Tíminn - 04.01.1976, Side 5

Tíminn - 04.01.1976, Side 5
Sunnudagur 4. janúar 1976, ItMINN 5 LEILA RÆNIR EKKI FRÁMAR FLUGVÉLUM Leila Khaled, sem varð heims- fræg, þegar hún rændi Boeing 707 þotu i eigu bandariska flug- félagsins TWA árið 1969 og sprengdi hana siðan i loft upp hefur nú öðru hlutverki að gegna. Hún er þriðja hæsta i tign i stjórn samtakanna PFLP (alþýðusamtaka til frelsunar Palestinu). Hún var tekin hönd- um 1970 og sett i brezkt fangelsi, en fél. hennar i samtökunum tóku brezka gisla og fengu hana i skiptum fyrir þá. Hún sér ekk- ert eítir athöfnum sinum, sem flugræningi. — Við ætluðum ekki að gera neinum mein, heldur vekja athygli heimsins á vandamáli Palestinubúa. Þessu marki höfum við náð að miklu leyti og við höfum lika komið til leiðar að Bandarikjamenn eyddu 60 milljónum i öryggis- ráðstafanir og það jafngildir tveimur Phantom orrustuþot- um, sem Bandarikjamenn selja Israelsmönnum. Við hættum við þessar aðgerðir 1970. Ef heim- urinn verður áfram fullur þver- móðsku, gæti verið að við gerð- um aðra hluti, en allavega ræn- um við ekki framar flugvélum. Hún hefur nú yfirumsjón með starfsemi samtakanna i öðrum löndum og skipulagningu. Hún er fædd i Haifa og ólst upp i Beirut og lærði við bandariska háskólann i Libanon. Eftir það gerðist hún kennari i Kuwait. Hún breyttist úr hægfara þjóð- ernissinna i byltingarsinna, sem hefur það aðalmarkmið að berj- ast á móti heimsvaldastefnu. Draumur hennar er að lifa i þjóðfélagi, þar sem allir eru jafnirog konur njóta fullra rétt- inda. Hún sér nú um þjálfun og uppeldi barna i flóttamanna- búðunum. Kennsla i vopnaburði hefst þegar börnin eru 5 ára og þegar þau eru ellefu ára mega þau bera eigin vopn. Ein af þolraununum, sem börnin verða að ganga i gegnum er að skriða i gegnum göng, en yfir göngunum liggur brennandi hjólbarði. Þetta er að sjálfsögðu aðeins hluti af hennar umfangs- mikla starfi og hún segir að þetta sé ólikt veigameira hlut- verk heldur en það sem hún gerði fyrir fimm árum. Hún hefur litinn tima fyrir einkalif. Ferðir hennar eru aðeins kunn- ar framkvæmdastjórn samtak- anna, en hún hringir i þau á hverjum degi þegar hún er á ferðinni. 1970 giftist hún „arabiskum byltingarmanni frá írak”. Hann gengur undir dul- nefninu Bassir. Þau voru eina viku i brúðkaupsferð, siðan hvarf hvort um sig til sinna skyldustarfa. Þó hún sé orðin leikin i að búa til mat, segist hún ekki hafa tima til að sinna venjulegum heimilisstörfum. Talið er að hún eigi tvö börn og hún ber ekki á móti þvi. 1

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.