Fréttablaðið - 16.11.2005, Page 42
Úlfar er lærður rafvirki og útvarps-
virki af gamla skólanum eins og
hann segir sjálfur, og er með að-
stöðu fyrir trévinnslu í bílskúrnum
hjá sér. Þar vinnur hann með efni-
viðinn og skapar þessi listaverk, en
Úlfar mun eiga nokkur verk á
næstu sýningu á vegum verkefnis-
ins Handverk og hönnun, sem hald-
in verður fljótlega. Dæmi um hluti
sem Úlfar býr til eru t.d. skálar, vas-
ar, lampar, staup og fleira.
Úlfar vinnur með ís-
lenskan efnivið og hefur þess vegna
tekið upp á að líma hluti saman til
þess að geta búið til stærri verk.
Verk hans eru öll búin til úr íslensk-
um viði. Úlfar kaupir mest frá Hall-
ormsstað og er það þá birki og
lerki sem hann vinnur mest með.
Hann hefur einnig unnið úr gull-
regni, sem Úlfar segir að sé einn
glæsilegasti viður sem hægt sé að
fá á Íslandi og
tekur fram
að mjög gott sé að vinna með gull-
regn.
Ferlið við vinnslu er langt. Fyrst
þarf að saga efnið í búta en nauð-
synlegt er að viðurinn sé alveg þurr
svo hægt sé að vinna úr honum.
Úlfar vinnur mikið með hringlaga
form, en í slíkri vinnu þá sagar
hann viðinn í hringi og rennir þá á
rennibekk. Límir svo hring ofan á
hring, áður en hann rennir aftur,
svo úr verða þessi einstöku verk.
2 ■■■■ { íslenskur iðnaður } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
hönnun }
Margrét Guðnadóttir hefur vakið
athygli fyrir frumlega og skemmti-
lega hönnun á spiladósum sem spila
íslensk lög eins og Krummavísur og
Vísur Vatnsenda-Rósu. Tágarnar
sem eru hennar aðalefniviður hafa
leitt hana inn á skemmtilegar braut-
ir og hefur hún meðal annars útbú-
ið lampa og nú síðast spiladósir.
„Ég hef lagt mig alla fram við að
vinna spiladósirnar,“ segir Margrét
en hún hyggur á að útbúa þær í
fleiri útgáfum og bæta við nýjum
lögum. „Mér fannst algerlega þurfa
eitthvað þessu líkt hér á landi, og
eftir að ég byrjaði á þeim hafa þær
tekið allan minn tíma,“ segir Rósa.
Hönnun Margrétar er til sölu í
Kirsuberjatrénu, Safnaverslun Lista-
safn Íslands og í Jólahúsinu á
Skólavörðustíg.
Tónlistin dregur mann á tágar
FALLEGIR SVEPPALAMPAR.
GLÆSILEG STAUP ÚR GULL-
REGNI.
SKÁL UNNIN Í BÍLSKÚRN-
UM HJÁ ÚLFARI.
Skartgripir Guðbjargar Kr. Ingvars-
dóttur hafa vakið verðskuldaða at-
hygli allt frá því hún stofnaði versl-
unina Aurum í litlu bakhúsi við
Laugaveginn.
Árið 2003 flutti hún verslunina
niður í Bankastræti og kynnir nú
nýjar línur undir heitunum Svala
og Sæunn, í verslun sinni á næstu
dögum og á sérstakri hönnunar-
og tískusýningu á Hótel Borg á
sunnudaginn. „Í hönnun hluta
minna leitast ég við að flétta sam-
an leikandi létta hreyfingu, kven-
legan fínleika ásamt styrk og ein-
faldleika“ segir Guðbjörg sem situr
ekki auðum höndum og kynnir að
jafnaði þrjár nýjar línur á ári, og
allar bera þær kvenmannsnafn,
eins og Hekla, Blær, Líf og Dögg. Í
hverri línu eru hannaðir nokkrir
ólíkir munir sem hægt er að raða
saman eftir smekk hvers og eins.
Guðbjörg lærði gullsmíði og
skartgripahönnun í Danmörku „Ég
lærði skartgripahönnun á eftir gull-
smíðinni og legg ég mjög mikla
vinnu í hönnunina og gef henni
góðan tíma,“ segir Guðbjörg. Skart-
gripir hennar sem eru fínlegir og
minna jafnan á blóm eða gróður
eru mjög nútímalegir, og segir Guð-
björg að náttúruformin séu ríkjandi
í hönnun hennar. „Ég nota mikið
silfur, og vil ég kalla fram ákveðinn
léttleika, en gef gripunum dýpt með
því að hafa þá í þrívídd,“ segir
Guðbjörg. Hægt er að skoða skart-
gripi Guðbjargar á vefsíðunni
www.aurum.is.
Býr til falleg trélistaverk í bílskúrnum
Úlfar Sveinbjörnsson er trélistamaður í hjáverkum og býr til fallega muni úr íslenskum
efniviði.
Íslenskir ostar eru eitt af því sem
gott er og glæsilegt að færa góð-
um vinum að gjöf. Ekki spillir að
láta fljóta með úrvalsálegg á borð
við parmaskinku og
salamipylsur og góða
vínflösku. Þá er og
nauðsynlegt að vera
einnig með gott
brauð, annað hvort
heimabakað, úr bak-
aríi eða frystiborðum
verslana. Ostabúðin
við Bitruháls raðar
ostum, sultum, kjöt-
meti og fleiru í körfur
fyrir viðskiptavini
sína. Bæði er hægt að
fá tilbúnar körfur eða
velja sjálf/ur úr girni-
legu ostaborði versl-
unarinnar og nota
tækifærið í leiðinni til
að smakka á öllum ljúffengu ost-
unum. Körfurnar eru bæði stórar
sem smáar en eru gjöf sem hittir
alltaf í mark.
Ljúffengur kostur
Ostakörfur til gjafa
Nútímalegir og kvenlegir
skartgripir í þrívídd
Guðbjörg Kr. Ingvarsdóttir gullsmiður og hönnuður kynnir nýja línu í skartgripum í
þessari viku, í verslun sinni Aurum í Bankastræti
02-03 Iðnaður-lesið 15.11.2005 15:41 Page 2