Tíminn - 12.10.1975, Page 1
Stjórnlokar
Olíudælur
Olíudrif
Landvélar hf
233. tbl. — Sunnudagur 12. október — 59. árgangur
HF HÖRÐUR GUNNARSSON
SKULATUNI 6 - SÍMI (91)19460
Fíkniefnabylgjan skellur
á af endurnýjuðum krafti
Tugir manna viðriðnir
jr
smygl á miklu magni af
hassi og amfetamíndufti
Gsal—Reykjavi'k. — Þessa dag-
ana er unnið að allumfangsmiklu
fikniefnamáli hjá Fikniefnadóm-
stólnum og hafa fimm menn verið
úrskurðaðir i gæzluvarðhald i
sambandi við mál þctta. Tveir
menn sitja i gæzluvarðhaldi nú.
Uppvist hefur orðið um smygl á
miklu magni af hassi og að sögn
Arnars Guðm undssonar, hjá
Fíkniefnadómstólnum skiptir það
magn sem hér um ræðir kílóum.
t miidri kyrrð haustsins falla
blöðin af trjánum og þekja
garðana og gangstéttimar.
Sumarið varð okkur ts-
lendingum erfitt á margan
hátt. Það varð okkur lika
misgjöfult á blessað sólkinið,
og flestum fannst haustið
koma of snemma. Sumar-
dagarnir vera of fáir. Engu
að siður fögnum við hvert á
sinn hátt komu haustsins,
undanfara vetrar konungs
með snæriki sitt, sem gleður
yngsta fólkið, þvi að þeir ein-
ir, sem lifa stóran hluta árs-
ins við myrkur og kulda,
kunna i raun og veru að meta
sólardagana og unað grænku
sumarsins, þótt það kunni að
vera í styttra lagi.
Timamynd: Róbert.
Stöðugar yfirheyrslur fara fram
og tugir manna eru viðriðnir mál-
ið, að sögn Arnars.
Upphaf þessa máls má rekja
u.þ.b. þrjár vikur aftur i timann,
er piltur nokkur var handtekinn á
Keflavikurflugvelli með allmikið
hass i stlgvélum sinum, en piltur-
inn var að koma frá Luxemburg.
— t framhaldi af rannsókn þessa
tiltekna máls, komumst við á
snoðir um fleiri innkaupaferðir
unglinga til Amsterdam I Hol-
landi, og heim I gegnum Luxem-
burg. Ekki er hægt á þessu stigi
málsins að gefa upp nákvæmar
tölur um magn fikniefnanna, en
hins vegar er hægt að segja, að
það skipti kílóum, sagði Arnar.
Af þeim fimm mönnum sem
setið hafa i gæzluvarðhaldi hafa
tveir verið úrskurðaðir i varðhald
i Keflavík, en hluti málsins er i
rannsókn þar. Arnar sagði að
hluti fikniefnanna hefði borizt til
Keflavikur og þaðan inn á Kefla-
vikurflugvöll og kvað Arnar tölu-
verð brögð að þvi, að tsl. seldu
fikniefni til hermannanna á
Miðnesheiði. Sem kunnugt er bar
talsvert á þvi, hér áður, að fikni-
efni bærust frá hermönnum til ts-
lendinga, en að sögn Arnars virð-
ist vera meira um það núna, að
þessu sé öfugt farið.
Arnar Guðmundsson gat þess
jafnframt, að auk ólöglegs
innflutnings á hassi, hefði komið
fram við rannsókn þessa máls,
töluvert magn af meintu amfeta-
mini I duftformi, sem smyglað
hefur verið til íandsins. Kvað
Arnar það skipta tugum gramma.
Rannsókn þessa máls stendur
enn yfir, og að svo stöddu er ekki
hægt að greina frekar frá málinu.
Pétur Sigurðsson um flugvélakaup Gæzlunnar:
Lítil vél óhentug
til úthafsgæzlu
Gsal-Reykjavik — Báðar vélarn-
ar eru ágætar, enda gerði égi til-
lögu um þær báðar i bréfi minu til
Algengt að menn telji
Venus fljúgandi furðuhlut
SJ—Reykjavík. 1 fyrrinótt sáu
tveir menn sem voru á ferð i bil-
um á Kjalarnesi og i Hvalfirði
lýsandi hlut, sem þeir töldu alls
ekki vera stjörnu, uppi á himn-
inum. Annar þeirra örn
Steingrimsson, bifreiðarstjóri I
Mosfellssveit.sá fyrirbæri þetta
oftar en einu sinni bæði i Hval-
firði, nálægt Akrafjalli og
Kjalarnesi. Hinn maðurinn var
Matthias Sigursteindórsson frá
Blönduósi og höfum við spumir
af að hann hafi séð ljósfyrir-
brigðið á Kjalarnesi. — Ég hef
grun um að þetta hafi verið
Venus, sagði Þorsteinn
Sæmundsson stjörnufræðingur,
þegar við færðum þetta i tal við
hann. — Venjulega fæ ég svona
fregnir þegar Venus fer að
sjást. Þegar menn eru á ferð i
bil finnst þeim stjarnan hreyf-
ast og Venus er alveg sérstak-
lega björt núna vegna afstöðu
sinnar við jörðu, en auk þess er
hún björtust allra stjarna. Ég
get náttúrlega ekki fullyrt þetta
nema ég viti nákvæmlega hvar
mennimir vom staddir þegar
þeir sáu ljósfyrirbrigðið, og i
hvaöa átt það vár frá þeim.
Venus kom upp um hálf-
fjögurleytið í fyrrinótt og var i 5
1/2 gr. til 10.9 gr. hæð frá jörðu á
þeim tima, sem mennirnir sáu
ljósið og i austri. Þetta virðist
geta komið heim og saman. Ég
hef margsinnis rekið mig á að
'menn villast á þessari stjörnu á
þessum árstima.
örn Steingrimsson hafði sam-
band við loftskeytastöðina i
Gufunesi kl. 4.20ifyrrinótt og sá
þá mjög skærtljósá lofti i norð-
austri frá Reykjavik, sem virt-
ist dofng en var mjög skært á
milli. Um hálffimmleytið sá
hann lýsandi hlut nálgast Akra-
fjall i stefnu á Esju, þá hafði
hann fyrir skömmu ekið I þoku
og ljósbjarminn rofið þokuna.
Kl. 5.10 sá örn, enn stóran hlut,
semsterkan ljósgeisla lagði frá,
og lýsti i gegnum skýjabólstur
þegar þau bar á milli hans og
ljósfyrirbærisins.
Báðir sáu þeir örn og
Matthias hlutinn, þegar þeir
voru á Kjalarnesi og bar þeim
saman um að það gæti ekki ver-
ið stjama.
Gufunes hafði samband við
Loftleiðavél, sem var á ferð yfir
þessum slóðum og sömuleiðis
við Flugturninn, en frá hvorug-
um sást nokkurt kynlegt ljós-
fyrirbrigði.
ráðherra,—en fyrir mismunandi
verkefni, og á það legg ég áherzlu
sagði Pétur Sigurðsson, forstjóri
Landhelgisgæzlunnar á blaða-
mannafundi um borð I varðskip-
inu Tý i gær, en eins og kunnugt
er, hefur mikið veriö á það deilt,
að Landhelgisgæzlan hyggst festa
kaup á nýrri Fokker-flugvé),
einkum fyrir þær sakir, að nefnd
sérfræðinga sem skipuð var til að
kanna málið sérstaklega, mælti
með þvi, að keypt yrði minni vél,
af Beechcraft-gerð, — en Pétur
var hinsvegar eindregiö fylgjandi
þvi, að Fokker vél yrði keypt, og
hann fékk þvi komið til leiðar.
Pétur kvaðst i bréfi sinu i vor
hafa bent ráðherra á þrjú atriði
til eflingar flugflota Landhelgis-
gæzlunnar. Fyrsta atriðið varðaði
flugvélina Sýr, — og kom þar
þrennt til álita, að nota
hana áfratn á nokkurra breyt-
inga, gera verulegar breyt-
ingar á vélinni, og að selja
hana. 1 öðru lagi, að keypt yrði
heppileg litil flugvél til land-
helgisgæzlustarfa, — og þá aðal-
lega til gæzlustarfa náiægt landi.
— 1 þriðja lagi benti ég á að ég
teldi alveg nauðsynlegt að kaupa
samskonar gæzluflugvél og Sýr
er, af Fokker-gerð til úthafs-
gæzlu, sem tilbúin yrði að tveim-
ur árum liðnum, sagði Pétur.
Siðan gerði forstjórinn nokkra
greinfyrir þeim erfiðleikum, sem
myndu vera þvi samfara að nota
litla flugvél til úthafsgæzlu, s.s.
mun minna flugþol, meiri
þrengsliogerfiðari vinnuaðstaða,
og fáliðaða áhöfn.
Kvaðst Pétur ekki geta hugsað
sér, að senda sina menn á litilli
flugvél út á haf, sem þyrfti að
fljúga lágflug. — Það er ekki
þægileg tilfinning að vita af
mönnum á litilli flugvél á hafi úti,
meö ófullkomnari tæki en æski-
legt væri, sagði hann.
Pétur upplýsti að Fokker-vélin
myndi kosta 435 millj. kr. þ.e. án
allra aukatækja, en þau yrðu sett
I hana eftir fjárhagsgetu hverju
sinni. Gerði forstjórinn ráð fyrir
þvi, að heildarkostnaður vélar-
innar yrði um 500 millj. kr.
Gömul kona
fyrir bifreið
á AAiklubraut
gébé Rvik — Sjötiu og sex
ára gömul kona, varð fyrir
bifreið á föstudagskvöldið
um klukkan hálf átta. Hún
var á leið yfir Miklubraut á
móts við Tónabæ og varð
fyrir bifreið sem var á leið
vestur. Hún slasaðist mikið
og var flutt á slysavarðstofu
Borgarspitalans.