Tíminn - 02.04.1976, Side 3
Köstudagur 2. april 1976.
TÍMINN
3
Aprílgamanið
snerist upp
í óspektir
Gsal-Reykjavik — Hópur
unglinga úr gagnfræðaskólum
borgarinnar þeysti um stræti
miðborgarinnar i gærmorgUn, og
kom til nokkurra ýfinga á milii
þeirra og lcgreglu. Unglingarnir
grýttu iögreglubilinn með eggjum
og gerðu tilraun til að velta hon-
um, er lögreglan handtók tvo
drengi úr hópnum. Þá brutu ung-
iingarnir enn fremur rúðu i Al-
þingishúsinu.
Afi sögn lögreglunnar heim-
sóttu ungmennin lögreglustöðina
við Hverfisgötu, eftir ýfingarnar i
miðbænum, og komu rétt innan
við hundrað unglingar á varðstöð
lögreglunnar. Að sögn Magnúsar
Einarssonar varðstjóra skýrðu
unglingarnir frá þvi, að mark-
miðið hjá þeim hefði ekki verið að
skemma eða meiða, heldur
einungis að gera sprell i tilefni
dagsins. Magnús sagði, að
forsvarsmenn hópsins hefðu
harmað mjög, að til leiðinda
skyldi koma, og þvi miður hefði
áætlun þeirra farið nokkuð úr
Unglingarnir á leið niður Lauga-
veginn i gærmorgun.
Timamynd: G.E
böndunum.
Að sögn Magnúsar vildu
unglingarnir ekki skýra frá þvi,
úr hvaða skólum þau væru, né
hvort einhverjir væru fyrirliðar
hópsins.
Eftir fundinn hjá lögreglunni
dreifðist hópurinn.
Árás á gamla konu
Gsal-Reykjavik — Þrítugur karl-
maður réðst um hádegisbiiið i
fyrradag á aldraða konu i
Reykjavik og misþyrmdi henni.
Maðurinn, sem hefur verið Ieigj-
andi konunnar um skeið, ruddist
inn I baðherbergi til hennar,
skeliti henni á góifið og tók hana
kverkataki, svo að henni lá við
köfnun. Konan hrópaði á hjálp og
heyrði gamall maður, sem býr i
húsinu, óp hennar og kom á vett-
vang. Gerði maðurinn sér þá litið
fyrir og réðst á gamla manninn,
með þeim afleiðingum, að flytja
varð hann á slysadeild.
Maður, sá sem hér um ræðir
hefur leigt hjá gömlu konunni um
skeið, og fannst henni einkenni-
lega lykt leggja út úr herbergi
hans. í fyrradag hugðist hún fá
svör við þvi, af hverju lyktin
stafaði, en maðurinn visaði henni
á dyr.
ASÍ kærir bú-
vöruhækkunina
Éi
s W'y' 1 *I
Li, ■ f
rr*i'•* 'cT i
Sjálfstæðismenn í borgar-
stjórn vildu verzla við Breta
— breyttu ákvörðun l .nkaupastofnunar, sem vildí taka
tilboði V-Þjóðverja
JG-Reykjavik. Á fundi borgar-
stjórnar i gær var, að viðhöfðu
nafnakalli, felld tillaga borgar-
fulltrúa Framsóknarflokksins
og Alþýðubandalagsins um að
tekið yrði tilboði frá v-þýzku
fyrirtæki um vörukaup til
vatnsveitu Reykjavikur, eins og
meiri hluti stjórnar Innkaupa-
stofnunar Reykjavikur háfði
lagt til, og hafna þar með
brezku tilboði, sem var lægst.
Báðir borgarfulltrúar
Framsóknarflokksins, þeir
Alfreð Þorsteinsson og Kristján
Benediktsson, lögðu áherzlu á,
að óeðlilegt væri, að Reykja-
vikurborg beindi viðskiptum
sinum til Bretlands, með tilliti
til landhelgisdeilunnar. Minnti
Kristján Alfreð
Alfreð Þorsteinsson á, að flug-
málayfirvöld hefðu nýlega
hafnað brezku tilboði i stál-
grindahús, þótt það hefði verið
lægst.
Sagði hann, að þótt við værum
háðir Bretum með viðskipti á
ýmsum sviðum, ætti það að
vera meginstefna að beina
viðskiptum Reykjavikurborgar
frá Bretlandi.
Tillaga Framsóknarmanna
og Alþýðubandalagsmanna var
felld, að viðhöfðu nafnakalli,
með átta atkvæðum gegn sex.
Athygli vakti, að einn af borg-
arfulltrúum Sjálfstæðisflokks-
ins, Páll Gislason, sat hjá.
Varafulltrúi Alþýðuflokksins,
Guðmundur Magnússon skóla-
stjóri, greiddi tillögunni at-
kvæði, en sem kunnugt er fylgdi
Björgvin Guðmundsson Sjálf-
stæðisflokknum siðast, þegar
fjallað var um vörukaup frá
Bretlandi, á borgarstjórnar-
fundi.
Gsal-Reykjavik. — A fundi miðstjórnar Alþýðusambands is-
lands i gærkvöldi var ákveöið að höfða mái vegna búvöruverðs-
hækkunarinnar, sem tók gildi 1. marz sl., og sannreyna þau á-
greiningsefni, sem fram hafa komið, fyrir dómi. Aö sögn Ólafs
Hannibaissonar, skrifstofustjóra Alþýðusambandsins, er á-
greiningsefnin einkum að finna i 1. málsgrein 9. greinar laga um
framieiðsiuráð landbúnaðarins, en samkvæmt þeirri iagagrein
átti kauphækkunin 1. marz sl. ekki að koma inn I verð búvöru
fyrr en 1. júni, að mali miðstjórnar Aiþýðusambandsins.
Lesendum til glöggvunar birtir Timinn áðurnefnda málsgrein:
,,Heimilt er að breyta afurðaverði til framleiðenda, og þar
meðsöluverði landbúnaðarvara, ársfjórðungslega frá 1. desem-
ber, 1. marz og 1. júni vegna hækkunar á kaupi, svarandi til þess
að laun bónda og verkafólks hans i verðlagsgrundvelli landbún-
aðarvara séu færð til samræmis við þá hækkun, sem kann að
hafa orðið á kaupi i almennri verkamannavinnu i Reykjavik á
undangengnu þriggja mánaða timabili.”
Að sögn Ólafs Hannibalssonar hefur ekki verið ákveðið, hve-
nær gögn i málinu verða send i dóm.
Reykjavíkurborg
kaupir gamlan
togara
JG-Reykjavik Borgarstjórn Reykjavikur samþykkti á fundi sinum i
gær að kaupa skuttogarann Freyju RE 38, samkvæmt tilboði Gunnars
I. Hafsteinssonar. Kaupverð skipsins er 350 milljónir króna. Kaupin
höfðu áður verið samþykkt i útgerðarráði BUR.
Páll Zóphóníasson settur bæjarstjóri:
GEYSIMIKLAR FRAM-
KVÆMDIR í EYJUM
gébéRvik. —Mikiðer um ýmiss
konar framkv- hériEyjum,
sagði Páll Zóphaniasson settur
bæjarstjóri i Vestmannaeyjum i
stuttu viðtali við Timann. Unnið
er viö fjarhitunina af fulium
krafti, verið er að ganga frá
byggingu sjúkrahússins, sund-
laugin verður vigð i júni og
iþróttahúsiö mánuöi seinna, og
fjölinargar íbúðir eru i smiöum,
auk Safnahússins.
Mikið hefur verið unnið við
fjarhitunina hér, eða hitaveit-
una, sagði Páll. Við viljum nýta
innlenda orku, rafmagn. Kynt
verður með rafskautskapli, og
varaaflið verður i svartoliukötl-
um. Þegar er búið að leggja i
allt vesturhverfið og hitun þar
komin i notkun i þeim húsum,
sem þegar eru tilbúin. Áætlun
liggur fyrir um að taka stærri
hluta af bænum, eða jafnvel bæ-
inn allan, inn i hitaveitukerfið.
— Þá er unnið að tilraunum um
hraunhitaveitu fyrir sjúkrahús-
ið, sagði Páll, en þvi kerfi
verður þannig háttað, að unnt er
að skipta þvi yfir i fjarhitun
bæjarins, ef hraunhitinn reynist
ekki nægur. Erfitt er að segja
um hvenær þessu lýkur, en gæti
þó orðið i næsta mánuði. Vinnu
við sjúkrahúsið er u.þ.b. lokið.
Aðeins er eftir að ganga frá i
kjallara þess, t.d. hluta af loft-
ræstikerfi. Kostnaður við
sjúkrahúsið er orðinn á þriðja
hundrað milljönir, sem er langt
umfram áætlun, en upphaflega
áætlunin var gerð fyrir 15 árum,
svo að litið er hægt að miða við
hana nú. Framlög rikissjóðs
hafa ekki náð þriðjungi kostnað-
aráætlunarinnar.
Þá sagði Páll, að unnið væri
að þvi að breyta gamla sjúkrá-'
húsinu fyrir bæjarskrifstofurn-
ar, og verður það þvi ráðhús
eyjaskeggja i framtiðinni. Þeg-
ar hefur verið hafinn undirbún-
ingur flutnings i hluta af hús-
næðinu, en búizt er við að flutt
verði að öllu leyti á þessu ári.
— Þá er unnið af fullum krafti
við Safnahúsið, þar sem bóka-
safnið verður til húsa, en eftir
gos hetur þurft að geyma
bækurnar i barnaskolanum. og
auk þess á mörgum stöðum i
bænum. sagði Páll.
A vegum Byggingaráætlunar
Vestmannaeyja eru fjölmargar
ibúðir i byggingu. — Þegar hafa
tiu hús með tuttugu ibúðum ver-
ið tekin i notkun, sagði Páll. —
Blokk með 84 ibúðum er i smið-
um, og er reyndar þegar búið að
taka þrjátiu ibúðir þar i notkun.
i öðrum áfanga áætlunarinnar
hefur verið unnið við blokk með
18 ibúðum, og auk þess um
fimmtiu ibúðir á ýmsum bygg-
ingarstigum. sem einstaklingar
byggja.
Páll sagði, að holræsa- og
vatnsleiðslur væru þegar tilbún-
ar fyrir nýja vesturbæinn, raf-
magn komið i þau hús, sem tek-
in hafa verið i notkun, svo og
fjarhitunin. Alls er áætlað að
um sjö hundruð ibúðir verði i
þessu nýja hverfi, sagði hann.
Að lokum sagði Páll, að unnið
væri að ferjuaðstöðu fyrir nýju
ferjuna, sem væntanleg er i
juni. — Við erum að vinna að
tengingu þjóðvegarins til okkar,
okkar megin, sagði hann að lok-
um.
Fjármálaráðu-
neytið:
Frumvarpið
um kjara-
samninga
opinberra
starfsmanna
nær ekki
tilBanda-
lags hó-
skólamanna
gébé Rvik — „í framhaldi af viö-
ræöum fulltrúa Bandalags há-
skólamanna og fjármálaráðu-
neytisins um samningsréttarmál-
in, vill fjármálaráðherra taka
þaö fram, að frumvarp til laga
um kjarasamninga opinberra
starfsmanna. sem byggt verður á
samkomulagi við BSRB. nær ekki
til BHM eða félaga. sein nú eru
innan vébanda BHM.” Svo segir i
yíirlýsingu, seni blaðinu barst
nýlega frá fjármálaráðherra.
Enn fremur segir þar að ráð-
herra sé enn sem fyrr reiðubúinn
að beita sér fvrir áframhaldandi
viðræðum við BHM um samn-
ingsréttarmálin. og vilji stefna að
þvi að lausn finnist á ágreinings-
atriðum aðila fyrir 1. juli 1977.
Ákvæði núgildandi laga um
kjarasamninga opinberra starfs-
manna, um réttindi og skyldur
starfsmanna rikisins og efnisatr-
iði laga um verkfall opinberra
starfsmanna, munu þvi gilda á-
fram um félagsmenn BHM.