Tíminn - 30.04.1976, Qupperneq 2
2
TÍMINN
Föstudagur :!0. apríl 1976
Sendinefnd Húnvetninga:
Ánægð með
erindislok suður
ferðar
gébéRvik — Það má segja það að
við séum ánægðir með erindislok,
sagði Kristófer Kristjánsson, einn
af þremur úr sendinefnd Hún-
vetninga, sem fór á fund landbún-
aðarráðherra vegna böðunar-
málsins svokallaða. Við viljum
ekki túlka þetta frekar og visum
til ráðuneytisins til frekari
upplýsinga, sagði hann. Halldór
E. Sigurðsson, landbúnaðarráð-
herra, sagði i gærkvöldi að ráðu-
neytið myndi leita að leiðum til að
leysa málið á farsælan hátt, og
sigla miili skers og báru svo að
menn geti sæmilega vel við unað.
Sagði Halldór, að málið væri i at-
hugun hjá ráðuneytinu.
Sendinefnd Húnvetninga hefur
verið á tveim fundum i landbún-
aðarráðuneytinu út af máli þessu.
2-3 SKIP FARA
Janúar-marz:
730 BILAR FLUTTIR INN
-788 VORU FLUTTIR INN í SÖAAU MÁNUÐUAA í FYRRA
FJ-Reykjavik. Fyrstu þrjá mán-
uði ársins voru fluttar inn 730 bif-
reiðar, 669 nýjar og 61 notuð.
Sömu mánuði i fyrra voru fiuttar
inn 788 bifreiðar.
Af 588 nýjum fólksbifreiðum
voru flestar af gerðinni Ford
Cortina, eða 49, af gerðinni
Lancer 39, af gerðinni Lada 2103
voru fluttar inn 35 bifreiðar og 32
af gerðinni Volvo 244. Af Skoda
100/110 voru fluttar inn 28 bif-
reiðar, 26 af gerðunum Mazda 929
og BL-Range Rover og 25 af gerð-
inni BL-Austin Mini. Af 70 öðrum
gerðum voru fluttar inn færri en
20 bifreiðar.
Af 32 nýjum sendiferðabilum
voru 10 af gerðinni Ford Econo-
line, en níu aðrar tegundir voru
fluttar inn.
Af 45 nýjum vörubifreiðum
vom GM-GMC flestar, eða 12 en
tólf aðrar tegundir voru i þessum
hópi.
Þessar tölur eru teknar úr
skýrslu Hagstofu Islands um toll-
afgreiddar bifreiðar i janú-
ar-marz 1976.
MEÐ NORGLOBAL
Á LOÐNU VIÐ
NÝFUNDNALAND
gébé Rvik — Akveðið er að 2-3
islenzk skip muni fylgjast með_
norska bræðsluskipinu Nor- I
global, sem fer á loðnu á Ný- j
fundnalandsmið um miðjan
næsta mánuð. Upphaflega var
haldið, að fleiri skip fengju
Þessi mynd af norska
bræðsluskipinu Norglobal
var tekin I Ilvalfirði á loðnu-
vertiðinni I fyrra, en sem
kunnugt er kom skipið
hingað aftur I ár og tók þá á
móti mestu magni allra
löndunarstaða. fslenzkir
bátar fylgdu skipinu i fyrra-
sumar suður við Afriku og nú
munu einhverjir fylgja
skipinu á loönuveiöar við ý
Nýfundnaland. (Timamynd:—
Róbert)
auœzdii FRÆ MR frœ vor eftir vor bœndur haust eftir haust.
grasfræblöndur
V Blálr mlðar 50% vallarfoxgras KORPA (islenzkt) 25% túnvingull DASAS 10% hávingull PAJBJERG 15% vallarsveilgras DASAS
Alhliða blanda, sáðmagn 20—25 kg á ha. Þessi blanda (og einnig H-blanda M.R.) helur við tilraunir gelið mest uppskerumagn a( islenzkum graslræblöndum.
MR|—j Bleikir miðar 20% háliðagras (Oregon) 45% tunvingull DASAS 25% vallarsveifgras DASAS 10% hásveifgras DASAS
Hentar vel þar sem þörl er á þolmiklu grasi .og gelur einnig mikla uppskeru. <xí '• Sáðmagn 25—30 kg á ha. Jé jyr
s Gulir míðar skrúðgardablanda 50 V, Tunvmyull DASAS 25% DÁSÁS 25%ppRgre8iJ|^^P ?
að fara héðan, en Norð-
menn sækja mikið I að fara
með Norglobal, þvi þeirra floti er
verkefnalau's eins og okkar, sagði
Vilhjálmur Ingvarsson,
framkvæmdastjóri i gær. Það
verður Asberg RE 22 sem fer og
einnig hefur komið til greinaj að
aflahæsta skipið á loðnuvertiðinni
hér i vetur, Sigurður RE 4, fari
lika, þó ekki sé það endanlega
ákveðið. Einnig hefur komið til
greina að þriðja skipið, sem ekki
er enn vitað hvert er, fari lika.
— Akvörðun um hvaða skip
fara, önnur en Asberg, verður
tekin i byrjun maf, sagði
Vilhjálmur Ingvarsson, en
Norglobal mun halda á loðnu-
miðin við Nýfundnaland um
miðjan maimánuð. Vilhjálmur
kvaðst nýkominn frá Noregi, þar
sem hann hefði rætt við eigend’ur
Norglobal og sagði hann, að
norskir útgerðarmenn hefðu
mikinn áhuga á að senda skip siij^
með Norglobal, þvi verkefni fyrir
þau væru ekki mörg, fremur en
fyrir islenzka flotann.
Margrét Guðnadóttir, prófesson:
Við eigum að framkvæma
kúabólusetningu á sama
hótt og óður, þótt aðrar
þjóðir slaki ó klónni
SJ-Reykjavik — Undanfarið
hafa læknar og heilbrigðis-
yfirvöld I Evrópu rætt mikiö um
hvort leggja skuli niður bólu-
setningu gegn kúabólu. Ýmsar
þjóðir hafa slakað á i þessu efni
og Bandarlkjamenn hafa lagt
niður lögboðna kúabólu-
setningu.
— Heilbrigðisstofnun
Sameinuðu þjóðanna hefur gert
mikla herferð á Indlandi á
undanförnum árum til
útrýmingar bólusótt.en þar var
eitt aðalbæli þessa sjúkdóms,
sagði prófessor Margrét Guðna-
dóttir veirufræðingur, þegar
Timinn leitaði til hennar vegna
þessa máls. Siðustu tólf
mánuðina hefur ekkert bólu-
sóttartilfelli verið skráð á
Indlandi.
Þegar bólusóttar hafði ekki
orðið vart i Indlandi i ellefu
mánuði, lögðu Bandarikjamenn
niður skyldubólusetningu og
bólusetja nú ekki lengur sin
börn. Siðan hafa aðrar þjóðir
fylgt á eftir.
Kúabólusetning hefur aldrei
verið lögboðin i Bretlandi, en
fólki hefur verið gefinn kostur á
henni. Finnar lögðu niður
skyldubólusetningu árið 1952, en
bólusetningin hefur verið
framkvæmd þar i landi á sama
hátt eftir sem áður. Þetta hefur
verið misjafnt eftir löndum, en
yfirleitt hefur kúabólusetning
verið með i almennum barna-
bóluse tningum.
En nú eru þjóðirnar sem óðast
að slaka á. Ég var á fundi i
Kaupmannahöfn i april og þar
var rætt um þessi mál. Danir
hafa þegar slakað á i þessum
málum og Sviar einnig. Norð-
menn hafa málið i athugun og
sömuleiðis við Islendingar.
A fundinum skýrðu menn frá
ástandi mála hver með sinni
þjóð. Hér hefur kúabólusetning
verið lögboðin, en henni ekki
strangt framfylgt, þ.e.a.s. að
börn hafa ekki verið bólusett
hafi þau verið veik eða lasin.
Þannig álit ég, að við höfum
losnað viðslæmar aukaverkanir
sem geta fylgt bólusetningunni,
svosem húðsjúkdóma ogheila-
bólgu.
Ég tel, að við eigum að
framkvæma kúabólusetningu
áfram á sama hátt og verið
hefur. Engum dettur enn i hug
að halda þvi fram, að bólusótt sé
horfin úr heiminum. Og hér á
tslandi ættum við erfitt með að
framkvæma skyndibólu-
setningu á öllum landsmönnum
ef veikin bærist hingað.
Þótt bólusóttar hafi ekki orðið
vart i Indlandi þennan tima, er
ekki vist að það haldist,
sérstaklega ef og þegar
heilbrigðisstofnun Sameinuðu
þjóðanna hættir þar afskiptum
og Indverjar sjálfir taka málið i
sinar hendur.
1 Eþiópiu er enn bólusótt og
hefur hún aldrei fallið þar út af
skrá. I Suður-Ameriku er lika
bólusótt og skráning farsótta
þar er léleg og ekki treystandi.
Það er jafnvel hætta á að i
Suður-Ameriku séu landssvæði,
þar sem bólusótt herjar, ogekki
hefur verið skýrt frá.
Danir og Sviar hafa tekið
þá ákvörðun,að hafa til i löndum
sinum nægilegt bóluéfni til að
framkvæma skyndibólu-
setningu, en eru hættir við
ungbarnabólusetningu. Þeir
hugsa sem svo, að þeir séu
sæmilega varðir 12-3 ár þar sem
flestir hefðu verið bólusettir
þóttungbarnabólusetningin falli
niður.
Hér held ég, að skynsamlegast
séeinsogég minntist á áðan, að
halda áfram á sama hátt og
þvinga engan, þá ætti hættan að
vera mun minni ef bólusótt
brytist út. Skyndibólusetning er
ekki framkvæmanleg hér, bæði
vegna þess hve landið er dreif-
býlt og eins hins að ekki er til
nægilega margt starfsfólk til að
framkvæma hana. Það er
nokkuð snemmt að halda að
bólusótt sé útdauð, það er betra
að biða i 4-5 ár með að hugleiða
það. En það er vissulega
stórsigur ef hún er úr sögunni á
Indlandi.