Tíminn - 05.09.1976, Blaðsíða 32

Tíminn - 05.09.1976, Blaðsíða 32
32 TÍMINN Sunnudagur 5. september 1976 barnatíminn Anton Mohr: Árni og Berit Ævintýraför um Afriku ar risavöxnu skepnur verði þvi fegnar að fá hjálp til að losna við skordýramergðina. Á ellefta degi eftir að báturinn lagði upp frá Rejaf, var hann á móts við mynnið á ánni Sobat, þar sem hún fellur i Hvitu-Nil. Venjulega er þessi á vatnsmikil, en i þetta skipti var óvenju- lega litið vatn i henni. Það leit þvi svo út sem ferðin yrði ennþá erfið, vegna vatnsleysis i Hvitu-Nil. Hinn 30. janúar 1913 lagðist Ramses við fest- ar á höfninni i Fashoda. Þetta litla, sóðalega þorp varð allt i einu þekkt um allan heim ár- ið 1898, en gleymdist jafnskjótt aftur. Frakkar höfðu lengi hugsað sér að leggja undir sig alla Norð- ur-Afriku, frá Atlants- hafi austur að Indlands- hafi, en Englendinga dreymdi um samfellda nýlendu frá Kairo i Egyptalandi og alla leið suður til Höfðaborgar. Báðir sendu út leið- angra, allstóra herdeild, til að framkvæma þessi áform. Þessir hópar hittust i Fashoda. Hvor- ugur vildi hætta við á- formið og um stund leit svo út, sem þessi þekktu stórveldi færu i styrjöld. Um allan heim var nafnið Fashoda á allra vörum, ekki siður en Danzig árið 1939. Frakk- ar slökúðu loksins til og herdeiíd þeirra dró sig i hlé. Frá þilfari bátsins leit Árni yfir þetta óásjálega þorp, með hálfföllnum kofum, byggðum úr leir, sem ennþá bar þetta sögufræga nafn. Háset- arnir, sem voru ættaðir af þessum slóðum, höfðu beðið um landgöngu- leyfi, og það voru einu mennirnir, sem hann sá á ferli i þorpinu. Annars virtust ibúarnir sofa i hinum sterka sólarhita. Árni átti bágt með að hugsa sér það, að hér á þessum eyðilega stað hefði nær þvi brotizt út heimsstyrjöld. Það var erfitt að finna nokkurn stað i heiminum, sem væri óliklegri til að verða þrætuepli. vm. í fjötrum 1. Vatnsmagnið i Hvitu-Nil varð alltaf minna og minna og skip- stjórinn fullyrti, að hann hefði aldrei vitað það eins litið. Það bætti heldur ekki úr skák, að Ramses var alls ekki grunnskreiður bátur og risti allt of djúpt. Hann strandaði þvi eða „tók niðri”, sem svo er nefnt, stundum oft á dag. Oft- ast gekk sæmilega að koma bátnum aftur á flot, en þetta seinkaði ferðinni mikið. Landsýn var mjög leiðinleg. Báð- um megin árinnar var láglendi með mýrúm og fenjum, en hér og þar sáust fámenn og vesæld- arleg negraþorp. Hitinn var óþægilega mikill og sólarbirtan mjög sterk, þar sem landið var skóglaus auðn, strax og komið var út úr sjálfum dalnum. Allir notuðu dökk gleraugu, en þó leið þeim illa. Berit fannst þetta leiðinleg- asti kaflinn af ferðinni og hún og allt hitt fólkið hlakkaði til þeirrar stundar, er það gæti sagt skilið við Ramses og haldið ferðinni áfram með járnbraut. Árið 1911 hafði einmitt verið lokið við jámbraut frá E1 Obeid um Sennar til Khartum. Þessi jám- braut liggur yfir Nil hjá þorpinu Kosti, og er þar mikil brú yfir fljótið. Þar var áætlað að yfir- gefa bátinn og halda á- fram með járnbraut. Jafnframt áttu hinir þrir þeldökku hásetar að fá heimfararleyfi. Eftir þvi sem þeir sögðu, þá áttu þeir heima langt inni i landi i suðvestur frá Kosti. Þeir sögðust hlakka mikið til að koma heim eftir þessa löngu ferð og höfðu farið á land i Fashoda til að reyna að koma boðum heim. Um kvöldið 3. febrúar kom Ramses til Um Sir, sem er litið kauptún um 50 km sunnan við Kosti. Ofurstinn hafði frétt, að járnbrautarlest ætti að fara frá Kosti kl. 14 næsta dag á leið til Khartum. Ef þeir legðu upp um sólaruppkomu, þá ættu þeir alltaf að ná nógu snemma til Kosti, jafnvel þótt Ramses tæki niðri einu sinni til tvisvar á leiðinni. Það leitút fyrir, ef lánið væri með, að hinni löngu, þreytandi siglingu á Hvitu-Nil væri nú að ljúka. Þorpið Um Sir virtist vera mjög ógeðslegt þorp — óhreinna og fá- tæklegra en ferðafólkið hafði séð áður. Hér var lika alls staðar hræði- legur óþefur. Þau tóku strax eftir þvi að þessi óþefur var þó ekki frá þorpinu sjálfu, heldur upp úr fljótinu. Skip- stjórinn útskýrði fyrir þeim, hvernig á þessum óþef stæði. Hann sagði, að hér við Khartum félli hin straumharða og vatnsmikla Bláa-Nil út i Hvitu-Nil, og yrði þvi vatnið i Hvitu-Nil nær þvi kyrrstætt. Straum- fjallið i Bláu-Nil, sem kemur austan úr Abessiniufjöllum, þvingar lygna vatnið i Hvitu-Nil til baka og gerir það kyrrstætt. All- ar jurta- og dýraleifar rotna i vatninu, og þess vegna verður lyktin svo vond. Rétt vestan við þorpið var dálitill ás eða hæð, liklega um 200 metra á hæð. Einn svertinginn stakk upp á þvi, að fólkið skyldi tjalda um nóttina uppi á þessari hæð. Hann sagði, að þar væri minni óþefur og heldur kaldara. Ofurstinn var þessu samþykkur. Þá stakk frú Alice upp á þvi að halda dálitið skilnað- arhóf, úr þvi þetta væri siðasta kvöldið, sem öll skipshöfnin af Ramses væri með þeim. Ofurst- anum fannst þetta ó- þarft og erfitt að bera mat og drykkjarföng upp á þessa hæð, en eins og venjulega hafði frú Alice sitt mál fram, og ofurstinn sagði hásetun- um að bera upp að tjöld- unum vistir og vinföng. Siðan hófst skilnaðar- veizlan. Skipstjórinn var boðinn og hásetarnir báru varninginn upp að tjöldunum og voru kurteisir og fáorðir eins og venjulega. Það sá enginn, að þeir erfðu það neitt við frú Alice, sem kom fyrir i siðustu veizlu. Það var komið fram yfir miðnætti, er UNDIR SAMA ÞAKI KE-25DOK 0 Plötuspilari - útvarp - magnari 25W+25W RMS Solinis 2()Hz 20,000Hz Nýr Kemvood! Hi Fi samstæðan KE 2500 frá Kenvvood, sú bezta sem völ er á. Þú hvorki heyrir né sérö aðra betri. Raunverulega er hún samstæða 3ja úrvals Kenwood tækja sem sameinuð eru í fallegum hnotukassa undir einu og sama þaki, fágað og fyrirferðarlítið.en ódýrt. Komið og kynnist KENVVOOD, þið verðið ekki fvrir vonbrigðum. Allt fvrstii flokks frá fKENWOOD FALKIN N SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.