Tíminn - 30.04.1976, Blaðsíða 19

Tíminn - 30.04.1976, Blaðsíða 19
Föstudagur :!(). april l!)7(i TÍMINN 19 ,Gamanað sjá draum- inn rætast' — segir Guðmundur Þorbjörnsson, hinn marksækni leikmaður úr Val, sem er nýliði í landsliðshópnurn — Ég er mjög ánægður að vera kominn i iandsliðshópinn, þetta er það, sem maður hefur stefnt að. Það er gaman að sjá drauminn rætast, sagði hinn ungi og sókndjarfi miðvörður Valsiiðsins, Guðmundur Þor- björnsson, sem hefur verið valinn i 20 manna landsliðshópinn I knatt- spyrnu. — Ég stefni að sjálfsögðu að þvi að vinna sæti i landsliðinu og komast með þvi til Oslóar. Ég veit að það verður erfitt að tryggja sér sæti i landsliðinu, þar sem margir góðir leikntenn berjast um hverja stöðu i því, sagði þessi sniðugi og djarfi leikmaður, sem er eitt mesta efni, sem hefur komið fram i knattspyrnunni á undanförnum árum. Guðmundur byrjaði að leika með Valsliðinu siðasta keppnis- timabil og vakti hann þá mikla athygli — enda var hann mark- sækinn með afbrigðum. Guð- mundur skoraði „Hat-trick” — þrjú mörk, þegar Valsmenn unnu sigur (3:0) yfir FH-ingum á Kaplakrikavellinum. Hann lét ekki þar við sitja — heldur voru mörk hans orðin 8 talsins, þegar. 1. deildarkeppninni lauk. Það er ekki að efa, að þessi glæsilegi ungi piltur, á eftir að verða full- trúi íslands á knattspyrnusviðinu i sumar — það hefur hann sýnt. — Er ekki erfitt að sameina iþróttir og nám? — Jú, það er talsvert erfitt. Ég er nú i erfiðum prófum og hef ekki stundað námið sem skyldi — hef að mörgu leyti tekið knattspyrn- una fram yfir. Maður liggur yfir REVIE SETUR 5 ÚT Don Revie, iandsliðseinvaldur Englands, hefur fækkað um 5 leikmenn i landsliðshópi sinum, sem hann valdi til undirbúnings fyrir Bretlands eyjakeppnina, Bandarikjaför og HÖ-leik gegn Finnum. t>essir óhamingjusömu menn eru, Colin Bell og Oennis Tueart,, Manchester City, Paul Madeley, Leeds, Trevor Francis, Birmingham og Alan Dodd, Stoke. Þrir af þessum leikmönnum — Bell, Madeley og Francis, eiga við meiðsl að striða bókunum á daginn, æfir siðan knattspyrnu á kvöldin og siðan er leikið um helgar. — Komstu fljótt i snertingu við knattspyrnuna? — Já, blessaður vertu — ég fór að eltast við bolta, sem smástrák- ur (6—7 ára) og var maður þá að allan daginn hlaupandi á eftir boltanum. — Þú hefur strax byrjað að skora mikið af mörkum? — Nei, ekki get ég sagt það, ég tók ekki við mér, fyrr en ég var orðinn 14 ára — áður hafði ég leik- ið sem varnarmaður. — Þú færð að glima við þá Martein Geirsson og Jón Péturs- son á morgun, hvað viltu segja um það? GUÐMUNPUR ÞORBJÖRNSSON. dagana. (Timamynd Gunnar) — Ég vil sem minnst ræða um það, það verður leikurinn, sem talar. Mér finnst gott að leika með þeim Marteini og Jóni — á . er á kafi i námsbókunum þcssa morgun fæ ég að kynnast hinni hliðinni, sagði Guðmundur að lok- um. —sos Marteinn bjartsýnn Framarar mæta Valsmönnum d morgun -Viö föruin inn á völlinn, til aö vinna sigur, sagði Marteinn Geirsson, landsliðsmiðvörður úr Fram-iiöinu, sem mætir Valsmönnum á Mclavellinum ámorgun i Reykjavlkurmótinu i knattspyrnu. — Ég er mjög bjartsýún — viö höfum notað siöustu æfingar okkar, sérstaklega til að undirbúa okkur fyrir átökin gegn Val. Við munum leggja hart að okkur, þvi að við gerum okkur grein fyrir, að þetta er úrslita- leikur mótsins, sagði Martein n. — Hvað viltu segja uin Vals- liöiö? — Valsliðið hefur yfir að ráða sterkri framlinu. Þeir eru þar með unga og friska stráka, sem verður gaman að glima við. Aftur á móti er vörnin ekki eins sterk — og erum við ákveðnir i að sundra henni. Marteinn sagði að aö sjálfsögðu stefndi hann að þvi að skora mark — já, tvö frekar en eitt. Leikur Fram og Vals hefst á Melavellinum kl. 2 á morgun. — SOS TONY KNAPP — hefur í mörg horn að líta... Hann hefur komið með athyglisverða tillögu um uppbyggingu landsliðsins TONY KNAPP, landsliðsþjálfari í knattspyrnu, hefur i mörg horn að lita þar sem hann mun sjá um þjálfun þriggja landsliöa okkar i knattspyrnu — landsliðsins, unglingalandsliðsins og landsliðs drengja. Það er ekki hægt að segja, að Knapp hafi setið auðum höndum siöan hann kom til landsins — hann hefur séð alia leiki, sem hann hefur komizt yfir, til að „njósna” um væntanlega landsliðsmenn. Þá er hann nýkominn frá Hoilandi, þar sem hann hafði leikmenn Hollendinga og Belgiumanna undir smjásjánni, en þeir verða mótherjar Islendinga I sumar. Knapp hefur komið með mjög athyglisverða tillögu I sambandi við uppbyggingu landsliðsins, en hún er I stórum dráttum þannig, að iandsliðið sem leikur gegn Norömönnum I Osló 19. mai og unglinga- landsliðið, sem tekur þátt i úrslitakeppni Evrópukeppni unglingalandsliða sem fer fram i Ungverja- landi 27. mai - 7. júni, æfi meira og minna saman. — Ég tel að þetta geti orðið mikil upplyfting fyrir ungu strákana, að þeir fái að æfa með landsliðs- mönnum okkar — þannig öðlast þeir mikla reynslu, sem þeir njóta góðs af i framtiðinni, sagði Knapp Knapp telur, að þetta fyrirkomulag sé nauðsynlegur liður i uppbyggingu landsliðsins, þar sem að strákarnir í unglingalandsiiðinu séu komnir á þann aldur, að þeir geti hvenær sem er bankað á dyrnar hjá landsliðinu. Með þvi að láta leikmenn unglingalandsliðsins æfa með a-landsliðinu, er verið að auðvelda þeim, að þeir geti strax gengið i æfingar hjá landsliðinu, þar sem þeir væru búnir að kynnast þeim og leik- mönnum landsliðsins, sagði Knapp, þegar sagt var frá þessari tillögu hans á blaðamannafundi hjá K.S.t. Þessi tillaga Knapps um að brúa bilið á milli unglingalandsliðsins og landsliðsins, er stórt skref i rétta átt, i sambandi við uppbyggingu landsliðs. Hingað til hefur það verið nokkuð stórt stökk á milli unglingalandsliðsins og landsliðsins, en með þessu nýja fyrirkomulagi, verður auðveldara fyrir ungu strákana okkar, aðganga inn i landsliðshópinn. TON Y KNAPP.... an. landsliösþjálf- AAútumál í sviðsljósinu í Belaíu GUÐGEIR.... og félagar úr fall- hættu. — Það er nú nær öruggt að La Louviere-liðið verði dæmt úr 1. deildarkeppninni, þar sem upp hefur komið mútumál i sambandi við leik liðsins gegn Berchem, sagði Guðgcir Leifsson, þegar Timinn ræddi við hann i gær- kvöldi. — Það þýöir, að við hjá Charleroi höldum sæti okkar i 1. deildarkeppninni, en baráttan hefur verið geysilega hörð um fallið. Það urðu mikil blaðaskrif i sambandi við mútumálið hér i blöðunum, um að forráðamenn La Louviere hafi boðið mótherj- um sinum (Berchem) peninga- upphæð, fyrir að tapa. Þetta kvis- aðist út, þegar leikmenn liðanna fóru að ræða um þetta fyrir leik- inn. Þetta varð til þess að viðtal, sem forráðamenn La Louviere áttu við þjálfara Berchem var tekið upp á segulband — og notað sem sönnunargagn. Þá er einnig búið að sanna, að dómari leiksins tók við peningaupphæð frá for- ráðamönnum La Louviere, sagði Guðgeir. — Þetta mál hefur vakið gifur- lega athygli hér — og einnig vakti það mikla athygii, þegar blöðin birtu fréttir um, að Charleroi hefði mútað Malinois til að tapa fyrir okkur — en við unnum sigur (2:0) yfir liðinu á dögunum. Þetta er algjörlega út i hött. enda hefur það komið fram. Talið er að ein- hver forvstumanna La Louviere hafi viljað hefna sin. eftir að upp komst um ráðabrugg þeirra, sagði Guðgeir. — Þetta þýðir þá. að þið veröið áfram uppi?. — Já, þá verður það La Louvi- ere. Berchem og Malines, sem falla niður. — Þetta þýðir ekki. að við telj- um okkur örugga. Við eigum eftir að leika þrjá leiki — gegn meist- urum Molenbeek hér i Charleroi ti dag) og siðan gegn La Louviere á útivelli og Lieres á heimavelli. — Við erum ákveðnir að gefa ekk- ert eftir og að ná a.m.k. fjórum stigum úr þessum þremur leikj- um. sagði Guðgeir að lokum. —sos

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.