Tíminn - 30.04.1976, Blaðsíða 5

Tíminn - 30.04.1976, Blaðsíða 5
Föstudagur :!0. april 1976 TÍMINN 5 Litprentað plakat af lunda fylgir lceland Review Nýlega kom út fyrsta hefti Atlantica & ICELAND REVIEW þessa árs, en með þvi hefst 14. árgangur. Er það fjölbreytt og litskrúðugt að vanda, en helzta nýmælið er þó, að þessu hefti fylgir stórt litprentað veggspjald (plakat), litmynd af lunda, sem Sigurgeir Jónasson i Vestmannaeyjum tók. Segir Haraldur J. Hamar í ritstjóra- rabbi sinu i blaðinu, að væntanlega muni veggspjöld þau, er fylgja ICELAND REVIEW á næstunni koma lesendum skemmtilega á ó- vart... Að efni i þessu eintaki má annars nefna myndskreytta grein um lundann eftir Arna Johnsen og aðra um trú á hið yfirnáttúrlega og ýmislegt um þjóðtrú á íslandi, eftir Sigurð A. Magnússon. Nokkrar teikningar Asgrims Jónss,onar fylgja — svo og litprentuð hin fræga mynd hans Nátttröllið á glugganum, máluð 1905. Þá ermyndskreyttgrein um flugkennslu i Reykjavik, myndirnar eftir Guðmund Ingólfsson — og litmyndaseria eftir Gunnar Hannesson af lita dýrðinni i borginni. Þjóðsaga i þýðingu Alan Boucher, mynd- skreytt af Eddu Sigurðardótt- ur og grein um leikhúsið á íslandi eftir ritstjórann. Stór- fenglegar loftmyndir af land- inu i vetrarklæðum, eftir þá Gunnar Hannesson og Þörhall Magnússon. Loks skrifar Haraldur J. Hamar grein um ráðstefnuhald á tslandi — og hvers vegna útlendingar leggja leið sina til fundahalda hérlendis. Eins og fyrr greinir er þetta litauðugt hefti —ekki siztfyrir risastóru myndina af lundan- um, sem virðist hafa fengið góðar viðtökur meðal áskrif- enda erlendis, þvi ekki linnir bréfum með óskum um auka- eintök. Æ fleiri hérlendis gefa nú erlendum vinum og viðskipta- mönnum gjafaáskrift að ICE- LAND REVIEW, enda vart völ á öðru, sem betur er fallið til að minna á Island og styrkja tengslin við fólk hér. AAinna umburðarlyndi í þingflokknum Þaö hefur stundum veriö sagt I gamni, aö Albert Guömundsson væri ekki aöeins 12. þingmaöur Reykvikinga heldur 1. Ail 12. þingmaöur kjördæmisins sökum skeleggs máiflutnings hans fyrir Reykjavlk á Aiþíngi. Samflokksmenn Alberts i borgarstjórn hafa oröiö varir viö það, að Albert er ekki ailtaf á flokkslbiunni, en þó hcfur hann veriö einbeittur málsvari fiokksins I borgar- stjórn, þegar þvi er að skipta. Þar af leiðandi hafa borgar- fulltrúar Sjálfstæöisflokksins látiö þaö afskiptalaust, þótt óbliðar viötökur á þingflokks- fundi Sjálfstæðismanna, sem haldinn var eftir þingfundinn. Þar reis Guðmundur H. Garöarsson þingmaöur Reykvfkinga úr sæti og hellti sér yfir Albert. Eftir hörkurifrildi strunsaöi Albert út af fundinum, enda óvanur þvf, að geröar séu at- hugasemdir, þó aö hann fylgi ekki Hokkstinunni i einu og öliu. Umburðariyndið er greinilega minna i þingflokki Sjálfstæöismanna cn borgar- stjórnarflokknum. Slagurinn byrjaður Albert og Guömundur H. Garöarsson Albert hafi skroppið af beinu brautinni stöku sinnum. En þegar Albert lék þennan leik i efri deild Alþingis i fyrradag, og skammaöi forsætisráöherra ’og alla rlkis- stjórnina duglega, fékk hann Mikill kosningaskjálfti er I krölum þessa stundina, og er þegar byrjaöur slagur um frainboðssæti. Fróðir menn telja nokkuö vlst, aö EggertG. Þorsteinsson muni ekki verða I framboði fyrir flokkinn I Reykja vlk ( bankastjóri Alþýöubankans?) og ætla margir sér sæti hans, m.a. er talað um Eiö Guðnason, fréttamann Sjónvarpsog Arna Gunnarsson ritst jóra Alþýöublaösins i þvi sambandi. Hvort sú ágizkun er rétt, skal ósagt látið, en cítirfarandi klausa, sem birtist I Alþýöublaðinu I gær, skrifuð meö vitund og vílja Arna Gunnarssonar, um Eiö Guönason, gefur e.t.v. einhverja vlsbendingu um, aö eitthvaö sé hæft I þessum orö- rómi. Klausan var svo- hljóöandi: Kcppinau tar nir Arni Gunnarsson og Eiöur Guönason „VEITT ATHYGLl: Aö stofnunarmennskan er farin aö hafa mcira en lltil áhrif á suma starfsmenn rlkis- fjölmiölanna. Þetta var t.d. talsvert áberandi hjá Eiö Guönasyni i sjónvarpinu á dögunum þegar hann ræddi viö Björn Jónsson um gagn- rýni ASt á rikisfjöimiölana. Þaö var cins og Björn sæti 1 réltarhaldi hjá sjónvarpinu. Enn frekar gætti þess þó I viöræðum sama sjónvarps- manns viö Halldór E. Sigurösson um jarðstööina. Þá var jafnvel gengiö svo langt, aö gera þvi skóna, aö island væri ekki sjálfstætt rfki vegna þess, aö ráðamenn þjóðarinnar teldu ekki henta aö hafa sama hátt á fjarskiptum víö önnur lönd og þeir sjónvarpsmenn vilja.Þaö er gott og blessaö aö starfs- menn rlkisfjölmiölanua hafi til aö bera metnaö fyrir hönd siiuia stofnana, en sjónvarpiö er nd samt sem áöur ekki nafli alheimsins.” —a.þ. Ilaraldur Blöndai og Hilmar Foss forstööumaöur Listmunauppboðs Sigurðar Benediktssonar hf. meö eitt bindið úr Heimskringlu, sem kom út i Kaupmannahöfn 1777—1826. — Tlmamynd: Gunnar. Velmeðfarnar merkisbæk- ur á uppboði SJ-Reykjavik. Á mánudag kl. 3 verður bókauppboð i ráðstefnusal Hótel Loftleiða á vegum List- munauppboðs Sigurðar Bene- diktssonar hf. Þar verða seld 81 verk úr bókasafni Bjarna heitins Guðmundssonar blaðafulltrúa. Sumar bókanna, sem þarna verða á boðstólum hafa ekki sézt árum saman á uppboðum. Að sögn Hilmars Foss forstöðu- manns uppboðsins og Haralds Blöndal aðstoðarmanns hans, er erfitt að gera upp á milli þeirra bóka, sem verða á uppboðinu. Ástæða er þó til að vekja athygli á sex binda útgáfu Heimskringlu Snorra Sturlusonar, sem út kom i Kbn. á árunum 1777 til 1826. Sið- ast þegar þessi útgáfa var á upp- boði hérlendis seldist hún á 180.000 kr. auk söluskatts. Eintak Bjarna heitins er mjög gott, og fylgja þvi jafnmörg kort og töflur og eintaki Fiskesafns. Eddur eru stærsti flokkurinn á þessu uppboði, en annað uppboð verður á bókum úr safni Bjarna 25. mai og það þriðja i september. Innlendar og erlendar Edduút- gáfur, þýðingar og rit um Eddu- kvæðin verða boðnar upp. Þá má nefna gamlar og fágætar orðabækur, sérstaklega Supple- mentin eftir Jón Þorkelsson. Litið kver, leiðbeiningar til banda- riskra hermanna frá 1941, og orðasafn, hefur áreiðanlega ekki komið fram á uppboði fyrr. Fjórar ferðabækur verða boðn- ar upp, allt fágæt rit og eftirsótt. Ein þeirra er myndskreytt bók fagurfræðingsins og listamanns- ins brezka Collingwoods, Pila- grimsför til sögustaða á Islandi, A Pilgrimage to the Saga-Steads of Iceland útgefin 1899. Dr. Jón Stefánsson var fylgdarmaður Collingwoods á ferð hans um Is- land og aðstoðaði hann við samn- ingu bókarinnar. Dr. Jón var kunnur maður á sinni tið. Hann bjó hálfa öld i London og dvaldist löngum i British Museum og sat þar við hliðina á Lenin og var sagður eini Islendingurinn, sem hefði talað við hann. Hann lézt i Reykjavik niræður að aldri árið 1952. önnur ferðabók er ,,How the Mastiffs went to Iceland” eftir Antony Trollope frá 1878. Hún er prýdd skemmtilegum teikningum eftir eina samferðakonu hans. 1 Englandi er verðið á þessari bók nú nálægt 40.000 isl. kr. Og bók Collingwoods seldist hér á 31.000 siðast þegar hún var á uppboði. Af trúfræðiritum má nefna þýð- ingu Jónasar Hallgrimssonar og annarra P'jölnismanna, Hugleið- ingar um höfuðatriði kristinnar trúar. eftir J.P. Mynster biskup, Kbh. 1853. En þetta verk þeirra Fjölnismanna lagði grundvöllinn að islenzku kirkjumáli siðari tima. Sagt er að þeir hafi verið heilan dag að þýða fyrstu máls- greinina i bókinni önd min er •þreytt. hvar má hún finna hvild. Auk þess verða á uppboðinu kvæðabækur, málfræði-, lögfræði- og sagnfræðirit, þjóðsögur, bók- menntasöguleg verk og islenzk fornrit. þ.á.m. bandarisk útgáfa á Konungsskuggsjá frá 1916, sem gefin var út i 150 eintökum. Bækurnar verða til sýnis að Hótel Vik á sunnudaginn frá kl. 10—12 og 14—zl8. Sérstök athygli er vakin á. að menn geta bréflega sent boð til uppboðshaldarans. Skulu þau vera um hámarksboð bjóðanda. og fær bjóðandi hlutinn á næsta boði fyrir ofan siðasta boð úr sal. Með öll boð verður farið sem trúnaðarmál og gefur uppboðs- haldari ekki upp kaupendur. mörg önnur verkfæri með harðmálmstönnum fyrir trésmíðar. D ÞÚRf SIIVll B15QO ÁRIVILJLA11 Hjarfacrepe og Combi lækkar úr kr. 196 hnotan i kr. 176. Ef keyptur er 1 kg. pakki eða meira er hnotan á kr. 150. Það er kr. 3000 pr. kg. Nokkrir Ijósir litir á kr. 100 hnotan. Sendum í póstkröfu. HOF Þingholtsstræti.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.