Tíminn - 24.12.1975, Blaðsíða 9

Tíminn - 24.12.1975, Blaðsíða 9
Miðvikudagur 24. desember 1975. TÍMINN 9 sleppi að koma aflanum óskemmdum á markað — eða i pottinn. Rækjan við ströndina er einn bezti nytjafiskurinn. Hún er mjög stór og góð. Hana höfum við aðal- lega selt til hvita fólksins, sem starfar þarna á vegum Sþ og ýmissa annarra alþjóðastofnana. Nú er í gangi ný áætlun i sam- bandi við fiskveiðarnar. Geta fiskimennirnir þá fengið ný veiðarfæri keypt með afborgun- um og greiða fyrir þau með fisk- innleggi. Það er eins með mót- töku aflans og verkun og sjálfa veiðina, að allt er mjög frum- stætt, og erfitt hefur reynzt að koma aflanum á markað eftir að hann er kominn að landi. Nú er verið að reisa stóra byggingu á vegum Sþ, þar verður hægt að taka við fiski til þurrkunnar og i kælingu. En engin aðstaða hefur verið fyrir slíkt fram að þessu, og dreifingarkerfi er ekki til. Niður- suða þekkist ekki, og hefur rækja aðeins verið veidd i mjög smáum stilfram til þessa. Innfæddir hafa litið veitt af henni eða nýtt og þvi seljum við hana nær eingöngu til hvita fólksins. Selja rányrkju i eigin landhelgi — Talsverður fiskur Ivirðist vera i Rauðahafinu, að niinnsta kosti á vissum árstimum. Inn- fæddir fiskuðu til að mynda geysimikið i ágústmánuði s.l. á sinn frumstæða hátt. En þeir urðu að henda miklu af aflanurn, allt að fimm tonnum á dag, þansem ekki var hægt að koma fiskinum óskemmdum á markað. 1 En þaðermargt, sem verður að leggja meiri áherzlu á en tíetri aflabrögð. Fyrst og fremst ein- hvers konar fiskvinnsla og skipu- legt markaðskerfi, og er nú urinið að þvi að koma þvi upp. \ Enginn vafi er á að fiskveiðar I Rauðahafinu eiga mikla framtið fyrir sér. Þetta er algjörlega óplægður akur. 1 Rauðahafið hef- ur trolli verið kastað einstaka sinnum og þá fengizt mjög góðpr afli. t sumar var þarna 500 tonná italskur skuttogari. Hafði hann leyfi frá rikisstjórninni til veiða i landhelginni. Voru greiddir 400 dollarar fyrir hvert tonn sem hann veiddi. Fiskaði togarinn ágætlega úti á dýpi syðst i Rauða- hafinu, stóran og góðan fisk. Fékk hann um tvö tonn á togtimann. Siöan eyðilögðu ttalirnir allt fyrir sér með þvi að fara að stunda rækjuveiðar inni á örfárra faðma dýpi, og þá var leyfið tekið af þeim. Um það leyti voru 9 aðilar búnir að sækja um leyfi til veiða allt upp i fjöru á tilteknum svæðum. Voru það togaraútgerðir sem sóttu um þau leyfi. Þeir, sem um leyfin sóttu, voru frá ýmsum þjóðum, bæði við Miðjarðar- og Indlandshaf, svo og Sovétmenn. Fyrir þrem árum stunduðu hvorki meira né minna en 27 togarar frá Kuwait rækjuveiðar i Rauðahafi. Nú fiska þeir allir i Persaflóa og gera "það gott. Þeir þurrkuðu rækjuna mikið til upp i Rauðahafinu, eða á þeim svæðum sem þeir veiddu, en hún er fljót að vaxa i heita sjónum. Nú eru rækjumiðin aftur að ná sér. Heimamenn i Norður-Jemen tala litið um sina landhelgi, en yfir- völd vita náttúrlega að rikið á sina landhelgi, og tel ég Baldvin með fiskimönnum i þorpi á strönd Norður-Jemen Við leiðbeiningastörf á Rauðahafi. Fremst á myndinni er Helena, dóttir Baldvins, en sjálfur stendur hann við trollið 1 ■■ i 1 'l X > Trollpokinn tekinn um borð I stóra bátinn, sem minnzt er á i greininni. Innihaldið er eingöngu smáfiskur.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.