Fréttablaðið - 16.11.2005, Side 64
Markið sett hátt
Hreiðar Már Sigurðsson, for-
stjóri KB banka, var glaðbeittur
og fastur fyrir í sjónvarpsfrétt-
um á laugardag, þar sem hann
sagði bankann ekki munu hækka
vexti íbúðalána meðan aðrir á
markaði héldu þeim lágum. Það
er því ljóst að KB banki hreyfir
sig ekki á þessum markaði fyrr
en Íbúðalánasjóður hefur hækk-
að sína vexti.
Hreiðar Már var búinn að
vera í miklu stuði þennan dag,
því þann daginn var starfsdagur
í KB banka þar sem ríkti mikill
baráttuandi og hópefli. Þar flutti
forstjórinn ræðu þar sem mark-
ið var sett hátt. Þá sagði hann að
stefnt væri að því að KB banki
yrði kominn í hóp fimmtíu
stærstu banka í heimi eftir fimm
ár. Það er metnaðarfullt mark-
mið, en bankinn er í sæti á bilinu
170 til 180 í dag.
Bið eftir viðtali
Þeir eru margir sem vilja veg
kvenna meiri í íslensku athafna-
lífi. Meðal þeirra sem hafa hvatt
til aukins hlutar kvenna í við-
skiptalífinu er Morgunblaðið.
Það voru því margir sem áttu
von á því að Mogginn myndi
taka ítarlegt viðtal við unga
konu sem varð á dögunum
stjórnarfomaður í skráðu félagi
í Kauphöllinni og er reyndar sú
eina af skynsamara kyninu sem
gegnir slíkri stöðu. Þetta er Þór-
dís J. Sigurðardóttir sem var
kosin stjórnarformaður Dags-
brúnar sem á 365 fjölmiðlana.
Eitthvað hefur dregist hjá Morg-
unblaðinu að fagna þessu skrefi
í jafnréttisbaráttunni, en úr því
hlýtur að verða bætt mjög fljót-
lega.
Reglugerðarvald
hjá einkaaðilum
Samspil viðskipta stjórnmála er
mörgum þyrnir í augum og þá
oftast þeim sem standa í við-
skiptum. Í nýrri bók um Jón
Ólafsson segir frá stuðningi
hans við Albert Guðmundsson.
Albert varð síðar fjármálaráð-
herra. Jón fékk hann til að fella
niður vörugjald af hljómplötum.
Jón gerði reyndar meira en það,
Hann samdi reglugerðartextann
og fór með hann til Alberts niður
í Alþingi sem undirritaði hann.
Jón lét ekki þar við sitja, heldur
tók ómakið af ráherranum og
starfsmönnum hans og fór sjálf-
ur með reglugerðina undirritaða
í Lögbirtingablaðið til birtingar.
Í þetta skiptið hefur því Jóni
varla fundist tengslin við stjórn-
málin til trafala.
44 4,45% 4753milljarða hlutafjáraukning FL Group. vextir íbúðalána Landsbankanseftir hækkun. Nýtt met úrvalsvísitölunnar. xxx
SÍMANÚMER MARKAÐARINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@markadurinn.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@markadurinn.is Veffang: visir.is
B A N K A H Ó L F I Ð
01_24_Markadur-lesið 15.11.2005 16:02 Page 2