Tíminn - 05.09.1976, Blaðsíða 2

Tíminn - 05.09.1976, Blaðsíða 2
2 TÍMINN Sunnudagur 5. september 1976 JMW Hér verður nýja heilsugæzlustöðin til húsa, en örlltið lengra til hægri er Póstur og simi með útibú. Timamynd: —hs- r komin ut . Clr- ' > iÍN'.- w: •*s . p -J IH * „1 \ faUHSK FYRIRTÆKI 76—77 er komin út. f fyrirtækjaskrá bókarinnar er að finna víðtækustu upplýsingar, sem til eru um íslensk fyrirtæki, félög og stofnanir í einni og sömu bókinni, á öllum sviðum viðskipta um allt land og jafnframt þær aðgengilegustu. faLENSK FYRIRTÆKI 76—77 kemur út í helmingi stærra upplagi en nokkur önnur slík bók hér á landi. sem notaðar eru hjá verslunarráðum og upplýsingaskrifstofum víðs vegar um heim. Þar er einnig að finna upplýsingar um útflytjendur og útflutningsvörur og innflytjendur og innflutningsvörur. ÍSLENSK FYRIRTÆKl gefur upplýsingar í viðskipta- og þjónustuskrá um fram- leiðendur og seljendur vöru og þjón- ustu um allt land. ÍSLENSK FYRIRTÆKl birtir viðskiptalegar upplýsingar á ensku um (sland í dag, f „ISLENSK FYRIRTÆKF* ER AÐ FINNA M.A. faLENSK FYRIRTÆKI birtir umboðaskrá, þar sem getið er umþoða og umboðs- manna. Nafn heimilisfang sími, pósthólf stofnár nafnnúmer 'Í-V söluskatts númer S1-* telex stjorn starfsmenn - starfsmanna fjöldi umboð leiðandi nnflytjandi -------smásala starfssvið ráöuneyta og embættismenn sveitastjórnar élaga og samtaka sendiráð og ræðismenn hórog erlendis. faLENSK FYRIRTÆKl er uppseld á hverju ári. fSLENSK FYRIRTÆKI fæst hjá útgefanda. Sendum í póstkröfu Verð kr. 4.500,- Útgefandi: FRJÁLST FRAMTAK hf. Laugavegi 178-Símar: 82300 82302 Heilsugæzlustöð í Árbæjarhverfi — hs— Rvlk. Innan skamms tek- ur til starfa heilsugæzlustöð i Hraunbæ 102 E og D I Árbæjar- hverfi en þar hafði áður verið gert ráð fyrir verzlunar- og þjónustu- miðstöð. Auk læknishjálpar hvers konar, er ætlunin að veita þar al- hliða félagsráðgjafaþjónustu. Gert er ráð fyrir, að stöðin geti veitt 6-7 þúsund manns þjónustu, en i hverfinu búa nú milli 4 og 5 þúsund manns. Blaðamönnum var boðið að skoða stööina 1. september s.l. I fylgd meö borgarstjóra og bygg- inganefnd hússins, sem i eru borgarlæknir, Skúli G. Johnsen, Páll Glslason, yfirlæknir, og Gisli Teitsson, framkvæmdastjóri, en einnig voru þar staddir Sigurður Sigurjónsson, borgarlögmaður og Leifur Blumenstein bygginga- fræðingur. Slðla árs 1974 ákvað Reykjavik- urborg að leita eftir samningum um kaup á húsnæði I Hraunbæ 102 E og D með það fyrir augum, aö þar yrði komið á fót heilsugæzlu- stöð, er þjónaöi Arbæjarhverfi. Er tryggð haföi verið þátttaka rlkissjóðs I stofnkostnaði samkv. lögum um heilbrigðisþjónustu, voru kaupin gerð árið 1975 og haf- inn undirbúningur að innréttingu húsnæðisins. Hönnuðir verksins voru Jón Björnsson, arkitekt, og Leifur Blumenstein, byggingafræðing- ur, vatns-, hitalagnir og loftræst- ingu hannaði Rafn Jensson, verk- fræðingur, og raflagnir Rafteikn- ing s.f. Innrétting húsnæðisins var boð- in út I janúar og tilboð opnuð I febrúarmánuði. Samið var við lægstbjóðanda, Fagverk h.f. Lausar innréttingar voru boönar út I mai og samið við Gamla kompaniið h.f. Kaupverð húsnæöisins var 25 milljónir króna, en samtals er kostnaður I dag 46 milljónir. Ver- ið er að ganga frá kaupum á hús- gögnum og tækjabúnaði. í heilsugæzlustööinni I Arbæ verður rekin heilsugæzla I sam- ræmi við lög um heilbrigðisþjón- ustu frá 1973. Er stöðinni ætlað að þjóna ibúum Arbæjarhverfis og þeirra, er búsettir eru innan lög- sagnarnmdæmis Reykjavikur að norðan og austan viö Arbæjar- hverfið. Stöðin er hönnuð til að veita 6 — 7000 manns þjónustu. Húsnæðiö er samtals um 600 fermetrar þar af rúmlega 100 rúmmetrar I kjallara. Er þar komið fyrir f jölþættri aðstöðu svo veita megi alhliða heilsugæzlu svo sem lögin mæla fyrir um. Að- staða verður fyrir þrjá heimilis- lækna, er hafa eitt viðtalsher- bergi og skoðunarherbergi hver, aðstaða fyrir margháttaða sér- fræðiþjónustu, er sérfræðingar munu heimsækja stöðina með reglulega millibili, sérstök barnaverndaraðstaða, rannsókn- arstofa, aðgerðarstofa þar sem hægt verður að gera að minni háttar slysum og framkvæma einfaldar skurðaögerðir, rými er fyrir hjúkrunarkonu, heima- hjúkrun og heimilishjáip, félags- ráðgjafa, ritara auk tannlækn- ingastofu. Eitt höfuðeinkenni þeirrar heil- brigðisþjónustu, er Reykvikingar búa við I dag, er aö hver einstakl- ingur þarf að sækja mjög marga staði til at fá uppfyllt öll þau er- indi, er hver og einn þarf að reka I heilsugæzluskyni. Þannig þurfa Reykvikingar að sækja til að minnsta kosti 6 mismunandi staða I borginni I sambandi við sln vandamál, og er þetta ekki slzt tilfinnanlegt fyrir ibúa nýju hverfanna. Með heilsugæzlustöö- inni I Árbæ er ætlunin að bæta hér verulega úr, þannig að fólk þurfi ekki að sækja nema 2-3 staði sltkra erinda. 1 heilsugæzlustöðinni verður rekin mæðra-, ungbarna- og smá- barnavernd, auk ýmissar annarr- ar heilsuverndarþjónustu, svo sem skólaeftirlit, er verður á veg- um stöðvarinnar, og reynt verður að taka upp nýjungar, svo sem skipulagða heilbrigöisfræðslu og reglubundið heilsufarseftirlit. A stöðinni munu I byrjun starfa tveir, en síðan þrir, heimilislækn- ar (heilsugæzlulæknar) og yrði miðað við, að sjúklingafjöldi hvers yrði ekki meiri en 1700 — 2000 einstaklingar til að tryggja, að þeim gefist tlmi til að sinna sem flestum heilsufarsvanda- málum sjúklinga sinna. Vakt- og vitjanaþjónusta verður að degi til, og væntanlega einnig á kvöld- in, þannig að Ibúar Árbæjar- hverfis geti mestan hluta sólar- hringsins leitaö til eigin lækna vegna skyndilegra veikinda I heimahúsum. í stöðinni verður aðstaða til að taka á móti minni háttar meiðsl- um og slysum, öðrum en bein- brotum. Sérfræðileg læknisþjónusta verður skipulögð með þeim hætti, að ráðnir verða sérfræðingar hinna ýmsu sviða læknisfræðinn- ar og samið um reglubundnar heimsóknir þeirra I stöðinni til að sinna þeim tilvlsunum, er fram koma. Talið er mjög mikil- vægt, að sérfræöingarnir heim- sæki stöðina og nýti þá aðstööu, sem þar verður fyrir hendi til ým- isskonar rannsókna og meðhöndl- unar. Hægt verður að gera allar algengustu lækningarannsóknir i stöðinni, en þegar gerðar eru rannsóknir, sem ekki er hægt að framkvæma á staðnum, verða sýni tekin I stööinni og send til viðkomandi rannsóknastofnana. Gert er ráð fyrir náinni sam- vinnu við rannsóknarstofu Borgarspitalans i sambandi við rannsóknaþjónustuna. Tannlæknastofa er i stöðinni og mun þar verða tannlæknir, er þjónar jafnt nemendum grunn- skólans og öðrum ibúum hverfis- ins. Tannlæknastofan i Arbæjar- skóla verður rekin áfram. Möguleiki verður á að skipu- leggja heimahjúkrun og heimilis- hjálp frá stöðinni með samvinnu við Félagsmálastofnunina og ungbarnaeftirlit i heimahúsum verður og á vegum stöðvarinnar. Mun sama heilsuverndarhjúkr- unarkonan sinna skólanemendum og ungbörnum, svo og annarri heilsuverndarhjúkrun, og munu með þvi takast æskileg og nauðsynleg tengsl milli hennar og fjölskyldumeðlima á ýmsum aldursstigum. Þá er og aðstaða til að veita alhliða félagsráðgjafaþjónustu, og mun það starf verða unnið I nánum tengslum við starfslið stöðvarinnar, lækna, hjúkrunar- konur. 1 starfi stöðvarinnar verður lögð á það mikil áherzla, að tryggja sem nánust tengsl milli alls stárfsliðs heilsugæzlustöðvar innar og ibúa hverfisins i þvi skyni, að öll þjónusta stöðvar- innar verði sem bezt og áhrifa- ríkust. VITRETEX plastmálning myndar óvenju sterka húö. Hún hefur því framúrskarandi veðrunarþol. S/ippfé/agið íReykjavík hf MálningarverksmiÖjan Dugguvogi Símar 33433og 33414 OKUM ■EKKIB UTANVEGAl LANDVERND

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.