Tíminn - 23.09.1975, Blaðsíða 6
6
TÍMINN
Þri&judagur 23. september 1975
Aðsókn að AAennta-
skólanum ó fsafirói
aldrei meiri
— Framkvæmdir við nýja skólahúsið
hefjast næsta sumar
Menntaskólinn á tsafiröi hefur
nú veriö settur i sjötta sinn. Þetta
var i fyrsta sinn sem setningarat-
höfnin fer fram i húsakynnum
skólans, i nýjum mötuneytis- og
samkomusal í öörum áfanga ný-
bygginga á Torfnesi.
Jakob Hallgrimsson, tónlistar-
kennari, stjórnaði fjöldasöng við
upphaf og lok samkomunnar. Jón
Baldvin Hannibalsson skóla-
meistari, flutti setningarræðu og
gerði grein fyrir skólastarfinu á
vetri komanda.
Alls bárust rúmlega 70 umsókn-
ir um skólavist. Er það mesta að-
sókn, sem verið hefur að skólan-
um til þessa. Þar af hafa 62 nýir
nemendur staðfest umsókn sina,
50 i fyrsta bekk, en 12 i aðra
bekki. Alls munu 165 nemendur
stunda nám við skólann i vetur.
Nemendahópurinn skiptist þann-
ig, að 50 eru i 1. bekk, 39 i öðrum
bekk, 40 i 3. bekk, og 36 stúdents-
efni i fjórða bekk. Um 70 þessara
nemenda eru frá ísafirði, 33 ann-
ars staðar af Vestfjörðum og 62
koma viðsvegar að af lands-
byggðinni. Piltar eru 84, en
stúlkur 81. A öðru til fjórða ári
stunda 54 nám á félagsfræðakjör-
sviði en 61 á raungreinakjörsviði.
Hin nýja heimavist skólans
rúmar 80 manns og er hún full-
skipuð. Vistin skiptist i 7 smærri
einingar. A einni einingunni er
hjónagarður.
Fastir kennarar við skólann eru
12, en af þeim gegna 4 aðeins
hluta úr starfi. Stundakennarar
eru 4. Tveir kennarar láta nú af
störfum við skólann. Karl
Kristjánsson, viðskiptafræðing-
ur, sem jafnhliða kennslustörfum
vann að undirbúningi byggða-
áætlunar fyrir Vestfirði, tekur nú
upp störf hjá áætlanadeild
Framkvæmdastofnunar rikisins,
en við starfi hans hér tekur
Guðjón Skúlason, viðskiptafræð-
ingur. Asmundur Jónsson, sem
kennt hefur stærðfræði og eðlis-
fræðier farinn til framhaldsnáms
I Bandarikjunum, en Viðar
Agústsson, B.S. tekur við kenn-
arastarfi i stærðfræði og raun-
greinum. Lára Oddsdóttir, sem
verið hefur ritari og fulltrúi i
skrifstofu skólans, lætur nú af
störfum, en við tekur Herdis
Hiibner.sem varð stúdent i fyrsta
árgangi, sem Menntaskólinn á
ísafirði brautskráði. Auk þess
starfa við skólann tveir nýir
stundakennarar, Hallur P. Jóns-
son, B.A., kennir sálfræði og
heimspeki sem valgreinar, og
Sigriður Kristmundsdóttir B.A.,
sem kennir mannfræði og bók-
menntir.
Ymsar nýjungar i skólastarfi
verða teknar upp i' vetur. T.d. má
nefna, að tekin verður upp 5 daga
kennsluvika og boðið er upp á
margar nýjar valgreinar eins og
spænsku (2ja ára nám), sálfræði,
heimspeki og mannfræði og
framhaldsnám i stærðfræði fyrir
raungreinamenn. Námskeiðið
„grunnskóli ISt, ” sem er ætlaður
fyrir leiðbeinendur og þjálfara i
iþróttum, verður nú tekið upp i
fyrsta sinn.
Auk þess gefst nemendum
kostur á að stunda nám i val-
greinum við aðra skóla. Milli 15
og 20 menntskælingar stunda
nám við Tónlistarskóla Isafjarð-
ar en aðrir læra til vélstjóra eða
stýrimanns við Iðnskólann eða
velja sér þar tækniteiknun.
Byggingaframkvæmdum er nú
að mestu lokið við 2. áfanga
heimavistar- og mötuneytisbygg-
ingar skólans. Samt verður ein-
hver bið á þvi að hið nýja mötu-
neyti geti tekið til starfa, þar sem
tækjabúnaður i eldhúsi er enn
ekki tilbúinn til notkunar.
1 sumar hefur umhverfi
nýbygginganna verið lagfært
verulega, svæðið hefur verið
tyrft, gangstigir hellulagðir og
bilastæði og heimreið malbikuð.
Upphaflega var hluti neðstu
hæðar þessa nýja húsnæðis ætlað-
ur til heilsugæzlu. En þar sem
íslenzkar
vörur á
kaupstefnu
Dagana 18-21. september 1975
var haldin sýningin Scandinavian
Fashion Week i Bella Centret og
Fashion Center i Kaupmannahöfn
og var þessi sýning sú tuttugasta i
röðinni. Sýning þessi er haldin
vor og haust. tslenzkar vörur
voru vel kynntar á kaupstefnunni.
Að þessu sinni sáu tveir danskir
umboðsaðilar islenskra ullar-
vöruframleiðenda um
kynninguna. Voru það fyrirtækin
Elinor Jelsdorf, umboðsaðili Ála-
foss og fleiri og Islandia, umboös-
sali Sambandsins.
Auk hinna fyrrnefndu umboðs-
aðila kynnti danska fyrirtækið T-
Trading ullarvörur frá fyrir-
tækinu Kaupfell S/F.
Kynning íslenzku ullarvaranna
var i alla staði vel úr garði gerð
og þeim aðilum til sóma, sem að
henni stóðu. Sýningaraðilarnir
sjálfir létu allir vel yfir þátt-
tökunni og töldu hana nauðsyn-
legan lið i markaðsstarfsemi
sinni.
framkvæmdir við nýtt fjórðungs-
sjúkrahús og heilsugæslustöð eru
nú i þann veginn að hefjast i
næsta nágrenni skólans þótti sú
húsnæðisráðstöfun ofrausn. Varð
að ráði að Tónlistarskóli ísafjarð-
ar fengi inni i þessu húsnæði i
staðinn, þar til öðruvisi skipaðist
um framtiðarhúsnæði þess skóla.
Frá upphafi hefur verið ráð
fyrir þvi gert, að hin nýja heima-
vistarbygging yrði rekin sem
Eddu-Hótel að sumarlagi. Þar
verður gistirými fyrir 80 gesti i
tveggja og nokkrum eins manns
herbergjum, en 120 manns geta
matazt í senn i mötuneytissaln-
um. Forstjóri Ferðaskrifstofu
rikisins hefur þegar falazt eftir
húsnæðinu til hótelrekstrar næsta
sumar og eru þeir samningar i
undirbúningi af beggja hálfu.
Næstasumarerað þvi stefnt að
framkvæmdir geti hafizt við
þriðja áfanga nýbygginga, þ.e.
sjálft skólahúsið. Byggingadeild
menntamálaráðuneytis vinnur nú
ásamt arkitektum, bygginga-
nefnd og skólameistara, að
endurskoðun á upphaflegum
teikningum, með það fyrir augum
að skólahúsið geti fullnægt þeim
kröfum, sem gera verður til sam-
einaðs framhaldsskóla eða fjöl-
brautaskóla fyrir Vestfirði.
Töflur um
heildarskatta
Alagður tekjuskattur 1975* f jb'ldl greiðenda.
Skatturodssml:
Reykjavík 22.565
Ve s turlandsumdæmi 3*250
Vestf jarðaumdsemi 2.552
Noröurlandsumdasni vestra 2.088
Norðurlandsumdæmi eystra 5*376
Aus turlandsumdæml 2.7^0
Suður landsumdsemi 3*326
Vestmannaeyjar 1.169
Reykjanesumdæmi 10.9^2
Samtals 55.788
Alagning tekjuskatts 1975 félaga og einstaklinga að frádregnum ónýttum persónuafslætti og barnabótum,
svo og eignarskattur 1975. 1$ álag meðtalið.
Skattumá: E i r. s t a k 1 i n F e r P é 1 ö g
Tekjuskautv.r Ónýttur persónuafsl. ákvaroaöur til gr.útsv. skv.skattútr. Ónýttur pers ónuafs1. mögulegur tll gr. útsvars Barnabsstur Mismunur Eignar- skattur Samtals Tekjuskattur Eignar- skattur Samtals
Reykjavík 3.370.959-512 351.450.133 0 886.065.000 2.133.444.379 130.962.318 2.264.406.697 771.179.310 130.667.032 901.846.342
Vestihrland 385.022.712 32.888.362 57.078.429 184.635.000 110.420.921 13.584.935 124.005.856 44.253.466 8.466.658 52.720.124
Vestfiröir 325-334.485 16.265.161 50.343.798 130.920.000 127•805.526 5.322.394 133.127.920 44.837.913 12.144.588 56.982.50i
Noröurl.v. 206.990.700 0 128.869.550 125.310.000 í 47.188.850 9.395.592 ■* 37.793.258 8.919.521 4.678.597 I3.598.ll8
Horöurl.e. 644.34l.580 86.445.865 41.868.690 3iO.335.OOO 205.692.025 20.884.304 226.576.329 95.613.243 17.540.369 Ii3.i53.6i2
Austurland • 328.273.594 16.623.835 76.102.369 156.270.000 79.277.390 7.652.572 86.929.962 14.386.537 5.719.828 20.106.365
Suðuriand 400.935.300 29-102.460 73.197.743 184.170.000 114.465.097 20.172.915 134.638.012 . 53-210.443 10.322.726 63.533.169
Vestmannae. 185.511.468 13.657.689 0 54.720.000 117.133-779 4.528.688 121.662.467 19.095.802 8.192.889 27.288.691
Reykjanes 1.806.035.277 138.976.080 0 592.207.500 1.074.851.697 49.193.007 1.124.044.704 170.615.027 32.692.835 203.307.862
Samtals: 7.653.404.628 685.409.585 427.460.579 2.624.632.500 3.915.901.9'$4 26l.696.725 4.177.598.689 1.222.111.262- 230.425.522 1.452.536.784
1. Nákvæmar upphæðir ónýtts perscnuafsláttar til greiðslu útsvars eru fyrir hendi í þeim sveitarfélögum þar sem útsvar
er reiknað i skjfrsluvéluo og reyndist sú upphæð samtals 685.409-585 kr.
2. Þar sem útsvar er ekki reiknað í skýrsluvélum fæst aðeins útreikningur á þelrri upphæð ónýtts persónuafsláttar sem
hæst getur komið til greiðslu útsvars.
5. Þegar tekið er tillit til hlutfalla á milli heildarupphæða ónýtts persónuafsláttar og þess hluta ónýtts persónuaf-
sláttar, sem vitaö er að ríkissjóður kemur til með að greiða, þykir mega áætla að heildargreiöslur ríkissjóðs til
sveitarfélaga 1975 veröi nálægt 800.000.000 kr., þannlg að mismunur tekjuskatts einstaklinga annars vegar og greiðslu
ónýtts persónuafsláttar og barnabóta hins vegar verði um 4.220.000.000 kr. en vegna skattkerfisbreytinga á sl. vori
er sú fjárhæð, án frekari útreiknings, þó ekki samanburðarhæf við tekjuskatt einstaklinga að frádregnum skattafslætti,
álögðum gjaldárlð 1974.