Tíminn - 05.10.1975, Síða 13

Tíminn - 05.10.1975, Síða 13
Sunnudagur 5. október 1975 TÍMINN 13 Halla Aradóttir viö sjónvarpsskerminn, en á honum birtast upp- lýsingar um þaö, hvort einhver sæti séu laus i þeirri ferö, sem spurt er um. Ekki ráð, nema i tima sé tekið... — Hvemigmásegja aöstarfsemi skrifstofunnar sé háttaö i aöalat- riöum ? — Ef viö byrjum á haustinu þá er á þvi timabili lögö aðaláherzla á þær ferðir, sem farnar verða á komandi sumri. 1 þvi sambandi er haft samband viö flestar feröa- skrifstofur, og þær fengnar til að taka Islandsferðir inn i sina bæklinga auk ferða Flugleiöa til Bandarikjanna og Bahama. Þá er um haustið undirbúin auglýsinga- starfsemi, sem er alls ekki svo litil, til dæmis nam auglýsinga- kostnaöur um 10 þúsund pundum á sföastliðnu ári, og er þar Arni Hermannsson les blööin af kappi. einungis um beinan kostnaö að ræöa — óbeinn kostnaður er vafalaust eitthvað svipaður. Auglýsingastarfsemin hefst svo i desember eða janúar, en þá fara lika öll hjól I gang. Sölufólk okkar heimsækir ferðaskrifstofur, fundir eru haldnir með forstjór- um og starfsfólki skrifstofanna hérna i kjallaranum hjá okkur, einu sinni I viku er almenningi gert kleift að koma hingað og fræöast um land og þjóð. Þá er á þessum tima einnig mest ásóknin i þær kvikmyndir, sem við höfum til umráða, og að lokum eru fyrir- lestrar, sem haldnir eru hjá hin- um ýmsu félögum og h'ópum, sem hafa hug á að sækja tsland heim. Sem dæmi um mátt auglýsinganna get ég sagt þér, aö ~ við höfum fengið hátt á annað hundrað fyrirspurnir um tsland á einum degi, þegar auglýsingarnar hafa verið i gangi i blöðunum — en annars er það þetta 600-700 fyrirspurnir á viku. — Þess má einnig geta, að kjallarinn sem ég minntist á áöan er okkur mikið þarfaþing. Aður stóðu málin þannig, að ef við ætluöum að hafa einhvers konar kynningar á landinu, eða fundi með einhverjum aðilum, urðum við alltaf að leita út i bæ eftir hús- næði, og þar með misstum við af hinu persónulega sambandi, sem óneitanlega fæst hér. Hinsvegar var strax um og eftir þorska- striðið nokkurt vandamál, hvernig brugðizt skyldi við þvi, en hér í London leystum við það á þann hátt, að hengja upp á veggina skopmyndir úr þorska- Striðinu, sem birtust i brezkum — blöðum á sinum tima. Sturla Pétursson Vantar að koma hinum erlenda ferðamanni i nánari snertingu við þjóðina sjálfa. — Að lokum Jóhann, hvað er það sem þér finnst einna mest skorta i sambandi við móttökur á erlend- um ferðamönnum á Islandi? — Hvað varðar þá ferðamenn, sem koma til Islands yfir há- sumarið, skortir litið á að þeim sé veitt fullnægjandi þjónusta — þeir kynnast landi og þjóö ágætlega. En þeim ferðamönnum, sem koma utan aðalferðamannatima- bilsins, er alls ekki sinnt nægjan- lega vel. Starfsemi eins og „Light Nights” er ágæt, en mætti ná yfir mun lengri tima. Það er nefnilega mála sannast, að erlendur ferða- maöur sem kemur t.d. til tslands I nóvember, kynnist landi og þjóð litið sem ekkert, þótt hann hafi fullan hug á þvi. Asmundur Guöjónsson kemur til að Hta á blööin aö heiman. Grétar Guðmundsson: Með nýju bókunarkerfi er útilokað að nokkur mistök eigi sér stað Grétar Guömundsson. Grétar hefur yfirum- sjón með farmiðaaf- greiðslu Flugleiða i London, og nú fyrir skömmu var tekið i notkun tölvukerfi hjá fyrirtækinu. Við báðum Grétar að lýsa þvi, hvernig það starfaði. — Þetta er svokallað Gabriel-kerfi, og aðalheilinn er i Atlanta I Bandarikjunum. Með hjálp kerfisins er okkur nú unnt að sjá á augabragði, hvort um er að ræða laust sæti fyrir viökom- andi. Aður gat það alltaf komið fyrir, að starfsmaður bókaöi far- þega I vél sem var yfirfull, en þessi tækjasamstæða segir okkur þrennt, I fyrsta lagi hvort um er að ræða laust sæti, I öðru lagi hvort vélin er þegar full, og I þriðja lagi hvort vélin er full og biðlisti svo langur, að ekki þýði að setja meira á hann. Til aö útiloka enn frekari vitleysur, tekur tölv- an ekki heldur við yfirbókunum. — Hefur þetta ekki auðveldaö ykkur mjög starfsemina? — Jú. Það er vist óhætt að full- yrða það, en það er ekkifyrstog fremst við, sem njótum góðs af. Miklu máli skiptir, aö farþeginn geti verið öruggur um aö sæti hans sé I raun og veru tryggt. Við fengum samstæðuna um miðjan ágúst, þannig að starfsfólkið er enn að venjast nýjunginni, en þaö breytir þvi ekki, að öll erum við jafn hrifin af henni. — En nú hafið þið einnig telex hér. — Já, það gegnir aftur þvi hlut- verki að taka til dæmis við allri almennri umferö, svo sem mið- um, sem afgreiddir eru heima, fyrirspurnum um hótel og fleira. AAyndir og texti: Ask

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.