Tíminn - 28.04.1976, Síða 7
Miðvikudagur 28. april 1976
TÍMINN
7
Keflavíkurganga
1976
MIÐNEFND herstöðvaandstæð-
inga hefur ákveðið að efna til
mótmælagöngu frá Keflavik til
Reykjavikur laugardaginn 15.
mai næstkomandi. Göngunni lýk-
ur með útifundi i Reykjavik um
kvöldið.
Á þessu vori eru tuttugu og
fimm ár liðin siðan bandariskur
her tók sér bækistöð á Islandi
öðru sinni. Með Keflavikurgöngu
er ætlunin að mótmæla hersetu og
herstöðvum hér á landi, krefjast
uppsagnar herstöðvasamningsins
við Bandariki Norður-Ameriku og
úrsagnar Islands úr Atlantshafs-
bandalagi.
(úr fréttatilkynningu)
S-Þingeyingar
mótmæla ,,óróð
ursníði" í garð
landbúnaðarins
Þriðjudaginn eftir páska var
haldinn almennur bændafundur
um landbúnaðarmál, að tilhlutun
Búnaðarsambands Suður-Þing-
eyinga, að Breiðumýri i Reykja-
dal.
Doktor Halldór Pálsson
búnaðarmálastjóri flutti yfir-
gripsmikið erindi á fundinum um
kjötgæðarannsóknir og stefnuna i
landbúnaðarmálum, og Haraldur
Gislason mjólkurbússtjóri um
mjólkurmál. Út af erindum fram-
sögumanna spunnust fjörugar
umræður fram á kvöld. Töldu
margir bændur að mjólkurfram-
leiðslan ætti nú i vök að verjast,
sökum of lágrar verðlagningar,
miðað við sauðfjárafurðir, og
margt benti til, að skortur gæti
orðið á mjólkurvörum i landinu,
að óbreyttu ástandi. Þá kom mjög
fram i ræðum fundarmanna, að
áróðurinn gegn landbúnaðinum
væri skipulögð skemmdarstarf-
semi, sem bæði fjárhagslegu og
menningarlegu sjálfstæði þjóðar-
innar stafaði hætta af. Eftirfar-
andi fundarályktun var samþykkt
i fundarlok:
„Almennur bændafundur
Búnaðarsambands Suður-Þing-
eyinga, um landbúnaðarmál,
haldinn að Breiðumýri 20. april
1976, lýsir fyllstu andúð á þvi
áróðursniði, sem birzt hefur i fjöl-
miðlum um landbúnaðinn og is-
lenzka bændastétt.
Fundurinn vill vara þjóðina við
þessari skemmdarstarfsemi, sem
er ætlað að grafa undan efna-
hagslegri uppbyggingu eins af
höfuðatvinnuvegum þjóðarinnar
og gera hann tortryggilegan i
augum almennings. Bendir
fundurinn á, að án öflugs land-
búnaðar geti þjóðin ekki lifað
sjálfstæðu lifi i landinu, og skorar
á almenningsálitið að standa vörð
um atvinnuvegi þjóðarinnar,
gegn óþjóðhollum áróðri, svo að
fjárhagslegt og menningarlegt
sjálfstæði landsins verði tryggt i
framtiðinni”.
(Frá búnaðarsambandi Suður-
Þingeyinga)
Sverrir heldur áfram
á Kjalarnesi
SVERRIR Runólfsson leit inn á
ritstjórn Timans i gær, hýr og
bjartsýnn að vanda, og tilkynnti
að hann væri engan veginn hættur
við vegagerð, þótt framkvæmdir
hafi legið niðri i vetur. Vegagerð
rikisins hefur gefið honum grænt
ljós á að hann geti hafið áfram-
haldandi framkvæmdir við veg-
arspottann á Kjalarnesi, sem hóf-
ust i fyrravor. Mun Sverrir leggja
slitlag á veginn i sumar.
Sverrir vann um árabil við
vegagerð i Bandarlkjunum og
hefur upp á vasann meðmæla-
bréf, sem sýnir og sannar að hann
hefur fengizt við þessa iðju. Birt-
ist bréfið hér á eftir og slðan I is-
lenzkri þýðingu:
G n f) D I M G
P fl V I N G
To Whom It May Concern:
July 25, 1966
Re: Mr, Sven Runolfson
We have known Mr. Runolfson personally since 1948. We have found
him to be industrious, honest and sober.
During these years Mr. Runolfson has operated his own trucking
business and supplied rock and sand for one of our asphalt plants
along with aggregate base materials for highway jobs. He has
operated his own sand and gravel plants, has owned and operated a
Model #54 Woods Mixer.
In the operations of his sand plants, Mr. Runolfson actually operated
various types of machinery such as bulldozers, skiploaders and cranes.
Please do not hesitate to call on me in event other information is
desired.
v/Sverris Runólfssonar
Við höfum haft kynni af Sverri
Runólfssyni persónulega siðan
árið 1948. Hann reyndist okkur
starfsamur, heiðarlegur og hóf-
samur i hvivetna.
A þessu timabili starfrækti
Sverrir sitt eigið flutningafyrir-
tæki og seldi hann þá einnig
malbikunarstöð okkar möl og
sand ásamt blönduðu grunnefni
til vegagerðar. Hefur hann og
rekið eigin sand og malarfram-
Very truly yours,
- á'^rr
H. D. Coots^
Vice President
leiðslu og hefur átt og starfrækt
Woods-blöndunarvél, gerð nr. 54.
I sambandi við sandframleiðslu
sina hefur Sverrir I rauninni
starfrækt ýmsar gerðir véla eins
og t.d. jarðýtur, vélskóflur og
krana.
Hikið ekki við að leita til min ef
frekari upplýsinga skyldi vera
þörf.
Virðingarfyllst,
(sign) H.D. Coots
Varastjórnarformaður
tlr gróðrarstöðinni á Hallormsstað — vökvunarkerfið I gangi
mynd: G.R.
Sýnikennsla hjó Skóg-
ræktarfélagi
Laugardaginn 1. mai n.k. fer
fram á vegum Skógræktarfélags
Hafnarfjarðar sýnikennsla i
sáningu trjáfræs og meðferð trjá-
plantna. Sýnikennslan fer fram i
græðireit félagsins við Hval-
eyrarvatn.
Hér gefst sumarbústaöa- og
lóðaeigendum gott tækifæri til að
Hafnarf jarðar
læra rétt handtök við að sá og ala
upp sin „eigin börn” frá fyrstu
tið.
Farið verður frá Alfafelli (við
Iþróttahúsið) kl. 13:30 og er gert
ráð fyrir að þátttakendur leggi
sér til farartæki. öllum er heimil
þátttaka og vonast Skógræktar-
félagið eftir þvi að sem flestir
notfæri sér þetta tækifæri.
Véladeild
Sambandsins
byrjar
innflutning á
Universal
dróttarvélum
VÉLADEILD Sambandsins hefur
nýlega tekið að sér söluumboð
fyrir Universal dráttarvélar, að
þvi er segir i nýjasta tölublaði
Sambandsfrétta. Vélarnar eru
framleiddar i Rúmeniu i tækni-
legu samstarfi við FIAT verk-
smiðjurnar itölsku. Jón Þór Jó-
hannsson frkvstj. tjáði okkur, að
tilgangurinn með þvi að taka
söluumboð fyrir þessar vélar
væri fyrst og fremst sá, að mæta
mjög vaxandi samkeppni i drátt-
arvélarsölunni frá ýmsum lönd-
um Austur-Evrópu. Dráttarvél
þessi er tæknilega mjög vel búin,
og hefur hún rutt sér til rúms sið-
ustu árin á mörkuðum i Ameriku
og Vestur-Evrópu. Verksmiðjan i
Rúmeniu framleiðir um 50 þús.
dráttarvélar á ári, og þar af eru
35 þúsund vélar fluttar út. Fyrstu
UNIVERSAL dráttarvélarnar
koma á markaðinn hér á landi nú
siðar i þessum mánuði.
Verjum
r88gróðurJ
verndumi
Jand^íf^f
Aðalfundur Mjólkursamsölunnar:
Brýnt að bændur reyni að
jafna mjólkurframleiðslu
— með framleiðslu geymsluþolinnar mjólkur mætti og
draga úr mjólkurflutningum
Föstudaginn 23. april var
haldinn aðalfundur Mjólkur-
samsölunnar. Stjórnarformaður,
Ágúst Þorvaldsson á Brúna-
stöðum setti fundinn og stjórnaði
honum. Á fundinum mættu 16
kjörnir fulltrúar frá mjólkur-
samlögunum innan MS.
Formaður skýrði frá störfum
stjórnarinnar og ræddi um þá
erfiðleika, sem bændur urðu fyrir
vegna óþurrkanna á siðastliðnu
sumri á Suður- og Vesturlandi.
Einnig um það vandamál
mjólkurbúanna, sem stafar af
mikilli árstiðarsveiflu i mjólkur-
framleiðslunni, og taldi að með
framleiðslu geymsluþolinnar
mjólkur mætti draga úr mjólkur-
flutningi frá öðrum landshlutum,
en brýnna væri að bændur reyndu
með öllum ráðum að jafna fram-
leiðsluna, þvi það mundi þjóna
hagsmunum . neytenda og
framleiðenda bezt.
Stefán Björnsson, forstjóri
Mjólkursamsölunnar flutti
itarlega skýrslu um starfsemina
á siðastliðnu ári og lagði fram
reikninga fyrirtækisins. Hér á
eftir mun verða drepið á ýmis-
legt, er kom fram hjá Stefáni.
Arið 1975 minnkaði innvegið
mjólkurmagn á samlagssvæðinu
um rúmlega 3 millj. ltr. eða 5.38%
miðað við árið 1974. Innvegið
mjólkurmagn var nú rúml. 56
millj. ltr. en innvigtun á öllu
landinu var 1080 millj. ltr. sem
var 3,83% minna en árið áður.
Hlutfallslega minnkaði mjólkin
mest á svæði samlagsins I Búðar-
dal, 11,6%, en minnst i Borgar-
nesi, 3,4%. I Mjólkurstöðinni i
Reykjavik var tekið á móti 31
millj. ltr. mjólkur, en þar af komu
25,2 millj. ltr. frá öðrum samlög-
um, en 5,8 millj. beint frá
bændum. A svæði samsölunnar
var innvegin mjólk fyrstu 4 mán.
nokkru meiri en sömu mánuði
árið áður, en næstu 8 mánuði
minnkaði mjólkin verulega.
Mesta innvigtun var i júli, 6,5
millj. ltr., en minnst i nóvember,
3,3 millj. ltr. en þá var mjólkin
um 17% minni en i nóvember
1974. M jólkurframleiðendum
fækkar stöðugt á svæðinu. Árið
1975 voru þeir 1369 en árið áður
1453. Þannig var fækkunin 84, en
milli áranna á undan fækkaði
þeim um 62.
A árinu jókst sala á neyzlu-
mjólk um 5,23%. Sala á 33%
feitum rjóma drógst litillega
saman, en þá var tekin upp fram-
leiðsla á geymsluþolnum rjóma,
sem er fituminni. Af honum
seldust um 90 þús. ltr. Einnig var
hafin -sala á kókómjólk, en af
henni seldust 593 þús. ltr. Veruleg
aukning varð i sölu jógúrts eða
9,5%. Sama er að segja um sölu á
sýrðum rjóma og kryddsósum. Af
undanrennu seldust 1,2 millj. ltr.
Það var aukning um 12,5% og
af mysu seldust 233 þús. Itr. Svip-
uð sala var hjá isgerðinni og árið
áður.
Engin mjólk var keypt frá bú-
um utan svæðisins á árinu, en af
rjóma voru keyptir 212 þús. ltr.
frá Norðurlandi, sem var þrisvar
sinnum meira magn en árið áður.
Útborgunarverð til bænda er nú
69,43% af óniðurgreiddu útsölu-
verði mjólkur. Það eru kr. 46,13.
Það vantar þvi kr. 1,70 á ltr. að
þeir fái meðalgrundvallarverð
fyrir árið 1975. Lengst af hefur
útborgun til bænda verið 70-71%
af útsöluverði mjólkur. A árinu
1969-1973 var útborgunarverð
bænda aðeins yfir grundvallar-
verði en nú siðastíiðin tvö ár
hefur vantaö á að það næðist.
Ef mjólkurframleiðslan dregst
saman, þá verður að taka tillit til
þess i verðlagningu, þvi dreifing
og vinnslukostnaður hækkar á
hvern litra mjólkur. Bændur hafa
orðið fyrir mikilli kjara-
skerðingu, sem nemur samtals
um 96 millj. kr. Það gerir rétt um
70 þús. kr. á hvern mjólkur-
framleiðenda á svæði Mjólkur-
samsölunnar.
Heildarsaia á siðastliðnu ári
nam 3.223 millj. króna. Þar af
voru seldar mjólkurvörur fyrir
2,885 millj. kr. Kostnaður vegna
starfsfólks MS jókst á árinu um
39%, þrátt fyrir að starfsmönnum
hafði fækkað um 13. Starfsfólk
alis var sliðastliðin áramót 420.
Um s.l. áramót var mjólk seld
165 verzlunum á svæðinu, þar af
voru 70 reknar af MS, en 37 af
öðrum samvinnufélögum. Fyrir-
huguð er breyting á sölu mjólkur.
Það var reiknað með, að MS legði
niður sinar verzlanir 1. júni, en nú
eru verulegar likur á, að það
muni dragast, þannig að jafnvel
er gert ráð fyrir óbreyttu ástandi
fram á næsta ár.
A s.l. ári var fjárfest fyrir
rúmar lll millj. króna, mest
munaði þar um kostnað við
breytingu á brauðgerð, vélum til
framleiðslu á G-vörum og kaup á
tölvu og tilheyrandi tækjum.
Miklar umræður urðu um
skýrslu stjórnar og forstjóra.
Ennfremur var mikið rætt um
tjón það, sem bændur urðu fyrii i
verkfallinu og samþykkt var
ályktun frá Engilbert Hannes-
syni, þar sem fundarmenn lýstu
stuðningi við framkomið
frumvarp á Alþingi frá Jóni
Ármanni Héðinssyni um að koma
i veg fyrir, að mjólk verði
eyðilögð i verkföllum. Ennfremur
var samþykkt tillaga frá Asgeiri
Bjarnasyni, Asgarði. um að
kanna leiðir til að lækka
flutningskostnað mjólkurfram-
leiðenda á svæði samlagsins i
Búðardal.
1 stjórn eru Agúst Þorvaldsson,
Brúnastöðum. formaður. Einar
Ölafsson frá Lækjarhvammi.
Oddur Andrésson á Neðra-Halsi.
Eggert Ólafsson. Þorvaldseyri og
Gunnar Guðbjartsson. Hjarðar-
felli.
(Frá Upplýsingaþjónustu land-
búnaðarins.)