Tíminn - 12.10.1975, Qupperneq 40
*
.. ................. '
Sunnudagur 12. október 1975
■-
SÍMI 12234
tíERRft
EARÐURINN
■A4D ALSTRrfETI B
SÍSIÓDIJH
SUNDAHÖFN
fyrir góóan mai
$ KJÖTÍÐNAOARSTÖÐ SAMBANDSINS
y
Enn vantar margt
fé í Bárðardal
og nágrenni
gébé Rvik — Enn vantar margt
fé frá mörgum bæjum i Bárðar-
dal, og i syörihluta Kinnar, aö
sögn Bjarna Péturssonar, odd-
vita á Fosshóli. — Snjöinn er að
taka upp núna, sagöi hann, og
alltaf er aö finnast fé, en þaö er
mjög illa farið og hrakið.
Sláturlömb eru á gjöf hjá flest-
um bændum á þessum sióöum
og hefur slátrun verið flýtt á
Hdsavik til hagræöis fyrir
bændurna. — Þetta er alveg ein-
stakt aö hafa sláturfé á gjöf hér,
sagöi Bjarni, elztu menn hér um
sldöir muna ekki eftir aö slikt
hafi gerzt hér áöur.
Eins og skýrt var frá i Timan-
um i siðustu viku, fennti mikið
af fé i Bárðardal og á fleiri stöð-
um i Þingeyjarsýslu, er mikil
snjókoma varð þar um s.l.
mánaðamót. — Eftir að fór að
taka aftur upp snjóinn hefur fé
komizt að bæjum, og eins er
alltaf verið að finna fé, sagði
Bjarni. þó að hagi hafi komið
upp undan snjónum á sumum
stöðum, og fé komizt I hann, er
það mjög illa farið. Ekki kvaðst
Bjarni vita til, að nema ein ær
hefði fundizt dauð, og að það
hefði rætzt furðanlega vel Ur
þessu, en þó má fastlega búast
við að fleira fé eigi eftir að finn-
ast dautt.
Enn vantar fé á flestum bæj-
um i Bárðardal og suðurhluta
Kinnar, og sagðist Bjarni búast
við, aðenn gæti það verið lifandi
ogvonazt væri til að það fyndist,
en stöðug leit að fé hefur verið
siðan snjókoman mikla varð um
slðastliðin mánaðamót.
Drukkum fyrir 1.347 millj-
ónir þriðja ársfjórðunginn
Ýmislegt bendir þó til að dregið hafi úr áfengisneyzlu
að sögn áfengisvarnarráðunauts
SJ-Reykjavik Mánuðina 1. júli til
30. sept. 1975 keyptu landsmenn
áfengi fyrir nær 60% meira fé en
sömu mánuði árið áður. Þó er
engan veginn vist að um aukn-
ingu á áfengissölunni hafi verið
að ræða — hvað magn snertir, en
upplýsingar um það fást ekki
nema I árslok.
— Ýmislegt gæti raunar bent til
þess, að heldur drægi úr drykkju-
skap og áfengiskaupum eftir 30%
verðhækkun á áfengi, sem gerð
var i' júní i sumar, að sögn Ólafs
Hauks Árnasonar áfengisvarna-
ráöunauts.
Söluaukning þriðna árs-
fjórðung þessa árs miðað viö
sama tlma I fyrra var 58,6%. í
millitlðinni varð áðurnefnd 30%
verðhækkun I júnl, 17-25% verð-
hækkun mismunandi eftir
tegundum I febrúar sl. vetur og að
auki tvær minni hækkanir I janú-
ar 1975 og desember 1974.
Heildaráfengissalan 1. júll til
30. sept. 1975 var á þessa leið:
Reykjavlk.........kr. 980.012.854-
Akureyri...........” 153.153.270-
Isafiröi...........” 44.601.970-
Siglufirði.........” 24.526.150-
Seyðisfirði .........” 53.406.610-
Keflavlk...........” 54.323.460-
Vestmannaeyjum . ” 37.417.020-
Kr. 1.347.441.334-
.Afengissalan ásama tima 1974.
Heildarsala:
Reykjavlk.........kr
Akureyri...........”
Isafiröi...........”
Siglufirði.........”
Seyðisfirði ...... ”
Keflavik...........”
Vestmannaeyjum . ”
Kr. 849.556.224-
619.664.284-
100.226.545-
26.974.500-
15.522.080-
27.837.960-
33.006.395-
26.324.460-
►
S
r
V KVENNAFRI
24.0KT
UNDIRBÚNINGUR
í FULLUM GANGI
Rætt við Gerði Steinþórsdóttur um tilhögun kvennafrísins
gébé—Rvlk. — Viö erum á stanz-
lausum fundum og undirbúningur
allur er i fullum gangi, sagöi
Geröur Steinþörsdóttir í viötali
viö Timann. Framkvæmdanefnd
um kvennafrl, hafa borizt fjöl-
margar stuðningsyfirlýsingar frá
ýmsum félaga- og starfssamtök-
um. En blaöið hefur fregnað, aö
forráöamenn ýmissa fyrirtækja
hafi verið með hótanir til
starfskvenna, sem hjá þeim
vinna, um aö segja þeim upp
vinnu eöa lögsækja þær, ef þær
ekki mæta til vinnu 24. október.
Almennt virðist þó aö undirtektir
kvenna séu mjög góöar á flestum
vinnustööum og allt útlit er fyrir
aö útifundurinn I miðbænum i
Reykjavik 24. okt. verði fjölsóttur
mjög. Komiö hefur i ljós aö Sviar
hafi áhuga á aö senda fréttamann
til að fylgjast meö framkvæmd
kvennafrlsins.
Það var á Kvennaráðstefnunni,
semhaldin vardagana 20.-21. júni
I ár, aö ákveðið var að skora á
konur að taka sér frl frá störfum
á degi Sameinuðu þjóðanna, 24.
október, til að sýna fram á mikil-
vægi vinnuframlags síns i þjóð-
félaginu. Sameiginleg niðurstaða
varð, að framlag kvenna til sam-
félagsins sé lítilsvirt. 1 dreifibréfi
sem prentað var I 40 þúsund
eintökum og dreift I Reykjavlk og
út á land, eru raktar ástæður fyrir
þessari ákvörðun að taka frl i
einn dag, og þar sem þær ástæður
hafa verið birtar áður, er óþarfi
að rekja þær hér.
— Byrjað var að kanna hvernig
ætti að koma þessu I fram-
kvæmd, sagði Gerður, og var
ýmsum félagshópum boðið að
senda fulltrúa slna I fram-
kvæmdanefndina. Þann 15.
Merki kvennafrídagsins,
24. október.
september s.l. var síðan kosinn 10
manna framkvæmdanefnd og
fimm starfshópar, og eru tvær
konur úr framkvæmdanefndinni
oddamenn I hverjum starfshóp.
Hver hópur hefur sitt ákveðna
verkefni, og hefur verið starfaö af
fullum krafti Iþeim öllum undan-
farnar vikur.
Einn hópurinn hefur það verk-
efni að koma á framfæri upplýs-
ingum um kvennafri, I fjölmiðla
hér og erlendis og með auglýsing-
um. Verkefni annars hóps er að
fara á vinnustaði og i félög og
kynna aðgerðina.
Einn hópurinn sér um alla
framkvæmd fundarins á sjálfan
frldaginn, dagskrána og annað
sem að fundinum lýtur. Þá sér
einn hópurinn um kynninguna úti
á landsbyggðinni, m.a. með þvi
að senda dreifibréf og fleira, og
hafa samband við formenn
stéttarfélaga og fleiri. Fimmti
hópurinn sér um fjáröflun, og
dreifingu plakats og merki dags-
ins. — Nefndinni hafa þegar bor-
izt fjárframlög frá ýmsum félög-
um, eins og Sókn, Starfsmanna-
félagi Reykjavikurborgar, Félagi
starfsstúlkna I .mjólkur- og
brauðbúöum og vitað er um og
von er á mörgum fleiri, sagði
Gerður.
Fóstrur hafa þegar ákveðið að
leggja málinu lið, svo og
hjúkrunarkonur sem lýst hafayfir
stuðningi slnum, þó að þær geti
ekki tekið virkan þátt I frídegin-
um. Þá sagði Gerður, að einnig
hefðu starfstúlkur sjónvarpsins
samþykkt einróma að styðja
kvennafrlið, stúlkur á talsam-
bandi við útlönd, munu aðeins af-
greiða neyðarsamtöl og einnig
landsslmastúlkur. Ahugi
kennslukvenna er mikill og búizt
er við miklum stuðningi frá þeim,
svo og mörgum fleiri starfshóp-
um og félögum. Á ráðstefnu ASl
og BSRB i Munaðarnesi fyrir
nokkru var lýst yfir eindregnum
stuöningi við framkvæmdanefnd-
ina.
í sambandi við þær hótanir,
sem blaðið hefur fregnað að yfir-
menn fyrirtækja hafi verið með
við starfsstúlkur sinar, er ekki —
samkvæmt samningum við opin-
bera starfsmenn — hægt að reka
fólk, sem ekki mætir I vinnu einn
dag aðeins hægt að veita þvl
áminningu, eða draga eins eða
tveggja daga laun frá kaupi
þeirra.
Ahugi virðist vera fyrir hendi
erlendis frá að fylgjast með
framkvæmd kvennafridagsins,
en Islenzkar konureru þær fyrstu,
sem gera alvöru úr þessari fram-
kvæmd, og þvi brautryðjendur á
þessu sviði. Ein kvennanna i
framkvæmdanefndinni fékk
fyrirspurnir, frá Sviþjóð um mál-
iö, og var þar sýndur mikill áhugi
,á að senda hingað til lands frétta-
mann sem myndi fylgjast með.
Þá mun hafa verið haft samband
við skrifstofu Sameinuðu þjóð-
anna hér um að senda fréttir af
þessu íslenzka framtaki til frétta-
stofnana erlendis.
Akveðiðhefur verið, að fundur-
inn muni hefjast á Lækjartorgi
klukkan tvö e.h. 24. október.
Verða þar flutt ávörp, ýmis dag-
skráratriði og baráttusöngvar
sungnir. Nánari upplýsingar um
dagskrá fundarins gat Gerður
ekki gefið að svo stöddu. — Vitað
er til, sagði Gerður, að konur úr
Borgarfirði, Selfossi og Hvera-
gerði hafi I huga að fjölmenna á
fundinn og á fundardaginn verður
haft „opið hús” á mörgum stöð-
um I Reykjavik. Verður þar kaffi-
sala og reynt að hafa skemmtiat-
riði. Ekki kvaðst Gerður vjta um
Timamynd: Gunnar.
Gerður Steinþórsdóttir.
tilhögun dagskrár úti á landi, en
nefndin hvetur til aðgerða og
dagskrár.
Aætlað er að birta I dagblööun-
um þá baráttusöngva, sem
syngja á á fundinum I Reykjavlk,
þannig að konur geti allar tekið
undir. Ætti það að geta orðið sá
stærsti kvennakór sem saman
hefur komið á íslandi.
Merki kvennafrfdagsins 24.
október verður llmmiði með
mynd af blárri dúfu, merki
kvennaársins á dökkum grunni.
Verður hægt að líma mtrkið á föt,
töskur, bifreiðar o.s.frv. Sérstakt
plakat verður einnig til sölu, en
ekki er fullákveðið hvernig það
verður, og er von á því næstu
viku.
Að lokum komum við á fram-
færi þeirri ósk framkvæmda-
nefridar um kvennafrí, að konur
sameinast um að gera daginn að
eftirminnilegum baráttu- og sam-
einingardegi undir kjörorðum
kvennaárs Sameinuðu þjóðanna:
Jafnrétti—framþóun —friður.
Kjörorð 24. október: Fran c 3 Friður