Tíminn - 10.12.1975, Qupperneq 21
Miðvikudagur 10. desember 1975.
TÍMINN
21
Dögg næturinnar
— eftir Ólöfu Jónsdóttur
KOMIN er út ný bók eftir ólöfu
Jónsdóttur, Dögg næturinnar,
skreytt fjölda mynda, sem Sigfús
Halldórsson hefur teiknað. Ot-
gefándi er Bókamiðstöðin.
Þetta er sjöunda bók ólafar, og
eru f henni þrettán ljóð, ballett-
textinn Alfasögur og trölla og sex
ljóðævintýri.
Þetta er mjög falleg útgáfa, og
Ein af teikningunum úr bók ólaf-
ar.
um rit Olafar og efni þessarar
bókar sérstaklega, segir á bókar-
kápu:
„Skáldskapur Ólafar einkenn-
ist af mikilli vandvirkni. Ljóð-
ævintýri hennar eru fjölbreyttar
myndir, sem virðast ýmist á sviði
imyndunar eða raunveruleika, en
þar kemur i ljós djúpur næmleiki
og rik samúð. Ljóð Ólafar eru
stilhrein og minnisstæð. Boðskap-
ur þeirra vitnar um fágaða li'fs-
skoðun og leit að göfgi og fegurð”.
Draugurinn Drilll ný barnabók eftir Herdísi Egilsdóttur
tsafold hefur sent frá sér nýja
bók eftir hinn vinsæla barnabóka-
höfund, Herdisi Egilsdóttur og
nefnist bókin Draugurinn Drilli.
— Sagan um drauginn Drilla er
ekkert lik öðrum draugasögum.
Hún fjallar um vinskap tiu ára
drengs, Tryggva að nafni, og
draugsins Drilla, sem er fjörugur
og skemmtilegur, en einmana og
þráir ekkert heitara en að eignast
heimili og vini.
Það gengur á ýmsu fyrir Drilla,
meðan hann er að laga sig að
lifnaðarháttum venjulegs fólks.
Hann getur ýmist verið sýnilegur
i lakinu sinu, eða hann skilur lak-
ið eftir heima, og er þá öllum
mannlegum ósýnilegur. — Hann
lendir i mörgum skringilegum
ævintýrum, fer á grimuball sem
gjörbreytir tilveru hans, gerist
hinn mesti vágestur i umferðinni
og margt fleira, En i gegnum
þykkt og þunnt er Drilli alltaf
sami sakleysinginn, sem öllum
þykir vænt um.
Þessir glaðhlakkalegu náungar eru stjórnarmeðlimir í Félagi ungra
jafnaðarmanna iReykjavik, og hér halda þeir á farmiða, sem þeir af-
hentu nokkru eftir myndatökuna brezka ambassadornum I Reykjavik,
Kenneth East. Farmiðinn cr frá Reykjavík til London, — en ekki til
baka aftur. Vildu ungir jafnaðarmenn með þessu leggja áherzlu á
andúö sina og mótmæli við innrás brezka flotans i Islenzka fiskveiðilög-
sögu. Ambassadorinn neitaði að veita farseðlinum móttöku, en rabbaði
aftur á móti góða stund við gesti sina.
EViNRUDE
Prófið sætio —
en forlð varlega að benzíngjöfinni
Sleðinn gæti verið kraftmeiri
on þig grunor.
Nýr, þýður og glæsilegur sleði,
40 hestafla mótor.
SÝNINGARSLEÐ! Á STAÐNUM
3. bindi Vísnasafnsins komið út
Út er komið hjá bókaútgáfunni
Iðunni, þriðja bindi af Visnasafn-
inu, sem Sigurður Jónsson frá
Haukagili hefur valið úr vi'sna-
sjóði sinum sem hann hefur safn-
að I um áratugaskeið. t þessu
bindi eru yfir sjö hundruð lausa-
visur 250 höfunda.
Sigurður Jónsson frá Haukagili
er þjóökunnur af visnasöfnun
sinni og ást á góöri stöku. Má full-
yrða að mörg visan, sem er að
finna I safni Sigurðar væri glötuð
ef ekki hefði notið við hinnar si-
vökulu elju hans ásamt góðum
stuðningi fjölda manna.
Sigurður Nordal lét eitt sinn svo
mælt um lausavisuna: „Þær eru
sú kveðskapartegund, sem óhætt
mun að fullyrða, að geti ekki
týnzt nema með tungunni.” Von-
andi reynist sú spá sannmæli.
— fyrsta Ijóðabók
Björns Birnis
Uppsprettur
Þuriður Guðmundsdóttir
Á svölum
— ný Ijóðabók eftir
Þuríði
Guðmundsdóttur
— Nýlega kom út ljóðabók eftir
Þuriði Guðmundsdóttur, sem
nefnist A svölunum. Þuriður hef-
ur áður sent frá sér tvær ljóða-
bækur, Aðeins éitt blóm árið 1969
og Hlátur þinn skýjaður árið 1972.
t þessari nýju bók eru fjörutiu
og fimm ljóð. Björg Þorsteins-
dóttir listmálari gerði kápumynd,
en Leiftur hf. annaðist offsetfjöl-
ritun. Bókin er gefin út á kostnað
höfundar.
Örfóum sleðum óróðstafað
úr næstu sendingu.
Hafið samband strax.
VERÐ 335.000
SKIMMER 440
Takið eftir útlitinu!
SIMI 8t5Qd ■ARMULA11
Nýútkomin er ljóðabók eftir
ungan mann, Björn Birnir, sem
nefnist Uppsprettur. Þetta er
fyrsta bók höfundar og gefur
hann hana út sjálfur, en Björn er
við nám i stærðfræði og eðlisfræði
i Bandarikjunum.
í ljóðabókinni eru 35 ljóð, og
auk þess ljóðaflokkur sem
höfundur nefnir Rapsódiu i
karfa, en þeim flokki fylgir orða-
listi til skýringa.
HAPPDRÆTTI FRAMSÓKNARFLOKKSINS1975 Nr. 39502
IA 42000 ~ UPPLÝSINGAR: RAI
11.
12.
Dregið 23. desembéiitiy5.
Verð miðans kr. 200,00
EJÖLDI ÚTGEFINNA
ERÐIR 1976:
lorðurlönd: Danmörk, Sviþjóð|
lupmannahöfn 1
íinarlönd fyrir
íeyjar
iríeyjar
Noröurlönd
Mallor
Mallor
Kaupmannahöfn. Vfkudvöl
Kaupmannahöfn. Vikudvöl lyrir
Costa Brava á Spánl fyrlr “
Costa Brava á Spáni
10,00,
,00
10.000,00
80.000,00
60.000,00
60.000,00
£ Kr. 1.200.000,00
V
ilMI 24483.
Þeir, sem hafa fengið heimsenda miða með giró-
seðli, eru vinsamlega beðnir að gera skil i næstu
peningastofnun eða pósthúsi eða senda greiðsluna
til skrifstofu happdrættisins, Rauðarárstig 18.
Skrifstofan er opin kl. 9-6 virka daga, nema laugar-
daga kl. 9-12. Miðar eru seldir þar og i afgreiðslu
Timans, Aðalstræti 7, og er þar einnig tekið á móti
uppgjöri.
Drætti verður ekki frestað.
Björn Birnir.