Tíminn - 12.10.1975, Page 12

Tíminn - 12.10.1975, Page 12
12 TÍMINN Sunnudagur 12. október 1975 Fjallgöngumennirnir tóku siðan við birgðunum af jakuxunum og báru allt sjálfir á bakinu. Norðurhliðin i Nepal og suður- hliðin i Tibet. Veðurfar og stað- fræðileg lögun er mjög fjölbreytt, sérstaklega i norðurhlið fjallsins. Sjálfur tindurinn er þakinn snjó og is allan ársins hring. i hliðum fjallsins eru jöklar, og heitir einn þeirra Rongbuk jökull, sem geng- ur út frá öðrum minni jöklum. Þegar tindurinn er klifinn frá norðri, verður að fara yfir tvö mjög hættuleg og erfið svæði, sem hefur.yerið lýst þannig,_að jafnvel fuglinn fljúgandi komist ekki þar ýfir. Veðurfarið breytist stöðugt þegar komið er upp fyrir 8000 m. Miklir stormar næða nær stöðugt og þyrla upp snjónum, jafnvel þegar heita á heiðskirt, feykir vindurinn snjónum á tindinum. Frá október til marz er vindurinn úr norðvestri og monsúnvindarn- ir frá suðaustri frá mai út september. Kuldinn er mikill, venjulega ekki minna en þrjátiu til fjörutiu stiga frost. Þegar komið er i 5000 m hæð, er súrefnið aðeins á við helming þess em það er við sjávarmál og eftir að komið er yfir 8000 m er það aðeins einn þriðji. Siðan á 19. öld hafa margir fjallgöngumenn frá mörgum löndum reynt að sigra Qomo- langma. Það var þó ekki fyrr en 1950 að fyrsta hópnum tókst að komast á tindinn, frá suðurhlið- inni. Á timabilinu 1921 til 1938, reyndu brezkir fjallgöngumenn sjö sinnum að komast upp norðurhliðina, en öllum leiðangrunum mistókst og sumir fjallgöngumannanna sneru ekki aftur. Þeir voru allir sammála um að útilokað væri að komast á tindinn frá norðurhliðinni. Ekkert er ómögulegt Leiðangurinn, sem við ætlum að fjalla um, hóf undirbúnings- vinnuna um miðjan marz s.l. og setti fyrst upp starfsstöð við Rongbuk klaustur i 5000 m hæð. Meðan fjallgöngumennirnir voru að venja sig við loftslagið, fóru þeir tiltölulega hægt af stað, og settu upp bækistöðvar i 5.500, 6.000, 7.007, 7.600, 8200, og 8600 m hæð. Þetta var gert i fjórum áföngum. 1 fimmta áfanganum, en þá var komið fram i mai, voru tvær efstu stöðvarnar settar i 8,300 og 8,680 m hæð. Leiðangur- inn taldi um 40 manns auk UPP SKULUM VK> Fjallið Mount Everest, eða Qomolangma Feng — er hæsti tindur i heimi, um 8.880 m hátt og er álandamærum Tibet og Nepal, norður hlutinn i Tibet og suður hlutinn i Nepal. I mai s.l. klifu niu manns tindinn að norðanverðu i fyrsta skipti. Þetta voru átta Tibet-búar, þar af ein kona og einn Kinverji. Konan heitir Phanthog, er 37 ára gömul, og er heimsmethafi i fjallgöngu kvenna, en hún var einnig annar fyrirliða hópsins. Hinir Tibet- búarnir, sem klifu tindinn heita Sodnam Norbu, 29 ára, Lotse, 37 ára, Samdrub, 23 ára, Darphuntso 30 ára, Kunga Pasang 29 ára, Tsering Tobgyal 29 ára og Ngapo Khyen 21 árs. Kinverjinn heitir Hou Seng-Fu, 36 ára. öll eru þau þaulvanir fjall- göngumenn. Þessi niu voru þó ekki þau einu, sem stóðu að leiðangrinum, öðru nær. Langur undirbúningur fjölda manns stóð yfir áður en hinu langþráða takmarki var náð. En áður en við byrjum lýsingu á þvi, er bezt að kynnast fjallinu nánar fyrst. Qomolangma Feng (Mount Jolmo Lungma) Mount Everest Eins og áður segir er fjallið á landamærum Tibet og Nepal. <---- Jakuxarnir fluttu birgðirnar i 6.500 m hæð og var það i fyrsta skipti sem tekizt hefur að koma þeim svo hátt upp. Phanthog hin 37 ára gamla Tibet- kona, hcimsmethafi i fjallgöngu kvcnna. ----► öll þreyta gleymdist og ólýsanleg gleði fyllti hugi hinna niu fjallgöngugarpa, er þau náðu langþráðu takmarki og komust á Everest-tind- inn sem þar eystra er nefndur Qomolangma Feng. Þau hrópuðu Lengi Lifi Mao og kinverski kommúnistaflokkurinn! Ein kona var í hópn- um, heimsmethafi kvenna i fjallgöngu, Tibet- konan Phanthog, 37 ára gömul. Hún hefur á undanförnum árum verið langþjálfaðasta kon- an i heiminum i fjallgöngu, og slegið sin eigin heimsmet hvað eftir annað. Lýsing leiðangurs- ins fer hér á eftir, og sýnir þrautseigju og óþreytandi dugnað fjallgöngugarpanna frá Kína og Tibet.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.