Tíminn - 12.10.1975, Síða 1

Tíminn - 12.10.1975, Síða 1
Stjórnlokar Olíudælur Olíudrif Landvélar hf 233. tbl. — Sunnudagur 12. október — 59. árgangur HF HÖRÐUR GUNNARSSON SKULATUNI 6 - SÍMI (91)19460 Fíkniefnabylgjan skellur á af endurnýjuðum krafti Tugir manna viðriðnir jr smygl á miklu magni af hassi og amfetamíndufti Gsal—Reykjavi'k. — Þessa dag- ana er unnið að allumfangsmiklu fikniefnamáli hjá Fikniefnadóm- stólnum og hafa fimm menn verið úrskurðaðir i gæzluvarðhald i sambandi við mál þctta. Tveir menn sitja i gæzluvarðhaldi nú. Uppvist hefur orðið um smygl á miklu magni af hassi og að sögn Arnars Guðm undssonar, hjá Fíkniefnadómstólnum skiptir það magn sem hér um ræðir kílóum. t miidri kyrrð haustsins falla blöðin af trjánum og þekja garðana og gangstéttimar. Sumarið varð okkur ts- lendingum erfitt á margan hátt. Það varð okkur lika misgjöfult á blessað sólkinið, og flestum fannst haustið koma of snemma. Sumar- dagarnir vera of fáir. Engu að siður fögnum við hvert á sinn hátt komu haustsins, undanfara vetrar konungs með snæriki sitt, sem gleður yngsta fólkið, þvi að þeir ein- ir, sem lifa stóran hluta árs- ins við myrkur og kulda, kunna i raun og veru að meta sólardagana og unað grænku sumarsins, þótt það kunni að vera í styttra lagi. Timamynd: Róbert. Stöðugar yfirheyrslur fara fram og tugir manna eru viðriðnir mál- ið, að sögn Arnars. Upphaf þessa máls má rekja u.þ.b. þrjár vikur aftur i timann, er piltur nokkur var handtekinn á Keflavikurflugvelli með allmikið hass i stlgvélum sinum, en piltur- inn var að koma frá Luxemburg. — t framhaldi af rannsókn þessa tiltekna máls, komumst við á snoðir um fleiri innkaupaferðir unglinga til Amsterdam I Hol- landi, og heim I gegnum Luxem- burg. Ekki er hægt á þessu stigi málsins að gefa upp nákvæmar tölur um magn fikniefnanna, en hins vegar er hægt að segja, að það skipti kílóum, sagði Arnar. Af þeim fimm mönnum sem setið hafa i gæzluvarðhaldi hafa tveir verið úrskurðaðir i varðhald i Keflavík, en hluti málsins er i rannsókn þar. Arnar sagði að hluti fikniefnanna hefði borizt til Keflavikur og þaðan inn á Kefla- vikurflugvöll og kvað Arnar tölu- verð brögð að þvi, að tsl. seldu fikniefni til hermannanna á Miðnesheiði. Sem kunnugt er bar talsvert á þvi, hér áður, að fikni- efni bærust frá hermönnum til ts- lendinga, en að sögn Arnars virð- ist vera meira um það núna, að þessu sé öfugt farið. Arnar Guðmundsson gat þess jafnframt, að auk ólöglegs innflutnings á hassi, hefði komið fram við rannsókn þessa máls, töluvert magn af meintu amfeta- mini I duftformi, sem smyglað hefur verið til íandsins. Kvað Arnar það skipta tugum gramma. Rannsókn þessa máls stendur enn yfir, og að svo stöddu er ekki hægt að greina frekar frá málinu. Pétur Sigurðsson um flugvélakaup Gæzlunnar: Lítil vél óhentug til úthafsgæzlu Gsal-Reykjavik — Báðar vélarn- ar eru ágætar, enda gerði égi til- lögu um þær báðar i bréfi minu til Algengt að menn telji Venus fljúgandi furðuhlut SJ—Reykjavík. 1 fyrrinótt sáu tveir menn sem voru á ferð i bil- um á Kjalarnesi og i Hvalfirði lýsandi hlut, sem þeir töldu alls ekki vera stjörnu, uppi á himn- inum. Annar þeirra örn Steingrimsson, bifreiðarstjóri I Mosfellssveit.sá fyrirbæri þetta oftar en einu sinni bæði i Hval- firði, nálægt Akrafjalli og Kjalarnesi. Hinn maðurinn var Matthias Sigursteindórsson frá Blönduósi og höfum við spumir af að hann hafi séð ljósfyrir- brigðið á Kjalarnesi. — Ég hef grun um að þetta hafi verið Venus, sagði Þorsteinn Sæmundsson stjörnufræðingur, þegar við færðum þetta i tal við hann. — Venjulega fæ ég svona fregnir þegar Venus fer að sjást. Þegar menn eru á ferð i bil finnst þeim stjarnan hreyf- ast og Venus er alveg sérstak- lega björt núna vegna afstöðu sinnar við jörðu, en auk þess er hún björtust allra stjarna. Ég get náttúrlega ekki fullyrt þetta nema ég viti nákvæmlega hvar mennimir vom staddir þegar þeir sáu ljósfyrirbrigðið, og i hvaöa átt það vár frá þeim. Venus kom upp um hálf- fjögurleytið í fyrrinótt og var i 5 1/2 gr. til 10.9 gr. hæð frá jörðu á þeim tima, sem mennirnir sáu ljósið og i austri. Þetta virðist geta komið heim og saman. Ég hef margsinnis rekið mig á að 'menn villast á þessari stjörnu á þessum árstima. örn Steingrimsson hafði sam- band við loftskeytastöðina i Gufunesi kl. 4.20ifyrrinótt og sá þá mjög skærtljósá lofti i norð- austri frá Reykjavik, sem virt- ist dofng en var mjög skært á milli. Um hálffimmleytið sá hann lýsandi hlut nálgast Akra- fjall i stefnu á Esju, þá hafði hann fyrir skömmu ekið I þoku og ljósbjarminn rofið þokuna. Kl. 5.10 sá örn, enn stóran hlut, semsterkan ljósgeisla lagði frá, og lýsti i gegnum skýjabólstur þegar þau bar á milli hans og ljósfyrirbærisins. Báðir sáu þeir örn og Matthias hlutinn, þegar þeir voru á Kjalarnesi og bar þeim saman um að það gæti ekki ver- ið stjama. Gufunes hafði samband við Loftleiðavél, sem var á ferð yfir þessum slóðum og sömuleiðis við Flugturninn, en frá hvorug- um sást nokkurt kynlegt ljós- fyrirbrigði. ráðherra,—en fyrir mismunandi verkefni, og á það legg ég áherzlu sagði Pétur Sigurðsson, forstjóri Landhelgisgæzlunnar á blaða- mannafundi um borð I varðskip- inu Tý i gær, en eins og kunnugt er, hefur mikið veriö á það deilt, að Landhelgisgæzlan hyggst festa kaup á nýrri Fokker-flugvé), einkum fyrir þær sakir, að nefnd sérfræðinga sem skipuð var til að kanna málið sérstaklega, mælti með þvi, að keypt yrði minni vél, af Beechcraft-gerð, — en Pétur var hinsvegar eindregiö fylgjandi þvi, að Fokker vél yrði keypt, og hann fékk þvi komið til leiðar. Pétur kvaðst i bréfi sinu i vor hafa bent ráðherra á þrjú atriði til eflingar flugflota Landhelgis- gæzlunnar. Fyrsta atriðið varðaði flugvélina Sýr, — og kom þar þrennt til álita, að nota hana áfratn á nokkurra breyt- inga, gera verulegar breyt- ingar á vélinni, og að selja hana. 1 öðru lagi, að keypt yrði heppileg litil flugvél til land- helgisgæzlustarfa, — og þá aðal- lega til gæzlustarfa náiægt landi. — 1 þriðja lagi benti ég á að ég teldi alveg nauðsynlegt að kaupa samskonar gæzluflugvél og Sýr er, af Fokker-gerð til úthafs- gæzlu, sem tilbúin yrði að tveim- ur árum liðnum, sagði Pétur. Siðan gerði forstjórinn nokkra greinfyrir þeim erfiðleikum, sem myndu vera þvi samfara að nota litla flugvél til úthafsgæzlu, s.s. mun minna flugþol, meiri þrengsliogerfiðari vinnuaðstaða, og fáliðaða áhöfn. Kvaðst Pétur ekki geta hugsað sér, að senda sina menn á litilli flugvél út á haf, sem þyrfti að fljúga lágflug. — Það er ekki þægileg tilfinning að vita af mönnum á litilli flugvél á hafi úti, meö ófullkomnari tæki en æski- legt væri, sagði hann. Pétur upplýsti að Fokker-vélin myndi kosta 435 millj. kr. þ.e. án allra aukatækja, en þau yrðu sett I hana eftir fjárhagsgetu hverju sinni. Gerði forstjórinn ráð fyrir þvi, að heildarkostnaður vélar- innar yrði um 500 millj. kr. Gömul kona fyrir bifreið á AAiklubraut gébé Rvik — Sjötiu og sex ára gömul kona, varð fyrir bifreið á föstudagskvöldið um klukkan hálf átta. Hún var á leið yfir Miklubraut á móts við Tónabæ og varð fyrir bifreið sem var á leið vestur. Hún slasaðist mikið og var flutt á slysavarðstofu Borgarspitalans.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.