Tíminn - 30.04.1976, Blaðsíða 20
20
TÍMINN
Fösludagur 30. april 1970
Skipstjóri óskast
ó nýjan skuttogara
sem gerður verður úr frá Húsavik. Skipið
mun verða tilbúið til veiða i júli n.k.
Upplýsingar gefur Tryggvi Finnsson,
Húsavik, simar (96)4-13-88 og 4-13-49.
Auglýsing um skoðun
bifreiða 1976
í lögsagnarumdæmi
Kópavogs
Samkvæmt umferðalögum tilkynnist hér
með, að aðalskoðun bifreiða verður fram-
haldið i maimánuði og júnimánuði og
verða þá skoðaðar eftirtaldar bifreiðir:
Mánudagur 3. mai Y-3151 til Y-3300
Þriðjudagur 4. mai Y-3301 til Y-3450
Miövikudagur 5. mai Y-3451 til Y -3600
Fimmtudagur 6. mai Y-3601 til Y -3750
Mánudagur 10. mai Y-3751 til Y -3900
Þriðjudagur 11. mai Y-3901 til Y-4050
Miðvikudagur 12. mai Y-4051 til Y-4200
Fimmtudagur 13. mal Y-4201 til Y-4350
Mánudagur 17. mai Y-4351 til Y -4500
Þriðjudagur 18. mai Y -4501 til Y-4650
Miðvikudagur 19. mai Y-4651 til Y-4800
Fimmtudagur 20. mai Y-4801 til Y -4950
Mánudagur 24. mai Y-4951 til Y-5100
Þriðjudagur 25. mai Y-5101 til Y-5250
Miðvikudagur 26. mai Y-5251 til Y-5400
Mánudagur 31. mai Y-5401 til Y-5550
Þriðjudagur 1. júni Y-5551 til Y-5700
Miðvikudagur 2. júni Y-5701 til Y-5850
og bifreiðar sem bera hærra skráningarnúmer og hafa
ekki mætt i aöalskoðun 1976.
Bifreiðaeigendum ber að koma með bif-
reiðir sinar að ÁHALDAHÚSI KÓPA-
VOGS VIÐ KÁRSNESBRAUT og verður
skoðun framkvæmd þar mánudaga -
fimmtudaga kl. 8.45 til 12.00 og 13.00 til
16.30. EKKI VERÐUR SKOÐAÐ Á
FÖSTUDÖGUM. Skráningar og um-
skráningar bifreiða fara EKKI fram á
skoðunarstað. Við skoðun skulu ökumenn
bifreiðanna leggja fram fullgild ökuskirt-
eini. Sýna ber skilriki fyrir þvi að bifreiða-
gjöld fyrir árið 1976 séu greidd, og lög-
boðin vátrygging fyrir hverja bifreið sé i
gildi. Hafi gjöld þessi ekki verið greidd,
verður skoðun ekki framkvæmd og bif-
reiðin stöðvuð þar til gjöldin eru greidd.
Vanræki einhver að koma bifreið sinni til
skoðunar á réttum degi, verður hann
látinn sæta sektum samkvæmt umferðar-
lögum og lögum um bifreiðaskatt og bif-
reiðin tekin úr umferð, hvar sem til
hennar næst. Þetta tilkynnist öllum sem
hlut eiga að máli.
Bæjarfógetinn i Kópavogi
Sigurgeir Jónsson
Z
0
Tilboð óskast i að gera fokhelda nýbyggingu við Vist-
heimilið Sólborg á Akureyri.
Kjallari hefur verið steyptur. Verkinu skal lokið 1. okt.
n.k.
Útboðsgögn verða afhent frá mánudegi 3. mai i skrifstofu
Innkaupastofnunar rikisins og á skrifstofu Sólborgar gegn
5000.- kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu Innkaupastofnunar rikis-
ins þriðjudaginn 18. mai kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844
Lesendur
18300
Landhelgisljóð!
Hláfjöll lands og brattir tindar
blási af ykkur hlvir vindar
móti Brctans báknum þungum
báleldum og gra'ðgistungum
er sleikja botn um bextu mið.
„Okkar er valdið. vopnin höfurn
vélar flugs og djúpin köfum,”
segja Bretar. „Burtu þið”.
I>ökk skal gjalda þúsundfalda
þeim, scin vörnum uppi halda,
og ofurefliö alla daga
eiga við aö striða og aga,
en leggja í hættu lif og blóð.
Nú er tsland bert að baki,
bróðir enginn hreyfir taki,
uorræn hikar hver ein þjóö.
islands verjur veit ég duga.
Vera öll með sama huga
landið verja, lif og miöin,
lika eflir þrek og friðinn
himinfegurð, fjallakyrrð.
Kennum Bretum tillit taka
til smælingja og þeirra raka
og senda dramb i dýpstu firrö.
islands blessuð, bláu fjöll
búálfar og lieillatröll,
veljið ykkur varnarstöðu
vinnið æ með skapi glöðu
allt, sem varðar islands hag.
Verum ei með heift I huga,
hún er verst, ef á að duga,
scndum drottni bænabrag.
og norður
Heydalsleið hefur veriö svo
lengi notuð, að nokkur reynsla
hefur fengizt af henni.
Þegar varanlegt slítlag verð-
ur sett á þjóðbrautina vestur og
norður er það mjög þýðingar-
mikið, að þung snjóruðnings-
tæki, þurfi ekki að marg-skafa
viðkvæmtslitlagið.einsog nú er
gert á Holtavörðuheiði, milli
þess, sem heiðin er ófær, jafnvel
fram á sumar. Jafnvel þó var-
Leiðrétt stöðuheiti
Undirritaður óskar að koma á
framfæri leiðréttingu við það,
sem segir i sjónvarpsdagskrá
vikunnar 11.-17. apríl, er birtist i
Timanum s.l. föstudag, 9. þe'ssa
mánaðar.
t kynningu á dagskránni
laugardagskvöld fyrir páska, er
ég kynntur meðal þátttakenda i
„Kjördæmin keppa" sem Guð-
mundur Gunnarsson, gagn-
fræöaskólakennari. Akureyri.
Hið rétta er, að ég er starfs-
maður á Skattstofu Norður-
landsumdæmis eystral skjölum
launadeildar fjárm álaráðu-
neytisins er starfsheitið senni-
lega skattendurskoðandi,
hvorki sérlega aðlaöandi né
munnlamt orð. Skrifstofumaður
erheiti sem er hvorltveggja, til-
tölulega hlutlaust og má til
sanns vegar fær.
Ég legg á það nokkra áherzlu,
aö leiðrétting þessi komi fram i
blaöinu, þar sem annar Guð-
mundur Gunnarsson er hér á
Akureyri, búsettur að Laugar-
götu l, allþekktur sem söng-
maður og leikari með Leikfélagi
Akureyrar, en gagnfræðaskóla-
kennari að atvinnu. Hefur það
anlegt slitlag yrði sett á Holta-
vörðuheiði, færi það fljótt for-
görðum.
Laxárdalsheiði (i Dalasýslu)
lengir leiðina töluvert
(Evik—Akureyri) miðað við
Holtavörðuheiði, en ég tel aö
Laxárdalsheiði komi aö miklum
notum, sem vetrarleið fyrst og
fremst, en aðalleiðin með var-
anlegu slitlagi, lægi um Hauka-
dal i Dalasýslu, þessi leið um
Haukadal gæti einnig eflt sam-
skipti Snæfellssýslubúa og
Norðlendinga.
Leiðin austur frá Akureyri um
Vaðlaheiði og um Dalsmynni,
þegar aðalleiðin teppist, er
sambærileg úrlausn og Hauka-
dalur, sem aðalleið og Laxár-
dalsheiði,sem vetrarleið norður
I aftökum.
Skúli Olafsson
máske fætt af sér þessa
skekkju, e.t.v. með hjálp þeirr-
ar staöreyndar, að ég var kenm
ari við héraðsgagnfræðaskólann
Laugum, Suöur-Þingeyjarsýslu
árin 1951-’73.
Ekki er óalgengt, að okkur
nöfnum hafi verið ruglað sam-
an, en ekki komið verulega að
sök. En nú er um að tefla augu
og eyru alþjóðar, svo að mér
finnst máli skipta, að hið rétta
komi glöggt fram.
Virðingarfyllst,
Guðmundur Gunnarsson
HRINGIÐ I SIMA 18300
MILLI KLUKKAN 11 — 12