Tíminn - 05.10.1975, Síða 12

Tíminn - 05.10.1975, Síða 12
12 TÍMINN Sunnudagur 5. októbcr 1975 Veizlusalir Hótel Loftleiöa standa öllum opnir HÓTEL LOFTLEIÐIR PHILIPS 30% meiraQós á vinnuflötinn sami orkukostnaóur PhilipsArgenta’ SuperLux keiluperan með óviójafnanlega birtuglugganum Dieselrafstöð til leigu Höfum til leigu mjög vel búna dieselrafstöð, 37 kwa, 380/220 V ORKA H.F. Laugavegi178. Sími 3-8000. Fiat 126 — Ódýrir snjóhjólbarðar Við bjóðum ódýra snjóhjólbarða ó Fiat 126. Stærð 125—12 Kr. 4.794 með söluskatti Véladeild Sambandsins HJÓLBARÐAR HÖFÐATÚNI 8 SÍMAR 16740 OG 38900 , Jóhann Gubmundsson — aö baki hans eru myndir úr þorskastriöinu. Ég geri mér góðar vonir um að okkur takist að auka enn ferðamanna strauminn frá Bretlandi til íslands, en hann jókst um 48 prósent í júli Eins og kunnugt er af fréttum, hefur brezkum feröamönnum til islands fækkaö mjög á undan- förnum árum, en dýrtiö á islandi og þorskastriöiö hiö siöara gerði þaö aö verkum, aö fjöldinn komst niöur i hálft fimmta þúsund úr rúmum sjöþúsundum. Ilins veg- ar viröist nokkur fjörkippur vera kominn i ferðalög brezkra til is- lands, eins og raun ber vitni. TÍMINN ræddi þetta og ýmis fleiri atriöi viö Jóhann nú ekki alls fyrir löngu, en þess má geta, aö skrifstofa Flugleiöa er i mjög vistlegu húsnæöi i 73 GROSVENOR STREET — staöurinn er í hjarta borgarinnar og mjög auövelt fyrir landann að rata þangað, cnda mun þaö ó- spart notaö. Starfsfólk Flugleiöa viö skrifstofuna I London er að jafnaði um 15 manns, en minni- hluti þess hóps eru tslendingar. Viö spuröum Jóhann I upphafi, hvaö hafi valdiö þeirri aukningu, sem oröiö hefur á feröamanna- straumnum. Verðlag i Bretlandi stöðugt að nálgast hið ís- lenzka — Þaö er i rauninni margt sem leiöir til bess að Bretar sækja sífellt meir til íslands en til dæmis i fyrra. Ein ástæðan er sú aö verðlag i Bretlandi hefur hækkað mjög mikið á undanförn- um árum — til dæmis hefur raf- magn og gas hækkað hvorki meira né minna en um 30-40% á siðastliðnu ári, og verðbólgan er um 30%. Okkur íslendingum blöskrar þetta ekki, en Bretum, sem áður héldu að þjóðfélagið væri að hrynja i rústir ef verðbólga var á milli 3-4% þykir nóg um. Þessar verðhækkanir gera það að verkum — eins og áður kom fram — að verðlagið á Islandi er Bretum ekki eins mikill þyrnir í augum og áður. Þá hefur brezkur almenningur mikið til gleymt þorskastriðinu, sem setti óneitanlega mikið strik i reikninginn hjá okkur. Hins veg- ar hef ég ekki þá trú að sama staðan komi upp aftur við út- færsluna nú i haust, þvi að brezkir sjómenn hafa hug á hinu sama. Londonarskrifstofan hefur lagt mikla áherzlu á að kynna ísland sem ráðstefnuland Hvað varðar starfsemi Flug- leiða, þá höfum við lagt mjög mikla áherzlu á að kynna tsland sem ráðstefnuland, eða ,,Mid Atlantic Meeting Place” eins og við nefnum það á ensku. Með þessu vinnum við tvennt, annars vegar er auðvitað um aukinn ferðamannastraum að ræða, og hins vegar gerir þetta okkur kleift aö lengja ferðamannatimabilið um 2-4 mánuði, sem er ekki svo litilvægt, þegar það er haft i huga að það nær einungis yfir blásumarið. Okkur hefur lika orðið sæmilega ágengt, t.d. fóru til tslands tvö hundruð læknar i vor — og það skemmtilega við þann hóp er að margir læknanna hafa þegar skipulagt ferðir til Is- lands aftur næsta sumar og þá með fjölskyldur sinar. Þannig fá- um við viðkomandi fólk ekki einungis sem ráðstefnuaðila held- ur einnig siðar sem almenna ferðamenn. Einnig fer hópur á okkar vegum til tslands til að keppa i Mattador. Það eru um 24 keppendur, en með i förinni eru lika 60 blaða- og sjónvarpsmenn, svo að þar ætti ísland að fá mikla og góða auglýsingu. Ég held að okkur sé sem sagt að takast þetta, enda hefur tsland uppá margt að bjóða sem ráðstefnuland. Og þegar það hefur tekizt, þá getum við farið að slappa örlitið af, þvi að þegar starfsemi sem þessi er komin i gang, þá er þetta eins og snjóbolti, sem stöðugt hleður utan á sig. TÍAAINN ræðir við Jóhann Sigurðsson, framkvæmdastjóra Flugleiða í London Cr afgreiðslunni. ■

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.