Tíminn - 05.09.1976, Blaðsíða 11
Sunnudagur 5. september 1976
TÍMINN
n
Páll G Jónsson, forstjóri Pan Am á tslandi, ásamt eriendum gestum frá Pan Am. Viðmælandi vor er
annar frá vinstri.
— Voru þetta vondar flug-
vélar?
— Það held ég ekki. Flugbátar
Pan Am voru mjög virðulegar
flugvélar og i samræmi við lifsstíl
millistriðsáranna, sem I senn var
glæsilegur, frjáls og öfgafullur.
— Farþegar voru fáir fyrstu
árin, en nú fara milljónir manna
um á þessum fíugleíðum á hverju
ári.
— Flugleiðin yfir Atlantshaf og
Austurlandaflugleiðin voru með
lengstu flugleiðum I heimi, og eru
það auðvitað enn. Alla tlö frá
fyrstu starfsárum hefur langflug
verið einskonar sérgrein Pan Am.
Flugvélakostur félagsins er við
það miðaður.
Það nýjasta er, að breiðþotur
okkar fljúga I einum áfanga frá
New York tíl Nýju-Belhí á Ind-
landi og þaöan i einum átanga til
Tokyo, og siðan i einum áfanga
frá Tokyo til New York. Þetta
tekur breiðþotur okkar aðeins 43
klukkustundir, sem er heimsmet.
— Hefur Pan Am I hyggju að
taka I notkun hljóðfráar þotur?
— Það er ekki fyrirhugað. Við
fjúgum á langleiðum og þar erum
við fljótastir allra. Concorde-
þotan þarf alltaf að vera að lenda
til þess a ,',fá sér aö drekka”, en
það þurfa breiðþoturnar ekki og
þær fljúga ótrúlega langt I einum
áfanga, þannig verður hraðinn og
þægindin meiri á langleiðunum.
Verkaskipting i flugi.
I fluginu er rikjandi dálitil
verkaskipting ef nota má það orð.
Við fljúgum milli fjarlægra borga
og heimsálfa. Onnur flugfélög
sérhæfa sig i fjöldaflutningum að
og frá þessum flugvöllum. Far-
þegar okkar koma þvi mjög oft
frá öðrum flugfélögum, sem
safna saman farþegum viösvegar
að úr nágrenninu, þeir fljúga
siðan langar vegalengdir með
Pan Am. Til að mynda. Suður-
Kyrrahafsleiðina. New York-
Jóhannesarborg og New York-
Tokyo. Viö verðum aðreiða okkur
á önnur flugfélög, sem hafa sér-
hæft sig i innanlandsflugi i
þessum löndum. Og á styttri flug-
leiðum á þéttbýlium svæðum.
— Þrátt fyrir langar flugleiðir,
eru viðkomustaöir margir, þvi aö
þrátt fyrir allt, þá er hnötturín.n
nokkuö stór. Við höfum viðkomu
á 86 flúgvöllum viðs vegar um
heim.
Þetta leiðir af sér mikil vanda-
mál og oft mikla vinnu. Viö
rekum flugfél., sem er I einkaeign
og verður að bera sig fjárhags-
lega, —veröur aö standa á eigin
fótum. Við verðum aö semja um
flugleiðir okkar við yfirvöld I við-
komandi löndum, og það er ekki
ávallt auðvelt verk að samræma
hlutina þeim stjórnarformum,
sem notuð eru I hinum ýmsu
löndum. Við höfum ekki neinn
raunverulegan, stjórnmálaíegan
bakhjarl, eins og t.d. rikisrekin
flugfélög hafa að baki sér, en það
gerir hlutina oft auðveldari. Pan
Am er öflugt alþjóðaflugfélag, en
það verður að standa á eigin
fótum.
28.000 manns vinna hjá
Pan Am.
— Hvað vinna margir hja Pan
Am?
— Hjá Pan Am unnu i lok sein-
asta árs 28.445 manns og hefur
starfsmönnum verið fækkað
verulega, en þeir voru 39.000 árið
1973, þegar oliukreppan Skall á
heiminum. Þetta hefur tekizt með
þvi að endurskípuleggja nær alla
starfsemina og nýta starfliðiö
betur.
Sömu störf eru unnin á flestum
flugvöllum, og Imörgum tilvikum
framkvæmá nú tveir menn það,
sem fjórir menn gerðu áöur, því
að verkefnin hafa verið einfölduð
og skipulögð, svo og tækniþjón-
ustan.
Við höfum tvær stórar tækni-
stöðvar, þar sem skoðanir og viö-
hald flugflotans fer fram. önnur
stöðin er I SanTi'rancisco I Kali-
forniu, en hin er I New York.
Flugvélum okkar er beint inn á
þessar tvær stöövar I venjulegu
áætlunarflugi, þar sem þær fá af-
greiðslu, en nýjar vélar eru settar
inn, — vélar sem eru að koma úr
skoöun.
Þetta kerfi kemur I stað þess að
hafa 4-5 viðgerðarstöðvar og
skoöunarstöðvar viðsvegar um
heim. Félagið kemst á þann hátt
hjá kostnaðarsömu ferjuflugi
(tóm vél) milli staða.
Þetta hefur tekizt svo vel, að
Pan Am er nú i öðru sæti I heim-
inum með nýtingu mannafla.
— Það er rétt að hafa það I
huga, að það er siður en svo auö-
velt fyrir flugfél. að fækka
starfsliði með skömmum fyrir-
vara. Starfslið flugfélaga er sér-
hæft. Ef smálægö kemur I flutn-
ingana, þá er ekki hægt að fækka
mönnum.
— Þetta er oft hægt I þungaiðn-
aði, en hjá flugfélögunum eru
þetta að mestu leyti sérhæfðir
starfsmenn, og ef þú lætur þá
hætta, að þá getur svo farið að þú
verðir að þjálfa aðra I þeirra
störfum eftir mjög stuttan tima,
þegar lægðin er farin hjá. Það
kostar kannski mörgum sinnum
meira en það kostar að greiða
starfsmanninum laun fyrir þann
tima sem lægðin stóð ýfir'. Stjórn-
un á starfsmannahaldi er þvi
mjög samvirk i flugrekstri. Ekki
er hægt að mæta efnahagssveifl-
um með þvi að fækka fólki og
fjölga eftir þvi sem reksturinn
gengur frá degi til dags.
Okrað á Evrópuflugi.
— Er misdýrt aö fljúga á
hinum ýmsu flugleiðum flugfé-
laganna og hvar er dýrast að
fljúga?
— Fyrir almenning er dýrast
að fljúga innan Evrópu. Sætis-
mllan kostan 29-36C. Til saman-
burðar má geta þess að sætis-
milan kostar I Norður-Atlants-
hafsfluginu aöeins 7c. Hæsta far-
gjald á innanlandsleiðum i
Bandarikjunum er á leiðinni New
York-Washington, sem er ein fjöl-
farnasta flugleið I heimi, þaö er 11
c á sætismiluna.
— Hvaö veldur þessum háu
fargjöldum innan Evrópu?
— Þessi fargjöld eru einfald-
lega ákveðin með samkomulagi
milli rikjanna, en ekki af fram-
boði og eftirspurn.
— Hvernig hefur rekstur Pan
Am gengið I viðskiptastriðinu
milli flugfélaganna?
— Flugið er um þessar mundir
I miklum vanda. Olíukreppan
setti gifurlegt strik I reikninginn
fyrir flugfélögin. Pan Am hefur
tapað fé undanfarin sex ár, en á
þessu ári er gert ráð fyrir að
dæminu veröi snúiö viö.
Það er margt sem bendir til
þess aö svo muni veröa, til dæmis
er sætanýting I flugvélum félags-
ins nú 11% meiri en hún var á
seinasta ári.
Pan Am á
Norðurlöndum
— Nú hefur þú aðsetur á
Norðurlöndum. Hvernig hefur
flug Pan Am til Norðurlandanna
gengið?
— Það er rétt, ég sé um
Noröurlöndin og hefi aösetur I
Kaupmannahöfn: Það hafa veriö
erfiöleikatimar I efnahagsmálum
Norðurlanda á árinu 1975 og það
sem af er 1976.
Sviþjóð á við vissa örðugleika
að etja, en ástandiö I Noregi er að
batna. Munar þar mestu um oli-
una I Norðursjó. Sama er að segja
um Danmörku þar hefur verið
samdráttur og verðbólga. Þetta
hefur sin áhrif á flugið.
Við fljúgum daglega til Kaup-
mannahafnar með breiðþotum,
B-747. Auk þess fljúgum viö frá
San Francisco um London til
Bergen og Osló. Þetta nefnum við
flugið til Vestur-Skandinavlu.
Hins vegar íljúgum viö ekki
reglubundið til Sviþjóðar og Finn-
lands, en höfum þar skrifstofu og
fljúgum leiguflug með ferðahópa.
— Hvers vegna fijúgiö þið til
tveggja flugvalla f Noregi?
— Þetta er vegna ferðamanna
og ferðahópa. Þeir sem koma til
Norðurlanda, vilja byrja á Kaup-
mannahöfn, og enda ferðina I
Bergen, eöa öfugt. Þaö væri
óhugsandi að enda Norðurlanda-
feröina á sama staö og hún byrj-
ar. Osló er höfuðborg Noregs og
mikil alþjóðleg viðskiptamiðstöð.
Þangaðleggja margir leið sina og
þess vegna fljúgum við þangað.
— Einkenni Norðurlanda-
markaösins er það sama og á Is-
landi. Yfir sumartimann ferðast
allir, og það eru hreinustu vand-
ræði að útvega nógu mörg sæti i
flugvélum. Atta mánuöi ársins
vill fólk yfírleítt ekkí ferðast og
sætaframboöiö er þar of mikiö.
Þetta veldur flugfélögunum erfið-
leikum, þvi að bezt er að þetta sé
sem jafnast allt árið. Efnahags-
ástandið veldur þvl nú að færri
feröast, en megineinkenni feröa-
laga eru árstiðabundnar sveiflur.
Hótel um allan heim
— Nú kemur það fram að Pan
Am rekur hótel vlða um heim.
Hvers vegna reka flugfélög hótel?
— Hótelrekstur er I mjög nánu
sambandi við farþegaflutninga.
Ef við skoöum söguna, þá voru
það oft eigendur gististaða, sem
ráku flutningavagna. Járnbraut-
arfélögin byggðu snemma járn-
brautarhótel, og þaö sama gera
flugfélög. Þau eiga lif sitt undir
þvi, að nægilegt gistirými sé á
viðkomustöðum, þvi aö enginn
ferðast, eða a.m.k. mjög fáir, ef
gistiaöstaða er ekki fyrir hendi.
Með þessu móti, — að reisa hótel,
— skapast möguleiki til að ferð-
ast.
Flugfélögin eru þá ekki ofur-
seld einstökum hótelhringjum
með þjónustu eöa verðlag.
Viö rekum Interkontinental-
hótelin um allan heim, eöa I 46
löndum og einnig Forum hótelin.
Þessi hótel eru i tveim veröflokk-
um. Interkontinental er lúxus-
hótel, en Forum það sem nefnt er
Nýju breiöþoturnar hafa ótrúlegt
flugþol og flughraða. 1 aprfl s.l.
setti Pan Am þota nýtt heimsmet
og flaug umhverfis jörðina i far-
þegaflugi á aðeins 46 klukku-
stundum og 50 sekúndum.
Hér er forsetafrú Bandarikj-
anna við „Frelsisklukkuna” sem
er viðurkenning fyrir þetta flug-
afrek, sem nú er partur af áætl-
unarflugi, eftir að B 747 SP vél-
arnar koinu fram. tslendingar
eiga kost á að taka svona vélar
frá New York og öðrum viðkomu-
stöðum Flugleiða, ef þeir ætla
lengra.
ferðamannahótel, þar er meira
reynt að stilla kostnaði I hóf.
— Ef málið er athugað, þá
hefur skapazt hefð I hótelrekstri.
Vissar lágmarkskröfur eru gerö-
ar, en menn hafa þó misjöfn fjár-
ráö, svo ein gerð af hótelum nægir
ekki öllum mönnum.
Hótelreksturinn gefur flugfé-
lögunum aukið svigrúm og ekki
sizt Pan Am, þvi að við ráðum
yfir alþjóðlegu fjarskiptakerfi og
getum séð mönnum fyrir flugfari
og gistingu um allan heim, við
sanngjörnu verði.
Ætla ekki að keppa við
Flugleiðir hf.
— Nú hafið þið opnaö skrifstofu
á islandi. Hvenær verður byrjað
að fljúga aftur til tslands?
— Já, meðal viðkomustaða,
sem lagðir voru niður til þess að
vinna bug á oliukreppu og efna-
hagsvandræðum heimsins, var
ísland. Við lögðum niður flug til
margra staða, eins og áöur hefur
verið sagt.
Viö opnum skrifstofu á Islandi I
sérstökum tilgangi.
Við teljum á hinn bóginn, að
ekki sé markaður fyrir nýtt flug til
og frá landinu, og munum þvi
ekki hefja samkeppni viö Flug-
leiðir. Þaö yröi báðum til tjóns.
Það, sem við erum að sækjast eft-
ir, er að vinna meö Flugleiðum og
fá islenzka feröamenn til þess aö
fljúga með Pan Am út um allan
heim. Ferðamaður frá tslandi
flýgur t.d. til New York með
Flugleiöum og þaðan getur hann
flogiö t.d. til Japan meöf^an Am,
og það sama getur hann gert frá
Kaupmannahöfn og Frankfurt, ef
hann ætlar lengra. Viö bjóðum Is-
lendingum þannig aöild að al-
þjóölegu flugleiðakerfi og alla þá
þjónustu, sem Pan Am véitir.
Þegar menn ferðast, þá verða
þeir að hugsa fyrir ýmsu. Hvar á
maður að gista I Jóhannesarborg,
eða Hong Kong? Hvaö kostar
gisting? Hvað getur maður gert á
svona staö milli vinnu eða er-
inda? Pan Am ræöur yfir alþjóð-
legu fjarskiptakerfi, flugkerfi og
rekur hótel, og hefur samvinnu
við hótel og flugfélög. Það er
þetta, sem skrifstofan I Reykja-
vik mun annast. Viö erum mjög
ánægðir með þá aöstöðu, sem viö
höfum fengið I Reykjavik, og á ég
þar bæði við umboðsmann okkar,
Pál Jónsson, forstjóra, sem þrátt
fyrir ungan aldur hefur mikla
reynslu og skilning á flugmálum
og viðskiptum.
Fleira er til en sól og
sandur
— Annar þáttur þessarar starf-
semi veröur aö fá ferðamenn til
þess að koma til tslands. Þeir
munu þá koma til áöurnefndra
flugvalla og ferðast með flugvél-
um Flugleiöa siðasta spölinn til
Islands. Viö gerum til dæmis ráð
fyrir að japanskir ferðamenn
muni brátt leggja leið sina I aukn-
um mæli til tslands, og unnið
verður að kynningu á tslandi
meðal margvislegra félagshópa.
tsland hefur að minni hyggju ó-
mælda möguleika til þess að taka
við auknum ferðamannastraumi.
Landið er sérkennilegt og fagurt
og hefur upp á margt aö bjóða, —
en sól og sandur er ekki lengur
einhlitt til þess að vekja áhuga og
löngun ferðamanna til þess að
heimsækja lönd. Menntun fólks
hefur fleygt fram, og áhugamálin
eru þvi mun fleiri en áður var.
Pan Am hefur mjög fullkomna
ferðamannaþjónustu, þar sem
unnt er að veita upplýsingar um
staði, borgir og lönd um allan
heim. Ef einhver spyr um Island,
eða spyr um eitthvað, sem unnt er
að gera á Islandi, þá er nú orðið
unnt að svara þeim hinum sama á
Pan Am-skrifstofum I svo að
segja öllum löndum heims.
Við fljúgum ekki til Finnlands,
samt höfum við þar skrifstofu og
höfum getaö beint vaxandi ferða-
mannastraumi til Finnlands, og
margir Finnar fljúga með okkur
á alþjóðaflugleiðum.
— Eruð þið bjartsýnir á árang-
urinn á tslandi?
— Það held ég að unnt sé aö
fullyrða. öll framvinda flugmála
og feröamála er reist á bjartsýni
og reynslu. Pan Am væntir mikils
af samstarfi við tslendinga, flug-
félögin og aðra, sem hlut eiga að
máii.
JG
Boeing 747 SP sem flýgur i einum áfanga frá Bandarfkjunum til Japan.