Tíminn - 05.10.1975, Side 4
4
TÍMINN
Sunnudagur 5. október 1975
Hægt að afstýra þrumuveðri
t Jarðeðlisfræðistofnuninni i
sovétlýðveldinu Grúsiu hefur
mönnum nú tekizt eftir langvar-
andi rannsóknir að afstýra
þrumuveðri. Visindamennirnir
komust að þvi að skýin fara að
senda frá sér rafbylgjur löngu
áöur en þau verða að eiginleg-
um þrumuskýjum. Hægt er að
skrá þessa útgeislun með radar
eða öðrum slíkum útbúnaði.
★
Þannig er með mikilli
nákvæmni hægt að slá þvi föstu,
hvar og hvenær þrumuveður
muni skella á, ef þvi er leyft að
hafa sinn gang án nokkurrar
ihlutunar. En ef mönnum svo
sýnist er lika hægt að strá efn-
um i skýjamyndanirnar, sem
þar með leysast upp eða rekur á
brott án þess að þrumuveðrið
skelli á þar sem það getur orðið
til skaða. Óþarfi er að rekja
hvaða þýðingu þelta hefur fyrir
samgöngur bæði á sjó og i lofti.
Áður höfðu sovézkir visinda-
menn fundið upp efnafræðilegar
aðferðir til þess að koma i veg
fyrir haglél — og hefur mikilli
uppskeru verið bjargað með
þeim aðferðum. Reynsla Sovét-
manna i þessum efnum er nú
hagnýtt viða um lönd.
★
Frúin hefur spásagnargófu
Við sjáum hér Anthony Quinn
ásamt konu sinni, Iolanda
Andoari, em er itölsk og þrem
sonum þeirra hjóna. Quinn seg-
ir, að kona sin Iolanda, sé bezti
ráðgjafi sinn i sambandi við það
hvort hann taki að sér að leika
þetta eða hitt hlutverkið.
Anthony segir, að kona sin hafi
ótviræða spásagnargáfu og viti
hún alltaf fyrirfram hvernig
kvikmyndir, sem hann leikur i,
muni takast. Iðulega hefur hún
varað hann við að taka hlut-
verkum, sem honum hafa boðizt
og hann segist fara eftir þvi, —
ekki sizt siðan ég ætlaði einu
sinni að fara að treysta á eigin
dómgreind, segir hann, — og
skeytti engu um aðvaranir
eiginkonunnar, en sú kvikmynd
misheppnaðist algjörlega og
varð mikið tap á henni. — Ég
treysti þá ekki á þessa yfir-
náttúrulegu hæfileika Iolanda,
en það kemur ekki fyrir mig aft-
ur, sagði hinn frægi leikari.
h I \
Sumarleyfi
á sveitabæ
Aldrei hafa jafnmargir
Þjóðverjar tekið sér sumar-
leyfi og i sumar. Þeir sem i
sumarleyfi fóru, eru taldir hafa
verið tuttugu og sex milljónir
talsins, og er það þremur
milljónum fleiri en á siðasta ári.
En fólk lagði nú meira upp úr
þvi en áður að reyna að spara i
sumarleyfinu, að þvi er sagt er,
og þrátt fyrir sihækkandi
verðlag tókst fólki að halda i
horfinu og eyða ekki meira i ár
en á siðasta ári i sumarleyfi sitt.
Um það bil helmingur þeirra,
sem i sumarleyfi fóru, eyddu
þvi i Þýzkalandi sjálfu, og er
það meira en verið hefur.
Samtals 24 þúsund bóndabæir
taka á móti sumardvalargest-
um sem greiða fyrir dvöl sina
hjá bændafjölskyldum, og i Ijós
hefur komið, að mun meiri að-
stókn var I sumar að sveita-
bæjardvölinni heldur en nokkru
sinni fyrr. Borgarbúar hafa
mjög gaman af dvöl sinni á
þýzku sveitabæjunum, en þar
gefst þeim tækifæri tií þess að
bregða sér á hestbák, borða
góðan mat og njóta útiverunnar
til hins itrasta, - auk þess sem
margir hafa gaman af þvi að
létta undir með sveitafólkinu
við vinnu þess. Borgarbörnin
hafa ekki hvað sizt gaman af
þessari sveitadvöl. Upplýsinga-
skrifstofa landbúnaðarins hér á
landi auglýsti á siðasta vori
eftir rými á sveitabæjum, þar
em borgarbúar gætu dvalizt.
Þvi miður varð ekkert úr þess-
ari starfsemi, en án efa hefðu is
lenzkir borgarbúar ekki siður
haft ánægju af sveitadvölinni
heldur en þeir þýzku, og þá
hefðum við ef til vill getað birt
álika mynd og þessa af islenzk-
um börnum i sveit.
DENNI
DÆAAALAUSI
Mér þótti þær góðar, þangað til þú
sagðir mér, hvað þú notar I þær.
Súrmjólkurpönnukökur.