Tíminn - 12.10.1975, Side 5
‘TÍMINN
5
Skrúðganga barna erlendra verkamanna
í Köln í Þýzkalandi
MikiB er um erlenda verkamenn
i Þýzkalandi (svonefnda
Gastarbeiter). Margir þeirra
eru með fjölskyldur sinar með
sér, og hafa yfirvöld borgarinn-
ar Köln sérstaklega reynt að sjá
til þess,að börn þessara manna,
sem koma frá ttaliu, Tyrklandi,
Júgóslaviu eða Spáni og fleiri
löndum, geti fengið skólagöngu
og menntun, svo að þau kunni
vel við sig i Þýzkalandi og sam-
lagist umhverfinu. Þarna sjáum
við mörg útlend börn, sem eru i
skrúðgöngu með ljós á luktum
sinum og ganga syngjandi um
★
göturnar með öðrum börnum i
Köln. Þetta er mjög gamall sið-
ur þar, að börn fari i svona
skrúðgöngur með tilheyrandi
söngvum, og útlendu börnin
taka þátt i þessu af hjartans á-
nægju og falla vel inn i hópinn.