Tíminn - 05.09.1976, Blaðsíða 19

Tíminn - 05.09.1976, Blaðsíða 19
Sunnudagur 5. september 1976 TlMINN 19 (Jtgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Ritstjórn- arfulltrúi: Freysteinn Jóhannsson. Auglýsingastjóri: Steimgrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur I Edduhús- inu viö Lindargötu, simar 18300 —18306. Skrifstofur I Aöalstræti 7, simi 26500 — afgreiðsluslmi 12323 — aug- lýsingaslmi 19523. Verö I lausasölu kr. 50.00. Askriftar- gjald kr. 1000.00 á mánuöi. Blaöaprent h.f. Að búa til þjóðsögu í stjórnmálabaráttu, sem á mörgum öðrum svið- um, er áróður hafður uppi. Það er eðli mála sam- kvæmt, og verður ekki hjá þvi komizt, ef ekki á að falla deyfð og dofi yfir allt. Aftur á móti er áróður af ýmsu tagi. Hann getur bæði verið góðkynjaður og illkynjaður. Af lakara taginu er sú árátta að geta aldrei unnt andstæðingi sannmælis. Á þetta er hér drepið fyrir þær sakir, að nú að undanförnu hefur hvað eftir annað skotið upp kollinum mikil hneigð til þess að sverta vinstri- stjórnina, sem sat að völdum á árunum 1972-1974. Mest hefur kveðið að þessu i forystugreinum i Morgunblaðinu. Þarna er sýnilega verið að reyna á skipulegan hátt að búa til þá þjóðsögu, að vinstri- stjórnin hafi verið afleit. Þetta á vafalaust að heita stjórnmálabarátta. Ef lengra væri um liðið, myndi þetta kallast sögufölsun. Vinstristjórnin áorkaði mjög miklu á skömmum tima. Hún færði fiskveiðilögsöguna út i fimmtiu milur eftir langt aðgerðaleysi á þvi sviði, og einmitt þess vegna erum við þangað komin, er við stöndum nú. Og hún hratt af stað hreinni og beinni atvinnu- byltingu i fjölda byggðarlaga, sem áður höfðu lengi verið látin hanga á horriminni. Velmegun fólks á þessum stöðum, endurvakin trú á heimahagana og nýju ibúðahverfin eru tákn þessa stórvirkis. Fram hjá þessu og ótal öðru er litið, þegar Morgunblaðið er að reyna að búa til þjóðsögu sina. Aftur á móti er verðbólgan á árinu 1974 vafninga- laust skrifuð á reikning vinstristjórnarinnar, þótt svo það væri Sjálfstæðisflokkurinn, sem þá átti meginþátt i að knýja fram kosningar, þegar fyrst af öllu hefði átt að bregðast til varnar gegn aðsteðj- andi verðbólgu. Þegar upp úr sýður i landinu vegna misræmis i skattalagningu, bregður Morgunblaðið hart við og eignar vinstristjórninni þennan þáttinn, þótt sannleikurinn sé sá, að allir flokkar bera ábyrgð á þvi, hvernig þessi mál hafa verið. Stuðn- ingsflokkar „viðreisnarstjórnarinnar” gengu meira að segja svo langt að ætla að gera hlutafjár- gróða skattfrjálsan. Skattstofurnar sveltar í öllum þeim umræðum, sem orðið hafa um skattamálin, hefur þvi litið verið á loft haldið, hvernig búið er að skattstofunum og starfsfólki þeirra. Lögfræðingur skattstofunnar i Reykjavik, Bergur Guðnason, hefur i blaðaviðtali lýst þvi, hvernig hæf- asta fólkið flýr stofnunina vegna bágborinna launa, en þrjú ár tekur að fullþjálfa fólk i stað þeirra, sem fara. Þess munu dæmi, að menn hafi hækkað um sjö launaflokka við að flýja úr skattstofunni i aðra rikisstofnun skylda. Gott, vel hæft og þjálfað starfslið er forsenda þess, að skattstofan geti framfylgt lögunum að þvi marki, sem þau sjálf leyfa. Skattstjórinn i Reykja- vik, Halldór Sigfússon, hefur sagt i öðru blaðavið- tali: „Gerbreyting á afstöðu fjárveitingavaldsins til launamála á skattstofum og aðstöðu þeirra er frumskilyrði bætts skattaeftirlits”. Við framhaldskönnun á skattframtölum siðari hluta árs koma að jafnaði i leitirnar miklar tekjur, sem hækka skattinn samtals um hundruð milljóna. Engar nýjar ráðstafanir hafa enn verið gerðar til þess, að þessi eftirleit geti orðið sem áhrifamest i ár. —JH Úr Arbeiderbladet: Konan, sem er lög- þingsforseti í Noregi Meðal tuttugu og fjögurra kvenna, sem sæti eiga á norska stúrþinginu, er Torild Skard, þrjátiu og niu ára gömul, dótturdóttir hins al- kunna stjórnmálamanns Halvdans Kohts. Hún var for- maður félags Stúdentafélags sósialista, er það var rekið úr Verkamannaflokknum áriö 1959. Að loknu námi varð hún lektor i Oslóarháskóla og árið 1973 var hún kosin á þing i Akershús-kjördæmi af lista Sósialska vinstriflokksins. Nú er hún forseti lögþingsins. A sumrin dvelst hún ýmist i sumarhúsi á mjög afskekktum stað, þar sem hvorki er simi né borinn út póstur og les ævi- sögur kvenna, sem fremstar hafa staöið i flokki byltingar- sinnaðra manna — Rósu Luxemburg, Emmu Gold- mans og Alexöndru Kollontay, eöa þá feröast um hina nyrðri hluta Noregs til þess að kynna sér lif og landshætti þar. Enda þótt hún sé forseti lög- þingsins, litur hún svo á, að Stórþingið sé enn samkunda karlmanna, og I viðtali við Arbeiderbladet segir hún um þetta: — Starfsfólk þingsins er enn beitt þessu venjulega misrétti kynjanna, og konur, sem sæti eiga á Stórþinginu, eru lika settar skör lægra en karlar I reynd, þótt jöfnuður sé, aö þvi er tekur til launanna. Þjóðfé- lagið allt er samfélag karl- manna, og stjórnmál einkenn- ast sér i lagi af karlmenn- ingunni. Stórþingið er vett- vangur, þar sem þetta kemur sérlega skýrt fram, til dæmis I samanburði við sveitar- stjórnir. Stórþingið hefur meira vald, og þingmennska er ekki igripavinna. — Hversu fáar konur eiga sæti á þingi, segir Torild Skard enn fremur, er þvi að kenna, að þau öfl, sem ættu að setja mót sitt á stórþingið, eru veik og tvistruð. Sextán af hundraði þingmanna eru kon- ur, og fáar þessara kvenna eru sérlega herskáar. Eigi konum að vegna vel á stjórnmála- brautinni, verða þær að að- laga sig kerfinu, sem karl- mennirnir hafa byggt upp, og haga sér a ð mestu leyti eins og þeir. Torild Skard segir, að það sé þó úreltur hugsunarháttur, að konur eigi að hreppa nákvæm- lega hið sama og karlmenn- irnir. Það sé nútimalegra viðhorf að leggja á þaö áherzlu, að konur eigi ekki að vera eins og karlmenn, heldur njóta sömu virðingar og réttar eins og þeir. — Við viðurkennum, segir hún, að þaö sé munur á kynj- unum, sem ekki verður þurrk- aður út, einkum félagsiega og menningarlega. En þessu fylgir, að konur eiga ekki að- eins að fá réttmæta hlutdeild i stjórnmálunum, heldur verða stjórnmálin einnig að mótast að réttmætu leyti af félags- legum og menningarlegum viðhorfum kvenna. Torild Skard telur, að þaö sé ekki liklegt til fylgisauka að berjast hart fyrir málefnum kvenna, og það segir hún eiga viö, hvar i flokki sem sé. Hún ber sósialismann þeim sökum að hafa lengi vanrækt málefni kvenna og telur þó að vonum sinn flokk einna skárstan. Sjálfri var henni boðin for- mennska i þingflokknum. En hún hafnaði þvi. Hún segir, að I þvi starfi hefði það orðið fjötur um fót að vera kona. Hún telur að visu, aö konur eigi ekki aö hika við aö taka að sér forystu á mörgum sviðum, en á hinn bóginn sé sú stund ekki upp runnin, að timabært sé fyrir konu að taka að sér að vera leiðtogi ein sins liðs. Þetta rökstyður hún á þann veg, að kona i sliku sæti myndi ánetjast þvi stjórnmálakerfi, sem karlmennirnir hafa mót- að og viðhalda enn. Þar sem fleiri mynda forystusveit, gegnir öðru máli, segir hún, þvi að þar verður hlutverka- skiptingu komið við, og konan getur farið sinar götur. Þegar sá dagur kemur, að karlar og konur verða til helminga á þingi, og bæði kynin hafa sama styrkleika og jafna aö- stöðu til þess að móta stjórn- málin — þá er kominn timi til þess, að kona gerist leiðtogi flokka innan þings og utan, ef hún hefur traust og fylgi til þess. — Eg er hrædd við, að kon- ur geti orðið nokkurs konar gislar s.tjórnmálaflokka, segir hún. Þannig hugsar róttæk kona, sem til trúnaðarstarfa hefur veriðkjörin i Noregi, og á kost á þeim fleiri en hún vill þiggja. Aö loknu samtalinu grúfir hún sig aftur yfir ævisögu by ltingarkvennanna — anarkistans Emmu, kommún- istans Rósu og bolsivikkans Alexöndru. Þrátt fyrir tals- veröan blæmun á þeim, finnur hún hjá þeim öllum viss viðhorf, sem hún telur stafa af þvi, að þær voru konur. Sér- staklega kemur það fram i þvi, hvaða augum þær litu meðölin i þjónustu bylting- arinnar. Þegar blaðamaðurinn spurði hvort hún væri að lesa þessar bækur i mótmæla- skyni við samfélagið, svaraði hún: — Nei, til mótvægis. Ég sæki i þær styrk. Torild Skard

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.