Tíminn - 05.09.1975, Blaðsíða 5
Föstudagur 5. september 1975.
TÍMINN
5
m
Gunnar og Vísir
Alþýðublaðið rekur i gær
siðustu viðskipti Vísis og
Gunnars Thoroddsens:
„Þann 29. ágúst sl. birtist i
Vísi forystu-
grein, þar
sem félags-
málaráð-
herra er
harðlega
gagnrýndur
fyrir afskipti
af húsbygg-
ingamálum i
Reykjavík. Reykvíkingur
nokkur hafði sótt um leyfi til
þess að byggja við hús sitt, en
fengið neitun hjá bygginga-
nefnd. Samkvæmt lögum um
byggingamáiefni Reykjavikur
og ákvæðum i byggingasam-
þykkt borgarinnar skaut hús-
byggjandinn máli sinu til fé-
lagsmáiaráðuneytisins, sem á
svo að fella lokaúrskurð í mál-
inu. Úrskurður ráðherrans
var á þá lund að heimila
manninum viðbygginguna.
Þetta lagði Visir þannig út i
forystugrein sinni, að félags-
máiaráðuneytið og þá auðvit-
að fyrst og fremst yfirmaður
þess, Gunnar Thoroddsen,
vildi hlutast til um jafnvel hin
smæstu mál sveitarfélaga.
Ráðherrann væri sem sé á
öndverðum meiði við að veita
sveitarfélögunum aukið sjálf-
stæði, en aukið sjálfstæði
sveitarfélaga er eitt af helztu
stefnumálum Sjálfstæðis-
manna nú. Forystugreinin var
sem sé bein árás á ráðherrann
Gunnar Thoroddsen, fyrir að
vera andvigur þessu stefnu-
máli flokksins.
Gunnar reyndi að bera hönd
fyrir höfuð sér, ritaði VIsi bréf
þar sem hann benti á, að sam-
kvæmt lögum væri félags-
máiaráðuneytinu skylt að
fella úrskurð imáli sem þessu
ef þess væri óskað. Sagði
Gunnar m.a. i bréfinu, að þar
sem leiðarahöfundar dagblað-
anna nytu þeirra forréttinda
að fá ritsmiðar sinar lesnar i
útvarp, þá mæltist hann til
þess, að meginatriðum i at-
hugasemdum hans við leið-
araskrif Visis yrði komið á
framfæri I leiðara blaðsins svo
útvarpshlustendum gæfist
kostur á að kynnast skýring-
um ráðherrans.
En hvað gerði Vísir? Hann
birti bréf Gunnars til blaðsins
I dálkinum „Lesendur hafa
orðið”, en þar fær jafnaðar-
lega inni fólk með minni hátt-
ar fyrirspurnir og kvartanir.
Ásamt Gunnari Thoroddsen
skrifa þennan dag i dálkinn
„krossgátuunnandi”, sem
spyrst fyrir um krossgátu-
verðlaun, maður, sem kvartar
yfir forljótri spennistöð og
móðir i Breiðholti, sem spyrst
fyrir um gangbrautarljós.
EfGunnar Thoroddsen hefði
sjálfur mátt ráða hefði hann
mun frekar viljað að Visir léti
það með öllu vera að birta
grein hans en að gera það með
þessum hætti.”
2200 milliónir
Hér I blaðinu var nýlega
skýrt frá því, að ellilifeyrir
einstaklings, sem ekki hefur
aðrar tekjur hefur hækkað sið-
an 1. janúar 1974 úr 15.108 kr. i
29.222 kr„ eða um 93%. Ellilif-
eyrir hjóna, sem likt er ástatt
um hefur hækkað úr 27.195 kr.
i 51.169 kr„ eða um 88%. Á
sama tima hafa laun skv. II.
flokki Iðju ekki hækkað nema
um 77%, en hann er sambæri-
legur við 6. taxta Dagsbrúnar.
Þannig hefur rikisstjórnin
sýnt i verki, að hún hefur
reynt að tryggja hag lifeyris-
þega eftir þvi, sem kostur
hefur verið. En þetta hefur að
sjálfsögðu kostað rikissjóð
aukin útgjöld, eða um 2200
millj. króna á ársgrundvelli.
Af þessu hefur það leitt, að
leggja hefur orðið á aukna
skatta, t.d. nýja vörugjaldið.
Hart er til þess að vita, að
flokkar stjórnarandstæðinga
og Alþýðusambandið skyldu
mótmæla skatthækkun, sem
var að miklu leyti óhjákvæmi-
leg vegna hækkunar lifeyris-
bótanna. Þegar á hólminn
kemur er öll umhyggjan
vegna lifeyrisþega ekki meiri
en þetta.
Loks er þcss að geta, að
ýmsar breytingar hafa verið
gerðar á greiðslum lífeyris-
bótanna, sem eru til hagsbóta
fyrir lifeyrisþega frá því, sem
áður var. Núverandi rikis-
stjórn hefur þannig ekki siður
en vinstri stjórnin, reynt að
tryggja hag Hfeyrisþega, þrátt
fyrir mikiu erfiðari aðstæður.
Lífeyrisbæturnar
og
Alþýðubandalagið
Þjóðviljinn á bersýnilega
erfitt með að viðurkenna það,
að núv. rikisstjórn hafi stór-
hækkað lifeyrisbæturnar,
þrátt fyrir erfiðari ástæður
en áður. Til þess aö reyna að
gera lítið úr þessum hækkun-
um, gerir hann samanburð
með prósentutölum á hækkun
lifeyrisbóta í tið núv. rikis-
stjórnar. 1 þeim efnum lætur
Þjóðviljinn sér sjást yfir eina
mikilsverða staðreynd. Lif-
eyrisbætur voru mjög lágar,
þegar vinstri stjórnin kom til
valda, því að viðreisnarstjórn-
in hafði haldið þeim niðri. Þvi
var eðlilegt að þær hækkuðu
mikið i tið vinstri stjórnarinn-
ar.
En að sjálfsögðu sleppir
Þjóðviljinn því, að Alþýðu-
bandalagið hefur barizt gegn
þvi, að skattar yrðu hækkaðir
siðan núv. stjórn kom til
valda. Jafnframt hefur það
svo krafizt stóraukinna fram-
laga til ýmissa framkvæmda.
Hefði verið farið að þessum
ráðum Alþýðubandalagsins,
hefði verið útilokað að hækka
lifeyrisbæturnar — hvað þá
heldur að hækka þær um 2200
milljónir á ári.
FLUGFREYJUR
ÁNÆGDAR AÐ
LOKNULÖNGU
SAMNINGABRASI
— Flugleiðir harma seinasta leikinn
BH-Reykjavik — Ég er afskap-
lega ánægð með, að samninga-
málin við Flugleiðir skuli loks-
ins vera komin i höfn. Þetta er
búið að vera nokkurt stapp en
leystist á hádegi i fyrradag, er
Flugleiðir féllust að lokum á
þau atriði i samningamálunum,
sem við höfðum haldið fram frá
upphafi, og voru eina krafa okk-
ar. Við vissum að við áttum rétt
á þessu, og þess vegna kom ekki
til mála að láta af þvi.
Þannig komst Erla Hatle-
mark, formaður Flugfreyjufé-
lagsins að orði við Timann i
gær, en flugfreyjur undirstrik-
uðu kröfugerð sina að
morgni miðvikudagsins, er þær
boðuðu verkfall á hádegi, yrði
ekki tafarlaust gengið að kröf-
um þeirra, sem voru i þrennu
lagi:
1. Að þær fái greiddar 5.300,-
kr'óna launahækkun á mánuði
frá 13. júni sl. auk 2.100,- króna
launahækkunar á mánuði frá 1.
október nk.
2. Að þær fái dráttarvexti
greidda af ofangreindi fjárhæð
til greiðsludags.
3. AðFlugleiðir h.f. felli niður
mál það, sem rekið er fyrir Fé-
lagsdómi.
Höfnuðu flugfreyjur umbeðn-
um fresti, og leystust málin á
hádegi, þannig að ekki kom til
neins konar vandræða — eða
verkfalls.
1 fréttatilkynningu,sem Tim-
anum hefur borizt frá Flugleið-
um, er tekið fram, að Flugleiðir
fallistekki á réttmæti krafanna,
þótt gengið hafi verið að þeim,
og átelji slik vinnubrögð og telji,
að hér sé um skýrt lagabrot að
ræða. Beri að harma, að ekki
skuli vera unnt að útkljá ágrein-
ing um túlkun kjarasamninga
milli stéttarfélaga og vinnuveit-
enda eftir þeim ieiðum, sem
landslög kveði á um.
Jafnaðar-
endurgreiðsl
ur til iðn-
fyrirtækja
gébé Rvik— Samkvæmt upplýs-
ingum frá Útflutningsmiðstöð
iðnaðarins, hafa nú verið greidd-
ar metnar jafnaðarendurgreiðsl-
ur til iðnfyrirtækja vegna útflutn-
ings á árinu 1974, en aðeins á út-
flutning, sem átti sér stað fyrir 1.
sept. það ár, þ.e. þegar gengi
krónunnar var fellt.
Litið er á, að þessi 2,5% endur-
greiðsla sé bráðabirgðaráðstöfun
til þess að jafna samkeppnisað-
stöðu islenzkra iðnfyrirtækja i út-
flutningi við erlend fyrirtæki,
þangað til virðisaukaskatti hefur
verið komið á hér á landi.
Breytingar á gengi krónunnar
hafa hér engin áhrif á sbr. gengis-
hækkun krónunnar vegna við-
skiptakjara i sjávarútvegi.
AUGLYSIÐ
í TÍMANUM
Halogen-ljós
J-perur -
ótrúlega mikið
Ijósmagn
PERUR Í ÚRVALI
NOTIÐ
ÞAÐ BESIA
H
Skipholti 35 • Símar:
8-13-50 verzlun • 8-13-51 verkstæöi • 8-13-52 skrifstofa
IGNH
ICMIC
ImIMIv
Nú f ylgir ekki kjötskrokkur
með í IGNÍS kistunni...
En við bjóðum
betraverð en uðrir.
****
C3EHB3
Nýjar sendingar komnar,
einnigúr
rvðfríu stánaé innan.
RAFIÐJAN
RAFTORG