Tíminn - 12.10.1975, Page 37

Tíminn - 12.10.1975, Page 37
Sunnudagur 12. október 1975 TÍMINN 37 Þessir traustu hlöönu veggir standa enn uppi á Refsstööum (næsti bær viö Kárahlíö) Um tilurð þeirra má lesa ibók Rósbergs um Skáldið frá Elivogum.er hér gekk það siðast um garða. (Ljósm.: G.K.G.) © „Læknir minn..." Vítaspyrna (Þótt Rósberg G. Snædal hafi margt gott kvæðið ort, mun Víta- spyrna vera einna þekktust ljóða hans. Flestir sem lásu, skynj- uðu snilld kvæðisins, þótt sjálft efnið mætti skýra á fleiri en einn vcg. „Ætli að það hafi ekki verið ég sjálfur, eða einhver partur af mér, sem skoraði markið, sem sagt er frá í kvæðinu,” segir höfundurinn i viðtalinu, sem hér birtist. Þá skýringu geta lesendur látið sér nægja, að minnsta kosti i bili). Ég þreytti lengi knattleik við sifjalið satans, og séð hefur enginn þvilikan djöflagang. Ég varðist einn á vallarhelmingi minum með vindstöðu beint i fang. En upphlaupum þeirra ég varðist þó vonum lengur, og vist fengu djöflarnir frá mér hættulegt skot. Að lokum varð ég i nauðvörn að neyta hnefans, sem náttúrlega var brot. — En drottinn var sjálfur dómari i þessum leik. Þó dómarar hafi yfirleitt nóg með sig, var liði svo ranglega skipt og min vigstaða veik, að ég vonaði hann mundi sjá gegnum fingur við mig. Hendi! kallaði drottinn og dæmdi þeim auka- spark. Og djöfullinn skoraði mark. Rósberg G. Snædal. | hef reynt að leggja sérstaka rækt við hana, þvi ég veit, að hún er viðsjálsgripur hinn mesti. — Halda yrkiscfni ekki stund- um vöku fyrir þér um nætur? — Jú, það kemur oft fyrir, sér- staklega þegar ég hef verið að skrifa eða að hugsa um skáldskap rétt áður en ég geng til náða. Samneytið við skáldbræðurna er ómetanlegt — Hvernig er að vera skáld á Akureyri? — Akureyri hefur alltaf átt vel við mig, bæði sem mann og skáld. Ég er búinn að eiga hér heima i þrjátiu og fimm ár, eða með öðr- um orðum meginhluta ævi minn- ar, og er þvi orðinn vel kunnugur hér. Ég hef unnið hér með mjög mörgum mönnum og þekki i sjón velflesta Akureyringa, sem komnir eru af barnsaldri. Ég er sérstaklega þakklátur fyrir að hafa kynnzt hér mörgum ágætum mönnum, sem hafa verið mér andlegir félagar um áratuga skeið. Samneytið við þá hefur verið mér ómetanlegur stuðning- ur og uppörvun. Þar vil ég til dæmis nefna Heiðrek Guðmunds- son, Kristján frá Djúpalæk, Ein- ar Kristjánss. frá Hermundarfelli Guðmund Frimann, — og fleiri nöfn væri auðvelt að telja upp, þótt hér verði látið staðar numið. — Hafið þið, skáldin hér á Akureyri, umiið saman, til dæmis mcð þvi að skiptast á hugmynd- um og bera saman bækurnar? — Já, það höfum við gert svika- laust. Mest var það þó fyrr á ár- um, á meðan við vorum yngri og léttari á fæti. Við hittumst þá iðu- lega hver heima hjá öðrum og lásum upp það nýjasta, sem við höfðum ort. Þessar samkundur kölluðum við skáldaþing. Var þá rökrætt af kappi um þann skáld- skap, sem lesinn hafði verið upp, og látið fjúka i kviðlingum. Þeir bragir, sem urðu til á skálda- þingunum, myndu fylla margar bækur, ef i einn stað kæmu. — Þetta hefur haldið ykkur við andlega? — Já, áreiðanlega. Við vorum óvægnir i dómum hver um annan, létum allt fjúka, en enginn tók það illa upp, þótt mörg óþvegin staka flygi á milli. Ég er sann- færður um, að rithöfundar og aðr- ir sem við slika iðju fást, þurfi á þvilikum félagsskap að halda. Mörgum er það andleg nauðsyn að láta aðra heyra það sem þeir hafa ort, helzt strax á meðan það er nýtt, og eru ekki i rónni fyrr en þeir hafa fengið óvilhallan dóm frá einhverjum sem þeir taka mark á. Þetta er eðlilegt, þvi að mörgum höfundum er óhægt um vik að dæma eigin verk, — og kemur þar margt til, — en vera má lika, að hér sé um svipað fyrirbæri að ræða og þegar mönn- um er trúað fyrir leyndarmáli. Margir eru þannig gerðir, að þeir hafa engan frið i sinum beinum, fyrr'en þeir eru búnir að segja einhverjum frá þvi, sem þeim hefur verið trúað fyrir. — Nú hefur þú ort bæði gaman og alvöru, en citt kvæða þinna, sem geymir hvort tveggja, finnst mér sérlega þess vert, að uin það sé rætt. Það cr Vitaspyrna. Hvernig er það ljóð hugsað? — Það er rétt, að þetta kvæði er gamansamt á yfirborðinu, en mörgum hefur dottið i hug, að einhver djúp alvara lægi á bak við. Svo er þó eiginlega ekki. Ætli að það hafi ekki verið ég sjálfur, eða einhver partur af mér, sem skoraði markið, sem sagt er frá i kvæðinu. — Er það ekki rétt, sem mig minnir ég hafa heyrt, að þú hafir verið mjög viðriðinn gamanmál, sem opinber skemmtikraftur? — Jú, eitthvað er til i þvi. Ég byrjaði á þeirri iðju fyrir þrá- beiðni annarra, og stundaði hana siðan i tuttugu og fimm ár — einnig fyrir þrábeiðni þeirra sem héldu samkomur, bæði hér á Akureyri og út um sveitir. Það er nú einu sinni svo, að sá maður, sem einu sinni hefur látið til leiðast að yrkja gamanbragi og syngja þá fyrir náungann, hann fær ógjarnan frið. — Attu ekki allan þennan kveðskap? — Margt af þessu var svo bundið stað og stund, að það var ekki not- hæft nema einu sinni, en önnur gamankvæði þoldu betur geymslu, þótt þau væru oft af nauðsyn til þess að hafa eitthvað til flutnings á tiltekinni sam- komu. Mörg þeirra konfu i safni minu. Nú er ég kátur, en það eru fjögur hefti, sem bera nöfn hendinganna i hinni alkunnu visu, Nú er hlátur nývakinn. Seinna voru svo þessi hefti gefin út í einni bók, sem heitir Nú er ég kátur. — Eru það eingöngu ljóð? — Nei, þar er lika talsvert i óbundnu máli, svokallaðir brandarar, sem ég flutti við ýmis tækifæri og safnaði svo seinna með það i huga að gefa út kver með sliku efni. Ég er þannig ekki höfundur að öllu efni þessarar bókar, heldur i ýmsum tilvikum aðeins safnari efnisins. — Kanntu ekki eitthvað af þessu til þess að lofa lesendum okkar að heyra? — Ég man þetta nú ógjörla. Þegar ég varð fimmtugur, ákvað ég að hætta alveg' þessum skemmtiiðnaði, ég hef staðið við það. — En hvort ég man eitthvað svo að ég geti farið með það... já, við skulum nú sjá. Jú, ætli að það sé þá ekki helzt sagan um ekkjuna, sem hafði þann ávana að nefna manninn sinn sáluga aldrei annað en „Sigurjón heitinn”, og var orðið það ger- samlega ósjálfrátt. Sagði hún meðal annars þetta frá búskap þeirra hjónanna: „Einu sinni vorum við Sigurjón heitinn að járna rauðan hest, sem við Sigurjón heitinn áttum. Þá hleypur litill krakki sem við Sigurjón heitinn áttum, rétt aftan við hestinn, svo ég segi svona við Sigurjón heitinn': Gættu að þvi, Sigurjón heitinn, að hesturinn slái ekki barnið! „Ilvaða vitleysa,” segir Sigurjón heitinn, „þessi hestur hefur aldrei slegið.” „Já, en gættu aö einu, Sigurjón heitinn: Það sem aldrei hefur komið fyrir áður, getur komið fyrir aftur!” — Hefur þú ekki gert meira að þessu: að bjarga frá glötun ýms- um fróðleik um sérkennilega og merka einstaklinga? — JU, ég hef skrifað þætti um nokkra menn, sem ég kynntist i æsku, og voru að einhverju leyti frásagnarverðir. Þessa þætti er að finna bæði i bók minni Fólk og fjöll og Skáldið frá Elivogum. Þarna er meðal annarra talað um Marka-Leifa, sem alþjóð kannast við af afspurn, Ólaf Bjarnason eða ólaf seiga, eins og sumir kölluðu hann, og Breiðavaðs- bræður. Marka-Leifa og Ólaf seiga þekkti ég vel báða, og ég vildi ekki láta hjá liða að segja það sem ég vissi um þá. En þessir þættir eru ekki hugsaðir sem sagnfræði, heldur sem frásagnir af persónulegum kynnum minum við þessa menn. Það er einungis min reynsla og min skoðun á manninum, sem ég legg til grundvallar. — Er ekki bók þin Fólk og fjöll að mestu endurminningar þinar um ferðalög og útiveru? — Jú. Þar eru nokkrir þættir um eyðibyggð, sem ég þekkti i æsku, en eru nú löngu komnar i auðn. Siðar ferðaðist ég um þessar slóð- ir og kynnti mér sögu þeirra miklu nánar, en eins og allir vita eru það miklir atburðir og mikil saga, þegar heilar sveitir leggjast i auðn, sem hafa verið fjölbyggð- ar. Þannig voru i æskusveit minni, Laxárdal i Austur-Húna-‘ vantssýslu, tuttugu og sex bæir, þegar flest var, skömmu fyrir siðustu aldamót, en nú eru þar aðeins eftir fimm bæir. Ég hef sagt frá nokkrum bújörðum i dalnum og rakið sögu þeirra, og einnig sveita og fjallavega i grenndinni. Ég veit ekki, hvort ég á að taka svo U1 orða, að mér þyki gamar. að þvi en það höfðar að minnsta kosti ákaflega sterkt til min að ganga um þessa gömlu garða, og ég geri það flest sumur. Ég held að ég geti bezt lýst tilfinningum minum, þegar ég geng um þær slóðir, þar sem smalaspor min eru geymd i grasi með þvi að fara með þessa visú. sem ég orti einu sinni: Oft er gælt við grafna sjóði, gengin spor um hól og laut, þar er gróinn götuslóði gömlum manni Aðalbraut. — Langaði þig ekki einhvern tiina til að verða bóndi, fyrst æskustöðvarnar eiga enn svo djúpar rætur i vitund þinni? — Það held ég ekki. Ég er fæddur landlaus maður. Þegar ég komst svo á legg að ég gat farið að hugsa til framtiðarstarfs, var upplausnin komin til sögunnar. Það var heimsstyrjöldin siðari sem olli þvi að dalurinn minn eyddist svo snögglega sem raun bar vitni. Fólkið sótti i atvinnuna, þar sem peningarnir voru fljót- teknari, og fleiri sveitir en Laxár- dalur fengu að finna fyrir þvi. Ég hafði ákaflega gaman af mörgum sveitastörfum, þegar ég var ungur. Það orð lá á, að ég væri fjárglöggur, og ég hafði mikið yndi af gæzlu sauðfjár, sér- staklega um sauðburð. Fénaðar- ferð var gifurlega mikil heima hjá mérog göngulag slikt, að það myndi sjálfsagt talið til lygi- sagna, ef ég segði frá þvi hér. Mér þótti lika gaman að heyskap, einkum slætti. Ég man, að ég komst meira að segja einu sinni i fréttir dagblaðsins Timans, en þar var frá þvi sagt, að ég hefði slegið dag- sláttuna á sex klukkustundum. Þetta mun hafa verið sumarið 1939. A þessum árum var allt hey bundið i reipi og flutt heim á klökkum. Mér þötti snemma gaman að binda, og held, að ég hafi veri sæmilega liðtækur við það verk. Við Húnvetningar bundum ævinlega einir, það var siður, sem komizt hafði á, og þetta gerðu allir. Einu sinni sem oftar var ég kaupamaöur á bæ, og þar var einnig kaupakona. Hún var úr Eyjafirði. Einn daginn fórum við aö binda af engjum, hún lét á reipin og rakaði dreifar.en ég batt. Þegar ég er að byrja að troða fyrsta baggann kemur stúlkan framan á sátuna á móti méroghallastfram áhana i áttina til min. Ég varð ógurlega hvumsa, þvi mér datt ekkert annað i hug en að hún ætlaði að fara að vera góð við mig — ég hafði aldrei vitað til þess að tvær manneskjur þyrfti til þess að binda einn bagga. Angist min óx um allan helming, þegar ég sá hvar húsbóndinn nálgaðist með lestina. Ég vildi ekki láta hann sjá til okkar neitt óviðurkvæmi- legt athæfi, svo að ég hálf-hrinti vesalings stúlkunni niður af bagganum. Hvilik framkoma! Og blessuð manneskjan hafði ekki ætlað annað en að hjálpa mér við að binda bagga! — Þú hefur lýst þvi yfir hcr að framan, að þig hafi hvorki langað til þess að verða bóndi né at- vinnurithöfundur, enda hafir þú orðið hvorugt. Ertu þá ekki harla ánægður með lifið eins og það varð? — Jú, ætli ég verði ekki að segja það. Að visu átti ég ekki ýkja- margra kosta völ, heldur varð að taka það sem bauðst hverju sinni og gera úr þvi það skásta sem i minu valdi stóð. Ég hlaut að klóra i bakkann og krafsa mig áfram eftir þvi sem ég var maður til. Lengst af var ég fátækur barna- maður. Ég á sex uppkomin börn, sem öll hafa staðið sig með prýði, hvert á sinurn vettvangi. Þetta er ekki svo litill afrakstur og mikil hamingja manni, sem kominn er á efri ár. Sjálfur hef ég oft fengið að starfa að þvi sem hugur rninn hefur stundum staðið til, eins og til dæmis að kenna börnum og að skrifa bækur. Skrifstofustörf stundaði ég um árabil, en mér likaði sú vinna aldrei vel, svo ég hætti henni. Ég vil miklu heldur vinna byggingarvinnu en vera t skrifstofuþræll. Ég hef alltaf orðið að bjargast eins og bezt gengur og ég mun þvi ekki kvarta undan þvi að þurfa að vinna á meðan mér endast kraftar, eins ográða má af þessari visu minni: Dofnar skinn og daprast trú, dvin að sinni bragur. læknir minn og likn ert þú, langi vinnudagur. Forðist slysin og kaupið WEED keðjur í tíma Suðurlandsbraut 20 * Sími 8-66-33

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.