Tíminn - 05.10.1975, Síða 24

Tíminn - 05.10.1975, Síða 24
24 TÍMINN Sunnudagur 5. október 1975 LÖGREGLUHA TARINN 33 Ed McBain Þýðandi Haraldur Blöndal ^ . ' ■■ ■■■■■■ é framkvæmdir að þær léttu sálarlíf manna. Hann var lögreglumaður. Þar af leiddi að allar slíkar persónur úr sjónvarpi og kvikmyndum loddu við atvinnu hans. Þröngsýnn borgari lætur blekkjast af snilli leyni- lögreglumannsins. Carella velti því fyrir sér hversu margir sjónvarpsrithöf undar væru liggjandi í myrku og köldu húsasundi þetta kvöld. Skyldu þeir bíða eftir tveimur þorpurum, sem réðust á varnarlausa menn? Það versta við heyrnardaufa manninn var að hann lífg- aði upp allar gervipersónur sjónvarps og kvikmynda. Þegar sá heyrnardauf i birtist á vígvellinum virtust allir lögreglumenn sveitarinnar hálfvitar og klaufskir aula bárðar. Glæpamaðurinn varð hetjan. Ef maður gat valdið slíkri upplausn með fáeinum sim- tölum og bréfum, hvað mundi þá gerast ef..... Carella stifnaði allur. Bert Kling, leynilögreglumaður, var settur til að fylgjast með ferðum Anthony La Bresca. Kling hafði aldrei séð La Bresca fyrr. Brown var búinn að hringja á stöðina og tilkynna flokksforingjanum að La Bresca hefði játað aðild í væntanlegum glæp. Þetta var næg ástæða til að fylgjast með ferðum hans. Kling varð að yfirgefa hlýja íbúð Cindy og aka til Riverhead. Hann beið andspænis húsi La Bresca og vonaðist til að geta klófest bráðina um leið og hún yfirgæfi húsið og færi til fundar við Dominick. Brown hafði tilkynnt flokks- foringjanum að þeir La Bresca og Dominick ætluðu að hittast klukkan tíu þetta kvöld. Nú var klukkan sjö minútur yf ir níu. Kling taldist svo til að hann hefði mætt nógu snemma til að frjósa fastur. La Bresca kom gangandi niður bílaútkeyrslu hússins tíu mínútur í tíu. Kling hörfaði inn í skuggann bak við kyrrstæða bifreið. La Bresca gekk í austurátt. Hann var auðsjáanlega bifreiðarlaus — og Kling bölvaði óheppni sinni. Hann hleypti La Bresca fram fyrir^ig um tutfugu metra áður en hann hóf eftirförina. Kaldur vindurinn stóð í fang hans. Kling neyddist til áð beina andlitinu í vindinn til að missa ekki sjónir á La Bresca. Og hann bölvaði því órttlæti veðráttunnar, að angra þá menn sem urðu að vinna störf sín utandyra. Ekki svo að skil ja að hann ynni alltaf úti. Oft sat hann við skrif borð sitt og vélritaði skýrslur í þríriti. Þess á milli hafði hann samband við fórnarlömb og vitni. En hann gat með réttu sagt, að mest vann hann úti við, þvældist fram og aftur um borgina, spurði spurninga, safnaði upplýsingum. Þetta var sá alversti kuldavetur sem hann hafði nokkru sinni upplifað. Vonandi ferð þú á einhvern hlýjan og notalegan stað, hugsaði hann með sér. Kæri La Bresca, vonandi átt þú stef numót við þennan vin þinn í tyrknesku gufubaði eða öðrum ámóta stað. Framundan var La Bresca. Hann gekk upp í átt að stöðvarpalli við járnbrautarstöðina. Hann gaut augunum að Kling, en aðeins sem snöggvast. Kling beygði höf uðið í snarhasti og jók svo gönguhraðann. Hann vildi ekki að La Bresca væri horfinn inn í einhverja lestina og stunginn af er hann kæmi upp á pallinn. En hann hefði getað sparað sér þær áhyggjur. La Bresca beið hans við miðasöluna. — Ert þú að elta mig, spurði hann. — Hvað þá, sagði Kling. — Ég sagði ERT ÞÚ AÐ ELTA MIG, spurði La Bresca. Á þessari stundu átti Kling sárafárra kosta völ. Hann gat til dæmissagt: — Ert þú eitthvað verri? Því skyldi ég vera að elta þig? Þykist þú vera svona eftirsóknar- verður? Hann gat líka sagt: — Já, ég er að elta þig. Ég er lögreglumaður. Hér eru einkennismerkið og nafnskír- tejnið... Þessir voru kostir hans. En hvorn kostinn sem hann veldi þá var úti um að hanngætielt hann lengra. — Ert þú að snapa þér kjaftshögg, sagði Kling. — Ha, sagði La Bresca, skelkaður. — Ert þú með lausa skrúfu, eða hvað? Raunar hafði hann alls ekki sagt þetta, en La Bresca veitti því enga athygli. Hann starði á Kling í einlægri undrun. Svo reyndi hann að muldra eitthvað. En Kling þaggaði það niður með meinillu augnaráði og illskulegum svip. Sjálf- ur muldraði hann eitthvað og gekk í átt að brautarpallin- um, þar sem lestir til úthverfanna höfðu viðkomu. Fátt fólk var á stöðinni og napur vindur næddi um hráslaga- legt umhverf ið. Kling beið þess að La Bresca fæki lestina niður í miðbæinn. Þess var ekki langt að bíða. Þrem mínútum síðar rennti lest La Bresca að brautarpallinum og hann gekk inn í hana. Lestin skrölti út i myrkrið. Kling gekk aftur niður og leitaði að símasjálfsala. Það var Willis, sem svaraði í símanum. — Þetta er bert. La Bresca varð var við mig fáeinum húsaröðum frá heimili sínu. Sendu einhvern annan á eftir honum. — Hvað ert þú búinn að vera lengi lögregluþjónn, spurði Willis. — Þetta getur hent alla, svaraði Kling... — Hvar sagði SUNNUDAGUR 5.október 8.00 Morgunandakt. Herra Sigurbjörn Einarsson biskup flytur ritningarorð og bæn. 8.10 Fréttir og veðurfregnir. 8.15 Létt morgunlög. 9.00 Fréttir. Útdráttur úr for- ustugreinum dagblaðanna. 9.15 Morguntónleikar. (10.10 Veðurfregnir). a. Konsert nr. 4 i f-moll eftir Vivaldi. I Musici leika. b. Messa i C- dúr op. 86 eftir Beethoven. Gundula Janowitz, Julia Hamari, Horst R. Lauben- tal, ErnstGerold Schramm, Bach-kórinn og Bach- hljómsveitin i Munchen flytja, Karl Richter stj. c. Konsert fyrir flautu, hörpu og hljómsvejt i C-dúr (K299) eftir Mozart. Nicanor Zaba- leta, Karlheinz Zöller og Filharmóniúsveit Berlinar Ernst Marzendorfer stjóm- ar. 11.00 Messa i Dómkirkjunni Prestur: Séra Þórir Stephensen. Organleikari: Ragnar Björnsson. 12.15 Dagskráin. Tónleikar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.20 t fylgd með fullorðnum Rósberg G. Snædal rit- höfundur spjallar við hlustendur. 13.40 Harmonikulög Francone leikur. 14.00 Staldrað við á Vopnafirði — fyrsti þáttur. Jónas Jónasson litast um og spjallar við fólk. 15.00 Miðdegistónleikar: Frá Berlfnarútvarpinu. Flytjendur: Katherine Ardo, Janis Marshelle Coff- mann og Sinfóniuhljómsveit Berlinarútvarpsins. Stjórn- andi: Ken-ichiro Kobyashi. a. „Vald örlaganna”, forleikur eftir Verdi. b. Aria Leónóru úr sömu óperu. c. Aria Ameliu úr „Grimu- dansleik” eftir Verdi. d. Aria Elisabetar úr „Tannhauser” eftir Wagn- er. e. Trompetkonsert í Es- dúr eftir Hummel. f. Sinfónia nr. 4 id-moll op. 120 eftir Schumann. 16.15 Veðurfregnir. Fréttir. 16.25 Alltaf á sunnudögum. Svavar Gests kynnir lög af hljómplötum. 17.15 Barnatimi Gunnar Valdimarsson stjórnar. Meistari Þórbergur. Sam- felld dagskrá úr verkum Þórbergs Þórðarsonar. Fluttir verða kaflar úr „Rökkuróperunni”, „Sálm- inum um blómið” og Þór- bergur syngur eitt litið ljóð. Lesarar: Gurðún Birna Hannesdóttir og Knútur R. Magnússon. 18.00 Stundarkorn með bassa- söngvaranum Josef Greindl. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.25 Úr handraöanumSverrir Kjartansson annast þáttinn. 20.00 „ólafur liljurós”, balletttónlist eftir Jórunni Viðar Sinfóniuhljómsveit íslands leikur, Páll P. Páls- son stjórnar. 20.25 Skáld við ritstjórn. Þætt- ir um blaðamennsku Einars Hjörleifssonar, Gests Páls- sonar og Jóns Ólafssonar i Winnipeg. — Þriöji þáttur. Sveinn Skorri Höskuldsson tók saman. Lesarar með honum: Óskar Halldórsson og Þorleifur Hauksson. 21.10 Landsleikur i handknatt- leik: island—Pólland. Sið- ari leikur. Jón Ásgeirsson lýsir i Laugardalshöll. 21.45 „Karnival i Paris”, hljómsveitarverk op.9eftir Johan Svensen Filharmoniusveitin i Osló leikur, Oivin Fjeldstad stjórnar. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Danslög. Heiðar Astvaldsson dans- kennari velur og kynnir lög- in. 23.25 Fréttir i stuttu máli. Dagskrárlok.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.