Tíminn - 23.09.1975, Side 2
'2
TÍMINN
Þriðjudagur 23. september 1975
Pólýfónkórnum
boðið í söngför
til Ítalíu
Kórnum boðið að syngja inn á
plötu fyrir heimsmarkað
Ekki hugsar Pólýfónkórinn sér
að lækka seglin á næsta starfsári
þvi að ráðgert er að taka til flutn-
ings Messu i h-moll eftir J.S.
Bach, sem margir telja tilkomu-
mesta kórverk allra tima.
Pólýfónkórinn flutti þetta verk i
fyrsta sinn á íslandi árið 1968, þá
nokkuð stytt, en nú mun ætlunin
að flytja verkið óstýtt um næstu
páska. Jafnframt hefur kórinn i
hyggju að bjóða listahátiðanefnd
endurflutning þess með heims-
þekktum einsöngvurum á Lista-
hátíð i Reykjavik 1976.
Nýlega hefur þekkt erlent út-
gáfufyrirtæki farið þess á leit við
Pólýfónkórinn að hann syngi stórt
erlent kórverk inn á hljómplötu
fyrirheimsmarkað,en ekki hefur
enn verið tekin afstaða til þess til-
boðs og verður naumast gert fyrr
en á aðalfundi kórsins, sem hald-
inn verður 10. október.
Þá hefur kórnum einnig boðizt
að syngja i nokkrum borgum
Italiu. Þrátt fyrir annriki mun
Ingólfur Guðbrandsson forstjóri
starfa áfram sem söngstjóri
Pólýfónkórsins.
Pólýfónkórinn og söngstjóri
hans hefur jafnan þótt djarfur i
verkefnavali. Siðasta viðfangs-
efni hans var oratorian Messias
eftir Hándel, sem flutt var þrisv-
ar sinnum við húsfylli i
Háskólabiói um páskana, en eftir
það bauðst kórnum að endurtaka
flutninginn i Edinborg i byrjun
mai s.l. Var það ein mesta sigur-
för kórsins, lófataki áheyrenda
ætlaði aldrei að linna og strangir
gagnrýnendur hældu kórnum á
hvert reipi.
Til eflingar starfsemi sinni og
söngmennt almennt hefur Pólý-
fónkórinn i mörg undanfarin ár
rekið söngskóla. Úr söngskólan-
um er margt af þvi fólki komið,
sem fyllt hefur raðir söngvara á
hljómleikum kórsins t.d. i Messi-
asi I vor. Kennslugreinar i
Kórskólanum eru raddbeiting og
söngur, tónheyrnar- og taktæfing-
ar og nótnalestur. Kennt er eitt
kvöld i viku á mánudögum, 2
stundir i senn i 10 vikur og fer
kennslan fram i Vogaskóla,
Skólastjóri Kórskólans er Ingólf-
ur Guðbrandsson.
16 MILLJARÐAR
Ólafur Jóhannesson, viðskiptaráðherra, heimsótti verksmiðju Iceland Products, er hann var á ferð I
Bandarikjunum á dögunum I sambandi við aðalfund Alþjóðabankans. Með ráðherranum heimsóttu
Iceland Products þeir Jón Sigurðsson, forstöðumaður Þjóðhagsstofnunar og Jón Sigurðsson, banka-
stjóri hjá Alþjóðabankanum, og eiginkonur þeirra. Á myndinni sést Ólafur Jóhannesson i skoðunar-
ferðinni um verksmiðjuna og það er Guðjón B. ólafsson, aðalframkvæmdastjóri Iceland Products
inc. sem er leiðsögumaður.
14 nýstúdentar til náms
í Bandaríkjunum í haust
A meðal þess, scm Geir Hall-
grimsson forsætisráðherra skoð-
aði i Noregsferðinni var griðar-
mikill oliuborpallur, sem nú er i
smiðum hjá Nylands verksteder i
Osló. Oliuborpallar eins og þessi
eru hin mestu ferliki og eins og
sjá má gnæfir pallurinn yfir húsin
i baksýn. Kaupverð slikra palla
er um 200 milljónir norskra króna
eða nálægt sex milljörðum is-
lenzkra króna.
fyrir tilstuðlan Íslenzk-ameríska félagsins
Undanfarin ár hefur tslenzk--
ameriska félagið veitt nýstud-
entum aðstoð við að fá skólavist
og námsstyrki við bandariska há-
skóla. Er þetta gert i samvinnu
við stofnun i New York, sem
nefnist Institute of International
Education. En hlutverk þessarar
stofnunar er m.a. að miðla tilboð
um bandariskra háskóla um
skólavist og styrki til erlendra
stúdenta.
Á þessu hausti hefja 14
stúdentar nám í Bandarikjunum
fyrir slika milligöngu félagsins.
Af þessum stúdentum eru 2 frá
Menntaskólanum á Akureyri, 3
frá Menntaskólanum við Hamra-
hlið, 3 frá Menntaskólanum á Isa-
firði, 3 frá Menntaskólanum i
Reykjavik, og 1 frá hverjum
eftirtalinna skóla: Handiða- og
myndlistarskóla -tslands,
Menntaskólanum við Tjörnina og
Verzlunarskóla tslands.
Styrkupphæðir hafa að jafnaði
nægt fyrir skólagjöldum, sem eru
oft mjög há i Bandarikjunum. I
nokkrum tilvikum hefur einnig
fengizt styrkur fyrir dvalar-
kostnaði.
Félagið mun sem áður veita
ofangreinda aðstoð þeim, sem
hyggjast hefja háskólanám i
Bandarikjunum haustið 1976.
Styrkþegar skulu að jafnaði ekki
vera eldri en 25 ára. Flestir
styrkir eru á sviðialgengra hug-
visinda, en erfítt er að afla
styrkja til ýmiss sérnáms og
flestra raunvisindagreina.
Umsóknareyðublöð um slika
aðstoð félagsins fást á skrifstof-
um flestra skóla á
menntaskólastigi og hjá
Islenzk-ameriska félaginu,
pósthólfi 7051, Reykjavik.
Umsóknum þarf að skila til
félagsins fyrir 15. okt. n.k. Skóla-
styrKjanefnd félagsins velur þær
umsóknir, sem sendar verða
áfram til Bandarikjanna.
Úrslit í Nessókn
liggja fyrir á
fimmtudaginn
Prestkosning fór fram I Nessókn i
Reykjavik á sunnudaginn. Kosn-
ingaþátttaka var 46% þannig að
kosningin er ólögmæt. Atkvæði
verða talin á skrifstofu biskups á
fimmtudag, og fæst þá úr þvi
skorið hvor frambjóðendanna
tveggja, þeirra Guðmundar Ósk-
ars Ólafssonar og Arnar Friðriks-
sonar hefur meiri hylli sóknar-
barnanna.
,,Þessi heimsókn varð
okkur mikið ónægjuefni"
— eða helmingi meira en í fyrra
— sagði forsætisréðherra að lokinni
opinberri heimsókn til Noregs
HHJ-Rvik — A laugardaginn lauk
fjögurra daga opinberri heim-
sókn Geirs Hallgrimssonar for-
sætisráðherra og konu hans, Ernu
Finnsdóttur, til Noregs. Forsætis-
ráðherrahjónin kvöddu Trygve
Bratteli forsætisráðherra Noregs
og Randi, konu hans á Fornebu-
flugvelli við Osló og héldu siðan
til Kaupmannahafnar, þar sem
þau munu dveljast nokkra daga i
frii.
Geir Hallgrimsson sagði að
heimsókninni lokinni, að hann
væri hinn ánægðasti með förina
og hinar höfðinglegu og vinjarn-
legu móttökur, sem þau hjónin og
fylgdarlið þeirra hefði hvarvetna
hlotið.
Á siðasta degi heimsóknarinnar
heimsóttu forsætisráðherrahjón-
in Sunnaas-sjúkrahúsið, sem
stendur við Oslófjörð, skammt
utan við Osló. Á þessu sjúkrahúsi
dvelst fólk, sem hefur orðið fyrir
alvarlegum áföllum og þarf mik-
illar endurhæfingar við, og er
þetta sjúkrahús hið fullkomnasta
sinnar tegundar i heiminum.
Meðan á heimsókninni stóð
bauð Geir Hallgrimsson Trygve
Bratteli og konu hans i opinbera
heimsókn til íslands. Bratteli
sagði við blaðamenn, að sér væri
hin mesta ánægja að þvi að
þekkjast þetta boð og myndi
koma til íslands eins fljótt og
hann fengi þvi við komið, þótt
hann gæti ekki sagt hvenær það
gæti orðið að svo komnu máli.
Gsal-Reykjavik — Vöruskijta
ijöfnuður I ágústmánuði s.l. var
óhagstæður um 1 milljarð og 275
Nýr forstjóri
Bæjarútgerðar
Hafnarf jarðar
Á bæjarstjórnarfundi hjá
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar var
nýlega samþykkt að ráða
Guðmund R. Ingvason, forstjóra
Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar,
frá og með 15. sept. 1975.
Guðmundur er viðskipta-
fræðingur að mennt, þrítugur að
aldri og hefur starfað sem skrif-
stofustjóri Bæjarútgerðarinnar
um 1 árs skeið. Frá sama tima
lætur af störfum Einar S. M.
Sveinsson, eftir 5 ára starf sem
forstjóri fyrirtækisins. Einar
tekur þá við starfi forstjóra
Bæjarútgerðar Reykjavikur.
millj. kr. Vöruskiptajöfnuður það
sem af er þessu ári er nú orðinn
óhagstæður um rúma 16 milljarði
króna. Til samanburðar má geta
þess, að fyrstu átta mánuði slð-
asta árs var vöruskiptajöfnuður-
inn óhagstæður um rúma 8 mill-
jarði kr.
I ágústmánuði var flutt út fyrir
samtals 3.265,9 milljarði kr. en
innflutningur nam hins vegar
rúmum fjórum og hálfum mill-
jarði kr.
1 fyrra var ál og álmeti flutt út
fyrir rúmar 313 millj. kr. I ágúst-
mánuði en I sama mánuði nú, að-
eins fyrir rúmar 84 milljónir. Þá
má nefna að innflutningur til
Landsvirkjunar og islenzka ál-
félagsins nam i ágústmánuði s.l.
tæplega 274 milljónum kr, en I
ágústmánuði fyrra árs tæplega 96
milljónum kr.
I MINUS ÞAÐ
SEM AF ER ÁRI