Tíminn - 23.09.1975, Side 1

Tíminn - 23.09.1975, Side 1
1 1 ..................■1. . I 1 SLÖNGUR BARKAR TENGI Landvélarhf TARPAULIN RISSKEMMUR HF HORÐUR GUNNARSSON SKULATUNI 6 - SIMI (91)19460 'j Frysta síldin hækkar Heildarupphæð skafta nemur 5,6 milljörðum um 10% Gsal—Reykjavik. — A fundi i Verðlagsráði sjávarútvegsins f gær var ákveðið nýtt verð á frystri sild og verður það 35 kr. fyrir kg. A siðasta ári fékkst 31 kr. fyrir kg. af frystri sild, þannig að hækkunin nemur rúmlega Gsal-Reykjavlk — Sildveiðifiot- inn stefnir nú nær allur á sild- veiðarnar i Norðursjó, en þar hafa aflabrögð verið með bezta móti að undanförnu. Herpinótar- bátarnir sex, sem fengið hafa endanlegt lcyfi sjávarútvegs- ráðuneytisins til sildveiða við suðurströndina, hafa allir hætt veiðum, enda ekkert afiað til þcssa. Þá munu og aðrir bátar er ætluðu á herpinótarveiðar hafa hætt við þau áform aö sinni og halda þess I stað beint i Norður- sjóinn, en eins og greint hefur verið frá, hefur veiðikvótinn þar verið afnuminn. — Það sem vekur okkur von- brigði, sagði Kristján Ragnars- son, framkvæmdarstjóri L.Í.Ú., er að það álit fiskifræðinga, að sildin sé ekki veiðanleg við suður- ströndina, fyrr en i október, skuli ekki hafa komið fram fyrr en núna. Það hefur yfirleitt verið talið, að sildveiðar yrðu hag- kvæmar um leið og banninu væri aflétt, en svo kemur allt i einu i ljós núna, að menn eiga ekki von á, að sildin veiðist fyrr en i októ- ber. — Það er utilokað, að útgerð- in hafi möguleika á þvi að gera skip út i sildarleit, sagði hann. 10%. Fryst sild er sem kunnugt er notuð til beitu. Þess má geta i þessu sambandi að reknetasjómenn á Hornafirði, sem áttu i deilum út af sildar- verðinu, gerðu þá kröfu meöal annars að verð á frystri sild hækkaði um 10%. Kristján kvað það mjög miður að þetta álit hefði ekki komið fram fyrr, þvi að ljóst væri, að út- gerðin hefði stofnað til mikils kostnaðar við undirbúning herpi- nótarveiðanna. — Sjómenn hafa nú gefist upp á þessum veiðum og leita þvi eðlilega á önnur mið, sagði Kristján. Frá þvi hefur verið greint i fréttum að sjávarútvegsráðu- neytið ætli að taka herpinótar- veiðarnar til endurskoðunar 5. okt. n.k. og jafnvel svipta þá báta veiðileyfum, sem ekki hefðu hafið sildveiðar i nót — en fengið leyfi til þess — fyrir þann tima. Timinn bar þetta undir Kristján Ragnarsson. — Það hvarflar ekki annað að mér en að veiðarnar verði endur- skoðaðar með tilliti til þeirrar reynslu sem fram er komin — og að bátarnir verði ekki kallaðir heim i ótima sé enga veiðanlega sild búið að finna. Kristján kvað það augljóst, að flest síldveiðiskipin myndu fara á sildveiðar I Norðursjó til að byrja með, og aðspurður um veiðina þar, sagði Kristján, að aflast hefði vel siðustu daga. T.d. hefðu þrlr islenzkir bátar landað góðum afla i gær. Gsal-Reykjavik. — íslendingar greiða rúma fjóra milljarða kr. til rikisins i álagðan tekjuskatt, að frádregnum ónýttum persónuaf- slætti og barnabótum, svo og eignarskatt. Er hér átt við einstaklinga. Félög á tslandi greiða hins vegar tæpan einn og hálfan milijarð. Greiðendur tekjuskatts á tsiandi eru alls 53.788, og heildarupphæðir skatta Gsal-Reykjavík. — a Keflavikurflugvelli gerðist það á sunnudag, að ungur piltur, sem var að koma frá Luxemburg, gekk til tolivarða og afhenti þeim milli 50-00 gr. af hassi. Toll- verðirnir brugðust við þessari - óvæntu gjöf á þann hátt, að þeir er rúmir fimm milljarðar og 630 milijónir króna. Þegar tekið er tillit til hlutfalla á milli heildarupphæða ónýtts persónuafsláttar og þess hluta ónýtts persónuafsláttar, sem vitað er að rikissjóður kemur til með að greiða, þykir mega áætla að heildargreiðslur rlkissjóðs til sveitarfélaga 1975 verði nálægt 800.000.000 kr., þannig að mis- munur tekjuskatts einstaklinga annars vegar og greiðslu ónýtts persónuafsláttar og barnabóta hins vegar, verði um 4.220.000.000 kr., en vegna skattkerfis- breytinga á s.l. vori er sú fjárhæð, án frekari útreiknings, þó ekki samanburðarhæf við tekjuskatt einstaklinga að frádregnum skattaafslætti álögðum gjaldárið 1974. Hvað einstaklinga áhrærir eru tvö skattaumdæmi sem skera sig úr i heildarsköttum — einstaklingar i Reykjavik greiða rúma tvo milljarða, eða u.þ.b. helming heildarupphæðarinnar á landinu öllu — og einstaklingar i Reykjanesumdæmi greiða rúman milljarð kr. 1 Reykjavik greiða félög Tveir létust leituðu að frekari flkniefnum, bæði hátt og lágt á piltinum, — og bar sú leit þann árangur að u.þ.b. eitt kiló af hassi til viðbótar var dregiö upp úr stígvéium piltsins, og jafnframt fannst glas með ein- hverjum efnum á piltinum, og kvað hann efnið vcra „speed”- rúmlega 900 millj. kr. i skatta, og er Reykjanesumdæmi þar einnig i öðru sæti með 203 millj. kr. Tekjuskattur á landinu i heild hjá einstaklingum nemur rúmum sjö og hálfum milljarði kr., ónýttur persónuafsláttur ákvarðaöur til greiðslu útsvars samkvæmt skattútreikningi nem- ur liðlega 685 millj. kr., ónýttur persónuafsláttur mögulegur til greiðslu útsvars nemur rúmlega 427 millj. kr, barnabætur nema rúmum tveimur og hálfum milljarði kr. Þegar ónýttur per- sónuafsláttur og barnabætur eru dregnar frá tekju- skattsupphæðinni, kemur i ljós að mismunurinn á landinu i heild hjá einstaklingum er 3.915.901.964.- Eignaskattur einstaklinga nemur tæplega 262 millj. kr. Tekjuskattur félaga nemur rúmum milljarði kr., og eigna- skattur félaga rúmlega 230 millj. kr. Greiðendur tekjuskatts eru flestir i Reykjavik, eða 22.565, i Reykjanesumdæmi eru þeir 10.942., i Norðurlandsumdæmi eystra 5.376, Suðurlandsumdæmi 3.326, Vesturlandsumdæmi 3.230, Austurlandsumdæmi 2.740, Vest- fjarðaumdæmi 2.352, Norður- landsumdæmi vestra 2.088 og i Vestmannaeyjum 1.169. Nákvæmar upphæðir ónýtts persónuafsláttar til greiðslu út- svars eru fyrir hendi i þeim sveitarfélögum, þar sem útsvar er reiknað i skýrsluvélum og reyndist sú upphæð samtals 685.409.585.- kr. Þar sem útsvar er ekki reiknað i skýrsluvélum fæst aðeins útreikningur á þeirri upphæð ónýtts persónuafsláttar sem hæst getur komið til greiðslu útsvars. -> o Ungs manns saknað Gsal—Reykjavík. Talið er lik- legt að liölega 25 ára gamall mað- ur, Gunnar Ragnarsson, frá Vlði- gerði I Fáskrúðsfjarðarhreppi hafi drukknað s.l. sunnudagsmorgun, er hann fór einsamail á litlum bát frá Fáskrúðsfirði. Báturinn fannst manniaus langt úti á hafi. Leit að manninuni hefur ekki borið neinn árangur. duft en skilgreindi það ekki nánar. Piltur þessi mun vera þekktur meðal tollvarða á flugvellinum. Mál hans hefur verið sent fikni- efnadómstólnum til frekari rannsóknar. Allur sí Idar- flotinn í Norðursióinn — EINN SLASADiST LÍFS- HÆTTULEGA OG SÁ FJORDI SLASADIST ILLA Gsal—Reykjavík. — Tveir ungir menn létu lífið og tveir aörir slösuðust alvarlega I umferðarslysi við Svlnavatn I Grlmsnesi skömmu fyrir miðnætti aðfaranótt s.l. sunnudags. Piltarnir voru I bil.sem vait út af veginum með þeim afleiðingum að hann rann á hliöinni á tvo háspennustaura. Svo virðist, sem höggið hafi ver- ið mjög mikið, þvi þak bllsins lagðist nær saman, eins og sjá má á myndinni. Piltarnir sem létust sátu I aftursæti bifreiðarinnar og talið er, að þeir hafi iátizt samstundis. ökumaður og farþegi I framsæti liggja nú báðir alvarlega slasaðir á Borgarspitalanum, og hefur annar þeirra enn ekki komizt til meðvitundar. Piltarnir sem létust hétu Sveinn Siguröur Gunnarsson, Brekkubraut 5, Keflavlk, fæddur 7.8. 1955 og Eiríkur Asgríms- son, Rein, Laugarvatni, fæddur 3.5. 1952. Sjónarvottar voru engir að slysinu, en blllinn var á leið frá Laugarvatni til Selfoss er slysið varð. TEKINN Á KEFLAVÍKUR- FLUGVELLI MEÐ KÍLÓ AF HASSI í STÍGVÉLUNUM

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.