Tíminn - 25.04.1976, Side 22
22
TÍMINN
Sunnudagur 25. aprfl 1976
KVIKMYNDIR — KVIKMYNDIR — KVIKMYNDIR — KVIKMYNDIR — KVIKMYNDIR —
Góð hamfarakvikmynd, en...
Léleg afgreiðsla mannlegu
viðbragðanna
Laugarásbió:
Jaröskjálftinn
Leikstjórn: Mark Robson
Aðalhlutverk: Charlton Heston,
Ava Gardner, George Kennedy,
Lorne Green og fleiri.
Viö þekkjum dæmi þess að
jarðskjálftar hafa lagt stórborgir
ir rúst. Það er þvi ómögulegt að
fela sig bak við það, að hugmynd-
in að baki kvikmyndarinnar
Earthquake sé óraunveruleg.
Hvað sem segja má um myndina
sjálfa, sem undirrituðum fannst
ekki verulega mikið til koma, þá
er hugmyndin ógnvekjandi.
Milljónaborgin Los Angeles er
að flestu leyti svipuð öðrum stór-
borgum Bandarikjanna. Hana
byggir venjulegt fólk, sem á við
sömu vandamál að glima og
aðrir, lifir svipuðu lifi og aðrir
borgarar. Þeir eiga sinar fjár-
hagsáhyggjur, sin hjónabands-
vandkvæði, sitt framhjáhald, sina
drauma og sinar sorgir.
Hvað gerist þegar þetta venju-
lega fólk verður fyrir alvarlegu
áfalli vegna náttúruhamfara?
Það er ekki um að ræða sjúkdóma
einstaklinga, ekki áföll hvers
fyrir sig, heldur áfall sem leggst á
heildina, sviptir hvern og einn
þeirri tilveru sem hann hefur lif-
að.
Þeirri spurningu leitast kvik-
myndin Jarðskjálfti i orði kveðnu
við að svara. Að minu mati tekst
henni það ekki nægilega vel, eink-
um fyrir þá sök, að áherzlan ligg-
ur um of á þáttum, sem ekki lúta
beinlinis að vandamálinu.
t fyrsta lagi þykir mér i upphafi
of mikið lagt i kynningu á einstök-
um persónum myndarinnar og
áhorfandanum velt um of upp úr
aðstæðum þeirra. í öðru lagi
þykir mér um of lögð áherzla á
hamfarirnar sjálfar, of mikiðsýnt
af húshruni, blóðspýtingum og
niðurgreftri. Skilgreiningin
missir sin vegna inntroðslu sterk-
ra áhrifaatriða sem svo aftur
lama að nokkru áhrif viðbragðaog
viðhorfa.
Það sem upphaflega átti að
skoða, gleymist i ákafanum við
að hafa hryllingsáhrif á áhorf-
andann, tilraunin til að slá fyrri
stórslya- og hamfaramyndir út
verður yfirgnæfandi.
Að minu mati er þetta mein-
legur galli á myndinni, en þvi
verður ekki neitað, að sem ham-
faramynd er hún vel gerð og
stendur alveg fyrir sinu við hlið
Poseidon-slyssins og annarra,
sem talizt geta i sama flokki. Að
þvi leyti er hún jafnvel betri en
þorandi hefði verið að vona fyrir
fram.
Þvi verður að fara hér meðal-
veg og dæma hana sæmilega, þar
sem hún gegnir hlutverki sinu
öðrum þræði vel, en að þvi leyti
sem fyrr var nefnt illa.
KVIKMYNDA-
HORNIÐ
Umsjónarmaður
Halldór
Valdimarsson
Ágætis reyfari
Háskólabló:
Callan
Leikstjórn: Don Sharp
Aöalhlutverk: Edward Wood-
ward, Eric Porter, Carl
Mohner.Catherine Schell, Peter
Egan, Russell Hunter.
Þrátt fyrir aö þarna sé ekki á
feröinni neitt nýtt, þrátt fyrir aö
þetta sama hafi sézt oft áður, er
ekki hægt aö segja annað en að
kvikmyndin Callan sé ágætis af-
þreying. Hún er enda i hópi
hinna betur geröu sinnar teg-
undar, og hefur yfir að búa á-
kveðinni spennu, sem nýtur sin
vel i leik þeirra Woodwards og
Mohners.
1 stuttu máli má segja, að
myndin fjalli um hinn sigilda
leyniþjónustumann, sem á sin-
um tima var einhver færasti
drápsmaður sinnar deildar, en
fékk samvizkubit og varð að
hverfa frá störfum. Hann er þó
kallaöur til þjónustu á ný, og
falið að vinna verk, sem jafn-
framt er prófraun á þaö hvort
hann veröi tekinn til starfa aft-
ur.
Að sjálfsögðu vinnur leyni-
þjónustumaðurinn verk sitt með
eindæmum vel og þaö svo, að
jafnvel þær gildrur, sem yfir-
menn hans leggja sjálfir i veg
fyrir hann, geta ekki haldið hon-
um. Hann sýnir þó jafnframt
enn þau einkenni, sem komu
honum úr starfi — og þvi er
hann að lokum markaður sem
hættulegur og réttdræpur.
Myndin er á köflum spenn-
andi og atburðarás nægilega
hröð til þess aö hún verður
aldrei leiðinieg. Inn i er fléttað
atvikum.sem gefa henni mann-
legan blæ, jafnvel réttlæta efni
hennar.
Leikur i henni er hnökralaus
ogsöguþráöur vel úrgaröigerð-
ur. Hún hlýtur þvi að teljast á-
gæt og fær meðmæli sem slik.
Heilu húsveggirnir hrynja og fólkið hrapar út af hallandi gólfum_.
Létt og skemmtileg,
laus við siðfræði
Þeir félagar Bill og Charlie meö vinninga slna
Stjörnubió:
California Split.
Leikstjórn: Robert Altman
Aöalhlutverk: George Segal,
Elliott Gouid, Ann Prentiss,
Gwen Walles, Edward Walsh.
California Split er hressandi
mynd um hressilega karla, sem
lifa af fjárhættuspili og lifa fyrir
fjárhættuspil.
Póker hefur verið með vinsæl-
ustu „leikjum" i Bandarikjunum,
allt frá þvi á dögum Billy the Kid
og annarra „vesturshetja”. Nú er
hann spilaður viðar og af fleiri en
nokkru sinni fyrr, og fara jafnvel
miklar fjárfúlgur yfir borðið i
pókerklúbbum og pókerherbergj-
um spilavita.
En, póker er aðeins einn armur
af griðarlega miklu og flóknu
kerfi fjárhættuspila — og veð-
málastarfsemi Bandarikjanna,
sem nánast nær út yfir flesta
þætti þjóðlifsins. Fjárhættuspil-
arar eru bæði margir og margvis-
legir, allt frá húsmæðrum sem
hætta ákveðnum hluta heimilis-
peninganna við spilaborðið, til
harðnaðra og ákveðinna spila-
manna, sem hafa lifibrauð sitt af
veðmálum.
Bill og Charlie, sem California
Split fjallar um, eru úr þeim hópi
sem hvað haröastur er i veðmála-
starfsemi sinni. Þeir veðja á allt
og ekkert,á veðhlaupabrautum, i
spilasölum. i teningaspili, jafnvel
um það hvort dvergar Mjallhvit-
ar hafi heitið þetta eða hitt.
Þeir félagar eru kyndugir
grallarar, sem eru lausir við alla
ábyrgðarkennd, og þvi lenda þeir
i óteljandi ævintýrum. Lánið er
hverfult viö spilaborðið, og þeir
ýmist vinna eða tapa, og tapa þá
jafnvel stundum þvi sem unnizt
hefur á óvænta vegu.
Mynd þessi er nokkuð hröð, at-
burðarás ákveðin og allar sveifl-
ur snöggar. Hún er einfaldlega
eins og sköpuð fyrir þá Gould og
Segal, enda njóta þeir sin vel.
Samband þeýra við gleðikon-
urnar tvær, sem Gould er i slag-
togi við, er með svipuðum um-
merkjum, létt og áhyggjulaust,
en þó alls ekki laust við mannlega
hlýju og umhyggju. Sérstaklega
er nokkuð gaman að þeirri gleöi-
konunni sem alltaf er að verða
ástfangin af kúnnum sinum.
Annars skal ekki fjölyrt um
myndina. Hún er skemmtileg og á
llan hátt hin ásjálegast og fær hin
beztu meðmæli.
Það er verulega hressandi að
sjá stöku sinnum myndir, þar
sem tekið er fyrirbrigði úr mann-
lifinu, og þvi gerð skil á þann veg,
að kimnin kemst til skila, án þess
að of sé hlaðið. Bezti kosturinn er
alger skortur á siðfræði.
KVIKMYNDIR — KVIKMYNDIR — KVIKMYNDIR — KVIKMYNDIR — KVIKMYNDIR —