Tíminn - 02.04.1976, Qupperneq 2
2
TÍMINN
Föstudagur 2. april 1976.
Of gott til þess að vera satt
FJ-Reykjavík.— Þetta var lika of
gott til þess að vera satt, sagði
einn þeirra, sem lagði leið sina að
byggingu SIS við Sundahöfn i
gær, þegar honum var skýrt frá
þvi að frétt Timans i gær um opn-
un stórmarkaðar KRON væri
aprilgabb blaðsins.
Að venju brugðu fjölmiðlar að-
eins á leik i gær I tilefni dagsins,
og stórmarkaðsfréttin var okkar
Það hafa einhverjir orðið á undan
okkur.
Jyersr
&s2S&»:____„
v*'Rryt?X*»
„,r» oVtk“' t
5‘w-œJi'
wÆ'.V
e“'4'?,N S\S
1 h<lih»rverð«
55*-*“'
IsetmnRU W
4la«alaust
W9ofs"or,,“'
höfn í
_ ttórmarWa*>'an
X&&X-Z___—:
ur . b#ð að
„ upp * ÞetU’
e\n»
asssía ^ssrs®íri
MðupP*.,„« pao, _
Þvi miður. Þetta var bara april-
gabb hjá Tlmanum.
aprilgabb. Að sögn starfsmanna
SÍS, sem vinna i vörugeymslu i
húsi þvi, sem við sögðum hýsa
stórmarkaðinn, var þangað stöð-
ugur straumur fólks i allan gær-
dag, i leit að nýja stórmarkaðn-
um. Flestir þeir, sem hlupu april,
tóku þvi vel, og erum við þeim
þakklátir fyrir. Vonandi erfir það
enginn við okkur, þótt hann hafi
ekki haft árangur sem erfiði af
ferðalagi sinu i Sundahöfn ii gær.
Einn lesandi hringdi til okkar
og kvaðst vilja láta okkur vita af
þvi, að hann væri ekkert reiður,
þótt ferð hans hefði reynzt fýlu-
ferð. — En öllu gamni fylgir
nokkur alvara, sagði hann. Og ég
hugsaði sem svo, þegar ég las
fréttina i Timanum. Þetta er einn
merkasti dagurinn i lífi minu,
þegar hagur fólksins hefur borið
heimsku ihaldsins ofurliði. Þvi
miður reyndist það nú ekki rétt,
en vonandi verður þetta spaug
ykkar og viðbrögð okkar til þess,
að meirihluti borgarstjórnar
Reykjavikur endurskoðar afstöðu
sina til málsins og gerir þessa
aprilfrétt ykkar sanna.
Og við sem vorum svo ákveðnir i
þvi að hlaupa ekki apríl i dag.
Timamyndir: Guðjón
Bæjarstjórinn
á Akureyri
segir starfi
sínu lausu
n.k., en núverandi bæjarstjóri,
Bjarni Einarsson, hefur sagt
starfi sinu lausu frá þeim tima.
Bjarni hefur gegnt bæjarstjóra-
stöðunni s.l. niu ár, en mun nú
taka við nýju starfi hjá
Framkvæmdastofnuninni. Engin
ákvörðun hefur verið tekin I bæj-
arstjórn Akureyrar um ráðningu
eftirmanns Bjarna.
— Þann 18. april n.k. hef ég
verið niu ár bæjarstjóri hér á
Akureyri, sagði Bjarni Einarsson
i viðtali við Timann I gær. —
Grundvallarástæða þess að ég nú
segi starfi minu lausu eru mjög
einföld. I fyrsta lagi held ég að
fólk sé sammála um að menn eigi
ekki að sitja of lengi i þessu starfi,
og þvi vildi ég gjarna skipta um
starf áður en ég yrði of gamall, og
svo það, að ég get nú fengið starf,
sem ég hef áhuga á, sem er nýtt
starf hjá Framkvæmdastofnun-
inni i sambandi við byggðamálin.
Um ráðningu nýs bæjarstjóra
kvaðst Bjarni ekkert geta sagt: —
Það eru stjórnmálamennirnir
sem það ákveða, en engin ákvörð-
un hefur enn verið tekin um það,
hvort starfið verður auglýst eða
hvernig ráðningunni verður hátt-
að, sagði Bjarni. — Ég vona bara
að það lendi i góðum höndum.
gébé-Rvik. Bæjarstjóraskipti
verða á Akureyri þann 1. ágúst
Bjarni Einarsson, bæjarstjóri á
Akureyri.
Dýrustu kartöflur
í heimi:
Kartaflan
kostar
80 krónur
FB-Reykjavik. Talað hefur
verið um, að þegar kartöflur
koma hér á markaðinn innan
skamms, innfluttar að sjálf-
sögöu, muni kílóið kosta um
150 krónur. En það eru viðar
dýrar kartöfiur en á tslandi,
segir i fréttabréfi frá Upplýs-
ingaþjónustu landbúnaðarins,
sem er nýkomið út.í bréfinu
segir, að Sviar hafi flutt inn
kartöflur frá Bandarikjunum,
þar sem útilokaö hafi verið
fyrir þáað fá meiri kartöflur
frá Hollandi-Þetta eru kartöfl-
ur af afbrigðinu Idaho, og eru
aöeins þrjár kartöflur i
kílóinu. Hver kartafla kostar
um 2 krónur sænskar, eða um
80 krónur islenzkar. Þetta
telja Sviar dýrustu kartöfiur i
heimi, enda verður þá hvert
kiló á 240 krónur.
I Danmörku mun smásölu-
verð hafa verið um 90 kr. isl.
fyrir hvért kg i byrjun marz.
Þar fengu framleiðendur sem
svarar 46 kr. ísl. fyrir hvert
kg. segir i fréttabréfinu.
Vorlaukar
afhentir
Vorlaukar Garðyrkjufélags
islands, verða afhentir á
skrifstofu félagsins að Amt-
mannsstig 2 kl. 9—17 i dag,
föstudag.
Framhaldsaðalfundur SFHÍI gær:
Lögbann sett
Gsal-Reykjavik 1 gær var sett
lögbann á boðaðan framhalds-
aðalfund Stúdentafélags Háskóla
tslands, og kom fulltrúi borg-
arfógeta á fundarstað um það
leyti, sem fundur átti að hefjast.
I gærmorgun var haft samband
við Garðar Mýrdal, formann
stjórnar SFHl, og honum tjáð, að
þess hefði verið á leit við fógeta,
að sett yrði lögbann á framhalds-
aðalfund félagsins, sem hann
hafði boðað til. Garðar lýsti þvi
yfir, að hann myndi taka til varn-
ar i lögbannsmálinu, en það var
flutt i bæjarþingi Reykjavikur i
gærdag, og féll úrskurður i
málinu kl. 15.30. Úrskurðurinn
var svohljóðandi:
„Þvi úrskurðast: Hið umbeðna
lögbann skal fram fara á ábyrgð
gerðarbeiðanda (Kjartans
Gunnarssonar og fl. — innskot
Timinn) gegn 100 þús. kr. trygg-
ingu, sem gild verði metin. Máls-
kostnaður fellur niður.”
Úrskurðinn kvað upp Jónas
Gústafsson.
I þann mund er Garðar Mýrdal
var að setja framhaldsaðalfund i
gær.baraðfulltrúa borgarfógeta,
sem lagði lögbann á fundinn.
Fundinum var þvi breytt i al-
mennan fund stúdenta, og urðu
nokkrar umræður um málefni
Stúdentafélagsins. Inn i þær um-
ræður dróst m.a. „bollumálið”
svonefnda.
A fundinum var lögð fram
ályktunartillaga, þar sem þeirri
stjórn SFHI, sem Garðar Mýrdal
er formaður fyrir, var vottað
fyllsta traust, og jafnframt lýst
yfir fordæmingu á lágkúrulegum
samsærisbrögðum Kjartans
Gunnarssonar og fleiri.
Fram fór skrifieg atkvæða-
greiðsla um tillögu þessa.
Úrslit urðu þau, að já sögðu
199, nei sögðu 10, tvö atkvæði voru
ógild.
Rétt er að geta þess, að borg-
arfógeti á eftir að fjalla um það,
hvor stjórnin i Stúdentafélaginu
er lögleg.
Frá stúdentafundinum i gær.
Timamynd: Róbert