Tíminn - 05.09.1976, Blaðsíða 40

Tíminn - 05.09.1976, Blaðsíða 40
► V >■'"...............................> Sunni.úa{;ur 5. septeinber 1976 - FÓÐURVÖRURj þekktar UM LAND ALLTi fyrir gæði Guöbjörn Guöjónsson Heildverzlun Siðumúla 22 ,Símar 85694 8. 85295 t LEIKFANGAHÚSIÐ Skólavörðustig 10 - Sími 1-48-06 BRUÐU Póst- sendum' -vagnar -kerrur -rúm /•ALLAR TEGUNDIR .. ” ' \ FÆRIBANDAREIAAA FVRIR Lárétta færslu Einnig: Færibandareimar úr ryöfriu og galvanfteruöu stáli ÁRNI ÓLAFSSON & CO. ...ii ■ —i 40088 a 40098—- Húsnæðisvandræðin valda því að íbúum í Eyjum fjölgar ekki eins og rúð var fyrir gert Mikið starf er unnið við vikurhreinsun f Eyjum. FB-Reykjavik. tbúar Vest- mannaeyja eru enn ekki orðnir eins inargir og þeir voru fyrir gosið 1973. Þrátt fyrir það, er þar aliti fullum gangi, og atvinnulif i miklum blóma, eins og fram kemur i viðtali viö Pál Zóphonias- sonbæjarstjóra i Eyjum, sem hér fer á eftir. — Atvinnuiifið hefur verið i miklum blóma að undanförnu. Sumarvertiðin er sú bezta, sem komið hefúr i langan tima, og atvinnahefur veriðnæg alls stað- ar. Það hefur i för með sér að tekjur bæjarsjóðs hafa skilað sér sæmilega vel, sem siðan stuðlar að því, aö hægt hefur verið að halda uppi þeim dampi, sem hér hefúr verið alit frá goslokum. Iþróttahúsið hérverðurallt vigt 12. september næst komandi. Þetta er iþróttahús og sundhöll. Laugin er 25x11 metrar að stsa’ð með búningsklefúm. 1 miðbygg- ingu er-funda- og félagsaðstaða, og einnig er þarna iþróttasalur meö löglegum keppnisvelli 20x40 m. Völlurinn er þriskiptanlegur, ogerþað gert vegna skólanna, og þar af leiðandi eru þarna sex bún- ingsklefar. Kemur þetta i stað gömlu salanna, sem voru orðnir allt of litlir. Þetta mannvirki var boðiðút á heimsmarkaöi, og þrjú tilboð bárust Leitað var samn- inga við tvo aðila, ogsamningar tókust. Byggingaframkvæmdir hófust fyrir rúmu ári, eða i júni 1975. Samningsveröið var 360 milljónir króna. Siðan hafa orðið gengisbreytingar og verðhækk- anir, sem erusliku samfara. Aðr- ar verðhækkanir hafa ekki verið á sam ningstimabi linu. 1 þessari upphæð eru ekki innanstokksmun- ir, en söfnun hér í bænum fyrir öllum innanstokksmunum, bún- aði og tækjum, hefur gengiömjög vel, og er hún komin yfir 10 mill- jón króna markið, sem menn voru búnir að setja sér. Ferjan hefur valdið straumhvörfum — Samgöngumál Vestmanna- eyja hafa batnað til muna við til- komu ferjunnar. Stuttu eftir að ferjan kom var lokið við frágang aðstöðu fyrir hana hérna megin, þannig að hægter að aka bifreið- um til og frá. Vonir standa til, að innan tíðar verði sama aðstaöa komin i Þorlákshöfn. Miklir rekstrarörðugleikar hafa einmitt veriö i sambandi við það, að sú aöstaða hefur ekki verið fyrir hendi, en eru vonandi fljótlega úr sögunni. Hreinsun og sáning — Mikið hefur verið unniðhér i sumar á vegum, eða fyrir tilstuðl- an Viðlagasjóðs að uppgræðslu. Vikurfok- var, og er reyndar enn, mjög hvimleitt hér. Nær óbyggi- legt hefur verið i sumum hlutum bæjarins vegna þessa. Stjórn Við- lagasjóðs ákvað að gera stórt á- taka i uppgræðslumálum i sumar. Dreift hefur verið mold yfir vikurfláka á suðausturhluta eyj- unnar, ogsáði. Einnig hafa hliðar Helgafells verið hreinsaðar, og i þær sáð, og svæðið milli fellanna er að verða tilbúið. Þetta hefur mælzt mjög vel fyrir, og má segja, að allir hafi verið mjög á- nægðirmeð, að þessi framkvæmd skyldi hafa tekizt eins vel, og raun ber vitni. Viölagasjóður verður lagður niður nú um áramótin. Ennþá er óvist, hvernig viðskilnaður hans veröur. Ýmis mál hafa ekki verið leyst, og á ég þar við uppgjörsmál við bæjarsjóð, en allt útlit er fyrir, að þessu verði lokið fyrir þann tima. Þaö, sem hefur verið hvaö erfiöast er, að á þeim tima, sem liðinn er frá gosinu, hefur verðbólgan verið geysileg, og þær verðbætur, sem greiddar hafa verið, hafa verið miðaðar við verðlag 1973. Þar af leiðandi hafa þeir fjármunir orðið rýrari en ella, þegar átt hefur að fara að nota þá núna. Eitt af grundvallarskilyrðum þess, að hafizt gæti heimflutning- ur og búseta hér, var að sjúkra- húsið væri tilbúið, og aðstaða þar i lagi. Bæjarsjóður hefur lánað rikissjóði yfir 150 milljónir til þess að ljúka við sjúkrahúsið. Þarna er bundið fé, sem bæjar- sjóður sem slikur, hefur orðið að leggja til, sem siðan hefur orðið til þess að tefja aðrar nauðsyn- legar framkvæmdir, þótt þær séu ef til vill ekki eins nauðsynlegar og sjúkrahúsbyggingin, er honum ber einum að sjá um að fram- kvæma. Uppbygging nýrra hverfa — Strax og hreinsun hófst árið 1974 var ákveðið að aka vikri, sem tekinn var i bænum, á bygg- ingarsvæðið á vestureyjunni. Fyrir lá skipulag á þvi hverfi, sem að vfsu var ætlað að endast til aldamóta, en þar er nú búið að ganga frá götum og lóðum, hol- ræsi hafa verið lögð, og einnig vatnslagnir og rafmagn, þar sem þess þarf með, og fjarhitun er einnig komin i öll hús, sem þess þurfa með. Vorið 1974 var farið að ræða um það, hvernig upphitun þessara húsa skyldi verða, og mikið rætt um rafmagnshitun. Vegna þess, hve varaafl er bæði dýrt i upp- setningu og rekstri þegar um beina húshitun er að ræða, var á- kveðið að byggja f jarhitunarstöð með möguleika á þvi, að hægt væri að nýta rafmagn til upphit- unar á vatninu, og fá það raf- magn á hagstæðu verði, þar sem þetta gæti verið það sem kallað er ótrygg orka. Þá lá llka fyrir, að þegar búið væri að finna aöferðir og reyna til þrautar nýtingu hraunvarmans, þá væri þetta kerfi tilbúið til þess að taka viö þeim hita. i Safnahús og skólamál — Hér er nú í byggingu safna- hús, meö bóka- og byggðasaftii. Hafizt var handa um þessa fram- kvæmd við gos, og er nú verið að ljúka við bókasafnsbygginguna, enda fór sú bygging, sem bóka- safnið var I, undir hraun. Byggðasafnið verður á efri hæð- inni, og er reiknað með, að það geti flutzt i húsnæðið að ári. 1 nýja hverfinu vestur frá er gert ráð fyrir, að annar af tveim- ur grunnskólum Vestmannaeyja verði. Uppbygging þar hefur gengiðhægar, enreiknaðvarmeð i fyrstu, og ekki er heldur komin nægilega langt undirbúningur að þeim grunnskóla, svo að ekki hefur verið hægt að hefja fram- kvæmdir við hann. Bæjarsjóður er hins vegar að reisa litið timburhús, sem á að vera skóli fyrir yngstu árgangana i þessu hverfi, svo að þeir þurfi ekki að ganga eins langt i skólann i vetur i misjöfnum veörum. Ekki er heldur húsrými f gamla barna- skólanum fyrir þessa bekki. 1 undirbúningi hefur verið aö koma hér á fjölbrautaskólakerfi. Það hefur gengið hægar en viðhöfðum vonazt til. Þó er kominn visir að þvi þar sem búið er að sameina Vélstjóraskólann og Stýrimanna- skólann i húsnæði Iðnskólans. Voru þeir reknir sem sameigin- legur skóli i fyrra. I fyrra var þar 1. stig i vélstjóra- og stýrimanna- skólanum, hvorum fyrir sig, en fullt iðnskólanám, og i vetur verða tvö stig i fyrrnefndu skól- unum tveimur. Er reiknað með, að yfir 100 nemendur verði i Iðn- skólanum, en um 20 i hvorum hinna tveggja. I gagnfræðaskólanum er reikn- aö með, að i fimmta bekk verði þrjár valgreinar, verzlunar-, mennta- og hjúkrunargrein. Von- andi tekst að ljúka undirbúningi að fjölbrautaskólanum. Mikil efturspurn er hér eftir dagvistunarrými. Hér eru nú um 120 dagvistunarpláss, en þyrftu að vera milli 150-170 til þess að anna brýnustu þörfum, og er reiknað með aö reyna að leysa vandann i ár til bráðabirgða. í leikskólunum eru börn fyrir ogeftir hádegi, um 40 i hvert sinn. Siúkrahús verður ráð- hús — Ég sit núna i gamla sjúkra- húsinu, sem viö erum búnir að breyta i ráðhús. Hingað erum við fluttir með tvo þriðju hluta af starfsemi okkar ogverðum fluttir hingað inn að fullu fyrir eða um áramótin. — Mikið hefur verið unnið i málum eins og gatnagerð, vatns- veitu og fjarhitun. Byrjað er að gera við gömlu göturnar, og byrjað var á gangstéttununm. Reiknað er með, að byrjað verði siðan á lagfæringu fjölförnustu gatnanna, þar sem búið er að koma fyrir fjarhitunarleiðslum, og öðrum þ'eim leiðslum, sem skipta þarf um. Sama verður um malbikunarframkvæmdir. Þær munu dreifast á ein 10 ár, nokkuð jafnt. Verið er að undirbúa bygg- ingu á vatnstanki fyr:- efra hverfið, þ.e. það hverfi, ö3m er fyrir ofan núverandi vatnstank. — Hafnarframkvæmdir hafa verið hér nokkrar. Byrjað er að endurleggja rafmagn og vatn á bryggjur. Unnið er jöfnum höndum að dýpkunarfram- kvæmdum, en mikill vikur fór i höfnina, og er verið að hreinsa hann upp, koma honum i uppfyll- ingar, eða hann er fluttur út fyrir höfnina. — Stærsta vandamálið hér er húsnæðismálin. Búsetaeða heim- flutningur fólks hingað ræðst af þvi húsnæði, sem til er á hverjum tima. Hingaðeru komnir um 4300, sem búa hér, þótt eitthvað fleiri séu hér á skrá. Reiknað var með þvi, að 1. desember 1977 yrði kominn sama ibúatala hér og fyrirgosið, en þaðverðurekki.og dregst trúlega allt fram til 1980. Bæjarsjóður hefur tekið þátt i byggingu ibúða til sölu á kostn- aðarverði,isama formi og verka- mannabústaðir. Einnig hafa verið byggðar 11 leiguibúðir, og hér er I notkun bráðabirgðahús- næði, sem eru smáhúsin, sem fyrst voru reist í Hveragerði, en siðan flutt hingað til Vestmanna- eyja. Verða þau svo i framtiðinni seld, eftir þvi sem hætt verður að nota þau, og eru þau þá mjög hentug sem sumarbústaðir og þvi um likt. Efnt hefur verið til samkeppni um skipulagningu miðbæjar- svæðisins hér og hverfin, sem verstfóru undan vikurfarginu. Er búiztvið.aðmikið gott komi út úr þessari samkeppni, og hún komi til góða við framkvæmdir hér. Páll Zóphoniasson sagði að lokum, að þetta væri aðeins laus- legt yfirlit yfir það helzta, sem á döfinni væri i Eyjum, og unnið væri að þessa stundina. Margs annars mætti eflaust geta, en við látum hér með staðar numið. Þessi mynd er úr ferjulæginu I Vestmannaeyjum. Nýja Vestmannaeyjaferjan hefur bætt mjögúr samgöngumálum Eyjanna. (Timamynd:Þórarinn M. Friöjónsson). *

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.