Tíminn - 24.12.1975, Blaðsíða 21

Tíminn - 24.12.1975, Blaðsíða 21
Miðvikudagur 24. desember 1975. TlMINN 21 Rostungarmr oruggir í sjónum, koma stundum nærri mönnum, sem hafa hægt um sig. og gefa þá frá sér alls konar dimmrödduð blásturshljóð og urr og stundum jafnvel öskur. Landmegin er mögulegt að komast mjög nærri þeim áður en þeir flýja til sjávar, en þegar flótti brestur i liðið, renna þeir sem næstir eru sjónum eða eru á slútandi syllum, sér ofán i, en þeir sem ofar eru, velta sér á hliðina og láta sig dettaá hvað sem er, alla leið til sjávar. Þegar rostungarnir eru aftur komnir i land, halda þeir sig þar til næsta matmálstima, með þeim afleiðingum að ólýsanlegur ódaunn myndast. Þó að rostungar eigi erfitt með hreyfingar á þurru landi, eru þeir léttir á sér, i sjónum og fara þá gjarna i kappsund og eltingarleik, svo að allt svæðið er komið á hreyfingu. Þeir eru lika forvitnir. Seu þeir öruggir i vatninu og haldi maður kyrru fyrir á landi eða i báti, koma þeir mjög nærri til að kanna málið. Enginn af núverandi uglit er eins stór og sá gamli á Magdaleneyjum, en á Coats- eyju, svo að dæmi sé tekið, geta allt að 2.000 dýr troðið sér i einu. Fjöldinn er breytilegur eftir fæðuöfiunarmöguleikum og veðurfari, þvi að þeim er illa við sjávargang og álandsvind. Þægileg matöflunarsvæði ráða ferðum rostunganna. Aðal- fæðan er skeljar og hörpudiskar, sem þeir róta upp úr forugurri botninum með vig- tönnunum og stinnu skegg- broddunum. Þegar þeir kafa, halda þeir sér sennilega i lóðréttri stððu með höfuðið niður og beita vigtönnunum fram og aftur og til hliðanna til að losa um skeldýrin. Þótt undarlegt sé, finnast hörpudiskaskeljar varla nokkurn tima i rótungamögum, heldur bara sogpipurnar og fæturnir, sem gefur til kynna, að rostungarnir geti sogið þessa mjúku hluta úr skelinni, eftir að hafa brotið hana i mél með hin- um sterku vigtönnum (þetta at- ferli hefur sézt til rostunga i dýragörðum) Einnig éta þeir kuðunga, sæbjúgu, vissar krabbategundir og sæorma. Einstöku sinnum hafa fundizt leifar af selspiki og selainnyfl- um i rostungamögum, en senni- lega hefur það komið úr hræj- um, þó að vitað sé um tilfelli, þar sem rostungar hafa ráðizt á og étið litla seli. Pörun á sér yfirleitt stað frá janúar til marz. Rostungar virðast kærulausir i makavali, og ekki stofna til kvennabúra undir stjórn eins sterks brimils Mestan hluta árins halda brimlarnir sig i friðsömum hópum á isjökunum, en urturnar og kóparnir halda sig i öðrum hópum, og oft hittast hóparnir ekki fyrr en þeir þurfa að halda á land vegna isleysis. Venjulega kæpa urtur á tveggja ára fresti, en fyrir kemur, að þrjú og jafnvel fjögur ár liði á mi.lli. Aðal kæpingar- timinn er um miðjan mai. Kóp- urinn er á spena i a.m.k. eitt ár og urtan gætir hans mjög vel, kennir honum að synda og afla sér fæðu, þar til hann er sjálf- bjarga. Samband urtu og kóps er mjög náið, og jafnvel stálpaðir og sjálfbjarga kópar halda sig i návist móður, sem nær taki á þeim og kafar með þá, ef hætta vofir yfir. Við fæðingu er kópur tæp 4 fet á lengd og vegur um 120 ensk pund. A fyrsta ári vaxa bæði kynin jafnhratt og verða u.þ.b. 5 fet á lengd og vega um 450 ensk pund. Þaðan i frá vaxa kópar af karlkyni hraðar (full- vaxin urta vegur um 1250 ensk pund og er 8 1/2 fet á lengd, en iullvaxinn b rimill er um 10 feta langur og vegur um 2000 ensk pund) Vaxtarhraði vigtannanna, sem koma út úr gómunum á tveggja til þriggja mánaða aldri, helzt i hendur við annan vaxtarhraða. Framan af lengjast tennurnar um u.þ.b. einn þumlung á misseri, og að lokum skaga tennur urtunnar um 10 þumlunga út, en brimlanna um 14 þumlunga. Rostungarnir eru i miklum metum hjá Eskimóum, sem stunda rostungaveiðar aðallega á vorin og snemmsumars, áður en lagisinn brotnar. Óliklegt er að allur aflinn sé fullnýttur. Trúlega er u.þ.b. 65% kjötsins nýtt til hundafæðu, en þar eð út- flutningur á húðum og tönnum er bannaður og snjósleðar eru að koma i stað hundasleða, i Kanada, a.m k. standa vonir til að rostungar eigi friðvænlegri íramtið. Dánartala rostunganna af náítúrulegum völdum er lág. i Beringsundi ráðast hvalir á rostunga, en á heimsskauta- svæðum Kanda eru isbirnir rostungum hættuiegastir. sér- staklega urtum og kópum á þurru landi. Sennilega stafar þeim aðallega hætta frá troðningnum á uglit. eða þeir kremjast á milli isjaka. Kringum 3.000 rostungar eru á Southamptoneyjasvæðinu, kópafjöldi er um 210 á misseri. og meðalveiði 172 dýr. Meðal- veiðiafli i Kanda á ári er 1.000 dýr og i Grænlandi 400, en auk þessa verður að gera ráð fyrir. að um 400 dvr. særð eða dauð. sökkvi. Athuganirúr lofti benda til, að sennilega seú a.m.k. 25.000 rostungar i Norður-Kan- ada og Grænlandi. og þar af eru stórir hópar á svæðum óaðgengilegum mönnum i norðanverðri Foxe Basin og á heimskautasvæðiseyjum. Vonir standa þvi til. að rostungurinn haldi velli i riki dýranna. Rostungar (Odobenus rosmarus) á eyju I Hudsonsflóa. Til að komast upp úr vatninu beita þcir tönnunum viö að ná taki á kletti eða jaka, þar til þeir geta komið framhreifunum við.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.