Tíminn - 02.04.1976, Síða 7
I’östudagur 2. april 1976.
TÍMINN
7
Gaulverjabær:
Nýja
vatns-
veitan
Gestir
á rit-
stfórn
Tímans
Hella:
Hvað tekur
við í
atvinnu-
málum
eftir
Sigöldu?
bessa dagana eru I starfskynn-
ingu á ritstjórn Timans fjögur
ungmenni frá Menntaskólanum
aö Laugarvatni. Hér birtast
fréttir, sem þau hafa skrifaö,
hvert úr sinni heimabyggö.
---------------------->
„Sveinbjörg
Hallsdóttir"
sýnd á Akra-
nesi og í
Kópavogi
GAMANLEIKURINN „Svein-
björg Hallsdóttir” hefur að
undanförnu verið sýndur i
Borgarnesi og nágrenni við góða
aðsókn og undirtektir. Sýningar á
leiknum eru orðnar 12, en næstu
sýningar verða i Bióhöllinni á
Akranesi föstudaginn 2. april kl.
21 og i Kópavogsbiói sunnudaginn
4. april kl. 21.
Leikrit þetta er eftir ungan
Borgnesing, Trausta Jónsson, og
er nú fluttur i fyrsta sinn. Leikar-
ar eru allir úr Borgarnesi og svo
og leikstjórinn, Theodór Þórðar-
son.
S.l. miðvikudag bauð hrepps-
nefnd Borgarneshrepps leikurum
og fleira áhugafólki um leiklist i
Borgarnesi, til kaffisamsætis.
bar voru sérstaklega heiðruð
þau Freyja Bjarnadóttir,
Ragney Eggertsdóttir og
Þórður Magnússon, en þau hafa
lengi verið burðarásar leiklistar i
Borgarnesi. Björn Menningar-
sjóðs Borgarness veitti höfundi
leikritsins, Trausta Jónssyni,
viðurkenningu með nokkru fjár-
framlagi.
Ungmennafélag
Reykdæla:
Sýnir Skírn í
Kópavogi
Gsal-Reykjavlk — Ungmenna-
félag Reykdæla hefur i vetur sýnt
leikrit Guðmundar Steinssonar,
Skirn, i Logalandi i Reykholtsdal.
Ungmennafélagið hefur nú
ákveðið að sýna leikritiö i félags-
heimili Kópavogs laugardaginn 3.
april n.k. kl. 20.30.
Með helztu hlutverk fara, Ingi-
björg Helgadóttir, Þorsteinn
Pétursson, Margrét Gunnars-
dóttir og Erla Eyjólfsdóttir. Leik-
stjóri er Inga Bjarnason.
SöE-ReykjavIk. — Eins og
atvinnuhorfur eru I Rangár-
vallasýslu um þessar mund-
ir, verða Rangæingar aö
gera sér grein fyrir þvi,
hvert stefnir i atvinnumál-
um, og þaö er ætlun okkar aö
ræöa þaö á þessum fundi,
sagöi Jón Gauti Jónsson,
.sveitarstjóri Rangárvalla-
hrepps, i viötali viö Timann i
gær, er hann var inntur eftir
atvinnuhorfum i sýslunni á
næstu árum.
‘ Eins og fram hefur komið i
Timanum, verður haldinn
fundur i Hellubiói nk. laug-
ardag, og á þar að taka til
umfjöllunar atvinnumál i
Rangárvallasýslu.
— A þriðja hundrað
Rangæingar hafa undanfarið
unnið við Sigölduvirkjun, en
þegar þeim framkvæmdum
lýkur, er viðbúið að það fólk
verði atvinnulaust, ef ekki
koma til einhver ný atvinnu-
tækifæri i sýslunni, sagði Jón
Gauti.
— Helzta lausnin á þess-
um vanda er sú, að efla og
auka iðnaðinn i byggðarlag-
inu, en litil hreyfing hefur
skiljanlega verið á uppbygg-
ingu iðnaðar, vegna þess að
svo stor hluti mannafla sýsl-
unnar hefur verið buncínn
við Sigölduvirkjun — og þvi
hefur ekki fengizt mannafli
til iðnaðaruppbyggingar.
Jón Gauti Jónsson sagði,
að á Hellu byggju nú u.þ.b.
500 manns, en alls væru ibú-
ar um 710 i hreppnum. Hann
sagði, að mannfjölgun hefði
verið nokkur undanfarin tvö
ár, og mikið af húsum væri i
býggingu.
Samúel örn Erlingsson
Leiðrétting
1 frétt, sem birtist I Timanum á
dögunum, var sagt, að Jónas
Jónasson, Hraunbæ 2, hefði tekið
sæti i ferðamálanefnd Framsókn-
armanna i Árbæjarhverfi.
Þetta er mishermi. Rétta
nafnið er Jónas Jónsson, Hraun-
bæ 4, og tók hann sæti i hverfis-
ráði, en ekki ferðamálanefnd.
reynist
mjög
vel
SEÞ-Reykjavik. Timinn fór
þess á leit við Egil Jóhannes-
son, bónda I Dalbæ i Gaul-
veijabæjarhreppi, að hann
skýrði frá helztu fréttum þar
úr hreppi. Kvað Egill ekki
miklar fréttir þaðan að færa,
nema hvað húsmæður
nokkrar hefðu sagt skiliö við
húsmóðurstörfin og fariö að
vinna i loðnu á Stokkseyri.
Varð sumum konum litils
svefns auðið, vegna anna er
bættust við, er heim kom frá
vinnunni. Og gæti það e.t.v.
hafa haft áhrif á mætingu á
gömlu dansana, er haldnir
voru I Félagsfundi fyrir
nokkru, þvi að fámennt var
þar,
Egill sagði einnig, að
flensan hefði verið að stinga
sér niður á nokkrum stöðum,
og einn daginn hefði aðeins
kvenþjóðin mætt i barna-
skólanum. Að síðustu sagði
Egill, að veðrið væri hið á-
kjósanlegasta, sólskin og
heiðrikja, en sums staðar
væri snjór til óþæginda, og
frostið biti i nefið á sumum.
Frostið nær þó ekki til vatns-
lagnanna, sem nýlega er bú-
ið að leggja um hreppinn, og
ervatnið mjög gott á bragðið
og ferskt.
Svanhildur Edda Þóröard.
Söng-
skemmtun
KIRKJUKÖR Hveragerðis- og
Kotstrandarsókna efnir til söng-
skemmtunar i Hveragerðiskirkju
laugardaginn 3. april, og hefst
hún kl. 21. Sungin verða lög, bæði
andleg og veraldleg, undir stjórn
önnu J. Stefánsdóttur, en undir-
leikari verður Ólafur Sigurjóns-
son. Einnig syngur Sigrún Gests-
dóttir nokkur lög við undirleik
Sigursveins Magnússonar.
Allur ágóði af söngskemmtun-
inni rennur i orgelsjóð Hvera-
gerðiskirkju. Hvergerðingar
hvetja fólk eindregið til þess að
sækja söngskemmtunina og ljá
þannig merku máli lið.
| Tilboð
Tilboö óskast I framkvæmdir viö lagningu 4. áfanga nýrr-
ar aðalæðar Vatnsveitu Reykjavikur Heiðmörk —
Reykjavík.
Utboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Frikirkjuvegi
3, gegn 10.000.- kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginrí 14. april
1976, kl. 11.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800
Frá Hofi
Mesta úrval landsins
af grófu og fínu garni.
Mohair, sportgarn,
tweedgarn, babygarn,
o.f I.
Prjónar og heklunálar.
HOF
Þingholtsstræti.
Hvolsvöllur:
Sex
raðhús í
byggingu
rekstur vöru-
markaðar K.R.
gengur vel
ÖG-Reykjavik. — Nýlega
voru opnuö á vegum Hvol-
hrepps tilboö um byggingu á
sex ráöhúsum á Hvolsvelli.
Lokiö var viö byggingu
grunna undir þau i haust.
Áætlaö er aö halda áfram
byggingu raöhúsanna i sum-
ar, og eiga þau aö vera tilbú-
in sumarið 1977.
Föstudaginn 26. marz sið-
ast liðinn var opnaður á
Hvolsvelli vörumarkaður á
vegum Kaupfélags Rangæ-
inga. Þar eru á boðstólum
matvörur, hreinlætisvörur,
húsgögn, gólfteppi o.fl. Aö
sögn Ólafs Ólafssonar, kaup-
fél.stjóra á Hvolsvelli, hefur
reksturinn gengið vel og
salan verið góð, miðað við
aðstæður. Einn fastur starfs-
maður mun starfa við vöru-
markaðinn, ásamt aðstoðar-
stúlku. Með opnun nýja
vörumarkaðarins hefur ver-
ið stigið stórt skref fram á
við i verzlunarmálum
Rangæinga.
Atvinnuhorfur á Hvolsvelli
næsta sumar eru taldar vera
góðar. Ætlunin er að halda á-
fram götuframkvæmdum,
sem langt eru á veg komnar,
svo og ýmsum bygginga-
framkvæmdum.
Menningarsamkoma á
vegum Samkórs Rangæinga
var nýlega haldin á Hvols-
velli. Þar voru fluttir ýmsir
leikþættir, og Samkór
Rangæinga söng, ásamt kór
barnaskólans á Hvolsvelli.
Rangæingar stofnuöu fyrr
i vetur með sér Taflfélag
Rangæinga, og hefur starf-
semi þess verið blómleg og
fjölsótt.
örn Guönason
Selfoss:
r
Aætlun um
byggingu
verka-
manna-
bústaða
Kmb-Reykjavik. — A fundi
hreppsnefndar Selfoss-
hrepps 31. marz var sam-
þykkt áætlun um byggingu
verkamannabústaöa. Aætl-
unin gerir ráö fyrir 18 ibúö-
um, en stærö þeirra er frá 40
ferm. til '100 ferm., og mun
heildarkostnaöur vera áætl-
aöur um 85 millj. Stefn t er aö
þvi, aö bygging þessara bú-
staöa hefjist um næstu ára-
mót og ljúki á árinu 1979.
Framkvæmdir við nýjan
Iðnskóla Suðurlands eru að
hefjast. Þarna mun fyrst og
fremst vera um að ræða
verknámshús, en gert er ráð
fyrir þvi aö skólinn falli inn i
heildarskipulag fyrir sam-
ræmdan framhaldsskóla á
Suöurlandi.
Þá er bygging nýs áfanga
við Gagnfræðaskólann vel á
veg komin, en i honum eru
m.a. nokkrar kennslustofur
og fullkominn iþróttasalur
með löglegum keppnisvelli,
þ.e.a.s. 20x40 metrar, og á-
horfendasvæðum fyrir um
400 manns.
Nýja sjúkrahússbyggingin
er nú fokheld, og er verið að
gera samninga við verktaka
um næsta áfanga.
A siðast liðnu ári voru
hafnar framkvæmdir við
byggingu nýs félagsheimilis,
en þá var unnið fyrir um 30
millj., og er áætlaö að vinna
fyrir svipaða upphæð þetta
ár. I húsinu er m.a. gert ráð
fyrir veitingaaöstöðu, sam-
komusal og kvikmyndasal
með rúmgóðu leiksviði.
Þá mun nýlega hafa verið
samþykkt 10 ára áætlun um
varanlega gatnagerð, en þar
er gert ráð fyrir þvi að var-
anlegt slitlag verði komið á
götur Selfoss fyrir 1986.
Kristinn M. Báröarson
Stýrimannaféíag
íslands
heldur félagsfund að Bárugötu 11 i dag kl.
17.
FUNDAREFNI:
Nýgerðir kjarasamningar.
Stjórnin.
tt*
7Íi*
í, i
« X
xé
f V
Ritari
m
S:
Ritari óskast viö Sálfræöideild skóla frá 1. mai nk.
Góð kunnátta i islensku og vélritun, góð framkoma og
hæfni til að umgangast aðra þ.á.m. börn, nauðsynleg.
Laun samkv. kjarasamningi Reykjavikurborgar og
Starfsmannafélags Reykjavikur.
Umsóknir með upplýsingum um aðstæður, menntun og
fyrri störf berist fræðsluskrifstofu Reykjavikur,
Tjarnargötu 12 fyrir 15. april.
I
k
w
. T-V.
Fræðsluskrifstofa Reykjavikur. v