Tíminn - 12.10.1975, Qupperneq 31

Tíminn - 12.10.1975, Qupperneq 31
Sunnudagur 12. október 1975 TÍMINN 31 Bruce Springsteen — Born To Itun PC 33795 — Columbia ★ ★ ★ ★ ★ HLJOMPLÖTUDÓMAR NÚ-TÍMANS Margir muna eflaust eftir lag- inu „Sandy” sem Hollies geröu mjög vinsælt fyrir nokkrum mánuðum. Höfundur lagsins er Bruce nokkur Springsteen og er þaö nafn, sem örugglega á eftir aö veröa á vörum margra i framtiöinni. Springsteen gaf nýlega út þriðju sóió-piötu sina, Born To poppblöðin frá Bretlandi er mikiö Springsteen-æði I uppsigl- ingu þar. Þegar maður hefur hlustað nokkrum sinnum á Born To Run fer maður að skilja alla þá hrifningu, sem Springsteen veldur þessa dagana. Tónlist hans er sambland af Dylan og þungu rokki, — þar á ég við, að textarnir eru innihaldsmiklir og oft á tiðum hnitmiðuð þjóð- félagsádeila, en tónlistin er þung og gróf á köflum, — þar sem saxafónn leikur stórt hlut- verk. Það sem gefur lögunum mest gildi fyrir utan frábæra texta — þar sem endurtekningar eiga sér varla stað — er einstök rödd Springsteen og hvernig hann ar hann syngur! Born to Run er frábær plata með frábærum tónlistarmanni, sem er á góðri leið með að verða nýtt stórstirni i poppheiminum. Springsteen fer svo sannarlega sinar eigin leiðir (ferskur). G.G. Jethro Tull — Minstrei In The Gallery CHR 1082 — Chyrsalis ★ ★ ★ ★ + LP-plata vikunnar: Bruce Springsteen — Born To Run Run, og hefur sú plata hleypt af stað mikhi æöi i Bandarikjun- um, og ef marka má nýjustu beitir henni. Röddin er gróf og maður hefur það á tilfinning- unni að hann sé nýrakaður þeg- Ian Anderson er svo sannar- lega ekki búinn að vera, þó svo að ýmsar hraksögur um hann og félaga hans hafi verið á kreiki. Smára-lygar Ekki alls fyrir iöngu skrifaöi ég grein hér i Nú-timann, sem bar heitið ,,AÖ slá sjálfan sig til gúmmiriddara” og fjallaði um ofan-afflettingu Stuðmanna á Stuttsiðu Morgunblaðsins, sem mér þótti miður gcðfelld.Orðum minum beindi ég að sjálfsögðu að þeim manni, cr ritað hafði greinina, Ómari Valdimarssyni. Nokkru eftir greinina barst svarbréf frá ómari sem Nú- timinn birti, og taldi ég þá að ckki myndu fleiri pennastrik verða sett á pappir i máli þessu, enda vart ástæða til frá minum bæjardyrum séð. Ilins vegar sá Smári nokkur Valgeirsson, sem m.a. starfar hjá Vikunni, sér leik á borði og hringdi til min m.a. Hann kvaðst hafa rætt við Svein Guð- jónsson, samstarfsmann Ómars, og eins hefði hann i hyggju að ræða við ómar. Skýrði ég fyrir honum sjónar- mið mitt i þessu máli. I 40. tölublaði Vikunnar 37. árg. 2. okt. siðastliðinn birtist svo grein eftir Smára um þessi skoðanaskipti okkar Ómars varðandi ofan-afflettingu Stuð- manna, auk stuttra viðtala við okkur þrjá. Smári Valgeirsson rekur litillega ganga mála, seg- ir sina skoðun á málinu o.s.frv. — og hef ég að sjálfsögðu ekkert við það að athuga. Hins vegar lýsir hann grein minni með þessum orðum: „Blaðamaður Tlmans, er fjallar um popp og þess háttar, sendi frá sér húrrandi skammarpislil. Þar ræðst hann að Ómari og KALLAR HANN ÖLLUM ILL- UM NÖFNUM, má meðal ann- ars sjá nöfn eins og EGÓISTI, EIGINHAGSMUNASEGGUR og FLEIRA i Þ.EIM DÚR...” (lcturbreyting min —Gsal). Svo mörg voru þau orð lyginn- ar. Ég kannast ekki við að hafa ritað þessi nöfn sem Smári Val- geirsson nefnir né kallað Ómar „öllum illum nöfnum”. Hins vegar má vera, að þessi orð fyrirfinnist i grein minni I þvi cintaki af Timanum, sem Smári hefur undir höndum — alltént eru þau ekki I þeim cintökum sem ég hef séð. Þar sem hér er um að ræða fádæma lygar i ntinn garð krefst ég þcss að Smári Val- geirsson lýsi þvi yfir opinber- lega að þessi orð hans séu upp- spuni frá rótum og hans eigin ritsmiðar. Ef ekki, þá krefst ég þess að hann bendi mér á áður- nefnd orð í grein minni. Ef marka má þessa furöulegu grein Sntára I þætti sinum „Babbl” i Vikunni þá virðist mér þáttur lians svo sannarlega bera nafn með rentu. Gunnar Salvarsson. Skoðanakönnunin: 10 spurningar í ágúst úrslit 1. Yesterday 2. Hey Jude 3. While My Gitar Gently Weeps 4. Help 5. Here Comes The Sun A llvaða lag Bitlanna feliur þér w be/.t? úrslit 1. Paul Mc Cartney 2. George Harrison 3. John Lennon 4. Ringó Starr Ilvern aí Bítlúnum (Joh, Paul, Georgc. Ringo) telur þú merk- astan frá tóiilistarlegu sjónar- miði. — eftir að Bitlarnir hættu? Nýjasta plata Jethro Tull, Minstrel In The Gallery, er ein heilsteyptasta plata þeirra I mörg ár eða allt aftur að Thick As A Brick. A plötunni leitar Anderson aftur i timann og finnst mér tón- listin á plötunni minna nokkuð á lögin á fjögurra laga plötunni, „Love Is A Love Song” sem kom út 1972. Samlikingin liggur i mikilli notkun kassagitars, en það þykir mér skemmtilegasta hlið Jethro Tull. Við fyrstu hlustun virðist plat- an nokkuð þunglamaleg og melódiurnar eiga erfitt upp- dráttar, en við meiri hlustun fá lögin á sig mynd og áöur en yfir lýkur er platan orðin létt og skemmtileg. Með A Minstrel In the Gallery sannar Ian Ander- son enn einu sinni hæfileika sina sem söngvari, hljóðfæraleikari og sem fjölhæfur lagasmiður. Pink Floyd — Wish You Were Here PC 33453 — Columbia ★ ★ ★ ★ SÚ PLATA sem ineð hvað mestri eftirvæntingu hefur ver- ið beðið þctta árið, er án efa nýja platan frá Pink Floyd. Astæðan er hinar stórkostlegu móttökur og vinsældir siðustu plötu þeirra, Dark Side Of The Moon. Nú er þessi nýja plata kominn og ber heitið Wish You Were Here. Platan er talsvert ólik Dark Side Of The Moon, eins og við var að búast, þvi Pink Floyd falla ekki i þá gryfjú, sem margir smærri spámenna falla i, sem sagt að endurtaka plötu, sem hlotið hefur vinsældir. Uppistaða plötunnar er eitt lag, sem skiptist i niu kafla, — lag þetta eða verk, réttara sagt, heitir „Shine On You Craizy Diamond” og eru fyrstu fimm kaflarnir á fyrri hliðinni en fjór- ir siöari kaflarnir á hinni. Fyrir utan þetta verk eru svo þrjú önnur lög á plötunni. Eins og fyrr segir er þetta verk uppistaða plötunnar, en jafnframt er það lika mun betra en önnur lög hennar. Að minum dómi ér „Shine On You Craizy Diamond” það sem heldur plöt- . unni á floti, þvi að hin þrjú lögin i eru ekkert sérstök — þokkaleg ien ekkert meira. En þar sem þetta ágæta verk nær yfir svo stóran hluta plötunnar, færhún i heild að sjálfsögðu allmargar stjörnur, og Pink Floyd aðdá- endur eru áreiðanlega ánægðir þessa dagana. — SþS AAesí seldu plöturnar Vikan frá 30.-4. október Stórar plötur: 1. Wish you where here — Pink Floyd 2. O’Lucky Man — Alan Price 3. Minstrel in the Gallery — Jethro Tull 4. Disco Baby — Van McCoy 5. One of These Nights — Eagles 6. E.C. was Here — Eric Clapton 7. Millilending — Megas 8. Rainbow — Ritchie Blackmore 9. Greatest Hits — Santana 10. Win, Lose or Draw — Allman Brothers. Litlar plötur: 1. Love will keep Us together -- Captain and r.'iinille 2. Black Superman —Johnny Wakelin 3. Superman — Paradis 4. Misty — Ray Stevens 5. Sister Golden Hair - America. Faco hljómdeild Laugavegi 89 sími 13008 SENDUM I PÓSTKROFU Faco hljómdeild Hafnarstræti 17 sími 13303.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.