Tíminn - 02.04.1976, Qupperneq 1
Aætlunarstaðír:
Blönduós — Sigluf jörður
Búðardalur — Reykhólar
Flateyri — Bíldudalur
Gjögur — Hólmavík
Hvammstangi — Stykkis-
< hólmur —fRif .Súgandafj.
Sjúkra- o
allt land
Símar:
2-60-60 &
2-60-66
leiguflug um
„Vísis-mafian" á stjái:
NÚ ER REITT TIL HÖGGS
AÐ GUNNARI THORODDSEN
KRISTJÁN Thorlacius, for-
maöur BSRB, og Matthias Á.
Mathiesen, fjármálaráö-
herra, undirrita i gærkvöldi
samkomulag milli ríkisins
og opinberra starfsmanna,
en samkomulagiö náöist á 27
klukkustunda löngum fundi,
sem stöð til klukkan 18 i gær.
Kjarasamningarnir eru i
grundvallaratriðum sam-
hljóöa samkomulagi ASÍ og
VSÍ.
fullum hálsi og sagðist harma
á hvaö lágu stigi umræðurnar
væru. Hann nefndi Jóhannes
Nordal. formann Landsvirkj-
unar, og sagði, að liklega væri
hann i „alheims-mafiu" sam-
kvæmt kenningu Alberts.
Nánar verður sagt frá þessu
máli i blaöinu á morgun. en
þess má geta. að blaðamaður
frá Visi var viðstaddur þennan
borgarstjórnarfund. en blaða-
maður frá þvi blaði hefur ekki
séEt á borgarstjórnarfundi i
fjölda mörg ár ár. Haft var á
oröi eftir borgarstjórnar-
fundinn i gær. að nú hefði
Visis-mafian" reitt til höggs
að Gunnari Thoroddsen, en
mjög haröar ádeilur hafa ver-
iö á Gunnar Thoroddsen i Visi
siðustu daga, og náin tengsl
eru milli Daviðs Oddssonar og
Þorsteins Pálssonar, ritstjóra
Visis.
Of gott til
þess að
vera satt
m---► Q
JG-Reykjavik. — Mjög harðar
uinræður uröu I borgarstjórn
Reykjavikur i gærkvöidi um
orkumál I tilefni af fyrirspurn
Daviös Oddssonar (S) um þau
mál. í málflutningi Daviðs
kom fram nijög harkaieg
gagnrýni á yfirstjórn orku-
mála i iandinu, og varð ckki
annað skiliö á máli hans, en
þar ætti orkumálaráðherra
Gunnar Thoroddsen stærsta
sök. Talaði Davíð um „sér-
stakt og ógnvekjandi ástand i
orkuinálum” og „flausturs-
legar ákvaröanir.”
Albert Guðmundsson (S),
sem gegndi störfum forseta
borgarstjórnar I fjarveru
Olafs B. Thors, gagnrýndi
málflutning Daviös harðlega,
og sagði, að ekki færi milli
mála að hverjum spjótunum
væri beint. „Eg fæ ekki betur
séð en nýtt Armannsfellsmál
Dav ið
OdC' s on
sé i uppsiglingu" sagði Albert
og átti þá við, að Davið hefði
verið upphafsmaður að Ar-
mannsfellsmálinu með aðstoð
Visis.
Mátti skilja það af orðum
Aiberts að nú ætti að leika
sama leikinn gegn Gunnari
Thoroddsen. Mótmælti Albert
ásökunum i garð orkumála-
ráðherra.
Davið Oddsson svaraði
Ólafur Jóhannesson, dómsmálaróðherra
Landhelgisbrot íslend-
inga veikja málstaðinn
Mó-Reykjavík.— Það er hörmu-
legt, að slikt skuli koma fyrir,
sagði Ólafur Jóhannesson dóms-
málaráðherra um þá atburði, er
átta islenzkir bátar voru teknir i
landhelgi i fyrradag.
— Að Islendingar skuli haga
sér á þennan veg, getur aldrei
orðið nema til að veikja málstað
okkar, sagði dómsmálaráðherra
enn fremur.
DÓMAR i málum skipstjóranna
átta voru kveðnir upp i gær. Skip-
stjóri FRAM AK var dæmdur i
sakadómi Reykjavikur og hlaut
hann 400 þúsund króna sekt og afli
og veiðarfæri voru gerð upptæk.
Skipstjórinn áfrýjaði dóminum til
hæstaréttar.
í Vestmannaeyjum voru mál
fimm skipstjóra tekin fyrir. Skip-
stjórar á bátunum SUÐUREY
VÉ, SÆVÁRl VE, ILLUGA VE og
HAFERNI VE voru dæmdir i 230
þúsund kr. sekt i landhelgissjóð
og afli og veiðarfæri gerð upptæk.
Verði sektin ekki greidd kemur 30
daga varðhald i stað sektar.
Skipstjóri á HELGA BJARNA-
SYNI RE var dæmdur i 120 þús-
und kr. sekt fyrir ólögleg-
an umbúnað veiðarfæra. En hinir
bátarnir voru allir staðnir að
veiðum.
Á Selfossi voru skipstjórar á
bátunum STAKKI AR og ÓLAFI
MAGNÚSSYNI ÁR dæmdir i 250
þúsund króna sekt og afli og
veiðarfæri gerð upptæk.
• r
• •
rn-
ar reyndust
vera fíkniefni
Gsal-Reykjavik. — Atján ára
gamall tslendingur var siðari
hluta dags i gær handtekinn á
Kefiavikurflugveiii með 1200
grömm af fikniefnum, senniiega
hassi.
Rúður brotnar
í Alþingis-
húsinu
NOKKRIR unglingar voru
með óspektir i borginni i
gærmorgun, og brutu þá
m.a. rúðu yfir dyrum
Alþingishússins. Gunnar tók
myndina, þegar gert var við
rúðuna, en þingmenn gcngu
hiklaust undir fötu viðgerð-
armannsins.
Pilturinn, sem var að koma frá
Kaupmannahöfn, ætlaði i gegnum
„græna hliðið” hjá tollgæzlunni
með allmargai hljómplötur undir
hendinni. Þegar hljómplötu-
hulstrin voru tekin utan af
„hljómplötunum” reyndust þær
vera fikniefni, samanpressuð i
hljómplötuform.
— Það var einskær tilviljun að
við fundum þetta, sagði einn toll-
varðanna á Keflavikurflugvelli i
gær i samtali við Timann.
Málið er nú komið til fikniefna-
dómstólsins.
„Græna hliðið” á’ Keflavikur-
flugvelli er ætlað þeim sem engan
tollskyldan varning hafa meðferð-
is, en annað slagið eru þó gerðar
þar skyndiathuganir og þannig
var það einmitt i gær, þegar ungi
maðurinn gekk þar i gegn með
„hljómplöturnar” sinar.