Tíminn - 25.04.1976, Page 29
Sunnudagur 25. apríl 1976
TÍMINN
29
Ljósmæbur á námskeiöi. A myndinni sést einnig Siguröur S. Magnússon prófessor, sem stjórnaöi nám-
skeiöinu.
Nómskeiði fyrir Ijósmæður lokið og
annað að hefjast
Garðhúsgögn
Þessi garðsett eru nú
til hjó okkur á ótrúlega
góðu verði.
Stórlækkað verð
INGVAR HELGASON
Vonarlandi v/Sogaveg, simar 84510 og 84510
SJ-Reykjavik. Ljósmæðrafélag
islands gengst um þessar mundir
fyrir námskeiðum fyrir ljósmæð-
ur i samvinnu við Heilbrigðis-
ráðuneytið. i upphafi var ætlunin
að hafa eitt námskeið fyrir 20-25
ljósmæður, en áhugi á þátttöku
var svo mikill, að úr var að þau
urðu tvö. I gær lauk f jögurra daga
námskeiði, sem 35 ljósmæður
utan af landi sóttu, og á mánudag
hefst annað, sem á verða nálægt
40 ljósmæður héðan úr höfuðborg-
inni og nágrenni.
Sigurður S. Magnússon prófess-
or, yfirlæknir Fæðingardeild-
arinnar, stjórnar námskeiðunum,
en fræðsluna annast ljósmæður
og læknar Fæðingardeildar
Landsspitalans og Fæðingar-
heimilis Reykjavikur, læknar
Barnaspitala Hringsins auk fé-
lagsráðgjafa.
A námskeiðinu var fyrst og
fremst fjallað um mæðravernd og
ungbarnavernd. Áherzla var lögð
á fyrirbyggjandi ráðstafanir, og
algengustu vandamálin og nýj-
ungar á þessu sviði kynntar. Að
sögn Sigurðar S. Magnússonar
prófessors er Fæðingardeild
Landsspitalans þjónustustofnun
fyrir landið allt. Það er mikil-
vægt, að sú sérþekking, sem þar
safnast saman og sú aðstaða, sem
skapast með nýjum og auknum
tækjakosti komi að gagni, ekki
aðeins fyrir Reykjavik og ná-
grenni heldur alla landsbyggðina.
Námskeið sem þessi þjóna m.a.
þeim tilgangi að flytja þessa sér-
þekkingu meira út á landið.
Ljósmæður eru elzta launa-
stétt kvenna á landinu, þær hafa
verið embættismenn i 210 ár. Nú
eru flestar ljósmæður mjög illa
launaðar, en þær fá frá 10.-20.000
kr. upp i 80.-100.000 kr i árslaun.
Litið er á starf þeirra sem auka-
starf, en þó hafa þær viöveru-
skvldu og ýmsar aðrar skyldur.
Ein kvennanna sem sótti nám-
skeiðið, sem nú er lokið er Elin
Stefánsdóttir, ljósmóðir i Hruna-
mannahreppi, þar sem eru um
500 ibúar og fæðingar eru um 10 á
ári. Konurnar fæða ekki heima,
heldur á sjúkrahúsinu á Selfossi,
og fer Elin oftast með þeim. Starf
hennar er einkum fólgið I þvi að
aðstoöa konurnar fyrir og eftir
fæðingu þegar þær leita til hennar
um ráð. Elin er húsfreyja að Mið-
felli, en laun hennar fyrir ljós-
móðurstarfið eru 80.000 kr. á ári.
Elin Sigurðardóttir, heilsu-
gæzluljósmóðir i Stykkishólmi,
var einnig' meðal þátttakenda i
námskeiðinu. Hún hefur starfað i
Stykkishólmi frá 1950, að þrem
árum undanskildum, og starfar
nú fast fjóra tima á dag, hvort
sem um fæðingu er að ræða eða
ekki. Það er nýlunda fyrir Elinu
að geta brugðið sér i burtu, þvi að
önnur ljósmóðir var ekki á staðn-
um fyrr en siðustu tvö árin, að
hollenzk nunna, sem er ljósmóðir
og hjúkrunarkona, leysir hana af
hólmi ef á þarf að halda.
Nær allar fæðingar i læknishér-
aðinu fara fram á sjúkrahúsinu i
Stykkishólmi, eða u.þ.b. 30-40 á
ári, en einnig starfar Elin Sigurð-
ardóttir við mæðra- og ungbarna-
eftirlit.
Ljósmæðurnar, sem nám-
skeiðið sóttu, töldu námskeiðið
hafa verið mjög gagnlegt og
skemmtilegt. Sá mikli áhugi, sem
ljósmæður sýndu á þátttöku,
vakti ánægju stjórnar Ljós-
mæðrafélagsins og annarra, sem
að námskeiðinu stóðu. Læknarn-
ir, sem veittu ljósmæðrunum til-
sögn, töldu sig geta mikið lært af
að kynnast reynslu starfandi ljós-
mæðra utan af landi.
ÍBÚÐAVINNINGAR Á 2'h MILLJÓN OG 5 MILLJÓNIR. At
100 BÍLAVINNINGAR. 9 Á 1’/j MILLJ.
24 Á 1 MILLJ. 64 Á 'h MILLJ. 3 VALDIR BÍLAR.
5688 HÚSBÚNAÐARVINNINGAR: Á 10 ÞÚSÚND
Á 25 ÞÚSUND Á 50 ÞÚSUND SALA A NÝJUM
MIÐUM ER 'HAFIN, EINNIG ENDURNÝJUN ÁRS
MIÐAOG FLOKKSMIÐA MÁNAÐARVERÐ MIÐA
KR. 400.00
AÐALVINNINGUR
EINBÝLISHÚS AÐ HRAUNBERGSVEGI 9,
AÐ VERÐMÆTI NÚ 22 MILLJ.
MAi-BÍLL AUDI 100 LS
ÁGÚST-BÍLL OPEL ASCONA
OKTÓBER-BÍLL BLAZER
Eyðir þú
150.000-
til einskis?
Athuganir okkar sýna að 10 hjóla bifreið,
með meðal rekstur og meðal endingu á
hjólbörðum, sparar 150.000.— krónur á
ári við að kaupa BARUM hjólbarða undir
bifreiðina.
Sparið þúsundir— kaupið
flcmiifi
Vörubilahjólbaröa
VÖRUBÍLAHJÓLBARÐAR
STÆRÐ VERÐ
1100-20 frá kr. 51.680.-
1000-20 frá kr. 46.480.-
900-20 frá kr. 41.440.-
825-20 frá kr. 32.360.-
Oll verö eru mlöuö vlö skráö gengl
U.S.S: 178.80
TÉKKNESKA BIFREIÐAUMBOÐIÐ
Á ÍSLANDI H/E
AUDBREKKU 44 — 46 KÓPAVOGI SlMI 42606
AKUREYRI: SKODA VERKSTÆÐIÐ A AKUREYRI H/F. OSEYRI 8.
EGILSTAÐIR: VARAHLUTAVERSLUN GUNNARS GUNNARSSONAR.
GARÐABÆR: NYBARÐI H/F GARÐABÆ.