Tíminn - 12.10.1975, Side 30

Tíminn - 12.10.1975, Side 30
30 TÍMINN Sunnudagur 12. október 1975 NC UM HELGINA hefjast I Tónablói sýningar á kvikmynd- inni Tommy, scm byggð er á poppóperunni vinsælu eftir Pete Townshend, gitarleikara hljóm- sveitarinnar VVHO. Poppóperan kom út á plötu árið 1968, og markaði að þvi leyti timamót i poppsögunni, að hún var fyrsta poppóperan, em gefin var út. Kvikmyndin byggir að sjálf- sögðu á söguþræði poppóper- unnar, en litillega er þó brugðið þar út af. Sagan segir frá brezkum hjónum, Nóru Walker (leikin af Ann-Margret) og manni hennar, Walker höfuðsmanni I konung- lega brezka flughernum (Ro- bert Powell) og syni þeirra hjóna, Tommy að nafni. Walker höfuðsmaður er reyndar talinn hafa farizt i flugslysi nokkru áð- ur en drengurinn fæðist, og kemur hann þvi ekki við sögu i upphafi myndarinnar. Eftir dauða Walkers höfuðsmanns tekur Nóra saman við mann að nafni Frank Hobbs (Oliver Reed), sem rekur sumarbúðir Bernie’a. 1 bernsku verður Tommy litli (leikinn af Barry Winch) mjög hændur að Frank frænda, eins og litli drengurinn kallar hann. — En einn góðan veðurdag kemur Walker höfuðsmaður heim á ný, öllum að óvörum. Hann kemur að Frank og Nóru uppi I rúmi, og upphefjast nú slagsmál milli karlmannanna tveggja — og leiða þau til þess, að Frank verður fyrir þvi óhappi að slá Walker I höfuðið með lama — og verður það bani höfuðsmanns- ins. (Hér er veigamikil breyting frá söguþræðinum á plötunni, þvi þar leiða slagsmálin til þess að Walker drepur Frank). — Tommy litli verður vitni að NOKKRUM árum eftir að popp- óperan Tommy kom út á plötu, komu fram hugmyndir um að gera kvikmynd eftir sögunni. Pete Townshend, höfundur ó- perunnar, hreifst mjög af hug- myndinni og ákvað að færa þetta i tal viö einhvern kvik- myndaleikstjóra. Það kom i ljós, að þetta var mögulegt, — en hins vegar mjög erfitt i fram- kvæmd. Townshend ákvað að leita til eins frægasta og bezta leik- stjóra Breta, Ken Russell, og fá hann til að taka verkið að sér, þvi honum var ljóst, að fengi hann Russell til að gera kvik- myndina, væri tryggt, að árang- þessum hryllilega atburði og er samstundis sleginn blindu, mál- leysi og heyrnarleysi af völdum losts. Timinn liður og Tommy er orðinn ungur maður (leikinn af Roger Daltrey). Frank og Nóra leita lækninga fyrir drenginn hjá trúarlækni nokkrum (Eric Clapton), en án nokkurs árang- urs. Frank fer þá með hann til hinnar hálfblindu Sýru-drottn- ingar (Tina Turner), sem dælir Tommy fullan af eiturlyfjum. Þvi næst er honum ógnáð af Kevin frænda sinum (Paul Nicolas), og ekki nóg með það, heldur er honum og nauðgað af gömlum kynvilltum frænda sin- um, Ernie (Keith Moon). Eftir allar þessar hörmungar rekst Tommy á kúluspilsborð (Pinball) á ruslahaug einum — og þar uppgötvar hann dásemd- ir þessa spils. (Pinball er nokk- urs konar kúluspil, sem er I lok- uðum kassa og hefur að geyma margar kúlur. Kúlunum er skotið með gormi, og er leikur- inn i þvi fólginn að koma kúlun- um I reiti á borðinu, sem merkt- ir eru með mismunandi háum tölum. Reitirnir eru girtir af til hálfs með litlum pinnum, og af þeim dregur spilið nafn sitt, Pinball eða pinnabolta.) Tommy byrjar uppfrá þessu að leggja mikla rækt við pinna- bolta, þvi það er svo til eina iþróttin, sem hann er fær um að stunda, og hann nær það mikilli leikni i pinnabolta, að hann er útnefndur meistari,- Þegar hér SAGAN Fjórtán andlit úr Tommy, t.f. hægri til vinstri og byrjað efst: Harry Benn, aðstoðarmaður við upptöku, Ken Russell, kvikmyndastjóri, Jack Nicolson, Paul Nicholas, Eric Clapton, John Entwistle, Ann-Margret, Oliver Reed, Tina Turner, Elton John, Robert Pow- eil, Pete Townshend, Keith Moon og Roger Daltrey. Teikninguna gerði Bob Hoare. er komið sögu er komið á keppni milli hans og töframarmsins i pinnabolta (Pinball Wizzard) (Elton John), sem er einskonar konungur i þessari iþrótt. Engu að .siður tekst Tommy að vinna töframanninn og hlýtur að laun- um gifurleg auðæfi. Þegar Nóra móðir hans fær spurnir af sigri Tommys fær hún taugaáfall, en nær sér þó skjótt aftur. Hún og Frank fara með Tommy 'til sérfræðings (Jack Nicolson), en honum tekst ekki að lækna drenginn. Þegar þau koma til sins heima aftur i nýja húsið sitt, staðnæmist drengur- inn fyrir framan spegil og starir blindum augum á spegilinn. Nóra horfir á Tommy með hryllingi, og að lokum hrindir hún drengnum á spegilinn i ein- hverju stundarbrjálæði og fyrir eitthvað sjónfræðilegt krafta- verk ris Tommy upp hinum megin við spegilinn með öll skilningarvitin i fullkomnu lagi! Hann lýsir yfir þvi, að hann sé hinn nýi Kristur og gerist leið- togi trúarflokks, sem dregur fljótt til sin fjölda fólks. Læri- sveinar hans sjá um dreifingu á bæklingi Tommys, og hann verður brátt heimsfrægur. Sumarbúðir á hans vegum spretta upp eins og gorkúlur um allan heim. — Nóra verður fyrir andlegri endurfæðingu á meðan Frank snýr sér að svallinu I krafti hins nýfengna auðs. Að lokum gera áhangendur Tommys uppreisn og ganga berserksgang. Þeir brjóta allar pinnaboltavélar hans og drepa Nóru og Frank. Tommy er skil- inn einn eftir i ástandi, sem I sálfræðilegum skilningi er lík- lega kallað ,,ný sjálfsvitund”. Sagan hefur hér aðeins verið rekin i grófum dráttum. Það var þó ekki fyrr en árið 1973, sem Russell og Townshend byrja á verkinu. Fyrst var auð- vitað samið kvikmyndahandrit upp úr söguþræði plötunnar, og tók það verk hvorki meira né minna en heilt ár! Eftir að handritið var fullunn- ið, fór Russell að svipast um eftir leikurum i hlutverk mynd- arinnár. Eitt hlutverk var að visu ákveðið löngu áður — titil- hlutverkið — sem Roger Dalt- rey, söngvari WHO, átti að taka að sér. í önnur hlutverk voru svo fengnir leikarar úr ýmsum áttum, þar á meðai frægir Hollywood leikarar, eins og Ann-Margret, Oliver Reed, Jack Nicolson o.fl., og svo popp- arar, sem litt eða ekkert höfðu fengizt við kvikmyndaleik áður, s.s. Eric Clapton, Keith Moon, Elton John o.fl. Þegar búið var að raða i öll hlutverk, hófst sjálf kvik- myndatakan, og var ráðgert að hún tæki þrjá mánuði. Stóðst sú áætlun að mestu leyti, og gekk ágætlega. Að visu Komu upp ýmsir erfiðleikar, eins og eðli- legt er við kvikmyndatöku, t.d. kom I ljós að lögin á plötunni voru ekki nógu mörg til að ná yfir lengd myndarinnar. Towns- hend varð þvi að semja fjögur ný lög i óperuna, „T.V. Studio”, „Mother And Son”, „Champ- agne” og „Berni’s Holiday Camp”. En þetta var samt ekki stærsta vandamálið. Það var kostnaðurinn. Þegar ákveðið var að kvikmynda Tommy, tóku Robert Stigwood Organisation og Columbia Pictures að sér að sjá um kostnaðarhliðina. Upphafleg kostnaðaráætlun stóðst auðvitað engan veginn, og talið er að endanlegur kostn- aður við myndina hafi numið tæpum 4 milljónum dollara, eða sem svarar um hálfum milljarði isl. kr.! Þar fyrir utan bættist við alls konar smákostnaður, sem óþarfi er að tiunda hér. Til þess að tónlistin I kvik- myndinni nyti sin sem bezt, hönnuðu Stigwood Organisation og Polydor svokallað „Quin- taphoneic Sound”, sem svipar til „Quadraphonic Sound”, þ.e. hátalarar i fjórum hórnum (tvö- falt stepeo), nema hvað fimmta hátalaranum er bætt við, eins og nafnið gefur til kynna, og er fimmti hátalarinn staðsettur á bak við sýningartjaldið. Tónabió hefur nú útvegað sér þetta „Quintaphoneic System”, og munu þvi islenzkir áhorfend- ur fá að njóta tónlistarinnar, eins og hún getur bezt komizt til skila. Þegar kvikmyndatökunni á Tommy var lokið, skömmu fyrir siðustu áramót, sást loks hilla undir lok tveggja ára erfiðis I sambandi við hana. Myndin var siðan frumsýnd i vor með pompi og pragt, og nú er þessi fræga mynd komin hingað, óvenju fljótt miðað við aðrar myndir, sem hingað koma, og ber vissu- lega að þakka forráðamönnum Tónabiós fyrir skjót viðbrögð. SÞS KVIKAAYNDIN urinn yrði góðður. En Russell var þvi miður upptekinn við töku annarrar kvikmyndar um þetta leyti, og gat þar af leið- andi ekki tekið verkið að sér. Hins vegar kom i ljós, að Russ- ell hafði áhuga á þvi að spreyta sig á Tommy, og Townshend á- kvað þvi að biða þar til Russell hefði tima til að taka verkið að sér. NÚ-TÍMINN ER 1ÁRS í DAG FYJtlR réttu ári, á öðrum suunudegi i október, birtist hér I Tíman- um fyrsti þátturinn af Nú-timanum, og siðan þá hefur þessi þáttur verið alla tíö hér I sunnudagsbiaðinu. Nú-timinn er þvi eins árs i dag. Við, sem sjáum um þennan þátt og höfum séö um hann alit frá byrjun, vitum að þátturinn nýtur vinsælda meðai lesenda sinna, þótt hann sé misjafn að gæðum, eins og flest mannanna verk. Les- endur hafa oftlega skrifað okkur, bæði I þeim tilgangi og hrósa okk- ur fyrir það, sem þeim hefur þótt vel gert, og eins til að gagnrýna það, sem þeim hefur þótt fara miður. Við þökkum öll þessi bréf og væntum þess aðicsendur haldiáfram aðsendaokkur iinu.þyki þeim ástæða til. Við höfum ekki steypt þennan þátt I neitt ákveöið mót, heldur höf- um viö reynt aö flytja það efni, sem okkur þykir áhugaverðast hverju sinni. Hljómplötudómar hafa að vlsu verið fastur liður I Nú-timanum, og svo mun verða áfram. Og er þá ekki bara bezt að segja: Til hamingju með daginn!

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.