausn á þýöingarmiklu samgöngumáli, og væri þó aðeins um bráðabirgðalausn að ræöa að sinni. Nú fyrst væri hægt að nýta þessa miklu ferju svo sem efni stóðu til, er hún var keypt hingað. Ölafur benti á hagræðið af þessu farartæki, og sömuleiöis, að vonir stæðu til þess, að fleiri aðilar hag- nýttu sér þessa aðstöðu, er fleiri bilferjur kæmust I gagniö. Ólafur benti á, að framkvæmd- ir viðferjulægið hefðu hafizt þann 1. júll, en 13. ágúst hefðu fyrstu bflarnir farið um borð eftir þess- um leiðum. Heföi reynslan á þessum tima ótvirætt sannaö ágæti og þýöingu ferjulægisins. Kostnað við ferjulægið kvað Ólafur vera 10-11 millj. kr. Þá opnaði samgöngumálaráð- herra Halldór E. Sigurðsson bryggjusporð ferjulægisins og settist upp I bifreið sina, sem ók fyrst um borð I Akraborgina. Ný samgöngutækni hafði formlega verið tekin I notkun. i á i Haukadalsá Veiðihornið ræddi.við hann Beniedikt Jónmundsson hjá Stangveiöifélagi Akjpness I gær og innti hann ir^/ta af þeim væiðiám, sem félagið hefur haft á leigu i sumar. Auðvitað var það Haukadals- á, sem bar fyrst á góma, og var Benedikt ánægður meö veiðina I ánni I sumar. Þvi að nú hefði verið nóg vatr I ánni. Upp úr ánni hafa komiö á þessu sumri rúmlega 800 laxar og er það svipað og allt veiðitimabilið i fyrrasumar, en þá veiddust alls 810 laxar. Veiðitimabilinu lýkur 20. september. Meðalþyngd laxanna, sem veiðzt hafa á þessu sumri er 7,5 pund, og þyngsti laxinn, sem veiðzt hefur á samrinu, er 20 pund. 5 stengur eru leyfðar I I anni. Stangveiðifélag Akraness hef- ur á leigu þann hluta árinnar, sem liggur frá vatni niöur að sjó. 1 Haukadalsvatni kvað Bene- dikt hafa frétt af góöri silungs- veiði, og hann sagðist vita til þéss, aö silungur gengi upp ána um mitt sumar, þannig að ástæða væri til að ætla, aö veiðin væri góð I vatninu, en ekki þekkti hann nánar til þeirra mála, og vissi ekki, hver hefði meö sölu veiðileyfa I vatninu að gera, ef þau væru yfirleitt seld. Hins vegar kvað Benedikt enga veiði i ánni ofan viö vatnið. Heföi Stangveiðifélag Akraness lagt mikinn kostnað I það fyrir nokkrum árum, er félagið hafði ána á leigu að reyna aö rækta ána upp, en sei ðin, sem i hana var sleppt, skiluðu sér alls ekki aftur þangað. Andakilsá Benedikt Jónmundsson kvað Andakilsána hafa staöiö sig vel I sumar, en þar eru aðeins leyfö- ar tvær laxastengur. Eru i sumar komnir 276 laxar upp úr Andakflsánni, og eru þeir 6,5 pund á meðaltali. Er laxveiðin stunduð á svæö- inu frá brú upp að virkjun, en á svæðinu frá brú til sjávar eru leyfðar 4 silungsstengur, og kvað Benedikt silungsveiðina einnig hafa verið góða i sumar. Veiðitimabilinu i Andakilsá lýkur þann 17. september. Flekkudalsá Benedikt kvað Flekkudalsána hafa staðiö við öll þau fyrirheit, sem hún gaf i fyrrasumar um, aðhún væriaðnásérvelá strik. Flekkudalsáin var orðin ágæt veiðiá fyrir nokkrum árum, en svo datt skyndilega botninn úr veiðiskapnum þar, og kunna menn ekki skil á þvi. Nú virðist hún vera búin aö ná sér. 1 sumar eru komnir upp úr Flekkudalsá liðlega 420 laxar, en I fyrra veiddust þar 300 lax- ar. Meðalþyngd laxanna á þessu sumri er 6 pund! Þrjár stengur eru leyfðar i ánni, og þar veiðist enginn sil- ungur. Veiöitimanum lýkur 10. september. Hér kemur svo veiöisagan. Hún heitir að þessu sinni Maðurinn, sem fékk þann virkilega stóra. Laxveiðimaður einn, sem var við veiðar i Laxá i Aöaldal fékk einn ógurlega stóran á I sumar. Svo stóran, að óhætt er að full- yrða, að enginn laxveiðimaður fyrr eða siðar hefur fengið aðra eins veiði. Það var nefnilega naut, sem hann fékk á hjá sér. Sagan er sú, að fyrrnefndur maður var að kasta og stóð úti i ánni. Voru mikil tilþrif i köstum hans. Veit hann ekki fyrr en að tekið er hraustlega á móti og verður harla ángæður ........ þangað til að hann sá hvers kyns var. Naut eitt, alsaklaust, var alveg niður viö vatnsborðið, og hafði gleypt þennan furðuhlut, sem kom svifandi. Ekki varð nautinu meint af, en veiðimað- urinn varð I meira lagi hissa. Þessa ágætu veiði fékk hann á maðk..... Halldór E. Sigurðsson samgönguráðherra klippir á boröann og lýsir ferjulægiö opnað. Timamynd Gunnar 40 keppendur á sjóstanga- veiðimótinu fengu 4 tonn ASK—Akureyri — Um slðustu helgi var sjóstanga veiðimót haldið á vegum Sjóstangaveiði- félags Akureyrar ogvar þetta mót hiö 12. i röðinni. Róið var frá Dal- vlk og voru keppendur 40 talsins, 28 frá Norðurlandi og 12 frá Suðurlandi. Heiidaraflinn var rúm fjögur tonn af ýmiskonar fiski. / Þyngsta fiskinn veiddi Bjarki Arngrimsson frá Akureyri, þorsk 9.1 kg.. Aflahæsta konan varð Gréta Úlfsdóttir, Keflavik, en hún veiddi 136,7 kg og var húr. eini keppandinn frá Suðurlandi, er hlaut verðlaun. Aflahæsti kepp- andinn varð svo Matthias Einars- son, Akureyri, veiddi hann 231,6 kg, en Matthias veiddi einnig flesta fiska eða samtals 133 stykki. Það var sveit Matthiasar, sem varð aflahæst með rúm 600 kfló, en I öðru sæti var sveit Jó- hanns Kristinssonar frá Akur- eyri, en það má geta þess, að með Jóhanni voru þrir synir hans. Þriðja varð sveit Rafns Magnús- sonar frá Akureyri með 523,7 kg. Örnum hefur fjölgað um helming á s.l. tíu árum — en stofninn er samt enn í mikilli hættu ARNARVARP heppnaðist hjá 12 arnarhjónum sumarið 1975 og 14 ungar urðu fleygir. 7 arnarhjón urpu en varp þeirra misfórst af einhverjum orsökum. Tala arna á landinu nú, er að minnsta kosti 75, auk þeirra unga sem komustupp i ár. Stofninn er samt mjög litill, þótt hann hafi tvöfaldazt á sl. tiu árum, og er enn mikil hætta á, að honum verði útrýmt, og má i engu slaka á frið- unaraðgerðum. Tveir dauðir ernir fundust á þessu ári. Hugsanlegt er, að ann- A þessu ári heppnaðist varp hjá 12 arnarhjónum og fleygir ungar uröu 14, en varp misfórst hjá 7 hjónum. ar þeirra hafi drepizt af eitri, sem sett var i sjórekin kindahræ i þeim tilgangi að drepa hrafna. Að mati manna, sem bezt þekkja, er sú eitrun, sem fram- kvæmd hefur verið hér á landi undanfarin ár til þess að draga úr ágangi svartbaks gagnslitii og hefur engin áhrif á stærð svart- baksstofnins, en er mjög hættuleg öðru viðkvæmu lifi, þar á meðal hafarnarstofninum. Verður að leita annarra ráða en eitrunar gegn fjölgun svartbaks. óttazt er, að stofn snæuglu og fálka fari minnkandi og eru það vinsamleg tilmæli, að rjúpna- skyttur, refaskyttur og aðrir skotmenn þyrmi þessum fuglum, en báðar þessar tegundir fylgja rjúpnastofninum á veturna.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.