Tíminn - 05.10.1975, Qupperneq 6

Tíminn - 05.10.1975, Qupperneq 6
6 TÍMINN Sunnudagur 5. október 1975 Heimilisfólkið á KaðalstöOum (1930) ab fara í útreiöartúr Vinnumaður á Kaðalstöðum ú baki bola Viö skulum lita til Borgar- fjarðar að þessu sinni og athuga fyrst mynd af Kaðalstöðum i Stafholtstungum, liklega tekna um eða skömmu eftir aldamótin. Arið 1898 byggði Ölafur Þorbjörnsson þetta stór, bárujárnsklædda timburhús, er stóð tii 1937 og þótti hið myndar- legasta. Var eitt af fyrstu stóru timburhúsum i sveitinni. — önnur mynd sýnir Kaðalstaða- fólk leggja af staö í útreiðartúr sumarið 1930. Mér komu i hug ljóðlfnur Ur Grettisljóðum: „Einhver rumur riður þar, rammlega vaxinn tilsýndar, töskum girtan teymir mar” o.s.frv. Það er orðin sjaldgæf sjón að sjá töskum girtan mar. Árið 1935 sjáið þið heyskapar- liðiö á Kaðalstöðum. Sérstæð er myndin af vinnumanninum þar á baki bola, sem virðist hinn ró- legasti. Þið hafið kannske séð kvikmyndir af kUrekum i Ame- riku, þarsem þeir’reyna að tolla á baki ólms nautpenings? Jæja, ég man vel eftir stóra gráa bola heima á Hámundarstöðum. Vinnumaður einn roskinn leiddi hann um sveitina. Þegar boli hafði lokið erindi sinu við kým- ar, lagði vinnumaður upp taum- inn og sté á bak bola, sem bara labbaði heim og stanzaði við fjósdymar. Fyrir um það bil einni öld komu öldruð hjón af bæ framar- lega i dalnum, jafnan til kirkju dfðandi á vel tömdum nautum. Þau sátu á þófa. Höfðu menn gaman af að horfa á reiðlagið! Loks ber fyrir augu gamall burstabær i Stafholtsveggjum eins og hann leit Ut um 1936. Borgfirðingar þekkja eflaust fólkið á myndinni. Þessi bær er nUhorfinn eins og flestir torfbæ- ir. Ragnar Ólafsson deildar- stjóri léði myndirnar. f . " 1 Ingólfur Davíðsson: Byggt og búið í gamla daga n Heyskaparfólk á Kabalstööum (1935) Stafholtsveggir (1936). Björn ólafsson bóndi KaOalstaöir (1898)

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.