Tíminn - 24.12.1975, Qupperneq 1
PRIMUS
HREYFILHITARAR
j VÖRUBÍLA OG VINNUVÉLAR
HF HÖRÐUB GUHMARSSOH
SKÚLATÚNI 6 - SÍMI (91)19460
Ragnar Stefdnsson,
jarðsk jdlftaf ræðingur:
Eldsumbrot d
syðra svæði og
jarðskjdlftar
á því nyrðra
— eru hvoru tveggja afleiðing
af gliðnun jarðskorpunnar
Gsal-Reykjavlk — Ég tel aö hegðan jaröskjálfta-
hrinunnar i Kelduhverfi og öxarfiröi mæli frekar
gegn þvi, 'aö gos sé i aðsigi á þeini slóöum, sagöi
Ragnar Stefánsson, jarðskjálftafræðingur, er Tim-
inn ræddi við hann. — Ég álit að scnn fari að draga
úr þessari jarðskjálftahrinu, og þá skoðun mina
byggi ég t.d. á hrinu, sem gekk yfir þessar sveitir
áriö 1955, sagði hann.
Ragnar sagði, að sú hrina hefði kannski verið ivið
minni en þessi hrina nú, en hún hefði gengið yfir á
tveimur sólarhringum að mestu leyti.
— Ég tel, að jarðskjálftarnir i Kelduhverfi og
Öxarfirði séu ekki i beinu sambndi við eldsumbrot
við Kröflu, sagði Ragnar. — Þetta er að visu al-
mennt tengt, en ekki að öðru leyti en þvi, aö jarð-
skorpan er að aölaga sig þvi spennuástandi, sem
orðið er rikjandi á öllu þessu svæði. Það er frekar
um að ræða sameiginlega orsök, þ.e. að þessi gliön-
un kemur fram á mismunandi hátt á mismunandi
stöðum. 1 Kelduhverfi og öxarfirði kemur hún fram
i jarðskjálftum, en sunnar — við Kröflu — kemur
hún lram i eldsu'mbrotum.
Snörpustu jarðskjálftakippirnir, sem.fundizt hafa
i þeim jarðhræringum sem nú eru á Norð-Austur-
landi, eru um 4,5 stig á Richterkvarða. Snarpasti
jarðskjálfti, sem mælzt hefur hér á landi er hins
vegar um 7 stig á Richterskvarða, og varð hann árið
1963. Hann átti upptök sin allf jarri landi i Skagafirði
að sögn Ragnars, fannst hann viða um land. Nokkr-
ar skemmdir uröu af völdum skjálftans, einkum i
Skagafirði.
Ragnar sagði, að hins vegar væri álitið að stærri
kippir hefðu oröið hér á landi á þessari öld, á suð-
vesturlandi, en þeir urðu áður en nokkrir jarð-
skjálftamælar voru til.
TIAAAMYND: ROBERT
i i
W*** 1 TiTi™
AAiki 1 útflutningsaukning
í ul lar- og ski nnaiðnaði
— verðmæti þessara iðngreina um 2 milljarðar á þessu ári
gébé Rvik — Siðastliðin fimm
ár, hefur útflutningur ullar- og
skinnaiðnaðarins siaukizt ár frá
ári og er áætlað að verðmæti út-
flutnings þessara iðngreina
verði um tveir milljarðar á
þessu ári. Að magni til hefur út-
flutningurinn fimmfaldazt á
árunum 1968 til 1974, úr 221 tonni
og 1223 tonn. Er hér um að ræða
mestu útflutningsaukningu
iðnaðarvara á þessu timabili.
Nú er verið að gera sérstakt
átak i þessum iðngreinum, með
stórfellda útflutningsaukningu i
huga. Strax eftir áramótin verð-
ur ráðinn maður, sem sjá á um
verkefnalýsingu, þ.e.a.s, ætlun-
in er að bæta alla þætti fram-
leiðslunnar, allt frá afurðum frá
fjárbóndanum og þar til varan
er komin á markaðinn, að sögn
Huldu Kristinsdóttur, fulltrúa
hjá ötflutningsmiðstöð iðnaðar-
ins.
Af þeim 1223 tonnum sem flutt
varútaf ullar- og skinnavörum
árið 1974, var magn ullar-
yörunnar 734 tonn, en þar af
voru seld 286 tonn til Sovétrikj-
anna. — Aðaluppistaðan er full-
unnar ullarvörur, þ.e. prjóna-
vörur ýmsar úr ull, sagði Hulda,
en i þeim flokki eru peysur, húf-
ur treflar og slikt. Af þessum
vörum voru 226 tonn flutt út allt
árið 1974, en fyrstu tiú mánuði
þessa árs, var útflutningurinn á
þessum sömu vörum orðinn 229
tonn, að verðmæti um 636
milljónir króna. Heildarútflutn-
ingur á ullarvörum árið 1974 var
734 tonn, en var fyrstu tiu
mánuðina 1975, orðinn 649 tonn.
Er þetta ofinn og prjónaður
fatnaður, ullarlopinn og bandið
og ullarteppin vinsælu.
— Sala á ullarvörum hefur
verið mjög góð á þessu ári,
sagði Hulda, enda eru þessar
vörur orðnar nokkuð þekktar að
gæðum. Þá er það einnig i tizku
að klæðast flikum úr „náttúru-
lituðum” efnum, og eru miklar
vonir bundnar við næsta sölu-
timabil, 1976-’77.
Heildarútflutningurinn á
skinnavöru var 489 tonn árið
1974, en Hulda sagði, að skinnin
væru yfirleitt send út hálf- eða
óunnin. — T.d. var magn full-
unninnar skinnavöru aðeins 2,3
tonn i fyrra og hefur ekki aukizt
mikið, en var á fyrstu tiu
mánuðum þessa árs 2,6 tonn.
Aðalmarkaðurinn fyrir islenzku
skinnin er i Bandarikjunum, en
þar er komið gott orð á vöruna,
og þó að hún sé dýr, eru gæðin
álitin vera i' fullkomnu sam-
ræmi við verðið. Skinnafram-
leiðendur hafa fullan hug á að
komast inn á nýja markaði, og
einnig að fullvinna vöruna hér
heima, en hafa veigrað sér við
þvi-að leggja út i hinn mikla
kostnað sem þvi er samfara,
sagði Hulda, og hefur þetta
greinilega valdið þvi, hve litil
aukning er i útflutningi fullunn-
innar skinnavöru.
Haustið 1974 kom fram sú
hugmynd, að gera sérstakt átak
i málefnum ullar- og skinna-
iðnaðarins með stórfellda út-
flutningsaukningu i huga. For-
rannsóknir hafa verið gerðar,
og leiða i ljós, að ekki er óraun-'
hæft, að tvöfalda megi þennan
útflutning að magni til. með þvi
að samræma stefnu i landbún-
aðar- og iönaðarmálum með
hagsmuni heildarinnar fyrir
augum, eða með öðrum orðum
að bæta framleiðsluþættina, allt
frá hráefnaframleiðslu og þar
til varan er send fullunnin á
markað.
Samþykki Iðnaðarráðuneytis-
ins hefur fengizt, til að Útflutn-
ingsmiðstöð iðnaðarins sjái um
framkvæmd þessa verkefnis, og
er verið að leita eftir fjármagni
til verkefnisins, og til að ráða
verkefnisstjóra, sem áætlað er |
að ráðinn verði i byrjun næsta
árs. — Aðalatriðið er að koma
þessu sem fyrst af stað, sagði |
Hulda Kristinsdóttir, og að É
vinna að þessu verkefni gæti |
hafizt sem fyrst.