Tíminn - 12.10.1975, Qupperneq 6

Tíminn - 12.10.1975, Qupperneq 6
6 TÍMINN Sunnudagur 12. október 1975 Fiskivatnsrétt I Borgarfiröi. Byggö 1678, notuö til 1856. Gamla Þverárrétt (byggö um 1856) hjá Kvíum á Hofseyrum ÞVERARRÉTTIR i Þverárhliö i Mýrasýslu eru með fjárflestu og stærstu réttum hér á landi. 1 haust var gizkað á að komið hafi i réttina i fyrstu göngum allt að 25 þúsund fjár. Og alltaf eru reknar þar inn 15-20 þúsund kindur. Núverandi rétt var byggð árið 1960, steinsteypt, hringlaga með almenningi og 34 dilkum misstórum. Réttin þar á undan var byggö 1911 og var fyrsta steinsteypta réttin á landinu. Þar áöur stóö réttin innan viö byggðina, spölkorn fyrir innan Hermundarstaði á árbakkanum, byggð um 1856 og stóð til 1910. En fyrrum, þ.e. á árunum 1678 til 1856, var réttaö á tanga i Fiskivatni undir hömr- um og þótti réttarstæöið hið feg- ursta, en var að lokum ekki talið öruggt fyrir grjóthruni. Fiski- vatnsréttir voru hálfum mánuði fyrr en nú vegna kjötsölu I verzlanir áður en kaupskip færu. Var talað um aö tiöarfar tæki oft breytingum þann dag, sem var fimmtudagurinn i 20. viku sumars. Fróðlegt væri að fá skýrar myndir af gömlu rétt- unum. Elztu réttirnar voru hlaðnar úr grjóti. Þá var hesturinn far- arskjóti, en nú billinn. Sums staðar eru rekstrarnir nú lika fluttir á bilum. Þær eru sannarlega bragðleg- ar kindurnar i Þverárrétt i fyrstu göngum 1975. Taldi rétt- arstjóri þetta stærsta fjárhóp sem i réttina hefur komið. Myndina tók S.dór. En myndirnar af gömlu rétt- unum hefur Ragnar ólafsson deildarstjóri léö i þáttinn. „Eins mig fýsir alltaf þó aftur að fara i göngur.” — Athugasemd: í 91. þætti 28. sept. var birt mynd af gömlum reisulegum bæ undir Spákonu- felli. Það er Arbakki, næsti bær við Spákonufell og skilur Hrafnsá tún bæjanna. Steinhús er nú á Arbakka og þar búið. A Arbakka fæddist hinn umdeildi maöur dr. Valtýr Guðmunds- son. í sama þætti var mynd af gamla (austari?) bænum að Keldunúp á Siðu ranglega merkt sem Núpar I Fljótshverfi. Kletturinn upp af Keldunúp heitir Steðji. Nokkru austar er Gunnarshellir, kenndur við Gunnar nokkurn, er flýöi þangað undan fjandmönnum sinum. Erfitt er að komast I hellinn. Krossmark er þar inni frá gamalli tiö. Fróðlegt væri aö fá til birting- ar myndir af gömlu bæjunum á Núpum i Fljótshverfi og Spá- konufelli. Safniö I Þverárrétt I fyrstu göngum 1975 t Þverárrétt um 1960 Byggt og búið í gamla daga 93

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.